Lífið

Grínarar í golfi

Það væru eflaust margir til í að halda á golftöskunum hjá tveimur glaðbeittum golfkeppendum sem etja kappi á Grafarholtsvelli í dag. Þetta eru nefnilega þeir Þórhallur Sigurðsson, eða Laddi, og Jörundur Guðmundsson, sem reyndar hefur ekki komið fram lengi en var meðal vinsælustu grínista og eftirhermum landsins á áttunda og níunda áratugnum. Töskuberinn gæti örugglega fengið að heyra í Eiríki Fjalari og gömlum stjórnmálamönnum milli högga.

Lífið

Atli kynnir bjarta framtíð

Atli Fannar Bjarkason hefur tekið við starfi kosningastjóra Bjartrar framtíðar, sem er framboð Guðmundar Steingrímssonar og Heiðu Kristínar Helgadóttur.

Lífið

Verður betri með árunum

Halle Berry fagnaði fjörtíu og sex ára afmælisdeginum sínum í gær og er óhætt að segja að leikkonan fagra verði betri með árunum en hún hefur sjaldan verið í betra formi. Berry landaði sínu fyrsta alvöru hlutverki árið 1989 í sjónvarpsþáttunum, Living Dolls en síðan hefur hún meðal annars verið Bond stúlka, andlit tískurisans Versace og svo lengi mætti telja.

Lífið

Testósterón á kraftasýningu

„Við ætlum að vera með létta testósterónflóðbylgju þarna,“ segir Hjalti „Úrsus“ Árnason. Hann og Svavar Jóhannsson hjá Fitness Sport standa fyrir bekkpressukeppni fyrir gesti hasarmyndarinnar The Expendables 2 á fimmtudaginn fyrir utan Laugarásbíó.

Lífið

Rekin eftir framhjáhaldið

Framhjáhald leikkonunnar Kristen Stewart með leikstjóra Snow White and the Huntsman, Rupert Sanders, 41 árs, tekur aldeilis sinn toll fyrir leikkonuna sem er aðeins 22 ára gömul. Ekki nóg með að unnusti hennar og mótleikari Robert Pattinson vill ekki svo mikið sem sjá hana þessa dagana heldur fær hún ekki að leika í framhaldsmynd um Mjallhvít.

Lífið

Aldrei of gamlir fyrir tölvuleiki

„Það má segja að við séum komnir aftur heim,“ segir Sverrir Bergmann sem stjórnar tölvuleikjaþættinum Game Tíví ásamt Ólafi Þór Jóelssyni.

Lífið

Hin fullkomna kona

Hin nýtrúlofuðu Miley Cyrus og Liam Hemsworth eru yfir sig ástfangin. Í nýlegu viðtali við tímaritið Instyle talar Hemsworth um ástina og samband sitt við söngkonuna ungu.

Lífið

Góðir grænjaxlar

Early Birds inniheldur fimmtán lög sem Gunnar Örn Tynes og Örvar Þóreyjarson Smárason hljóðrituðu á árunum 1998-2000.

Gagnrýni

Skoða heiminn og gefa af sér

Á næstu vikum munu hópar ungra Íslendinga hverfa til ólíkra svæða í Evrópu, þar sem þeir munu taka þátt í samfélagsverkefnum á vegum sjálfboðaliðasamtakanna Seeds.

Lífið

Áhrifamáttur útnárans

Metnaðarfull sýning sem líður fyrir að reyna að gera of margt í einu. Er meira lókal en glóbal. Dr. Hlynur Helgason sýningarstjóri segir í sýningarskrá að sýningin sé skoðun á lókalnum, heimabænum eða hinu staðbundna, gagnvart umheiminum og áhrifamiðjum hans og spennunni sem myndast þarna á milli.

Gagnrýni

Alexander Briem fær fylgd frá mömmu í meistaranám

"Það er algjör himnasæla fyrir mömmu að sjá draum rætast hjá barninu sínu sem hann hefur átt síðan hann var tveggja ára," segir Sigríður Pétursdóttir, dagskrárgerðarkona hjá Ríkisútvarpinu, sem fylgir syni sínum, hinum unga og upprennnandi leikara Alexander Briem, til London í byrjun september þar sem hann hefur meistaranám í kvikmyndaleik við hinn virta leiklistarskóla Central School of Speech and Drama.

