Lífið

Umbreytingar snúa aftur

Þriðja myndin um Umbreytingana verður frumsýnd um helgina en þetta á að vera síðasta myndin í þríleik Michaels Bay um vélrænu geimverurnar. Að þessu sinni er allur heimurinn undir.

Lífið

Rokkað á Eistnaflugi

Fjórar erlendar hljómsveitir koma fram á rokkhátíðinni Eistnaflugi sem verður haldin í Neskaupstað dagana 7. til 9. júlí. Þær heita Triptykon frá Sviss, The Monolith Deathcult frá Hollandi, Secrets of the Moon frá Þýskalandi og hin færeyska Hamferð. Á meðal íslenskra hljómsveita sem stíga á svið eru Ham, Dr. Spock, Sólstafir, Mammút, SH Draumur og Skálmöld auk Eiríks Haukssonar.

Lífið

40 ár frá dauða Morrison

Á sunnudag verða fjörutíu ár liðin síðan Jim Morrison, söngvari The Doors, lést í París aðeins 27 ára. Fréttablaðið tók saman tíu áhugaverð ummæli frá þessum mikla áhrifavaldi í rokksögunni.

Lífið

Kvikmynd um Brian Wilson

Kvikmynd er í bígerð um ævi Brians Wilson, fyrrum forsprakka hljómsveitarinnar Beach Boys. Oren Moverman, sem leikstýrði hinni vel heppnuðu The Messenger, er að skrifa handrit myndarinnar, sem hefur ekki enn fengið nafn. Í yfirlýsingu frá framleiðslufyrirtækinu River Road Entertainment fjallar myndin um einstakan tónlistarferil Wilsons, andlega erfiðleika hans og hvernig honum hefur tekist að halda áfram í tónlistinni með hjálp eiginkonunnar Melindu.

Lífið

Áttburamamman hatar börnin

Nadya Suleman, sem eignaðist áttbura fyrir rúmum tveimur árum og hlaut heimsfrægð fyrir, er við það að gefast upp á að ala upp börnin sín en þau eru fjórtán talsins. Nadya lét hafa eftir sér í viðtali við InTouch tímaritið: Ég hata börnin mín. Mér hryllir við þeim. Eldri börnin mín sex eru eins og dýr því ég hef engan tíma til að siða þau til. Meðfylgjandi má sjá nýjar myndir af Nadyu.

Lífið

Haugadrukkin Lindsay

Leikkonan Lindsey Lohan, sem losnaði í gær úr mánaðar löngu stofufangelsi, hrundi í það aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hún var látin laus. Meðfylgjandi myndir voru teknar af Lindsay í vægast sagt slæmu ásigkomulagi þegar hún yfirgaf skemmtistaðinn Lexington Social Club í Hollywood.

Lífið

Dregur úr hrukkum og strekkir húðina

Þetta dregur úr hrukkum og strekkir húðina og veitir hámarks næringu," segir Rannveig B. Hrafnkelsdóttir framleiðslustjóri Purity Herbs á Akureyr þegar hún og Ásta Kristín Sýrusdóttir framkvæmdastjóri sýna hvernig andlitsolía (serum) og hrukkukremið Undur berjanna, sem framleitt er úr íslensku jurtum, virka á húðina. Kremin eru 100% náttúruleg og alíslensk þar að auki. Hér segja Ásta og Rannveig frá kynörvandi sleipiefnum sem eru vinsæl hér á landi. http://visir.is/alislensk-sleipiefni-sem-svinvirka/article/2011110619275

Lífið

Harpa fjölgar Airwaves-miðum

Um 900 fleiri miðar verða í boði á Iceland Airwaves-hátíðina í október en verið hefur. Ástæðan er sú að Harpa er komin í hóp tónleikastaða og því verður meira pláss en áður fyrir áhorfendur.

Lífið

Til liðs við Smith

Denzel Washington er nú talinn líklegastur til að hreppa aðalhlutverkið í kvikmyndinni The American Can sem fjallar um fellibylinn Katrínu og þær skelfilegu afleiðingar sem hann hafði fyrir íbúa New Orleans.

Lífið

Caine skammaður

Leikstjóranum Chris Nolan er ákaflega annt um kvikmyndir sínar og krefst algjörrar þagmælsku og trúnaðar frá starfsfólki sínu. Sir Michael Caine fékk að bragða á þessari sérvisku leikstjórans þegar hann missti óvart út úr sér í blaðaviðtali að tökur væru hafnar og hann myndi áfram leika einkaþjón Bruce Wayne, Alfred Pennyworth.

Lífið

Tileinka Biogen raftónlistarhátíðina Undir jökli

Í byrjun ágúst verður íslenska raftónlistarhátíðin Undir jökli, Extreme Chill Festival 2011, haldin á Hellissandi við rætur Snæfellsjökuls. Hátíðin verður tileinkuð íslenska raftónlistarfrumkvöðlinum Bjössa Biogen, Sigurbirni Þorgrímssyni, sem lést fyrir aldur fram í byrjun þessa árs.

Lífið

The Saga til Íslands í nóvember

Kanadíska hljómsveitin The Saga spilar í Vodafonehöllinni 4. nóvember. Sveitin naut töluverðra vinsælda á níunda áratugnum og hennar þekktustu lög eru Wind Him Up, On the Loose og Humble Stance.

Lífið

Ýkt mikið fótósjoppuð

Í meðfylgjandi myndasafni má sjá Pamelu Anderson pósa í Bonita De Mas undirfötum þar sem búið er að eiga töluvert við myndirnar með aðstoð tölvutækninnar. Þá má einnig sjá myndir af Pamelu sem ekki er búið að eiga við.

