Hvort er æðra valdhafar eða þjóðin 20. júlí 2004 00:01 Hverjir eiga að ráða? - Ingólfur Margeirsson, rithöfundur Svokallað fjölmiðlafrumvarp, sem nú hefur verið afturkallað, var fyrir löngu hætt að snúast um eignarrétt á fjölmiðlum. Í meðferð stjórnarherranna fjallaði málið um vald, valdbeitingu, og stjórnarfarslegan rétt þjóðar. Málið snerist um lýðræðið og lýðveldið. Hinn gamli, franski byltingarsinni Danton sagði eitt sinn í frægri ræðu: "Þjóðin er ætíð æðri valdhöfunum". Hárrétt hjá honum. Þjóðin kýs valdherrana. Valdherrarnir kjósa ekki þjóðina. Á hvaða stoðum hvílir lýðveldið ef valdhafar eru orðnir þjóðinni meiri og máttugri.? Er það ekki einmitt það sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar ætlaði að framkvæma? Ríkisstjórnin hefur meirihluta á þingi en ekki meðal þjóðarinnar. Þess vegna er mikilvægt að þjóðin - fólkið í landinu - ráði sem minnst í sínum málum og komist ekki náálægt ákvarðanatöku um eigin málefni. Það skulu Davíð og félagar gera. Fyrir mér málið sáraeinfalt. Forseta finnst ákveðið frumvarp einkennilegt, hann er þinginu ósammála og telur rétt að þjóðin ákveði réttmæti frumvarpsins. Hann skrifar því ekki undir og skýtur málinu til þjóðarinnar. Þetta kemur reyndar flestum á óvart því þjóðin er orðin vön linum forsetum og harðri stjórnarpólitík. Nú skal gert út um málið í þjóðaratkvæði samkvæmt heimild í stjórnarskrá. Valdhöfum líst illa á þessa ráðagerð, því svo gæti farið að þjóðin felldi frumvarpið. Betra sé að halda málinu innan veggja þingsins þar sem stjórnarherrarnir hafa höld og taglir í sinni hendi vegna meirihluta. Forsætisráðherra ákveður því að draga frumvarpið til baka, breytir mjúklega helstu ádeiluatriðum og segir hróðugur í fjölmiðlum að þessu nýja frumvarpi geti forseti ekki neitað. Annað telja þó forsvarsmenn í Framsóknarflokknum enda lafhræddir við snarminnkandi fylgi kjósenda. Valdhafar eru nú komnir með málið í svikamyllu; neiti forseti enn einu sinni að skrifa undir og sendi málið til þjóðarinnar, eru miklar líkur á, að þjóðin sé orðin svo leið á þessu þrátefli að hún samþykki einfaldlega lögin. Og valdhöfum takist að brjóta lýðræðið og vilja þjóðarinnar á bak aftur með valdaklækjum. Þannig mun ríkisstjórnin ennfremur lifa af þennan hildarleik og stjórnarsamstarfið ekki í yfirvofandi hættu. En lýðræðið myndi bíða ósigur og sannað yrði að valdhafar eru æðri fólkinu í landinu Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson Skoðun Skoðun Skoðun Allt sem ég þarf að gera Dagbjartur Kristjánsson skrifar Skoðun Eldri borgarar – áhrif aðildar að Evrópusambandinu (ESB) Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Notkun ökklabanda Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Skólaskætingur Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir skrifar Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar Skoðun Ný sókn í menntamálum Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð, fálmandi mjálm eða aðgerðir? Viðar Hreinsson skrifar Skoðun Vin í eyðimörkinni – almenningsbókasöfn borgarinnar Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Er Akureyri að missa háskólann sinn? Aðalbjörn Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu staðreyndir um alvarlegustu kvenréttindakrísu heims Stella Samúelsdóttir skrifar Skoðun Ég vildi óska þess að ég hefði hreinlega fengið krabbamein Íris Elfa Þorkelsdóttir skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Fjárfestum í fyrsta bekk, frekar en fangelsum Hjördís Eva Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftirlíking vitundar og hætturnar sem henni fylgja Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Andaðu rólega elskan... Ester Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Gagnvirkni líkama og vitundar til heilbrigðis Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Nýjar lausnir í kennslu – gamlar hindranir Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Kópavogsleiðinn Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Samstarf