Lífið
Kennir sér um einveru Leikarinn Hugh Grant kennir sjálfum sér um að hann sé ennþá einhleypur. Grant, sem er 49 ára, hefur átt vingott við margar af eftirsóttustu konum heims, þar á meðal Elizabeth Hurley og Jemimu Khan. „Ég ætti að festa ráð mitt. Þetta er allt mér að kenna, ég hef átt margar yndislegar kærustur," sagði Grant. Fimmtugsafmæli hans á næsta ári nálgast óðfluga, en hann óttast það mjög. „Ég veit ekkert hvernig ég ætla að glíma við það." Nýjasta mynd Grants nefnist Did You Hear About the Morgans? og í henni leikur hann á móti Söruh Jessicu Parker. Lífið 19.12.2009 02:15
Upplestur í kvennafangelsinu „Þetta gekk gríðarlega vel. Þetta var mjög áhrifamikil og eftirminnileg stund,“ segir rithöfundurinn Sindri Freysson. Lífið 19.12.2009 02:00
Yesmine Olsson í útrás Yesmine Olsson hefur haft í mörgu að snúast frá því að bók hennar Framandi og freistandi, indversk og arabísk matreiðsla, kom út í fyrra. Eftir áramót ætlar hún að halda matreiðslunámskeið í Turninum auk þess sem Bollywood-sýning hennar mun hefja þar göngu sína á ný. Lífið 19.12.2009 01:00
Úr Twilight í einkaþjálfun Twilight-stjarnan Taylor Lautner er strax kominn með plan B ef leikferillinn fer í vaskinn; hann er búinn að taka einkaþjálfarapróf. Taylor er ein heitasta stjarna heims um þessar mundir og hreint gríðarlega vinsæll, sérstaklega á meðal unglingsstúlkna. Hann ku vera að búa í haginn þar sem leikferillinn endist ekki að eilífu og ætlar því að kenna fólki að rífa í lóðin eins og hann. Lífið 19.12.2009 01:00
Miley gæti fengið Óskar Óskarsakademían birti í vikunni lista yfir lög sem eiga möguleika á Óskarstilnefningu. 63 lög eru á listanum og þar á meðal er Disney-barnastjarnan Miley Cyrus. Lífið 19.12.2009 00:30
Hilton verslar jólagjafir - myndir Paris Hilton verslaði jólagjafir í dag eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Vestan hafs er Paris gagnrýnd fyrir klæðaburðinn þennan dag. Skoða má Paris betur í myndasafni. Lífið 18.12.2009 19:00
Jólapakkarall í miðborginni í dag Í dag klukkan 15:00, laugardaginn 19. desember, munu tveir mjólkurpallbílar leggja upp í sérstakt jólapakkarall. Lagt verður af stað frá Hlemmtorgi annars vegar og Skólavörðuholti hins vegar, þeirra erinda að safna jólapökkum handa þeim sem minnst eiga í vændum. Jólapakkarallið gengur þannig fyrir sig að fólk safnast saman á gangstéttum beggja vegna Laugavegs og Skólavörðustígs með innpakkaðar gjafir. Síðan er þeim kastað upp til jólasveinanna um borð, sem svo afhenda Mæðratyrksnefnd og Fjölskylduhjálpinni pakkana í Jólaþorpinu síðar um daginn. Taktu þátt og gefðu gjöf. Sjá nánar hér. Lífið 18.12.2009 17:15
Pakkar jólagjöfunum inn í október „Í ár var ég snemma á ferðinni út af vinnutörn sem ég vissi að var í vændum en ég á eftir að kaupa fjórar gjafir og jólamatinn," segir Selma Björnsdóttir í viðtali við Jól.is. „Ég byrja alltaf snemma að undirbúa jólin. Hef meira að segja einu sinni verið búin að kaupa allar gjafir, pakka þeim inn og merkja þann 16. október sem er pínu kreisí, en þannig er ég."," segir hún. Sjá allt viðtalið hér. Lífið 18.12.2009 17:00
Hrikalegt að eyða jólunum með mömmu og pabba „Ég man alltaf eftir jólunum sem ég var fyrst einn með foreldrum mínum," svarar Friðrik Ómars aðspurður um eftirminnileg jól á Jól.is. „Mér fannst það hrikalegt fyrst en síðan vandist ég því og kann vel við það í dag. Ég er nefninlega örverpið og öll systkinin fóru að heiman á undan mér." Sjá viðtalið við Friðrik Ómar í heild sinni hér. Lífið 18.12.2009 14:00
