Lífið

Sendu inn myndina þína

Ljósmyndasamkeppni Panasonic og Vísis er nú þegar hafin og viðbrögðin hafa verið lygilega góð. Við þökkum ykkur kærlega fyrir þátttökuna og hvetjum lesendur til að halda áfram að deila bestu myndunum sínum með okkur. Taktu þátt ef þú vilt eiga möguleika á stórglæsilegum verðlaunum. Sendu inn ljósmyndirnar þínar fyrir 21. ágúst 2010. Nánari upplýsingar um keppnina hér.

Lífið

Það borgar sig að vera Jóhannsson

„Þetta var klikkað! Þetta gekk alveg rosalega vel,“ segir listamaðurinn Óli G. Jóhannsson, sem hefur opnað sýningu sína í Opera gallerí í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu.

Lífið

Ódýrasta hjónabandsráðgjöfin

„Það er fátt sem hressir meira upp á hjónabandið en að horfa á aðra sem eru að moka meiri skít en maður sjálfur,“ segir í tilkynningu frá Himnaríki og Reykjavik by Day & Night sem hafa gert samkomulag um uppsetningu á einleiknum Sellófon eftir Björk Jakobsdóttur.

Lífið

Loksins eitthvað uppbyggjandi - myndband

„Okkur langar rosalega mikið að sameina þjóðina í að huga að því sem vel er gert," sagði Ingibjörg Valgeirsdóttiir framkvæmdastjóri verkefnisins Til Fyrirmyndar Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Ingibjörgu. Kynntu þér hvatningarátakið sem er tileinkað frú Vigdísi Finnbogadóttur og íslensku þjóðinni hér.

Lífið

Ógeðslega mikið nývöknuð - myndband

„Ég er eiginlega bara ógeðslega mikið nývöknuð sko...." viðurkenndi Íris Hólm söngkona hljómsveitarinnar Bermuda eldsnemma í morgun þegar við sóttum hana heim. Við fórum illa með Írisi fyrir viðtalið sjá hér (óbirt efni á Facebook)

Lífið

Íslensk hönnun er greinilega málið - myndband

Við hittum hönnuðina Örnu Vignisdóttur, Huldu Hallgrímsdóttur og Sigrúnu Dóru Jónsdóttur í versluninni Nostrum á Skólavörðustíg í morgun í tilefni af því að íslenskir fatahönnuðir bjóða öllum sem vettlingi geta valdið í heimsókn í kvöld, á Jónsmessu.

Tíska og hönnun

Sonur Nönnu í fótspor Ramseys

Hjalti Nönnuson hefur lokið við að þýða sína fyrstu bók; uppskriftabók stjörnukokksins og Íslandsvinarins Gordons Ramsey sem á að koma út í október. Hjalti á ekki langt að sækja mataráhugann en hann er sonur Nönnu Rögnvaldardóttur matargúrús. Mataráhuginn kviknaði samt ekki fyrr en hann flutti að heiman.

Lífið

Stýrir skóla eftir þriggja ára starf

Jóhann og unnusta hans flytja með fjölskyldu sína til Raufarhafnar nú í sumar. Þar mun hann taka við starfi skóla- og leikskólastjóra, þó nokkuð undir meðalaldri þeirra sem taka við stöðu sem þessari.

Lífið

Yngstu þátttakendur Jónsvöku

Hugi Hlynsson og Júlía Runólfsdóttir opna ljósmyndasýninguna It‘s like living í Hinu húsinu í dag. Sýningin er í tengslum við Jónsvöku, listahátíð sem ætluð er ungu fólki, og fer fram dagana 24. júní til 27. júní.

Lífið

Óskarsverðlaunin í janúar?

Mikill titringur er í Hollywood um þessar mundir vegna hugmynda sem virðast vera uppi um að færa Óskarsverðlaunahátíðina. Hátíðin hefur hingað til verið haldin í mars, en samkvæmt vefsíðunni Deadline.com gæti farið svo að hátíðin fari fram í janúar á næsta ári.

Lífið

Fer með pönk til Patró

Menningarhátíðin Pönk á Patró verður haldin tvo laugardaga í sumar á Patreksfirði. Ein hljómsveit mætir í hvort skipti og verður reynt að ná til allra aldurshópa.

Lífið

Jay-Z kærður

Rapparinn og viðskiptamógúllinn Jay-Z hefur verið kærður af þrotabúi einkaþotufyrirtækisins Air Platinum. Fyrirtækið fer fram á um 250.000 dollara í skaðabætur, eða um 30 milljónir íslenskra króna.

Lífið

Freddy Krueger snýr aftur í draumum fólks

Freddy Krueger snýr aftur í níunda skipti í hrollvekjunni A Nightmare on Elm Street. Myndin var frumsýnd í gær, en naut mikilla vinsælda þegar hún var frumsýnd í bandarískum kvikmyndahúsum.