sem skilar raunverulegum loftslagsaðgerðum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Lærum að lesa og reikna Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Loforðið sem borgarstjóri gleymdi Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kristrún, það er bannað að plata Snorri Másson skrifar Skoðun Öndunaræfingar í boði SFS Vala Árnadóttir skrifar Skoðun Öndum rólega – á meðan húsið brennur Magnús Magnússon skrifar Skoðun Umbylting ríkisfjármála á átta mánuðum Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Mestu aularnir í Vetrarbrautinni Kári Helgason skrifar Skoðun Átta atriði sem sýna fram á vanda hávaxtastefnunnar Halla Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Hverjir eiga að ráða? - Ingólfur Margeirsson, rithöfundur Svokallað fjölmiðlafrumvarp, sem nú hefur verið afturkallað, var fyrir löngu hætt að snúast um eignarrétt á fjölmiðlum. Í meðferð stjórnarherranna fjallaði málið um vald, valdbeitingu, og stjórnarfarslegan rétt þjóðar. Málið snerist um lýðræðið og lýðveldið. Hinn gamli, franski byltingarsinni Danton sagði eitt sinn í frægri ræðu: "Þjóðin er ætíð æðri valdhöfunum". Hárrétt hjá honum. Þjóðin kýs valdherrana. Valdherrarnir kjósa ekki þjóðina. Á hvaða stoðum hvílir lýðveldið ef valdhafar eru orðnir þjóðinni meiri og máttugri.? Er það ekki einmitt það sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar ætlaði að framkvæma? Ríkisstjórnin hefur meirihluta á þingi en ekki meðal þjóðarinnar. Þess vegna er mikilvægt að þjóðin - fólkið í landinu - ráði sem minnst í sínum málum og komist ekki náálægt ákvarðanatöku um eigin málefni. Það skulu Davíð og félagar gera. Fyrir mér málið sáraeinfalt. Forseta finnst ákveðið frumvarp einkennilegt, hann er þinginu ósammála og telur rétt að þjóðin ákveði réttmæti frumvarpsins. Hann skrifar því ekki undir og skýtur málinu til þjóðarinnar. Þetta kemur reyndar flestum á óvart því þjóðin er orðin vön linum forsetum og harðri stjórnarpólitík. Nú skal gert út um málið í þjóðaratkvæði samkvæmt heimild í stjórnarskrá. Valdhöfum líst illa á þessa ráðagerð, því svo gæti farið að þjóðin felldi frumvarpið. Betra sé að halda málinu innan veggja þingsins þar sem stjórnarherrarnir hafa höld og taglir í sinni hendi vegna meirihluta. Forsætisráðherra ákveður því að draga frumvarpið til baka, breytir mjúklega helstu ádeiluatriðum og segir hróðugur í fjölmiðlum að þessu nýja frumvarpi geti forseti ekki neitað. Annað telja þó forsvarsmenn í Framsóknarflokknum enda lafhræddir við snarminnkandi fylgi kjósenda. Valdhafar eru nú komnir með málið í svikamyllu; neiti forseti enn einu sinni að skrifa undir og sendi málið til þjóðarinnar, eru miklar líkur á, að þjóðin sé orðin svo leið á þessu þrátefli að hún samþykki einfaldlega lögin. Og valdhöfum takist að brjóta lýðræðið og vilja þjóðarinnar á bak aftur með valdaklækjum. Þannig mun ríkisstjórnin ennfremur lifa af þennan hildarleik og stjórnarsamstarfið ekki í yfirvofandi hættu. En lýðræðið myndi bíða ósigur og sannað yrði að valdhafar eru æðri fólkinu í landinu
Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun
Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun
Skoðun Meiri gæði og mun minni álögur - Hveragerðisleiðin í leikskólamálum Jóhanna Ýr Jóhannsdóttir,Sandra Sigurðardóttir,Dagný Sif Sigurbjörnsdóttir,Halldór Benjamín Hreinsson,Njörður Sigurðsson skrifar
Skoðun Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson skrifar
Skoðun Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar
Skoðun Þéttingarstefnan hefur brugðist og Dóra breytir um umræðuefni Aðalsteinn Haukur Sverrisson skrifar
Reykjavíkurborg stígur fyrsta skrefið í snjallvæðingu umferðarljósa! Einar Sveinbjörn Guðmundsson Skoðun
Framtíðin í fyrsta sæti – mikilvægi forgangsröðunar á tillögum Kópavogsbæjar í grunnskólamálum Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun