Lífið

Óli Palli frumsýnir Þyrlurokksmynd

Ólafur Páll Gunnarsson, útvarpsmaður á Rás 2, frumsýnir á næstunni heimildarmynd um tónleikana Þyrlurokk sem hann hélt í heimabæ sínum Akranesi fyrir tuttugu árum.

Lífið

Mamma Mia! til Kína

Söngleikurinn Mamma Mia! verður fyrsti vestræni söngleikurinn sem settur verður í almennar sýningar í Kína. Mamma Mia! byggir sem kunnugt er á lögum sænsku hljómsveitarinnar Abba en þetta verður þrettánda tungumálið sem söngleikurinn er þýddur á.

Lífið

Athugasemd frá ráðherra

Katrín Jakobsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, hefur gert athugasemd vegna fréttar í menningu á laugardag um fjárveitingar á síðustu ellefu árum til ýmissa aðila vegna bókaútgáfuverkefna af ýmsu tagi. Segir Katrín að ranghermt sé í fréttinni að fjárveitingar þessar séu af ráðstöfunar-fé menntamálaráðuneytis, heldur komi þær inn í fjárlög ár hvert frá fjárveitinganefnd.

Lífið

Fjármagnar plötu á netinu

„Í raun er ég að selja diskinn fyrirfram," segir djasspíanistinn Sunna Gunnlaugsdóttir sem notar síðuna Kickstarter.com til að fjármagna plötu sem hún hljóðritaði í New York í fyrra. Hún ætlar einnig að nota peningana í útvarpsherferð í Bandaríkjunum.

Lífið

22 myndir á Stuttmyndadögum

Alls hafa 22 nýjar íslenskar stuttmyndir verið valdar á Stuttmyndadaga í Reykjavík sem haldnir verða í Kringlubíói á miðvikudag. Tæplega fjörutíu myndir bárust en dómnefndin valdi þær 22 bestu.

Lífið

Hafnaði Coke og Pepsi

Breska söngkonan M.I.A hefur hafnað tilboðum frá gosdrykkjarisunum Coke og Pepsi um að gerast andlit auglýsingaherferða þeirra.

Lífið

Útilokar ekki að stofna Besta flokkinn í Hollywood

„Bandaríkin og Ísland glíma við sömu vandamálin. Við erum með nokkra ráðandi flokka sem tala alltaf um sömu hlutina og koma engu í verk. Mér finnst Jón Gnarr hafa áhugaverða nálgun," segir bandaríski athafnamaðurinn Jonathan Taplin.

Lífið

Willis auglýsir vodka

Leikarinn Bruce Willis hefur að undanförnu birst í auglýsingum á netinu fyrir pólska vodkategund. „Ég er ekki bara fjallmyndarleg hasarmyndahetja með sönghæfileika," grínast Willis í einni auglýsingunni. Willis, sem er 55 ára, á hlut í fyrirtækinu Belvedere SA, sem framleiðir vodkann. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins Willis hafa verið valinn vegna þess að hann væri alvöru náungi

Lífið

Pacas kemur til bjargar - myndband

Í stórafmæli Sigríðar Klingenberg í Nauthólsvík í gærkvöldi urðum við vitni að góðmennsku Pacas þegar hann náði að halda upp klæðskipting sem missteig sig eitthvað í miðjum dansi. Fjöldi klæðskiptinga dansaði eins og myndbandið sýnir fyrir fjölda gesta sem saman voru komnir til að fagna með Sigríði og vinum hennar og fjölskyldu. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið efst í fréttinni ef þú vilt sjá Pacas og umræddan klæðskipting sem leiðist ekki dansinn.

Lífið

Stórstjörnurnar vilja taka þátt í Glee-æðinu

Einn vinsælasti þátturinn í heiminum í dag hefur göngu sína aftur í kvöld á Stöð 2. Nýju þættirnir verða að sjálfsögðu uppfullir af þekktum lögum og segir sagan að stærstu poppstjörnur heims sláist um að koma lögum sínum að enda slá þau undantekningarlaust í gegn og seljast í bílförmum, einkum á iTunes-vefnum.

Lífið

Óþekk jólasveinastelpa - myndband

„Dráttasníkir!" svaraði Díana Ómel Svavars eins og ekkert væri eðlilegra í gær þegar við spurðum hana út í jólasveinabúninginn sem hún klæddist í 50 ára afmæli Sigríðar Klingenberg. „Svo vil ég endilega senda kveðju til Völu vinkonu upp á sjúkrahúsi..." bætti hún við. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Díönu.

Lífið

Húðflúrin á Haffa Haff - myndband

Við spurðum tónlistarmanninn Haffa Haff út í húðflúrin sem hann hefur látið setja á líkama sínn í afmælisveislu Sigríðar Klingenberg í gærkvöldi. „Ég gerði þetta í Seattle 2008. Mig langaði að hafa eitthvað jákvætt á líkamanum," sagði Haffi meðal annars í myndskeiðinu. Smelltu á hnappinn Horfa á myndskeið með frétt efst í fréttinni ef þú vilt sjá viðtalið við Haffa.

Lífið

Fyrrum meðlimur Stereophonics fellur frá

Fyrrverandi trommari bresku rokkhljómsveitarinnar Stereophonics, Stuart Cable, sem starfaði sem útvarpsmaður í Bretlandi, fannst látinn á heimili sínu í Wales snemma í morgun. Ekki er vitað hvað olli dauða Stuart ef marka má breska fjölmiðla.

Lífið

Tom Cruise slær í gegn - myndband

Í myndskeiðinu hér má sjá leikarann Tom Cruise í hlutverki Les Grossman, ofsafengna Hollywood-framleiðandans úr grínmyndinni Tropic Thunder. Um helgina fór fram árleg MTV kvikmyndaverðlaunahátíð í Bandaríkjunum þar sem Tom Cruise var fenginn til þess að fara aftur í gervi Grossman þar sem hann dansaði af innilfun við Jennifer Lopez. Eiginkona Tom, Katie Holmes, fylgdist kát með atriðinu af fremsta bekk.

Lífið

Hommablað segir Heru hafa verið rænda sigrinum

Blaðamaður eins stærsta hommablaðs heims, Gay Times, fullyrðir á bloggi blaðsins að Hera Björk hafi verið rænd sigrinum í Eurovision. Íslenska söngkona sé það besta sem hafi komið fyrir samkynhneigða menningu og tónlist í langan tíma. Íslenska lagið, Je nei se Quai, hafi verið besta lagið í keppninni og það sé næstum óskiljanlegt af hverju hún hafi ekki verið ofar.

Lífið

Pétur Jóhann vill Jón Gnarr í Fjörðinn

„Mér líst bara vel á þetta, ég bý náttúrlega í Hafnarfirði þannig að þetta kemur mér í sjálfu sér ekkert við,“ segir Pétur Jóhann Sigfússon. Hann sá það fyrir að Besta flokknum myndi ganga jafnvel og raun bar vitni því það sé einfaldlega í eðli Jóns að gera hlutina af fullum krafti, alltaf.

Lífið

Þetta lið kann sko að skemmta sér - myndir

Sigríður Klingenberg spákona hélt hátíðlega upp á 50 ára afmælið sitt í Nauthólsvík í gærkvöldi. Vísir var á staðnum og fylgdist með grímuklæddum vinum Sigríðar fagna með henni með söng og dans fram á rauða nótt. Guðbergur Garðarsson, betur þekktur sem Beggi, veislustjóri sá til þess að allir skemmtu sér konunglega.

Lífið

Fjölbreytt ástarlíf Cheryl

Breska söngkonan Cheryl Cole virðist hafa í nógu að snúast. Foreldrar tveggja karlmanna hafa nú lýst því yfir opinberlega að synir þeirra og hún eigi í eldheitu ástarsambandi.

Lífið

Vilhjálmur valinn Herra Hinsegin

Vilhjálmur Þór Davíðsson frá Ólafsfirði var valinn Herra Hinsegin þegar keppnin var í fyrsta skipti haldin í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi.

Lífið

Gunnar og Sölvi elda fyrir Jónínu

„Strákarnir í eldhúsinu :-) Góð tilfinning,“ skrifaði athafnakonan Jónína Benediktsdóttir á Facebooksíðuna sína í dag. Hún er stödd í Flórída í brúðkaupsferð en líkt og væntanlega flestir vita gengu hún og Gunnar í Krossinum í það heillaga fyrr á þessu ári.

Lífið