Lífið

Sveitabrúðkaup hjá fjölmiðlapari

Fjölmiðlaparið Þórhildur Ólafsdóttir og Sveinn Halldór Guðmarsson gengu í það heilaga um helgina að viðstöddum vinum og vandamönnum. Þau starfa bæði á fréttastofu Ríkissjónvarpsins. Parið bauð til veislu vestur í Grundarfirði en Þórhildur á ættir sínar að rekja þangað. Það var svo systir brúðgumans, sr. Sigríður Guðmarsdóttir, sem pússaði parið saman. Veislustjórar voru Katrín Bessadóttir og Ásmundur Haraldsson og var gleðin víst við völd fram eftir nóttu í sveitinni.

Lífið

Jennifer Aniston fékk bónorð á afmælinu

Jennifer Aniston og Justin Theroux opinberuðu trúlofun sína sig á föstudaginn var. Talsmaður Theroux staðfesti fréttirnar á vefsíðunni Gossipcop.com. Theroux og Aniston fögnuðu afmæli hans á föstudag og nýtti leikarinn tækifærið og bað um hönd Aniston.

Lífið

Kanye West og Kim Kardashian saman á Hawaii

Kanye West og Kim Kardashian sáust í Honolulu á Hawaii í gær. Parið var afslappað bæði í fasi og klæðnaði er það fékk sér ís áður en það hélt í upptökustúdíó eins og sjá má í myndasafni.

Lífið

Bak við tjöldin með Heidi Klum

Þýska fyrirsætan Heidi Klum fékk aðstoð við að líta fullkomlega vel út þegar hún sat fyrir í gallabuxnaauglýsingu. Eins og sjá má á myndunum í myndasafni var fyrirsætunni sýnt nákvæmlega af fagfólki hvernig hún ætti að hreyfa sig, brosa og haga sér yfirhöfuð áður en upptökuvélarnar voru settar í gang. Sjáið muninn á útliti Heidi eftir að hár hennar hefur verið greytt og andlit farðað. Munurinn er mikill svo vægt sé til orða tekið.

Lífið

Ræðir ekki skilnaðinn

Söngkonan Vanessa Paradis vill ekki tjá sig um skilnaðinn við Johnny Depp í nýju viðtali við Elle Magazine. Parið skildi í vor eftir fjórtán ára sambúð.

Lífið

Athyglisverður borgarstjóri

Slúðursíðan Dlisted.com hrósar Jóni Gnarr fyrir þátttöku í gleðigöngunni sem fram fór á laugardag. Borgarstjórinn klæddi sig í kjól og huldi andlit sitt með lambhúshettu áþekkri þeirri er meðlimir pönksveitarinnar Pussy Riot skarta á tónleikum.

Lífið

Olían sem stjörnurnar elska

Moroccanolía er að gera allt vitlaust í Hollywood ef marka má fjölmiðla þar í landi. Madonna, Jennifer Lopez, Angelina Jolie, Scarlett Johanson, Sienna Miller, Emily Blunt, Jessica Alba...

Lífið

Popptíví snýr aftur á skjáinn

"Það var aldrei planið að láta stöðina liggja í dvala lengi og við teljum að nú sé rétta augnablikið til að opna á ný," segir Pálmi Guðmundsson, framkvæmdastjóri dagskrársviðs 365 en stöðin Popptíví verður endurvakin á fimmtudaginn næstkomandi.

Lífið

Mætir í vinnuna á afmælisdaginn

Hrefna Rósa Sætran á afmæli í dag. Í stað þess að spyrja sjónvarpskokkinn sem eignaðist sitt fyrsta barn, drenginn Bertram Skugga, fyrir ári út í aldurinn forvitnaðist Lífið hvernig afmælisdagurinn hennar verður. Ég ætla fara og taka upp hljóð með Dabba og Kristófer Dignus fyrir þáttinn minn sem verður einmitt frumsýndur á Rúv núna á fimmtudaginn. Svo verður léttur fjölskyldukaffihittingur þar sem allir fá köku og ég fæ pakka. Svo um 16:00 fer ég að vinna á Fiskmarkaðnum með öllu skemmtilega fólkinu þar. Ég ætla fá mér afmælisþorsk að borða þar allavegna. Já, svona verður dagurinn minn, segir Hrefna Rósa að lokum.

Lífið