Lífið

Stærsta keiluhöll landsins opnuð í Grafarvogi í febrúar

„Auðvitað mun þetta hafa einhver áhrif á rekstur Keiluhallarinnar í Öskjuhlíð, þannig er það bara með allt nýtt á Íslandi. En samkvæmt okkar útreikningum munu þau áhrif standa yfir í sex til átta mánuði og svo jafnast út,“ segir Rúnar Fjeldsted. Hann opnar nýja og glæsilega keiluhöll í Egilshöll í febrúar en rekur einnig Keiluhöllina í Öskjuhlíð.

Lífið

Sannleikurinn sagna bestur

Leikarinn Ashton Kutcher vill að sannleikurinn fái að njóta sín í meira mæli í fjölmiðlum. Hann hvetur fólk til að hætta að dreifa slúðri sem er ekki sannleikanum samkvæmt. Leikarinn Ashton Kutcher hefur beðið fjölmiðla um að hafa sannleikann í hávegum í nýju myndbandi sem hann birti á Twitter-síðu sinni. Þar segist Kutcher, sem hefur verið sakaður um að halda framhjá eiginkonu sinni Demi Moore, vonast til að ummæli sín muni leiða til meiri umræðu um sannleika í fjölmiðlum.

Lífið

Óhamingjusöm raunveruleikastjarna

Raunveruleikastjarnan Kim Kardashian giftist körfuknattleiksmanninum Kris Humphries fyrir skemmstu. Fjölmiðlar hið vestra virðast ekki hafa mikla trú á hjónabandinu því þeir keppast við að flytja skilnaðarfréttir af hjónakornunum.

Lífið

Málstaður er mikilvægur

Diane Kruger hefur gaman af því að leika í kvikmyndum þar sem aðalsöguhetjan fær tækifæri til að verja einhvern málstað. „Það sem ég elska við hasarmyndir er þegar þú færð það á tilfinninguna að persónan er skynsöm og hugsar um af hverju ákveðnir hlutir eru að gerast,“ sagði Kruger í heimildarmyndinni The Hero"s Journey sem fjallar um hasarmyndir. Kruger hefur leikið í myndum á borð við Troy, Inglourious Basterds og Inhale. „Þú getur stutt málstað sem er stærri en þú sjálfur. Oft er þetta mjög venjulegt fólk í óvenjulegum aðstæðum.“

Lífið

Vill koma Diaz saman við Law

Leikkonan Cameron Diaz hætti með hafnaboltaleikmanninum Alex Rodriguez í september og hefur síðan þá eytt nokkrum tíma í London með vinkonu sinni Gwyneth Paltrow. Fregnir herma að Paltrow sé komin í hlutverki hjónabandsmiðlara og ætli sér að finna gott mannsefni fyrir Diaz.

Lífið

Tobba týnd á Skjá einum

„Við horfum auðvitað gaumgæfilega á þessar tölur og tökum allt svona föstum tökum," segir Hilmar Björnsson, dagskrárstjóri Skjás eins.

Lífið

Leika lausum hala í Borgarleikhúsinu

Sigtryggur Baldursson verður væntanlega með væna magapínu af stressi í næstu viku því á fimmtudaginn stendur hann á stóra sviðinu í Borgarleikhúsinu þegar Kirsuberjagarðurinn verður frumsýndur og strax næsta kvöld hefur göngu sína á RÚV tónlistarþáttur hans, Braga Valdimars Skúlasonar og Guðmundar Kristins Jónssonar, Hljómskálinn.

Lífið

Hugsar um Myspace

Söngvarinn og leikarinn Justin Timberlake ætlar að nota fríið sitt það sem eftir er ársins til að finna leiðir til að hressa upp á Myspace-síðuna. Timberlake á hlut í síðunni og hefur mikinn hug á því að auka vinsældir hennar. „Það er ekkert fram undan hjá mér annað en að hugsa um ýmislegt í tengslum við Myspace. Ég þarf ekki að vera á staðnum því ég get fengið hugmyndir á golfvellinum eða snjóbrettinu,“ sagði Timberlake. Myspace var vinsælasta samskiptasíðan á netinu til ársins 2006 þegar Facebook brunaði fram úr henni.

Lífið

Þráir stundum drykk

Rapparinn Eminem gaf út breiðskífuna Recovery síðasta sumar og flaug hún strax í fyrsta sæti vinsældalistans í Bandaríkjunum. Eminem viðurkennir í nýlegu viðtali að það geti stundum reynst erfitt að halda sér á beinu brautinni.

Lífið

Heldur hlutverki leyndu

Julia Roberts fer með hlutverk illu drottningarinnar í nýrri kvikmynd byggðri á ævintýrinu um Mjallhvíti. Roberts treystir sér þó ekki til að segja börnum sínum frá hlutverkinu enda séu þau dauðhrædd við drottninguna.

Lífið

Fær sjónvarpsþátt

Weston Cage, sonur leikarans Nicolas Cage, hefur fengið sinn eigin raunveruleikaþátt ásamt móður sinni, Christinu Fulton. Sjónvarpsþátturinn hefur hlotið hið frumlega nafn Uncaged.

Lífið

Flottur í tauinu

Fjöldi stórstjarna hefur tekið þátt í mótmælunum í New York sem nefnast Occupy Wall Street. Þar er meðal annars verið að mótmæla græðgi og siðleysi stórfyrirtækja. Rapparinn Kanye West var á meðal mótmælenda en munurinn á honum og öðrum mótmælendum var að hann klæddist fatnaði að andvirði 3,5 milljóna. West klæddist meðal annars skyrtu frá tískuhúsinu Givenchy, stuttermabol frá hönnuðinum Alexander Wang og gallabuxur frá Ballmain sem kosta um 100 þúsund krónur auk skartgripa. Þótti sumum þetta ekki við hæfi.

Lífið

Fékk ekki borð á KFC

Hollywood-stjarnan John Travolta hafði ekki erindi sem erfiði þegar hún reyndi að panta borð á skyndibitastaðnum KFC í Sussex-skíri í Englandi. Talið var að um gabb væri að ræða þegar kona hringdi á staðinn og sagðist vilja panta borð fyrir herra Travolta. Starfsmaður staðarins sagði að fólk gæti ekki pantað borð á staðnum og því hætti Travolta við komu

Lífið

Fékk ekki að vera með

Leikkonan ólukkulega Lindsay Lohan er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Foster the People en meðlimir sveitarinnar virðast ekki endurgjalda aðdáunina. Lohan reyndi ítrekað að ná sambandi við söngvara sveitarinnar á skemmtistað en hann vísaði henni ávallt frá. Lohan elti hljómsveitarmeðlimi af tónleikum og á skemmtistaðinn Beverly Lounge og reyndi ítrekað að ná athygli söngvarans Mark Foster, án árangurs. „Mark sneri sér undan í hvert sinn sem Lohan nálgaðist borðið til að reyna að ná af honum tali. Hann vildi augljóslega ekkert með hana hafa,“ sagði sjónarvottur. Foster þessi gaf sér þó tíma til að tala við Nicky Hilton, Michael Bay og Dane Cook þetta sama kvöld.

Lífið

Austurrískur ásláttarleikari heillaði Björk

Austurríski ásláttarleikarinn Manu Delago hefur spilað með Björk á Biophilia-tónleikum hennar í Hörpu að undanförnu. Hljóðfærið sem hann er þekktastur fyrir nefnist Hang og er aðeins tíu ára gamalt.

Tónlist

Rosie O'Donnell með nýja kærustu - Pabbinn ekki sáttur

Þáttastjórnandinn Rosie O’Donnell er komin með nýja konu upp á arminn og er yfir sig ástfangin. Foreldrar nýju kærustunnar segjast þó hafa verið grunlaus um að dóttir þeirra væri samkynhneigð fyrr en fjölmiðlar greindu frá sambandinu.

Lífið

Rokktrefill frá Tyler

Steven Tyler, söngvari Aerosmith, hefur sett á fót sína eigin tískulínu. Það er Andy Hilfiger sem hefur umsjón með hönnuninni og kemur Tyler þar hvergi nærri. Hans hlutverk verður að kynna nýju línuna í fjölmiðlum.

Lífið

Segja alvöru í sambandi J-Lo og Cooper

Tímaritið OK! heldur því fram að alvara sé að færast í samband Jennifer Lopez og Bradley Cooper. Nýverið sást til parsins þar sem þau óku á brott frá veitingastað í Kaliforníu.