Lífið

Jónsvaka á Jónsmessu

Listahátíðin Jónsvaka verður haldin í fyrsta sinn um helgina í miðbæ Reykjavíkur. Markmiðið er að kynna unga íslenska listamenn.

Lífið

Ef þetta heitir ekki að daðra - myndband

„Sérstaklega á okkar tímum að við séum bara góð hvort við annað...ekki að vera alltaf í þunglyndisdeildinni. Við þurfum þess ekki," sagði Hemmi Gunn. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá viðtalið við Hemma.

Lífið

Orlando trúlofaður

Leikarinn Orlando Bloom og ofurfyrirsætan Miranda Kerr hafa opinberað trúlofun sína. Þetta staðfestir talsmaður parsins en sögusagnir um trúlofun hafa sveimað í kringum þau í dágóðan tíma. Bloom og Kerr eru búin að vera saman í þrjú ár en hafa aldrei viljað tala um samband sitt opinberlega.

Lífið

Rassaæfing sem virkar - myndband

„Þetta er svona hörkupúl fimm sinnum í viku og fólk sér eflaust árangur eftir tvær vikur, “ sagði Íris Ann þolfimiþjálfari í Baðhúsinu þegar við spurðum hana út í Body Exrpess námskeiðin í Baðhúsinu í morgun. „Þá þarf maður að kýla kannski á það og reyna aðeins meira á sig,“ sagði hún þegar talið barst að þessum 3-5 aukakílóum sem neita að fara. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt ef þú vilt sjá rassaæfingu sem Íris Ann segir að virki.

Lífið

Hvaða yngingarmeðal er í djúsnum Jóhanna Vilhjálms? - myndband

„Ég er í háskólanum í stjórnmálafræði..." sagði Jóhanna Vilhjálmsdóttir fjölmiðlakona þegar hún var 24 ára í upphafi gamals viðtals í þættinum Ísland í dag. „Það er ástin og umhyggjan sem skiptir mestu máli..." segir Jóhanna þegar talið berst að uppeldi. Þá rifjar Jóhanna upp fortíðina og lítur fram á við.

Lífið

Gifta sig í Gaga-latexi

Það ætti ekki að koma neinum á óvart að Russel Brand og Katy Perry fara ekki hefðbundnar leiðir við val á fötum fyrir hjónavígsluna. Parið er nú í óða önn að skipuleggja brúðkaupið sitt og með aðstoð frá búningahönnuði Lady Gaga hafa þau hannað giftingarfötin sín. Parið ætlar að vera í níðþröngum latex-búningum í stíl þegar gengið verður inn kirkjugólfið.

Lífið

Sýndarveruleiki næturlífsins í nýju lagi

Rapparinn Poetrix hefur gefið út nýtt lag sem ber nafnið Gredda. Lagið mun fara í spilun á útvarpsstöðvum landsins á næstu dögum. Rúm tvö ár eru síðan rapparinn gaf út lagið Vegurinn til glötunar í samvinnu við Bubba Morthens.

Lífið

Töpuðu en lúkkuðu þetta líka vel - myndir

Meðfylgjandi myndir tók Þorgeir ljósmyndari á Ballantine´s Midnight Open sem var haldið um helgina. Yfirfullt var í mótið og komust færri að en vildu enda er vinsælt að taka þátt í miðnæturgolfmóti sem kennt er við hið margrómaða Ballantine´s viskí. Spilað var svokallað Texas Scramble sem að hefur gefið góða raun. Vinningar voru veglegir og sigurvegarar mótsins, þeir Rafn Stefán Rafnsson og Hlynur Þór Stefánsson hlutu m.a. golfferð að eigin vali.

Lífið

Leikur FBI-stjóra

Leikarinn Leonardo DiCaprio hefur tekið að sér að leika stofnanda bandarísku leyniþjónustunnar FBI, J. Edgar Hoover, í mynd sem byggð verður á ævi hans. Leikstjóri myndarinnar er Clint Eastwood en þetta er í fyrsta sinn sem þeir tveir vinna saman. Handritshöfundur myndarinnar er sá hinn sami og skrifaði handritið að kvikmyndinni Milk, Dustin Lance Black, og hlaut Óskarsverðlaun fyrir.

Lífið

Vill Siennu burtu

Samkvæmt ýmsum tímaritum í Bretlandi á Sadie Frost, fyrrverandi eiginkona leikarans Jude Law, að hafa bannað Siennu Miller að vera of mikið í kringum börn sín eftir að sú síðarnefnda létt klippa dóttur Frosts án leyfis frá foreldrum barnsins.

Lífið

Bíða í tjaldi eftir frumsýningu Twilight

Hátt í þúsund manns hafa nú komið sér fyrir í tjaldborg fyrir utan Nokia-kvikmyndahúsið í Los Angeles þar sem þriðja myndin í Twilight-flokknum vinsæla verður frumsýnd á fimmtudaginn.

Lífið