Annarri vélinni grandað 27. ágúst 2004 00:01
Hryðjuverkamenn grönduðu í það minnsta annarri rússnesku farþegaþotunni sem fórst fyrr í vikunni. Íslamskur öfgahópur segist hafa rænt báðum vélunum og sprengt þær í hefndarskyni fyrir morð á múslímum í Tsjetsjeníu. Rússnesk stjórnvöld hafa til þessa ekki viljað ganga svo langt að segja að hryðjuverk séu líklegasta skýringin á því að tvær farþegaþotur fórust á sama tíma. Það var fyrst í dag sem talsmaður rússnesku öryggisþjónustunnar, Nikolai Zakharov, greindi frá grunsamlegum vísbendingum. Hann segir að leifar sprengiefnis, sem talið er að sé hexógen, hafi fundist í braki annarrar vélarinnar, flugs Tu-154, en rannsókn stendur enn yfir. Sprengiefnið er hið sama og tsjetsjenskir hryðjuverkamenn hafa notað til árása. Yfirvöld hafa grunsemdir um að nokkrir farþegar tengist tsjetsjenskum hryðjuverkahópum. Íslamskur öfgahópur, sem ber sama nafn og hópur sem tengist al-Kaída, sendi í dag frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fimm hryðjuverkamenn hafi verið um borð í hvorri vél, að þeir hafi rænt vélunum og beri ábyrgð á því að þær hafi hrapað. Sagt var að þetta væri gert í hefndarskyni fyrir morð á múslímum í Tsjetsjeníu. Vísbendingarnar eru þó allar bundnar við aðra vélina. Enn er með öllu óljóst hvað varð til þess að hin vélin hrapaði. Frá fyrsta degi hefur grunur leikið á að tsjetsjenskir hryðjuverkamenn bæru ábyrgðina og bent var á að leiðtogar aðskilnaðarhópa hefðu heitið því að valda uppnámi í aðdraganda kosninga í héraðinu.
Erlent Fréttir Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira