Sund getur valdið astma 17. desember 2004 00:01
Börn sem eru mikið í sundi eru líklegri en önnur börn til að fá astma samkvæmt rannsókn sænskra sérfræðinga. Þeir vara sérstaklega við ungbarnasundi þar sem klórinn geti skaðað ónæmiskerfi barnanna. Það voru vísindamenn við háskólann í Umeo í Norður-Svíþjóð sem könnuðu tengslin á milli mikillar sundiðkunar barna og astma en við rannsóknina var fylgst með tæplega 60 níu ára gömlum börnum í ákveðinn tíma. Um helmingur barnanna fór í sund að minnsta kosti einu sinni í mánuði. Vísindamennirnir komust að þeirri niðurstöðu að börn sem eru mikið í sundlaugum væru líklegri en önnur börn til að fá sýkingar af ýmsu tagi vegna veikara ónæmiskerfis líkamans. Þau væru þannig líklegri til að fá astma. Sænsku sérfræðingarnir röktu þetta beint til klórsins í sundlaugunum sem þeir sögðu að hefði slæm áhrif á ónæmiskerfið. Þeir benda á að klórgufur í sundlaugunum aukist til muna þegar klórblandað vatnið bregst við húð og svita. Þegar börnin andi að sér gufunum skaði það lungnafrumur, svokallaðar clara-frumur, sem verji þau gegn sýkingum. Í rannsókninni kom í ljós að hjá þeim börnum, sem fóru reglulega í sundlaugar þar sem klór var mikill, reyndist minna magn af clara-frumum í blóðinu en hjá börnum sem ekki fóru eins mikið í sund. Í niðurstöðum rannsóknarinnar er varað sérstaklega við ungbarnasundi þar sem börn sem séu í slíku séu svo lítil og ónæmiskerfi líkama þeirra viðkvæmt.
Fréttir Innlent Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Sjá meira