Gerði grein fyrir áformum í gær 16. desember 2004 00:01
Davíð Oddsson utanríkisráðherra gerði bandaríska sendiheranum hér á landi grein fyrir þeim áformum að veita Bobby Fischer landvistarleyfi hér á landi, á fundi í gær. Fundurinn var lögnu ákveðinn og ekki af þessu tilefni, en Davíð notaði tækifærið til að greina frá þessu á fundinum. Engin viðbrögð voru af hálfu sendiherrans, samkvæmt heimildum og ekki var samið um eitt né neitt á fundinum, en Bandaríkjamenn og Íslendingar hafa með sér samningu um gangkvæmt framsal sakamanna. Þórður Ægir Óskarsson sendiherra í Tokyo fór snemma í morgun í japanska utanríkisráðuneytið og tilkynnti þar um þessa ákvörðun íslenskra stjórnvalda. Hann segist hafa afhent japönskum stjórnvöldum ákvörðun íslenskra stjórnvalda, en engin viðbrögð hafi verið þar á þessu stigi. Þá segist Þórður hafa rætt við Fischer sjálfan í gegnum síma og gert honum grein fyrir ákvörðuninni og hann hafi þakkað fyrir sig og tekið mjög vel í boðið. Þórður segir að ef til þess kæmi að japönsk stjórnvöld féllust á að hleypa Fischer til Íslands, yrði hann fyrst að fella niður áfrýjunarmál fyrir japönskum rétti þar sem hann óskar þess meðal annars að fá stöðu sem flóttamaður í Japan. Að sögn Þórðar Ægis hafa margir alþjóðlegir og japanskir fjölmiðlar spurst fyrir um málið hjá sendiráðinu og hefur það vakið mikla athygli um allan heim, til að mynda á fréttastöðvunum CNN og BBC. Fischer óskaði eftir hæli hér á landi í bréfi til Davíðs Oddssonar, utanríkisráðherra, fyrir um tveimur vikum. Bandarísk yfirvöld hafa óskað eftir því að fá Fischer framseldan til Bandaríkjanna en Japanar segja mögulegt að honum verði í staðinn vísað úr landi og sendur hingað. Venjan er hinsvegar sú að ef mönnum er vísað úr landi, þá er þeim vísað til þess lands sem þeir hafa ríkisfang í, en sem kunnugt er hefur Fischer afsalað sér bandarískum ríkisborgararétti.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Sjá meira