Lífið

Tvær góðar á tónleikaferð

Hljómsveitirnar Moses Hightower og Jónas Sigurðsson og Ritvélar framtíðarinnar eru lagðar af stað í stutta tónleikaferð sem þær nefna Bílalest út úr bænum. Í gærkvöldi spiluðu sveitirnar á Stokkseyri en í kvöld verða þær á Sódómu Reykjavík. Á laugardagskvöld stíga þær svo á svið á Græna hattinum á Akureyri.

Lífið

Önnur glæpasaga Ragnars

Útgáfuhóf var haldið í Eymundsson til að fagna annarri glæpasögu Ragnars Jónassonar, Snjóblindu. Ragnar er ungur lögfræðingur sem vakti athygli fyrir bókina Fölsk nóta sem kom út á síðasta ári.

Lífið

U2 starfar með Mouse

Upptökustjórinn Danger Mouse, annar hluti hljómsveitarinnar Gnarls Barkley, vinnur með U2 að nýjustu plötu sveitarinnar.

Lífið

Promille og Brimi hrósað

Stuttmyndin Promille eftir Mar­tein Þórsson og kvikmyndin Brim fá góða dóma á heimasíðu breska tímaritsins Tribune. Myndirnar voru báðar sýndar á Riff-hátíðinni fyrir skömmu.

Lífið

Tilþrifamikið táningadrama

Órói er vel heppnuð unglingamynd að mestu leyti, laus við tilgerð og Hollywood-stæla sem einkenna oft íslenskar myndir af þessu sauðahúsi.

Gagnrýni

West fylgir aðeins ungum fyrirsætum

Kanye West er virkur Twitter-notandi og um 1,3 milljónir notenda fylgja honum á síðunni. Sjálfur fylgir West aðeins fjórtán notendum og eiga þeir allir eitt sameiginlegt; allir notendurnir eru ungar fyrirsætur.

Lífið

Beyoncé aftur sögð ólétt

Það virðist vera árviss viðburður hjá bandarískum fjölmiðlum að greina frá óléttu bandarísku söngkonunnar Beyoncé Knowles. Og nú var það US Weekly sem segist hafa traustar heimildir fyrir því að Beyoncé og eiginmaður hennar Jay-Z eigi von á sínu fyrsta barni.

Lífið

Eltihrellir settur í bann

Tímabundið nálgunarbann hefur verið sett á 39 ára mann sem hefur elt fyrirsætuna og sjónvarpskonuna Tyru Banks og fjölskyldu hennar á röndum í fjögur ár.

Lífið

Gaf tökuliði 500 úlpur

Leikarinn Johnny Depp keypti fimm hundruð vatnsheldar úlpur handa tökuliði myndarinnar Pirates of the Caribbean 4. Tökur hafa staðið yfir í London að undanförnu og þar hefur rok og rigning gert tökuliðinu lífið leitt. Depp vildi sjá til þess að öllum liði vel í kringum sig og pungaði út rúmlega sjö milljónum króna í úlpurnar.

Lífið

Flowers á heimleið

Söngvarinn Brandon Flowers úr The Killers er farinn að sjá fyrir endann á sólótilburðum sínum, í bili að minnsta kosti. Fyrsta sólóplata Flowers, Flamingo, kom út 10. september síðastliðinn og hann er nú á tónleikaferðalagi í Bretlandi. Eftir það taka við nokkrir tónleikar í Bandaríkjunum en svo ætlar söngvarinn að eyða tíma með eiginkonu sinni. Þau eiga von á þriðja barni sínu innan tíðar.

Lífið

Íslensk lögga í erlendri seríu

„Hann hefur mikla samúð með Íslendingum og íslenskum málstað í sambandi við hrunið. Hann fær lesendur til að finna til með Íslendingum,“ segir Pétur Már Ólafsson, útgefandi hjá Veröld.

Lífið

Góðir gestir á ástarplötu

Belle & Sebastian gaf fyrir skömmu út sína áttundu hljóðversplötu, þar sem góðir gestir koma við sögu. Umfjöllunarefnið er ástin í allri sinn dýrð. Áttunda hljóðversplata skosku poppsveitarinnar Belle & Sebastian, sem nefnist Belle & Sebastian Write About Love, kom út fyrir skömmu.

Lífið

Mel Gibson í Timburmönnum tvö

Mel Gibson hyggst koma lífi sínu og ferli á réttan kjöl og telur besta ráðið til þess að leika lítið gestahlutverk í kvikmyndinni The Hangover 2. Samkvæmt vefsíðunni Pagesix.com hefur verið gengið frá samningum við Hollywood-stjörnuna og mun Gibson leika húðflúrlistamann í Bangkok.