Lífið

Ótrúlegar vinsældir Gamlingjans

"Þetta er einsdæmi og þetta er met,“ segir Erla Björg Gunnarsdóttir, kynningarstýra Forlagsins. Bókin Gamlinginn sem skreið út um gluggann og hvarf, eftir sænska rithöfundinn Jonas Jonasson, hefur slegið í gegn á Íslandi. Bókin hefur fengið góða umsögn gagnrýnenda og hjá Forlaginu muna menn ekki eftir annarri eins sölu. Þriðja prentun er komin í verslanir en ekki eru nema þrjár vikur liðnar síðan bókin kom út. Erla Björg segir að alls hafi sjö þúsund bækur selst út af lager Forlagsins og samtals hafa 8.500 eintök nú verið prentuð.

Menning

Þjóðverjar spenntir fyrir Heilræðum Gillzeneggers

Bókamessan í Frankfurt er nýafstaðin. Þar var Ísland og íslenskar bókmenntir í öndvegi og vakti litla sögueyjan óhemju athygli. Einn rithöfundanna sem þýskir bókmenntapáfar sýndu áhuga var Egill "Gillzenegger“ Einarsson.

Lífið

Stóns á Gauknum laugardagskvöld

Rolling Stones heiðrunarsveit Íslands sem kalla sig Stóns halda heljarinnar tónleika til heiðurs stærstu og bestu rokkhljómsveit mannkynsögunnar að þeirra mati á Gauk á Stöng á morgun laugardag, 22.oktober...

Tónlist

Westlife hættir á næsta ári

Ein ástsælasta strákasveit írlands, Westlife, mun hætta eftir veglega tónleikaferð á næsta ári. Írar syrgja sveitina, sem naut mikillar hylli.

Lífið

Sonur Natalie Portman

Óskarsverðlaunahafinn, Natalie Portman, 30 ára, hélt á 4 mánaða gömlum syni sínum, Aleph, þegar hún var á ferðinni í Los Angeles í gærdag...

Lífið

Úr 1.500 áhorfendum í fjörutíu

Víkingarokksveitin Skálmöld lýkur tónleikaferð sinni um Evrópu í Austurríki á sunnudaginn. Alls verða tónleikarnir 24 talsins á 24 dögum og í ellefu löndum, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. „

Lífið

Shiloh Pitt sögð skotin

Ástalíf Angelinu Jolie hefur lengi verið fjölmiðlamatur en nú eru bandarískir fjölmiðlar farnir að beina sjónum sínum að Jolie-Pitt börnunum. In Touch heldur því fram að ástin blómstri milli Shiloh Jolie-Pitt og Kingstons Rossdale, sonar Gwen Stefani, en börnin eru bæði fimm ára gömul.

Lífið

Saumaði í Svíþjóð

Söngkonan Britney Spears virðist vera farin að læra að sauma föt. Nýlega birti hún mynd af sér á Twitter þar sem hún skrifaði: „Í saumakennslu í Svíþjóð hjá búningadeildinni.“ Hún hefur verið á tónleikaferð um Norðurlönd að undanförnu. Nýjasta smáskífulag Britneyjar, Criminal, kom út fyrir skömmu. Myndbandið við lagið var tekið upp í London á meðan hún var í kynningarferðalagi um Bretland í síðasta mánuði. Söngkonan byrjar tónleikaferð sína um Bretland og Írland 24. október þar sem hún kynnir sjöundu hljóðversplötu sína Femme Fatale.

Lífið

Frumsýna glænýtt Partíþokumyndband

Hljómsveitirnar Prinspóló og FM Belfast hafa gefið út glænýtt myndband við lagið Partíþokan í tilefni af samnefndri tónleikaferð sveitanna. Partíþokan er grípandi lag og mun eflaust njóta nokkurrar hylli. Það kom upprunalega út á safnskífunni Hitaveitan en hefur fengið yfirhalningu í boði Árna Rúnars Hlöðverssonar í FM Belfast.

Lífið

Mikið rétt skvísurnar mættu

Meðfylgjandi myndir voru teknar á snyrti- og heilsustofunni Systrasel Háaleitisbraut 58 -60 í gærkvöldi við opnun á nýju húsnæði stofunnar...

Lífið

Megas úlnliðsbrotinn

„Ég rann til á hálkubletti," segir Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, sem varð fyrir því óláni að úlnliðsbrotna um helgina.

Lífið