Tugir látnir og fjölmenni í hættu 13. september 2004 00:01
Kúbverjar bjuggu sig í gær undir miklar hamfarir en búist var við að fellibylurinn Ívan, sem hefur fengið viðurnefnið grimmi eftir samnefndum rússneskum keisara, gengi yfir eyna í gærkvöld eða í nótt. Þá hafði fellibylurinn, einn sá öflugasti sem hefur riðið yfir Karíbahaf frá því mælingar hófust, nýlega látið til sín taka á Cayman-eyjum. Ívan olli minni skemmdum á Cayman-eyjum en víða annars staðar þar sem hann hefur gengið yfir. Ástæðan er sú að húsnæði þar þolir mun meiri ágang en víða á fátækari eyjum Karíbahafsins. Þó bárust víða að fréttir af því að fellibylurinn hefði feykt þökum af húsum og að flætt hefði inn í hús. Talið er að milli fjórðungur og helmingur húsa á eyjunum hafi orðið fyrir skemmdum þegar fellibylurinn gekk yfir. Svo virðist sem íbúar Cayman-eyja hafi sloppið við mannfall af völdum fellibylsins. Því hefur verið öðruvísi farið annars staðar þar sem hann hefur gengið yfir eða teygt anga sína. Í það minnsta fimmtán létust á Jamaíka og nær 40 á Grenada. Fimm létu lífið af völdum fellibylsins í Venesúela, einn á eynni Tobago og annar á Barbados. Fjögur börn létu lífið í Dóminíska lýðveldinu. Yfirvöld á Kúbu ráðlögðu 1,3 milljónum manna að yfirgefa heimili sín áður en fellibylurinn kæmi til Kúbu. Á vesturhluta eyjunnar kepptist fólk við að taka saman helstu nauðsynjar áður en það hélt á brott til að leita sér öryggis "Það fyllir mig depurð að yfirgefa heimili mitt en ég verð að vernda sjálfan mig og bjarga lífum fjölskyldu minnar," sagði sjómaðurinn Ricardo Hernandez.
Erlent Fréttir Mest lesið Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Erlent Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Erlent Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Innlent Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Innlent Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Innlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Innlent Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Innlent Innflytjendamálin almenningi efst í huga Innlent Innanlandsflugi aflýst Innlent Fleiri fréttir Tveir lögreglumenn sprengdir í loft upp Blússandi hagvöxtur í Bandaríkjunum Nýjar ákærur á hendur Russell Brand Fleiri Epstein-skjöl birt: Bað um „óviðeigandi vinkonur“ Saka AfD um að ganga erinda Kremlverja Kínverjar og Rússar lýsa yfir stuðningi við Venesúela Skapari Call of Duty lést í bílslysi Trump nefnir nýja kynslóð orrustuskipa í höfuðið á sjálfum sér „Bandaríkin eiga ekki að taka yfir Grænland“ Nýr ritstjóri stöðvaði umfjöllun um brottvísanir Trump Breiddi út faðminn fyrir rasista: „Þið þurfið ekki að biðjast afsökunar á að vera hvít lengur“ Sprengdu rússneskan hershöfðingja í loft upp í Moskvu Undirbúningur árásarinnar stóð yfir í marga mánuði Trump skipar sendifulltrúa fyrir Grænland Segir unnið að því að móta sameiginlega nálgun Bandaríkjanna, Úkraínu og Evrópu Sýknaður af nauðgun eftir að hafa verið skimaður fyrir sjaldgæfri svefnröskun Málið sem Trump getur ekki losað sig við Grunaður um manndráp eftir að tveggja ára drengur féll úr blokk Fóru um borð í vélvana rússneskt skip Baulað á Albanese á minningarathöfn á Bondi-strönd Kvarta yfir ritskoðun Epstein-skjala: „Við vitum ekki hvað við vitum ekki“ Níu skotnir til bana á krá Sextán ára fékk greitt fyrir að færa Epstein stúlkur Ljósmyndir horfnar úr Epstein-skjölunum, þar á meðal ein af Trump Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Sjá meira