Almennilegt partí - myndir Á meðfylgjandi myndum má greinilega sjá að almennilegt partí var haldið á Apótekinu í gær í samvinnu við Civas Regal. Jaguar skemmti gestum og það var frítt inn, sem er mjög sjaldgjæft þegar hljómsveit af þessari stærð skemmtir. Eins og myndirnar sýna var góð mæting enda flottur viðburður. Lífið 18.12.2009 12:00
Partí fyrir framúrskarandi Kraumslistinn, sérstök viðurkenning Kraums tónlistarsjóðs til þeirra verka sem þótt hafa framúrskarandi, frumleg og spennandi í íslenskri plötuútgáfu á árinu, var kynntur annað árið í röð í fyrradag. Lífið 18.12.2009 10:00
Ian seldi líf sitt á eBay og vill sjá norðurljósin á Íslandi Bretinn Ian Usher tók upp á því í fyrra sumar að selja líf sitt á uppboðssíðunni eBay. Mánuði síðar lagði hann af stað í ferðalag um heiminn þar sem hann var ákveðinn í að uppfylla hundrað markmið sem hann hafði sett sér á jafnmörgum vikum. Ian er nú staddur hér á landi þar sem hann hyggst sjá ísjaka á Jökulárslóni og hin margrómuðu norðurljós. Lífið 18.12.2009 06:00
Worm is Green tilnefndtil bandarískra verðlauna Hljómsveitin Worm is Green frá Akranesi hefur verið tilnefnd til hinna virtu bandarísku tónlistarverðlauna Independent Music Awards fyrir plötu sína Glow sem nýverið kom út. Lífið 18.12.2009 06:00
Þorláksmessutónleikar Bubba í beinni á Stöð 2 „Þetta breytir engu fyrir mig, ég mun rappa og rífa kjaft ef ég er í þeim gírnum. Menn munu bara sjá framan í mig þegar ég byrja," segir Bubbi Morthens. Stöð 2 sýnir beint frá Þorláksmessutónleikum hans en þetta verður í 25. sinn sem Bubbi spilar á þessum tíma. Tónleikarnir eru í Háskólabíói en Rás 2 útvarpaði þeim um árabil. Því var hins vegar hætt þegar stjórnendum í Efstaleitinu þótti tónlistarmaðurinn fara yfir strikið í töluðu máli. Lífið 18.12.2009 06:00
Jólamarkaður í Hinu húsinu „Markmiðið er að þarna fái ungt fólk að selja sitt eigið handverk og hönnun," segir Berglind Sunna Stefánsdóttir hjá upplýsingamiðstöð Hins hússins, miðstöð ungs fólks. Þar fer fram jólamarkaður á morgun milli klukkan 14 og 18, í Pósthússtræti 3-5. Lífið 18.12.2009 05:00
Milli himins og jarðar Nú standa yfir æfingar á sviðsetningu Vesturports og Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi á Faust. Leikmyndina fyrir sýninguna gerir Axel Hallkell Jóhannesson en hún er afar sérstök og mótar í raun þessa aldagömlu arfsögn vestrænnar menningar alveg upp á nýtt. Sá Faust sem leikhúsgestir munu sjá frá frumsýningunni þann 15. janúar verður allt allt öðruvísi en leikhúsgestir hafa til þessa séð og þótt víðar væri leitað. Lífið 18.12.2009 05:00
Fjölskyldan syngur með Regínu Regína Ósk Óskarsdóttir heldur tvenna jólatónleika um helgina. Þar mun hún koma fram ásamt stúlkna- og barnakór auk þess sem eiginmaður hennar og dóttir munu syngja á tónleikunum. Lífið 18.12.2009 05:00
Elin skilur við Tiger Tímaritið People vill meina að Elin Nordegren, eiginkona Tiger Woods, hafi ákveðið að skilja við kylfinginn strax eftir jól. Ástæðan fyrir því að hún mun ekki flytja út fyrr er sú að hún vill að börnin fái að njóta jólanna með báðum foreldrum. Lífið 18.12.2009 04:00
Seabear lýsir eftir upphitun Norðrið nefnist tónleikaröð sem Útflutningsskrifstofa íslenskrar tónlistar (ÚTÓN) og Iceland Express standa saman að. Nú er auglýst eftir upphitunaratriði fyrir fjórðu tónleikaferðina, sem leidd verður af hljómsveitinni Seabear. Markmiðið er að styðja við bakið á íslenskum tónlistarmönnum og hljómsveitum sem eru að hasla sér völl í Þýskalandi. Lífið 18.12.2009 04:00
Brotnaði saman í Soweto Ungfrú Ísland, Guðrún Dögg Rúnarsdóttir, er nýkomin heim eftir sex vikna ævintýri í Suður-Afríku þar sem hún tók þátt í keppninni Ungfrú heimur. Guðrún Dögg segir að það hafi verið mjög góð reynsla að taka þátt í keppninni en engu að síður erfitt. „Við fengum ekki mikinn svefn. Við vorum alltaf uppstrílaðar og fínar allan daginn. Þetta var rosalega mikil keyrsla," segir hún. Lífið 18.12.2009 03:15
