Powell fór ekki til Aþenu 28. ágúst 2004 00:01
Grískir andófsmenn fögnuðu sigri í dag og sögðust hafa þvingað Colin Powell, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til að hætta við að heimsækja Ólympíuleikana í Aþenu. Ekki aldeilis segja aðstoðarmenn Powells; ráðherrann hefur bara of mikið að gera. Powell ætlaði að fara til Aþenu á morgun til að sitja lokaathöfn Ólympíuleikanna en í dag var ferðinni skyndilega aflýst. Talsmaður bandaríska utanríkisráðuneytisins segir að Powell hafi hætt við ferðina vegna anna við að sinna málefnum Íraks og Súdans. Margir telja hins vegar að Powell hafi viljað komast hjá því að mæta andstæðingum sínum sem í gær og í dag fjölmenntu í mótmælagöngum í Aþenu og vönduðu Powell ekki kveðjurnar. Málið er nokkuð vandræðalegt fyrir grísk stjórnvöld því túlka má þessa ákvörðun Powells sem vantraust á skipulag öryggismála í kringum leikana. Giselle Davis, talsmaður Ólympíunefndarinnar, var stutt í spuna þegar hún var spurð um málið og sagði nefndina ekki einbeita sér að neinum einum gesti sem kæmi á leikana. 200 hundruð þúsund manns nytu Ólympíuleikanna í Aþenu og því hefði hún ekkert sérstakt að segja um Powell. Powell hefur í „sárabætur“ ákveðið að sækja Grikki heim í byrjun október.
Erlent Fréttir Mest lesið Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Innlent Réðust á fleiri olíuflutningaskip Erlent Töluðu saman í klukkutíma Erlent Bannar innflutning á kanadískum vörum Erlent Segir þörf á samheldni innan „evrópsku fjölskyldunnar“ Innlent „Við getum verið að fara inn í alveg ískaldan vetur“ Innlent Aðeins um 28 prósent innflytjenda með grunnfærni í lesskilningi Innlent Vanti ekki fjármagn eða hjálpargögn heldur þrýsting á Ísrael Innlent „Það kostar peninga að afla peninga“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Fleiri fréttir Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Klerkastjórnin missir tökin Rússar svara fyrir sig Ísland á Ameríkukorti Trumps Stöðnun og dýrtíð að baki stórsigri AfD Kanslarinn segir sigur AfD draga dilk á eftir sér Svíþjóðardemókrati í leyfi vegna Rússaáróðurs og hreinsanir á vinstri vængnum Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Útgönguspár benda til stórsigurs AfD Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Gengið til tímamótakosninga í Þýskalandi Funda um framgang stríðsins: „Þeir eru á ómögulega slæmum stað“ Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Funduðu í Moskvu um endalok stríðsins Sjá meira