Lífið

Oasis-bræður halda áfram í rokkinu

Liam Gallagher ásamt Gem Archer og Andy Bell, sem voru líka í Oasis, stefna á að gefa út plötu í sumar. Upptökur hefjast í apríl og flest lögin eru þegar tilbúin. Liam gæti allt eins haldið áfram að nota Oasis nafnið, það er bara ekki komið á hreint ennþá. Hljómsveitin hætti með hvelli í ágúst á síðasta ári og hinn bróðirinn, Noel, er að bræða það með sér að leggjast í sólóplötugerð. Hann flutti nýlega aftur á heimaslóðir í Manchester eftir að hafa búið um hríð í Lundúnum.

Lífið

Íslenski veruleikinn elti kvikmyndahandritið

Boðberi er íslensk kvikmynd sem fjallar um venjulegan mann sem skyndilega fær vitranir um lífið eftir dauðann. Kvikmyndin er í leikstjórn Hjálmars Einarssonar og á meðal leikenda eru Darri Ingólfsson, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir, Magnús Jónsson og Jón Páll Eyjólfsson.Myndin hefur verið nokkurn tíma í framleiðslu en að sögn Hjálmars er allri eftirvinnu nú að mestu lokið og hægt verður að bera afraksturinn augum innan skamms.

Lífið

Hraðstefnumót í Verzló

Það verður seint sagt að busar Verzlunarskólans bindi bagga sína sömu hnútum og samferðamenn sínir, því nú á miðvikudaginn var stóð 3.bekkjaráð skólans fyrir svokölluðu "Speed Dating" kvöldi eða á vor ylhýra Hraðstefnumótakvöldi.

Lífið

Sama lag og Hera Björk syngur?

Lag Örlygs Smára og Heru Bjarkar, Je ne sais quoi, sem Hera Björk syngur í söngvakeppni Sjónvarpsins og lítt þekkt lag sem söngkonan Kate Ryan syngur, Who do you love, eru vægast sagt mjög lík. Umræður um að lögin eru óþægilega lík ganga um internetið eins og eldur í sinu. Sama tóntegund segja tónlistarspekúlantar. Aðrir halda því fram að um sé að ræða sama viðlagið í lögunum. Hlusta á lagið Je ne sais quoi sem Hera Björk syngur hér. Umrætt lag með Kate Ryan, Who do you love, má heyra hér.

Lífið

Líkt við tölvuvírus

Átrúnaðargoð X-Factor stjörnunnar Susan Boyle lét ekki svo fögur orð falla um söngkonuna í viðtali við The Daily Mail fyrir stuttu. Ellen Paige hefur gert garðinn frægan fyrir hlutverk sín í hinum ýmsu söngleikjum og hefur Susan Boyle ávallt nefnt Paige á nafn þegar hún er spurð um áhrifavalda sína.

Lífið

Myndlist og billjard

Í dag kl. 17 opnar Sigurður Örlygsson listmálari sýningu á Gallerý-Bar, sem er til húsa á Hverfisgötu 46.

Lífið

Býður fólki til Vúlkan

Í dag opnar sýning Laufeyjar Johansen í Reykjavík Art Gallery á Skúlagötu 30 en Laufey er í mjög nánu sambandi við hina týndu plánetu Vúlkan. „Ég hef tekið að mér að vera málsvari orkunnar frá Vúlkan hér á jörðinni. Það sem ég mála er landslag frá Vúlkan, en einnig áhrif frá öðrum plánetum.“

Lífið

Ný Danskir með nýtt lag í nýjum Gauragangi

„Þetta var nú hugmynd hjá Magnúsi Geir, að við í Ný Dönsk myndum semja nýtt lag. Síðan völdu hann, Ólafur Haukur Ólafsson, Gói [Guðjón Davíð] og Hallgrímur Óskarsson hentugasta lagið og það reyndist vera

Lífið

Prjónuð málverk

Á morgun kl. 14 verður Hildur Bjarnadóttir myndlistarmaður með leiðsögn um sýninguna Carnegie Art Award 2010 sem nú stendur yfir í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg.

Lífið

Rafópera um dauðann

Í dag kl. 17 frumsýnir Strengjaleikhúsið óperuna Farfuglinn eftir Hilmar Þórðarson í Salnum, Kópavogi. Frumsýningin er hluti af Myrkum músíkdögum.

Lífið

Trúin skipti sköpum

Leikarinn John Travolta segir að trúin hafi hjálpað sér að komast yfir dauða sextán ára sonar síns Jett.