Lífið

Glaðir gestir á Afrocubism í Hörpu

Ljósmyndari Fréttablaðsins var í Hörpunni á þriðjudaginn þegar hljómsveitin Afrocubism spilaði við góðar undirtektir. Sveitin er skipuð merkustu tónlistarmönnum Kúbu og Malí og notaði fjöldi fólks tækifærið og skellti sér á tónleikana.

Lífið

Speisað vinnuspeis

Í myndasafni má sjá myndir, líkan og teikningar af skrifstofuhúsnæði sem er staðsett í Shanghai í Kína. Hönnunin er eftir Taranta arkítekta. Vinnustöðvarnar eru skemmtilega hannaðar með það í huga að efla sköpun á meðal starfsmanna. Á neðri hæð skrifstofunnar má sjá loftið falla niður í mitt rýmið líkt og um stóran vatnsdropa væri að ræða. Þá er gólfið á efri hæðinni nýtt sem skrifstofuborð eins og sjá má hér.

Tíska og hönnun

Gala eða gallabuxur - skiptir engu þú lúkkar

Black Eyed Peas söngkonan, Fergie, 36 ára, var mynduð í Düsseldorf í Þýskalandi í gær klædd í stuttbuxur og leðurstígvel. Þá má sjá söngkonuna í gulum galakjól ásamt eiginmanni sínum, leikaranum Josh Duhamel. Fergie er alltaf glæsileg sama hverju hún klæðist eins og sjá má í myndaablúmi. Þá má einnig sjá hana í hlébarðakjól og leðurvesti í París á dögunum.

Lífið

KR-útvarpið til Færeyja

KR-útvarpið ætlar að elta meistaraflokk karla í fótbolta til Gundadal í Þórshöfn í Færeyjum. Þar fer fram leikur ÍF Fuglafjarðar og KR í Evrópudeildinni í kvöld. Þröstur Emilsson verður í Þórshöfn með viðtöl fyrir leik og lýsir svo leiknum sem hefst klukkan 18. Útsendingin, sem er sú 314. í röðinni hjá KR-útvarpinu, hefst klukkan 17 og verður Páll Sævar Guðjónsson í KR-heimilinu. Útvarp KR sendir út á FM 98,3 og á Netheimur.is, iPhone, iPad og Ipod.

Lífið

Línurnar að skýrast hjá Tarantino

Quentin Tarantino hefur klófest bæði Leonardo DiCaprio og Jamie Foxx fyrir kvikmynd sína Django Unchained. Fréttir af myndinni eru frekar óljósar en samkvæmt vefsíðunni contactmusic.com er um að ræða vestra, innblásinn af spagettívestranum Django eftir Sergio Corbucci. "Mig hefur alltaf langað til að gera mynd um svartasta blettinn á sögu Bandaríkjanna; þrælahaldið. En ég vil ekki gera það á dramatískan hátt heldur með því að notast við vestraformið,“ hafði Daily Telegraph eftir Tarantino fyrir fjórum árum.

Lífið

Ugly Betty-stjarna gift

Leikkonan America Ferrera gekk í það heilaga á dögunum en hinn heppni er æskuástin og leikstjórinn Ryan Piers Williams. Parið hefur verið saman lengi en trúlofaði sig fyrir ári.

Lífið

Harry prins deitar undirfatamódel

Harry Bretaprins hefur undanfarnar fjórar vikur verið að slá sér upp með Florence Brudenell-Bruce, 25 ára, sem skoða má í símaauglýsingu í meðfylgjandi myndskeiði. Florence lagði stund á listasögu en hefur þess á milli pósað í undirfötum. Hana dreymir um að verða kvikmyndastjarna og ætlar því að freista gæfunnar í Los Angeles í haust. Nú sitja breskir slúðurmiðlar fyrir stúlkunni og mynda hana hvert sem hún fer. Fyrirsætan átti í tveggja ára ástarsambandi við Formúlu 1 ökumanninn Jenson Button en þau hættu saman árið 2008.

Lífið

Gat verið - ber að ofan

Leikkonan Gwyneth Paltrow, 38 ára, pósar ber að ofan í nýjasta Vanity Fair tímaritinu. Eins og sjá má í myndasafni er leikkonan eingöngu klædd í Louis Vuitton skartgripi og netasokkabuxur. Gwyneth, sem er tveggja barna móðir, er í dúndurformi enda leggur hún ríka áherslu á heilbrigt mataræði og hreyfingu.

Lífið

Galliano hannar brúðarkjólinn

Fyrirsætan Kate Moss ætlar nú loks að ganga upp að altarinu en sá heppni er rokkarinn Jamie Hince. Brúðkaupið fer fram á heimili Moss á laugardaginn. Það er enginn annar en hönnuðurinn John Galliano sem hannar brúðarkjólinn en þeim upplýsingum hefur verið haldið leyndum hingað til.

Lífið

Saktmóðigur með plötu

Rokksveitin Saktmóðigur gefur á föstudag út tíu laga plötu sem nefnist Guð hann myndi gráta. Sveitin var stofnuð árið 1991 og hefur gefið út fimm titla í ýmsu formi, eða eina kassettu, tvær tíu tommu vínylplötur og tvær geislaplötur sem heita Ég á mér líf og Plata. Auk þess hefur hljómsveitin gefið út lög á safnplötum.

Tónlist

Naomi Campbell hannar gallabuxnalínu

Ofurfyrirsætan Naomi Campbell hefur verið fengin til að hanna gallabuxnalínu fyrir ítalska tískumerkið Fiorucci. Sögur herma að línan verði frumsýnd á herratískuvikunni í Mílanó sem fram fer um þessar mundir.

Tíska og hönnun