Mikið um slys og óhöpp 17. desember 2004 00:01
Mikið var um slys og óhöpp í umferðinni í gærkvöldi en enginn slasaðist alvarlega þótt stundum hafi staðið tæpt. Sex manns voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir tvö umferðarslys í gærkvöldi. Þrír voru fluttir þangað eftir að bíll sem þeir voru í valt á Skeiða- og Hrunamannavegi í Árnessýslu. Enginn slaðaðist þó alvarlega. Aðrir þrír voru fluttir á slysadeild eftir mjög harðan árekstur þriggja bíla á Reykjanesbraut í Garðabæ í gærkvöldi. Tveir reyndust lítið meiddir en sá þriðji eitthvað meira. Loka þurfti brautinni í tvær klukkusutndir vegna slyssins. Reiðhestur með öllum reiðtygjum drapst samstundis þegar hann varð fyrir flutningabíl skammt ofan við Borgarnes í gærkvöldi en ökumann bílsins sakaði ekki. Bíllinn skemmdist svo mikið að hann var óökufær á eftir. Tildrög voru þau að eigandi hestsins hafði fallið af baki og meiðst en við það fældist hesturinn upp á veginn og í veg fyrir flutningabílinn. Höggið var svo mikið að skrokkur hestsins kastaðist út fyrir veg. Ökumaður og þrjú börn sluppu ómeidd þegar tvö hjól losnuðu undan flutningabíl á Vesturlandsvegi skammt frá Grundartanga í gærkvöldi og þeyttust á bílinn sem þau voru í. Ökumaður flutningabílsins náði að halda stjórn á bíl sínum eftir atvikið en bíllinn sem maðurinn og börnin voru í skemmdist svo mikið að hann var óökufær. Kastið var svo mikið á dekkjunum að eftir að þau höfðu laskað fólksbílinn þeyttust þau langt út í móa. Ökumaður slapp ómeiddur þegar stór tankbíll, hlaðinn þurrum sandi, valt þegar hann var að komast yfir gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í gærkvöldi. Bíllinn valt út fyrir veginn og tók olía og glussi að leka úr honum. Stóreflis krani var kallaður á vettvang til að ná bílnum á réttan kjöl og urðu nokkrar tafir á umferð á meðan. Þá þurftu slökkviliðsmenn að hreinsa vettvang. Bíllinn reyndist númerslaus og þar með ótryggður en nánari skýringar á þessari ökuferð liggja ekki fyrir.
Fréttir Innlent Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Fleiri fréttir „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Hélt að þrettán manns hefðu séð lykilorðið hennar Með áfallastreituröskun eftir hópárás á Austurvelli Slökkti sjálfur eldinn Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Sjá meira