Lífið

Segir Bar 46 besta sýningarsalinn utan Kjarvalsstaða - myndir

Sigurður Örlygsson listmálari segir að Bar 46 á Hverfisgötu sé besti sýningarsalur landsins ef frá eru taldir Kjarvalsstaðir. Sigurður mun opna einkasýningu á Bar 46 á morgun, laugardag klukkan fimm. „Lofthæðin á barnum er það mikil að veggplássið er með ólíkindum,“ segir Sigurður um Bar 46 og er ekki síður hrifinn af möguleikunum sem lýsingin gefur honum. Verkin sem Sigurður mun sýna á Bar 46 segir hann vera blöndu af nýjum og eldri verkum. „Og þar kemur plássið sér vel því verkin eru allt að 12 fermetrar að stærð,“ segir hann. Sigurður hefur haldið um 50 einkasýningar á ferli sínum en hann stundaði nám við Myndlista- og handíðaskólann og síðar framhaldsnám í Kaupmannahöfn og New York.

Lífið

Georg Bjarnfreðarson sveitalúði í Ameríku

Ragnar Bragason, leikstjóri Vaktar-þáttanna, hefur lesið handritið að amerísku útgáfunni af Næturvaktinni sem handritshöfundurinn Adam Barr hefur unnið en Barr skrifaði handrit fyrir þætti á borð við Desperate Housewives og Will & Grace. Ekki liggur enn fyrir hvort farið verður í gerð pilot-þáttar eftir handritinu en að sögn Kjartans Þórs Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Saga Film, ætti það að skýrast á næstunni.

Lífið

Æðislega gaman á Evrópumótinu

Íþróttafréttamaðurinn Adolf Ingi Erlingsson lýsir á laugardaginn sínum öðrum undanúrslitaleik á skömmum tíma í EM-keppninni í handbolta. Hann er að vonum í skýjunum yfir góðum árangri strákanna okkar.

Lífið

Borgin styrkir listina

Styrkveitingar menningar- og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar voru tilkynntar í gær. Til ráðstöfunar voru 62 milljónir króna, sem deilast á 91 umsækjanda. Alls bárust 177 umsóknir.

Lífið

Horfir ekki á Bond

Pierce Brosnan hefur aldrei horft á Daniel Craig leika James Bond. Brosnan var á sínum tíma sparkað af framleiðendum Bond og í staðinn tók Craig við keflinu. Hefur hann skilað hlutverkinu með miklum sóma. Þrátt fyrir það hefur Brosnan aldrei séð eftirmann sinn í hlutverkinu, sem var honum mjög kærkomið. „Ég hef ekki séð Daniel í hlutverkinu. Ég reyndi að horfa á Casino Royale í flugvél.

Lífið

Góðgerðarplata fór á toppinn

Ný góðgerðarplata til styrktar fórnarlömbum jarðskjálftans á Haítí fór beint í efsta sæti bandaríska vinsældarlistans eftir að hún kom út. Platan er jafnframt sú fyrsta sem er aðeins gefin út í stafrænu formi sem kemst í efsta sæti listans.

Lífið

Losar sig við skartgripina

Rapparinn Curtis Jackson, betur þekktur sem 50 Cent, er hættur að koma opinberlega fram með skartgripi. Klæðskerasniðin jakkaföt eru núna aðalmálið og „blingið“ kemst hvergi að. „Ég var að reyna að senda út ákveðin skilaboð með skartgripunum en núna hef ég ekki lengur þörf fyrir þá,“ sagði rapparinn. Hann hefur að undanförnu reynt fyrir sér í fatahönnun og leiklist með ágætum árangri og þess vegna er ímynd hans sem bófarappari ekki eins mikilvæg og áður.

Lífið

Dúett Elton og Gaga í bígerð

Talið er að popparinn Elton John og Lady Gaga ætli að syngja dúett á bandarísku Grammy-verðlaunahátíðinni á sunnudaginn. Ekki er vitað hvaða lag þau ætla að syngja saman. Engu að síður bíða margir spenntir eftir þessu óvænta samstarfi þessara tveggja vinsælu tónlistarmanna.

Lífið

Ungir sýna sig

Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna er samstarfsverkefni tónlistarskóla á höfuðborgarsvæðinu. Á morgun kl. 16 heldur hljómsveitin tónleika í Langholtskirkju þar sem unga kynslóðin sýnir hvað í henni býr.

Lífið

Engin plata frá Sigur Rós

Söngvarinn Jón Þór Birgisson hefur látið hafa eftir sér í erlendum fréttamiðlum að Sigur Rós sé á leiðinni í frí um óákveðinn tíma. Ástæðurnar eru tvær: annars vegar barneignir trommarans Orra Páls Dýrasonar og bassaleikarans Georgs Holms og hins vegar sólóplata Jónsa, sem hann ætlar að fylgja eftir með tónleikaferð um heiminn. Georg staðfestir í samtali við Fréttablaðið að ný plata frá sveitinni komi ekki út á þessu ári. „Við erum alveg í rólegheitum enda allir uppteknir. Þegar við höfum tíma hittumst við og semjum og gerum eitthvað,“ segir bassaleikarinn sem eignaðist sína þriðju stúlku í október. Orri Páll eignaðist aftur á móti strák síðastliðinn laugardag.

