Nýr fellibylur 17. september 2004 00:01
Hver fellibylurinn rekur nú annan í Karíbahafi. Ívan grimmi lék Bandaríkjamenn grátt í nótt og fast á hæla honum bylurinn Jeanne, sem olli mannfalli á sama tíma. Íbúar í suðausturhluta Bandaríkjanna fara ekki varhluta af hamaganginum í Ívani. Nú er ljóst að í það minnsta tuttugu fórust þegar hann gekk yfir í gær, og er óttast að þessi tala muni enn hækka. Á yfirreið sinni um Karíbahaf kostaði Ívan sextíu og níu lífið. Skaðinn sem Ívan olli í Bandaríkjunum var þó minni en óttast hafði verið. Sérfræðingar tryggingafélaga kanna nú skaðann sem Ívan olli, en þeir telja að tjónið sé upp á þrjá til tíu milljarða bandaríkjadollara, eða allt að sjöhundruð og tuttugu milljörðum króna. Björgunarsveitir hreinsa nú til í rústum húsa sem stóðu storminn ekki af sér. Á þriðju milljón íbúa Flórída, Alabama, Georgíu og Missisippi ættu að taka verðmætar eignir úr húsum sínum og drífa sig á brott sagði í tilkynningum á útvarpsstöðvum á Bahama-eyjum í gær og í dag, enda stefnir næsti fellibylur, Jeanne, hraðbyri þangað. Áður gekk hún yfir Dóminíkanska lýðveldið, þar sem tveir týndu lífi. Allt stefnir í að Jeanne sæki enn frekar í sig veðrið og valdi enn meiri usla á leið sinni að mótum Georgíu og Norður-Karólínu í byrjun næstu viku.
Erlent Fréttir Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Gular viðvaranir en svo fremur milt í veðri Veður Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Fleiri fréttir Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sjá meira