Lífið

Nirvana-sýning á næsta ári

Sýningin Pönkið fært til fjöldans, þar sem rokksveitin Nirvana verður í aðalhlutverki, verður opnuð í heimaborg hennar Seattle í apríl á næsta ári. Sýningin mun standa yfir í tvö ár.

Lífið

Rollingar góðir vinir

Þó að Keith Richards úr Rolling Stones segi söngvarann Mick Jagger „óþolandi“ í nýrri sjálfsævisögu sinni, segir gítarleikarinn þá enn vera góða vini.

Lífið

Þú komst í hlaðið setur Íslandsmet á Tónlistanum

„Djöfulsins klassi það - á þessum síðustu og verstu," segir stórsöngvarinn Helgi Björnsson þegar blaðamaður tjáir honum að plata hans og Reiðmanna vindanna, Þú komst í hlaðið, hafi eytt síðustu 16 vikum á toppi Tónlistans.

Lífið

Skrifar handrit fyrir Hollywood

„Þetta er rómantísk gamanmynd sem er innblásin af áhuga mínum á rómantískum gamanmyndum síðastliðin fimmtán ár." Þetta segir rithöfundurinn Óttar Martin Norðfjörð sem nú situr sveittur í spænsku borginni Sevilla að skrifa kvikmyndahandrit fyrir umboðsskrifstofu í Hollywood.

Lífið

Submarino verðlaunuð

Danski leikstjórinn Thomas Vinterberg, handritshöfundurinn Tobias Lindholm og framleiðandinn Morten Kaufmann hljóta hin eftirsóttu kvikmyndaverðlaun Norðurlandaráðs fyrir myndina Submarino.

Lífið

Óttar á leið til Kína

Óttar Guðnason kvikmyndatökumaður segir að vinnan við Inhale hafi verið stíf enda myndin gerð á aðeins 29 dögum. Hann segir jafnframt sig langa til að gera mynd á íslensku.

Lífið

Tom Cruise rænir leikara af Jóni Atla

„Þetta er bara svona, maður verður að taka þessu," segir Jón Atli Jónasson, leikskáld og leikstjóri. Jón Atli er að leggja lokahönd á leiksýninguna Mojito sem hann leikstýrir og skrifar sjálfur og verður frumsýnd í Tjarnarbíói á næstunni.

Lífið

Barnaflækjur í bíóhúsum

Þeir sem hafa gaman af flóknum fjölskyldumynstrum og barneignum ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í kvikmyndahúsum borgarinnar því tvær myndir, The Kids Are Alright og The Switch, verða frumsýndar um helgina.

Lífið

Vill fá launin sín

Óskarsverðlaunahafinn Adrien Brody stendur nú í miklu stappi við ítalska kvikmyndaframleiðendur og reynir að fá lögbann á hryllingsmyndina Giallo.

Lífið

Söngur og leikur á Kjarvalsstöðum - myndband

Listasafn Reykjavíkur og Skotturnar, regnhlífasamtök kvennahreyfingarinnar á Íslandi hafa ruglað saman reitum og skipulagt dagskrárveislu sem hefur verið nokkurs konar upptaktur fyrir kvennafrídaginn 25. október.

Lífið

Borða, biðja, elska námskeið - myndband

Borða biðja elska námskeið með Eddu Björgvins og Bjargeyju Aðalsteinsdóttur er framundan 26. október næstkomandu. Um er að ræða námskeið sem gengur út að efla jákvæðni andlega og líkamlega. Á Léttbylgjunni er í gangi leikur fyrir hópa sem geta skráð sig og átt kost á því að sækja umrætt námskeið, fá glæsilegan málsverð auk þess sem allur hópurinn fær bókina og boðsmiða á myndina sem allar konur verða að sjá. Borðum, biðjum og elskum með Maður lifandi og Eddu Björgvins.

Lífið

Eins og múmía í ræktinni

Kelly Osbourne segist hafa litið út eins og múmía þegar hún mætti í líkamsræktarstöð í Japan á dögunum þar sem hún þurfti að hylgja öll húðflúrin sem hún er með á líkama sínum. Kelly var á ferðinni í Japan þar sem hún fylgdi föður sínum, Ozzy, sem hélt tónleika þar í landi. Í Japan þykir óvirðing að sýna húðflúrin á líkamsræktarstöðum þannig að Kelly þurfti að vefja utan um sig sárabönd því líkami hennar er nánast allur þakinn í húðflúrum. Ég leit út eins og múmía en það var mjög fyndið. Sem betur fer eru ekki speglar í japönskum líkamsræktarstöðvum þannig að ég þurfti ekki að horfa upp á mig líta svona út," sagði Kelly í viðtali við Closer tímaritið.

Lífið