Lífið

Hreimur og Heiða saman - myndir

Í kvöld ætla Hreimur Örn Heimisson og Heiða Ólafsdóttir að venda kvæði sínu í kross og spila nokkur vel valin lög fyrir gesti Pósthússins vínbars - bistró. „Eigendur Pósthússins höfðu samband og stungu uppá því að við Hreimur myndum búa til smá prógram og taka gigg," svarar Heiða Ólafsdóttir sem margir kannast við úr Idol spurð út í samstarfið. „Mér leist strax vel á það, þekki Hreim vel og finnst hann frábær, þetta verður bara stuð." „Við tökum alls konar lög, stelpu og stráka lög og lög fyrir alla bara. Mjög fjölbreytt prógramm sem inniheldur meðal annars lög með Nirvana, Heart, Bob Marley, Radiohead og James Brown svo eitthvað sé nefnt. Bara létt og skemmtilegt fimmtudagsstuð prógram," segir hún. Hvað er framundan hjá þér persónulega? "Ég er alkomin heim. Útskrifaðist sem leikkona frá Circle In The Square Theater School í New York í júní síðastliðnum. Frábær og virtur lítll skóli sem er staðsettur í kjallara á Broadway leikhúsi á Broadway á Manhattan. Þar lærði ég allt sem ég þarf til að vera góð leikkona. Frábæra tækni og verkfæri til að nota í leiklist og bara í öllu lífinu," svarar Heiða. Meðfylgjandi má sjá myndir af þeim æfa sig fyrir kvöldið.

Lífið

Hrukkustraujárn sem svínvirkar - myndir

Hrukkustraujárnið Galvanic Spa, er að gera allt vitlaust í Hollywood um þessar mundir. Stórstjörnur á við Nicole Kidman, Simon Cowell og Angelina Jolie nota hrukkubanann til að halda andlitinu sléttu og unglegu. Um er að ræða lítið tæki með bylgum sem laga sig að húðinni og árangurinn er lygilegur eins og sjá má á fyrir og eftir myndum í myndasafni. Þulir á Fox sjónvarpsstöðinni nota hrukkubanann. Sjá hér. Simon Cowell viðurkennir að hann er háður hrukkubananum. Sjá hér. Magnaður árangur á líkama. Sjá hér.

Lífið

Deilt um íslenska tungu

„Það hefur engin ákvörðun verið tekin en ég reikna með að það verði gert eftir helgi,” segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins stendur til að endurskoða reglur um Söngvakeppni Sjónvarpsins en eins og þær eru í dag er höfundum frjálst að flytja lagið á hvaða tungumáli sem er. Eins og Fréttablaðið greindi frá í þessari viku þá er aðeins eitt lag eftir í núverandi keppni sem sungið er á íslensku en það er lag Hvanndalsbræðra, Gleði og Glens. Páll vildi ekkert gefa upp hvernig vindar blæsu í þessu máli en sagði vissulega skrýtið að standa frammi fyrir þeirri staðreynd að frumsamin íslensk lög fyrir íslenska keppni skyldu nánast öll vera sungin á ensku.

Lífið

Breytist í Drakúla

Sam Worthington, aðalleikarinn í stórmyndinni Avatar, ætlar að flytja sig um set frá Pandóru yfir til Transylvaníu. Hann er í viðræðum um að taka að sér aðalhlutverkið í myndinni Dracula Year Zero. Myndin fjallar um söguna á bak við greifann Drakúla og hvað varð til þess að hann breyttist í blóðdrekkandi ófreskju. Það er kvikmyndafyrirtækið Universal sem framleiðir myndina en það sendi á fjórða og fimmta áratugnum frá sér hryllingsmyndir á borð við Frankenstein og The Wolfman. Einnig framleiddi það myndina Dracula sem kom út 1979. Worthington getur valið úr hlutverkum þessa dagana eftir velgengni Avatar. Hann sést næst í hinni endurgerðu Clash of the Titans, auk þess sem hann hefur verið orðaður við myndina The Last Days of American Crime.

Lífið

Ný kynslóð Bubba-aðdáenda

Bubbi Morthens fagnar í ár þrjátíu ára starfsafmæli sínu en í stað þess að leigja Laugardalshöllina undir stórtónleika flakkar Bubbi milli framhaldsskóla með gítarinn að vopni.

Lífið