Jamie eldar jólamat á Vatnajökli 5. ágúst 2004 00:01
Sjónvarpskokkurinn frægi, Jamie Oliver, kom til landsins í fyrradag ásamt fjölmennu fylgdarliði en tilefni ferðarinnar er að elda jólamat fyrir ástralska tímaritið Delicious. Leifur Kolbeinsson, eigandi veitingahússins La Primavera, tók á móti kokknum og fór með honum að Vatnajökli í gær þar sem Jamie mun matreiða úr íslensku hráefni í bland við ýmislegt sem hann hafði meðferðis til landsins. Jamie mun dvelja á Íslandi fram á laugardag og eyða mestum tíma uppi á jökli en ætlun tímaritsins var að mynda hann matreiða í snjó. Var því ferðinni heitið til Íslands. Fyrr í vikunni útskrifaði Jamie lærlinga sína sem starfað hafa á veitingahúsinu Fifteen í London en eins og sjónvarpsáhorfendum er kunnugt hefur kokkurinn valið til sín unga einstaklinga og kennt þeim matreiðslulistina miklu. Í vikunni útskrifaðist þriðja hollið sem unnið hefur á veitingastaðnum Fifteen samhliða kokkanámi og nú stendur einnig til að opna veitingastaðinn í Hollandi. Úr herlegheitunum flaug sjónvarpskokkurinn í lítilli einkaflugvél til Íslands og myndaði landið úr háloftunum með farsíma sínum. Myndirnar sendi hann svo samdægurs á heimasíðuna jamieoliver.com en þar er hægt að lesa sig til um helstu fréttir af kokknum og panta matreiðslubækur hans.
Menning Mest lesið Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Lífið Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Lífið Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Lífið Frumflutti nýtt lag á FM957: „Þetta er bara winning lag“ Tónlist Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Lífið Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Lífið Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Lífið Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar Lífið Taktu þátt í sumarbókaviku á Bylgjunni og Vísi Lífið samstarf Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Lífið Fleiri fréttir Kemst ekki inn í landið og Hafdís þarf að bíða Matreiðslubókin hlaut eftirsótt alþjóðleg verðlaun Aðstandendur Secret Solstice standa að nýrri hátíð sem hefst með almyrkvanum Einlæg skellibjalla sem stefnir á stóra sviðið Gerðu sumarfríið að heitasta ástarævintýri ársins Eftirrétturinn sem Espresso Martini-aðdáendur elska Katrín Odds og Þorgerður eignuðust sólardreng Ragga Gísla og Hipsumhaps á Innipúkanum sem færir sig um set Væb fara í tónleikaferð um Evrópu Unnur Birna og Pétur keyptu einbýlishús í Garðabæ „Þetta var eins og draumur sem ætlaði aldrei að taka enda“ „Þegar ég hitti þá fyrst pissaði ég á mig“ Í hennar anda að vera ein slakasta brúður sögunnar „Fullkomin viðbót“ hjá Selmu og Sölva Uppáhalds sumardrykkur Gerðar: „Ég fæ ekki nóg“ Felix kveður Eurovision með tárum Matti og Brynhildur selja slotið og stefna á sveitasæluna Bríet og Reykjavíkurdætur á Kvennavöku annað kvöld Styrktarforeldrið Hafdís er fundin Quarashi aftur á svið Mikil stemning á Íslandshátíð í Tívólí í Kaupmannahöfn Merktur LXS skvísunum fyrir lífstíð Kristín og Þorvar gáfu syninum nafn á þjóðhátíðardaginn Mos Def staðfestur og unnið að fleiri tónleikum í stað Lóu Rappa á lýðveldishátíð í tívolíinu: „Heyri eiginlega bara íslensku hérna“ Indverji á leið til landsins leitar að SOS foreldrinu Hafdísi Bieber í basli: „Ég veit að ég er skemmdur“ Magnús hjá Blue Car kaupir glæsiíbúð Bjögga Thors Dóttir Hilmis Snæs og Völu er Völudóttir Rikki G og fjölskylda sprengdu blöðruna Sjá meira