Mikið uppnám í Rússlandi 25. ágúst 2004 00:01
Hryðjuverk eru talin hugsanleg ástæða þess, að tvær rússneskar farþegaþotur fórust með nokkurra mínútna millibili í nótt. Um níutíu manns voru í vélunum tveimur og létust allir. Fjölmiðlar í Rússlandi segja ellefta september runninn upp í Rússlandi. Vélarnar tóku á loft frá Domodedovo-flugvelli í Moskvu með fjörutíu mínútna millibili en hurfu báðar af radarskjám á nánast sama augnabliki. Fyrri vélin, af gerðinni Tupolev 134 í eigu flugfélagsins Volga Avie Express, tók fyrst á loft. Flak hennar fannst í morgun um 160 kílómetra suður af Moskvu. Sjónarvottar segjast hafa séð sprengingu um borð í vélinni áður en hún hrapaði. Brak vélarinnar fannst nánast í einum haug svo að telja má að hún hafi ekki sprungið á flugi. 42 fórust með vélinnni. Seinni vélin, af gerðinni Tupolev 154 í eigu flugfélagsins Sibir, hrapaði á sama tíma um 150 kílómetra frá bænum Rostov-á-Don. Rússneska fréttastofan Interfax greindi frá því að neyðarkall hefði borist frá vélinni, en misvísandi upplýsingar berast um hvort að tilgreint var að hryðjuverkamenn væru um borð, eða hvort að það var fremur almenns eðlis. Flugumferðarstjóri í Moskvu lét lögreglu vita að áhöfn vélarinnar hefði orðið fyrir árás skömmu áður en vélin hvarf af ratsjárskjám. Embættismenn á vettvangi segja flak vélarinnar hafa splundrast á flugi, og að brak úr því sé dreift yfir allt að fimmtíu kílómetra svæði. Á milli fjörutíu og sex og fimmtíu og tveir voru um borð, og fórust allir. Atvikin hafa valdið uppnámi í Rússlandi, enda þykir með ólíkindum að vélarbilanir geti valdið tveimur flugslysum með nokkurra augnablika millibili. Báðar vélarnar eru sagðar hafa verið í góðu ástandi, vel við haldið og áhöfnin vön. Öryggiseftirlit á flugvöllum í Rússlandi hefur þegar verið hert og Vladímír Pútín, forseti Rússlands hefur skipað öryggisþjónustunni að rannsaka atvikin til hlítar. Talsmaður öryggisþjónustunnar segir að engar vísbendingar hafi fundist á vettvangi sem bendi til hryðjuverka, en þó sé ekki hægt að útiloka neitt. Á sunnudaginn verða forsetakosningar í Tsjetsjeníu, til að kjósa eftirmann Ahmeds Karyrovs, sem ráðinn var af dögum í maí. Uppreisnarmenn í Tsjetsjeníu hafa hótað því að valda uppnámi í kringum kosningarnar, en talsmaður aðskilnaðarsinnans Aslans Maskhadov neitar aðild að hugsanlegum hryðjuverkum. Rússneskir fjölmiðlar fjalla þó um atburðina eins og um hryðjuverk hafi verið að ræða, og segja þetta samsvara hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin ellefta september 2001.
Erlent Fréttir Mest lesið Snör viðbrögð björguðu ellefu ára dreng þegar hoppukastali tókst á loft Innlent Kristrún situr fyrir svörum og opnað verður fyrir símann Innlent Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Erlent Vilja hefja einn stærsta flugvöll landsins til vegs og virðingar Innlent Yngsta barnið sem fékk boð um pláss fimmtán mánaða Innlent Á annað hundrað leituðu til HSU yfir verslunarmannahelgina Innlent Ekki á dagskrá að opna bókhaldið Innlent Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður? Innlent Þjónusta Verifone og Rapyd lá niðri Innlent Hnífjafnt í nýrri könnun Innlent Fleiri fréttir Tómar hillur í vopnabúrum Bandaríkjanna Rússneskur drónasmiður á gjörgæslu vegna bílsprengju Kona stakk fjóra í Lundúnum Rauðar veðurviðvaranir í tugum ítalskra borga Sjálfsprengidróni fannst á flugvelli í Þýskalandi Algjörlega varnarlausir gegn skotflaugum Rússa Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnarhraða Handtekinn á golfvelli Trump með hlaðna byssu Ein mannskæðasta árásin á Kænugarð á þessu ári Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu „Hverjir eru á bak við það?“ Greiða leið fyrir Blanche að embætti dómsmálaráðherra „Veiddu“ grænmetissala með dróna Lýsti mikilli örvæntingu áður en hún myrti börnin sín „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Sjá meira