Spennt fyrir Hangover 2 Heather Graham segist ekki geta beðið eftir að leika í framhaldsmynd af kvikmyndinni The Hangover. Leikkonan segist eiga eftir að sjá handritið, en hlakkar til að leika óléttan strippara. Í viðtali við vefsíðuna Eonline.com segist leikkonan þegar vera farin að gefa handritshöfundinum Todd Phillips hugmyndir fyrir karakter sinn, Jade. Lífið 18.12.2009 03:00
Hrifinn af leikkonu Rapparinn P. Diddy fór um víðan völl í nýlegu viðtali við tímaritið Playboy. Þar segist hann hafa misst sveindóminn þrettán ára og að hann hafi verið heltekinn af stúlkum og kynlífi á þeim aldri. Í viðtalinu viðurkennir hann einnig að hafa átt í ástarsambandi við fræga leikkonu en neitar að segja hver hún er. Lífið 18.12.2009 03:00
Fyrsta jólalag leynigestsins Hljómsveitin Ullarhattarnir heldur sína tólftu Þorláksmessutónleika á Nasa næstkomandi miðvikudag þar sem spiluð verða jólalög í bland við þekktar dægurperlur. „Þetta er búið að vera ótrúlega vinælt,“ segir Eyjólfur Kristjánsson. Lífið 18.12.2009 03:00
Jónsi og Alex sætastir Eins og fram kemur í Fréttablaðinu í dag er Sigur Rós víða með plötur á listum yfir bestu plötur áratugarins. Jónsi kemur sterkur inn sjálfur með Alex Somers kærastanum sínum, en þeir eru valdir sætasta parið af tímaritinu Out, vinsælasta tímariti samkynhneigðra í Bandaríkjunum. Lífið 18.12.2009 03:00
Ekkert að spá í sigurgönguna Nú er víða verið að gera upp áratuginn sem er að líða. Þegar plötur áratugarins eru teknar saman er nánast öruggt að einhver plata með Sigur Rós ratar á listann. Þótt Ágætis byrjun hafi komið út árið 1999 og tilheyri því síðustu öld í íslenskum annálum kom hún út árið 2000 á alþjóðamarkaði. Síðan komu ( ), Takk og Með suð í eyrum við spilum endalaust, auk ýmissa aukaplatna. Lífið 18.12.2009 03:00
Daryl vill enga plastbolla Daryl Hannah vill að allir hætti að nota plastbolla. Leikkonan, sem er 49 ára, er mikill náttúruverndarsinni og hefur nokkrum sinnum verið handtekin fyrir róttækar aðgerðir. Í viðtali við breska dagblaðið The Sun segist hún vilja að fólk fari að verða meðvitaðra um umhverfi sitt og trúir því að það þurfi aðeins litlar breytingar til að hafa áhrif. Lífið 18.12.2009 02:45
Fuller með nýjan þátt Tónlistarmógúllinn Simon Fuller er að undirbúa nýjan raunveruleikaþátt sem verður sendur út á netinu og í útvarpinu. Þátturinn nefnist If I Can Dream, eða Ef ég gæti látið mig dreyma, og fjallar um líf þriggja ungra leikara, tónlistarmanns og fyrirsætu. Lífið 18.12.2009 02:45
Indí í Háteigskirkju Í Háteigskirkju í kvöld ætla ungir og framsæknir listamenn að koma saman og flytja frumsamið efni. Þetta eru hljómsveitirnar Útidúr og Stórsveit Mukkaló, söngvaskáldið Júníus Meyvant og ljóðskáldið Ingunn Huld. Lífið 18.12.2009 02:45
Basterds fékk tilnefningar Kvikmyndirnar Inglorious Basterds, Precious og Up in the Air hlutu þrjár tilnefningar hver til hinna Screen Actors Guild-verðlaunanna, sem bandarískir kvikmynda- og sjónvarpsleikarar standa á bak við. Lífið 18.12.2009 02:30
Kýr sparkaði í Parker Sarah Jessica Parker, sem er þekktust fyrir leik sinn í Sex and the City, lenti í því að kýr sparkaði í hana við tökur á myndinni Did You Hear about the Morgans? Atvikið var notað í lokaútgáfu myndarinnar, Parker til mikillar óánægju. „Mér fannst ekki gaman að reyna að mjólka kú, fara á hestbak eða skjóta úr riffli. Mér finnst ýmislegt annað skemmtilegra," sagði hún. „Kýrin sparkaði í mig í miðju atriði og þeir settu það í myndina. Það geta allir séð það. En ég finn til með kúnni. Ég átti ekkert að vera þarna og hún vissi það." Lífið 18.12.2009 02:30