Ekki verið að brjóta lög 16. desember 2004 00:01
Evrópsk lög banna verslun með líffæri og vefi. Forsvarsmenn tæknifrjóvgunarstofunnar Art Medica sem tekið hafa upp á þeirri nýbreytni að greiða konum fyrir egg, eru þess þó fullvissir að þeir brjóti ekki lög. Ísland er aðili að svökölluðum Óvíedó sáttmála frá árinu 1997, um vernd mannréttinda og mannlegrar reisnar. Þar er kveðið á um að óheimilt sé að hafa fjárhagslegan ávinning af mannslíkamanum og hlutum hans sem slíkum og lagt er bann við verslun með líffæri og vefi, eins og með egg sem notuð eru til tæknifrjóvgana. Bætur til líffæragjafa vegna tekjutaps og annarra útgjalds eru þó heimilar og það segja forsvarmenn Art Medica að sé einmitt tilgangurinn með þeim greiðslum sem þeir hafa nú milligöngu um. Eðlilegt sé að þær konur sem af fórnfýsi leggi þetta á sig þurfi ekki sjálfar að leggja út í kostnað. Samkvæmt heimildum fréttastofu fer sú upphæð sem konum er greitt fyrir að láta nema egg úr líkama sínum, ekki yfir 100 þúsund krónur. Þórður Óskarsson læknir hjá Art Medica segir þó nokkuð um að konur hafi hringt á stöðina í dag til að spyrjast fyrir um hvað þurfi til að verða eggjagjafi. Aðspurður hvort slíkar greiðslur kalli ekki á það að óæskilegir eggjagjafar nýti sér slíkt til að afla tekna sagði hann ekki verði tekið við hverri sem er. Art Medica muni fara fram á leyfi frá gjafanum til að ræða við fólk sem er honum kunnugt og einnig yfirvöld sem gætu haft með viðkomandi að gera. Fái þeir ekki heimild til slíkrar eftirgrennslan muni gjafinn ekki vera notaður. Eins og fram hefur komið hefur verið erfiðleikum bundið að fá gjafaegg hér á landi, en verði viðbrögð við útspili Art Medica góð gætu nýir möguleikar opnast barnlausum pörum, eins og sá að fá ákveðnar kröfur uppfylltar, eins og um háralit eggjagjafans og jafnvel áhugamál. Þórður segir enga ástæðu til að neita fólki um slíkt, ef hægt sé að koma til móts við slíkar kröfur, en miðað við hve erfiðlega hafi gengið að fá egg er ekki líklegt að það verði í bráð.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira