Þrjú hross drápust úr miltisbrandi 8. desember 2004 00:01
Þrjú hross hafa drepist úr miltisbrandi á bænum Sjónarhóli á Vatnsleysuströnd. Bærinn hefur verið girtur af og öllum sem komið hafa nálægt hrossunum gefin sýklalyf. Miltisbrandur er bráðdrepandi baktería. Sjónarhóll er eyðibýli á Vatnsleysuströnd þar sem hross og kindur hafa verið geymd innan girðingar. Fyrsta hrossið drapst síðastliðinn fimmtudag og var það urðað þar sem ekki lék neinn grunur á sýkingu. En þegar tvö hross drápust síðastliðinn sunnudag var því fjórða og síðasta lógað og sýni send til greiningar í Tilraunastöðinni á Keldum sem staðfesti að hrossin hefðu drepist úr miltisbrandi. Hræin af hrossunum verða brennd á staðnum. Miltisbrandur er stórhættuleg baktería. Guðrún Sigmundsdóttir, yfirlæknir á sóttvarnarsviði, segir hana geta valdið mjög alvarlegum sjúkdómum bæði í mönnum og dýrum og því full ástæða að vera á varðbergi. Sóttvarnarlæknir hefur haft samband við þá sem hafa komist í snertingu við hrossin sem drápust og gefið þeim lyf í forvarnarskyni. Miltisbrandur kemur oftast upp í tengslum við jarðrask og því er sjúkdómurinn staðbundinn. Skepnur smitast við að drekka mengað vatn, bíta mengað gras eða éta mengað kjöt- og beinmjöl. Smit frá einu dýri til annars eru sjaldgæf og sjúkdómurinn smitast ekki manna í milli. Þeir sem meðhöndla sýkt dýr eða afurðir slíkra dýra eru í mestri hættu á smiti. Guðrún segir að engin hætta sé á faraldri og þeir sem hafi farið um svæðið séu ekki í neinni hættu MYND/VilhelmMYND/Vilhelm
Fréttir Innlent Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira