Útiloka ekki málshöfðun 15. desember 2004 00:01
Öryrkjabandalagið útilokar ekki að höfðað verði mál fyrir hönd einhverra einstaklinga sem Tryggingastofnun hefur krafið um endurgreiðslu vegna bótagreiðslna í fyrra. Arnþór Helgason, framkvæmdastjóri Öryrkjabandalags Íslands, segir að Tryggingastofnun ríkisins hafi gert alvarleg mistök. Skrifstofa Öryrkjabandalagsins hefur verið undirlögð af fólki síðustu daga sem hefur leitað til bandalagsins vegna kröfugerðar Tryggingastofnunar vegna of mikilla greiðslna. Þriðjungur öryrkja er talinn hafa fengið of miklar bætur vegna ársins 2003 og hefur verið krafinn um endurgreiðslu frá Tryggingastofnun, en kröfurnar geta verið tugir eða hundruð þúsunda þegar verst lætur. Arnþór segir fjölda fólks hafa komið til þess að leita réttar síns á skrifstofu Öryrkjabandalagsins og starfsfólki Öryrkjabandalagsins hafi verið haldið í heljargreipum á meðan. Sett var á laggirnar sérstök nefnd Öryrkjabandalagsins og Tryggingastofnunar til að greiða úr flækjunni en vegna anna starfsmanna stofnunarinnar hefur nefndin ekki enn komið saman. Arnþór segir marga hafa haft samband til þess að krefjast skýringa, en starfsfólk Tryggingastofnunar virðist hins vegar vera illa búið undir að gefa nákvæmar skýringar og hafi jafnvel hreytt ónotum í viðskiptavini. Arnþór segir að Öryrkjabandalagið fallist ekki á neinar endurkröfur Tryggingastofnunar nema í þeim tilvikum þegar um er að ræða mistök lífeyrisþega sjálfra sem hafa þá ekki talið fram tekjur sínar. Oftar sé það hinsvegar stofnunin sjálf sem hafi gert alvarleg mistök. Hann segir Tryggingastofnun eiga að bera skaðann af eigin mistökum í stað þess að koma svona aftan að fólki. Hann segir að skaðabætur vegna vangoldins lífeyris sem eigi rætur að rekja til mistaka löggjafans, eigi ekki að koma til frádráttar lífeyrisgreiðslum eins og sé raunin í fjölda tilvika. Hann útilokar ekki að Öryrkjabandalagið sæki mál fyrir einhverra einstaklinga ef á þurfi að halda. Fyrst þurfi þó að láta reyna á einstök mál fyrir úrskurðarnefnd almannatrygginga. Arnþór segir að Öryrkjabandalagið vilji eiga góð samskipti við Tryggingastofnun, en þetta séu vinnubrögð sem séu fyrir neðan allar hellur.
Fréttir Innlent Mest lesið „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Innlent Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Innlent Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Innlent Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Mjólkurhvít mengun í Sauðá Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira