Verðugur ráðherra: Condo Rice 19. nóvember 2004 00:01 Nýr utanríkisráðherra Bandaríkjanna - Jón Valur Jensson guðfræðingur Þungu fargi er af þeim létt sem óttuðust um stund að utanríkisstefna Bandaríkjanna yrði sveigð til eftirgjafar og undanhalds með nýjan og veikari mann á forsetastóli, veraldarhyggjufrömuðinn Kerry. Enginn gat treyst honum í utanríkismálum, eins og hann hafði lýst stefnu sinni með því að slá úr og í, auk þess að opinbera tvöfalt siðferði að því er tók til þess að fylgja eftir kristnum innblæstri um ólík úrlausnarefni í stjórnmálum. Hin fluggreinda dr. Condolezza Rice hefur geypilegan talent í starf utanríkisráðherra, fyrsta flokks menntun, góðan bakgrunn og alhelguð þessum málaflokki og þjóðaröryggi um langt árabil. Glæsileg frammistaða hennar fyrir aðgangsharðri þingnefnd (í beinni útsendingu) í sambandi við viðbrögð stjórnvalda vegna árásanna 11. sept. 2001 vakti aðdáun þess sem þetta ritar. Einlæg kristin trú hennar gerir ekki annað en mæla með henni í augum réttsýnna. Hún er no-nonsense manneskja sem lét ekki mata sig á innantómum blekkingum, auvirðilegum undanfærslum og hráskinnaleik þegar leiðtogar talíbana í Khabúl þóttust enga ábyrgð bera á Osama bin-Laden, en harðneituðu samt að framselja hann -- fyrr skyldu þeir falla með honum! Aðeins ein ríkisstjórn (Pakistans) hafði þá viðurkennt stjórn þeirra sem löglega, meðan umheimurinn horfði upp á harðstjórnina með undrun og skelfingu. Það er tímaskekkja (eins og gert er á Vísir.is 18/11) að ásaka Condolezzu fyrir einarðan hlut hennar að því, að talíbanar voru sviptir völdum og æfingamiðstöðvar al-Qaída upprættar í Afganistan. Flestöll lönd létu sér það þá vel líka, enda var mannfall sáralítið miðað við þá rúmu einu og hálfu milljón sem féll í landvinningastríði Sovétmanna þar 1979-89.Það er vonandi að dr. Rice hafi frumkvæði að því að SÞ taki engum vettlingatökum á Darfúr-fjöldamorðunum (sem eru ekkert minna en glæpsamleg þjóðernishreinsun) og sendi þangað friðargæzlulið; en ef Öryggisráðið veldur ekki verkefninu eða neitunarvaldi verður enn beitt í því skyni að sprengja upp samstöðu á þeim vettvangi, þá verða Bandaríkin að fara inn í Darfúr í bandalagi með þeim staðföstu þjóðum em gefa sig fram. Bush forseti á heiður skilinn fyrir að skipa (einn allra stórveldaleiðtoga) konu, sem m.a.s. er ekki ‘hvít’, á stól utanríkisráðherra. En það talar skýrum stöfum um hugarástand vestrænna róttæklinga, að þegar risaveldið lætur verðleika konu ráða við stöðuveitingu, þá byrjar vinstra/frjálslyndis-fjölmiðlagengið að hlaða sín útbrunnu batterí með ófrægingarsögum af þessum nýja, ógnvænlega utanríkisráðherra! Þar er einfaldlega verið að búa í haginn fyrir áframhald rógsherferðar gegn því ríki sem hingað til hefur staðfastlegast bjargað þjóðum Evrasíu frá brúnum, svörtum, rauðum, japönskum og múslimskum yfirgangs- og útþensluöflum -- og það án þess að slá eign sinni á einn einasta ferþumlung lands til frambúðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar