Lífið
Danski prinsinn á kvennafari Danskir fjölmiðlar fara nú mikinn vegna myndbands sem sýnir Friðrik krónprins láta vel að konu á skemmtistað nokkrum dögum fyrir skírn tvíbura hans. Lífið 14.4.2011 04:00
Með ævintýralegt húðflúr af Mjallhvíti Ég er sérstakur aðdáandi Disney-teiknimyndanna og hef alla tíð horft mikið á fyrstu teiknimynd Disney; Mjallhvíti,“ segir Eyrún Helga Guðmundsdóttir klippari. Hún skartar litskrúðugu húðflúri af aðalpersónum teiknimyndarinnar Mjallhvítar og vekur mikla athygli fyrir vikið. "Ég vinn sem klippari, er til dæmis að klippa þættina Makalaus núna. Ég er útskrifuð úr Kvikmyndaskóla Íslands, teikna mikið sjálf og langaði að fá mér tattú sem væri fullt af litum og fallegum persónum, eins og ævintýrið um Mjallhvíti hefur.“ Jón Páll Halldórsson húðflúrmeistari hjá Íslenzku húðflúrstofunni sá um verkið. "Ég treysti Jóni Páli vel þannig að ég var ekkert stressuð, en ég hefði ekki treyst öðrum til að gera þessa mynd, það er mjög gott að vinna með honum. Jú, þetta hefur vakið mikla athygli og fólki finnst ótrúlegt að hægt sé að gera tattú að svona miklu listaverki, með þessum skyggingum. Tattúlistin hefur nefnilega þróast svo mikið síðustu árin, með betri nálum og tækni.“ Lífið 13.4.2011 22:30
Hjálmar spila fyrir íslenska keppendur Hljómsveitin Hjálmar heldur tónleika til styrktar íslenskum keppendum á Special Olympics 2011. Tónleikarnir fara fram á Nasa á föstudaginn. Sérstakur gestur verður hljómsveitin Valdimar. Meðlimir Hjálma vilja koma því á framfæri að þeim þykir afskaplega vænt um að fá að standa fyrir þessum tónleikum og hjálpa þannig einstöku íslensku íþróttafólki að láta draum sinn rætast. Miðaverð er kr. 1.500 og renna peningarnir óskiptir til ferðarinnar. Miðasala er við innganginn. Húsið verður opnað kl. 21 og tónleikarnir hefjast kl. 22. Lífið 13.4.2011 18:45
Upprennandi dansstjörnur Meðfylgjandi myndir voru teknar á danssýningu á vegum dansskólans DanceCenter en skólinn hefur það að markmiði að kenna krökkum á öllum aldri sem hafa ástríðu fyrir dansi að dansa. Eins og framkvæmdastjóri skólans Nanna Ósk Jónsdóttir segir: Með dansafli er vísað til jákvæðra áhrifa sem dansinn hefur á líkama og sál og þeirri gleði sem hann gefur þeim, sem hann stundar. Lífið 13.4.2011 14:58
Sigtryggur gerir sjónvarpsþátt „Ég afþakkaði þessa beiðni fyrst ákaflega pent og langaði eiginlega ekkert að gera einhvern stúdíóþátt. En óskin kom frá FTT þar sem séra Frímann [Jakob Frímann Magnússon] ræður ríkjum og maður getur ekki svo auðveldlega sagt nei við hann. Þannig að lendingin varð sú að við gerðum þennan þátt í hljóðveri,“ segir Sigtryggur Baldursson, tónlistarmaður og verðandi sjónvarpsstjarna. Lífið 13.4.2011 14:00
Höll Jóhannesar í Bónus metin á hátt í 200 milljónir „Það er flott að sitja þarna inni og njóta útsýnisins," segir Fanney Hauksdóttir, arkitektinn á bak við glæsihýsið Sunnuhvál, sem var áður í eigu auðmannsins Jóhannesar Jónssonar. Lífið 13.4.2011 11:00
Finna ekki fólk í kviðdóm Fjölmiðlar búa sig undir mikið fár þegar réttarhöld yfir Conrad Murray, lækni Michaels Jackson, hefjast. Erfiðlega gengur að finna fólk í kviðdóm. Lífið 13.4.2011 10:00
Ætla að reyna aftur Leikkonan Michelle Williams og leikstjórinn Spike Jonze hafa verið að stinga saman nefjum aftur, rúmu ári eftir að þau slitu sambandi sínu. Parið tók fyrst saman sumarið 2008 en leiðir þeirra skildu ári síðar. Lífið 13.4.2011 09:00
Ætlar að flytja Reðursafnið til Reykjavíkur „Ég á þrjár dætur og einn son og það voru allir sammála um að hann tæki við þessu þegar ég hætti,“ segir Sigurður Hjartarson, stofnandi og starfsmaður Reðasafnsins á Húsavík. Lífið 13.4.2011 08:00
Ekki veikan blett að finna Upptökum á fjórðu plötu Geirs Ólafssonar lauk fyrir skömmu í Kaliforníu. 22 hljóðfæraleikarar komu við sögu og stóðu upptökur yfir í þrjá og hálfan tíma. Lífið 13.4.2011 07:00
Eignast barn með dóttur Stewarts Ein stærstu tíðindin í heimi fræga og ríka fólksins eru þau að Kimberly Stewart er ólétt. Það eitt og sér er auðvitað ekki fréttaefnið heldur sú staðreynd að pabbinn er Óskarsverðlaunaleikarinn Benicio Del Toro. Og þau tvö eru ekki par. Og hafa engar háleitar hugmyndir um að verða par í nánustu framtíð. Lífið 13.4.2011 06:00
Gefa út nýja veftímaritið Bast Magazine Nýtt vefrit, Bast Magazine, fór í loftið um helgina. Á bak við ritið standa Hafrún Alda Karlsdóttir, Íris Dögg Einarsdóttir og Sif Kröyer. Að sögn Sifjar, ritstjóra vefritsins, höfðu allar stúlkurnar gengið með þessa hugmynd í maganum í nokkra stund en hjólin fóru fyrst að snúast þegar þær hlutu peningastyrk frá Dansk Islandsk Fond. „Styrkurinn gerði það að verkum að við gátum leigt atvinnuhúsnæði og komið undir okkur fótunum. Þetta gerði það einnig að verkum að við fengum aukið sjálfstraust því styrkveitingin sýndi að fleiri höfðu trú á þessu verkefni með okkur,“ útskýrir hún. Lífið 12.4.2011 20:00
Gogoyoko.com hélt partý Meðfylgjandi myndir voru teknar á veislu sem tónlistarveitan Gogoyoko.com hélt á veitingahúsinu Hvíta perlan til að fagna frábærum árangri síðunnar undanfarið. Fólk úr tónlistarbransanum, vinir, velunnarar og aðdáendur síðunnar gerðu sér glaðan dag eins og sjá má á myndunum. Lífið 12.4.2011 18:40
Vesturport á vöktum í Pétursborg "Þetta er náttúrulega bara bilun,“ segir Gísli Örn Garðarsson, einn af forsvarsmönnum leiklistarhópsins Vesturport. Yfir fimmtíu manna hópur frá Vesturporti og Borgarleikhúsinu flaug til St. Pétursborgar í gær en þar mun afhending evrópsku leiklistarverðlaunanna fara fram 17. apríl. Lífið 12.4.2011 18:00
Skilnaðurinn særði Evu Longoria Eva Longoria ræddi í fyrsta skipti skilnaðinn við Tony Parker, leikmann NBA-liðsins San Antonio Spurs, í þætti Piers Morgan á CNN. Leikkonan viðurkenndi að skilnaðurinn hefði sært hana afar mikið. Lífið 12.4.2011 13:30
Rokkarar skoða fossa, hljóðver og plötubúðir Reykjavík Music Mess verður haldin í fyrsta sinn um næstu helgi. Aðalnúmerið er bandaríska rokksveitin Deerhunter. Meðlimir sveitarinnar ætla að taka sér nokkurra daga frí á Íslandi í kringum hátíðina. Planið er að skoða náttúruperlur, hljóðver og grúska í plötubúðum. Lífið 12.4.2011 13:00
Reykjavík síðdegis sendi út í gegnum síma Reykjavík síðdegis hélt til Hamborgar í samstarfi við Icelandair, föstudagsmorgun en Icelandair er að hefja beint flug þangað nú í vor. Það sem merkilegt þykir er að þátturinn var sendur út í gegnum síma. Við ákváðum að prófa nýja tækni að þessu sinni en hún gengur út á að nota Iphone sem útsendingartæki. Tilraunin heppnaðist fullkomlega og ótrúlegt að hægt sé að senda út heilan útvarpsþátt á borð við Reykjavík síðdegis í gegnum Iphone síma. Síminn er tengdur inn á þráðlaust net sem er að finna ansi víða og hann sér svo um að tengja sig við höfuðstöðvarnar í Skaftahlíð. En þetta er framtíðin og heimurinn minnkar skuggalega mikið þegar maður upplifir svona framfarir í samskiptatækninni, svaraði Kristófer Helgason útvarpsmaður spurður út í útsendinguna frá Hamborg. Lífið 12.4.2011 12:54
Sólóferill í biðstöðu Fergie, hin þokkafulla söngkona Black Eyed Peas, hefur ákveðið að leggja sólóferilinn til hliðar um stundarsakir. Hana langar einfaldlega að eyða meiri tíma með manninum sínum, Hollywood-leikaranum Josh Duhamel. Fergie gaf út sína fyrstu sólóskífu 2006 og seldi ríflega sex milljónir eintaka af The Dutchess. „Það eru mörg verkefni á borðinu hjá mér og þetta ár mun snúast alfarið um að reyna að einfalda aðeins hlutina og veita þeim hlutum athygli auk þess sem mig langar til að eyða meiri tíma með manninum mínum,“ segir Fergie í samtali við Access Hollywood. Lífið 12.4.2011 12:15
Konunglegt brúðkaup á tveimur stöðvum "Jú, ég er búin að fallast á að lýsa þessu fyrir Stöð 2. Við erum ekki búin að ákveða öll smáatriði en þetta verður örugglega mjög skemmtilegt,“ segir Hildur Helga Sigurðardóttir blaðamaður. Lífið 12.4.2011 12:00
Jóhannes orðinn hrikalegur "Ég verð Jóhannesi innan handar ef það vakna spurningar um líkamsrækt. Og ef mig vantar upplýsingar um leik og leikræna tilburði þá get ég alltaf leitað til Jóhannesar. Það verður gott samstarf okkar á milli á tökustað,“ segir Egill "Gillz“ Einarsson. Tökur á kvikmyndinni Svartur á leik hefjast seinna í þessum mánuði en myndin er byggð á samnefndri bók Stefáns Mána um undirheima Reykjavíkur. Lífið 12.4.2011 11:00
Bara vinir... glætan! Leikararnir Sean Penn, 50 ára, og Scarlett Johannson, 26 ára, skokkuðu í Malibu í Kaliforníu síðasta sunnudag ásamt leikaranum Owen Wilson eins og sjá má á myndunum. Sean og Scarlett hafa verið að stinga saman nefjum um nokkurt skeið en þau halda því fram að þau séu bara vinir. Tímaritið The Enquirer heldur því hinsvegar fram að sambandið er öllu nánara en það og að Sean sé orðinn svo stjórnsamur að Scarlett þoli ekki lengur við. Hann heimsækir elskuna sína á tökustað kvikmyndarinnar We Bought a Zoo daglega og fellur hegðun hans ekki í kramið hjá samstarfsfélögum Scarlett. "Hann verður fúll út í hvern þann mann sem svo mikið sem horfir í áttina að Scarlett og heimtar að starfsfólkið sinni öllum hennar þörfum. Ef Scarlett er svöng þá sendir Penn einhvern á næsta veitingastað til að ná í mat handa henni. Ef honum finnst eitthvað að förðuninni fær hann sminkurnar til að laga það. Þetta er allt mjög einkennilegt," var haft eftir innanbúðarmanni. Lífið 12.4.2011 10:30
Samvinnuþýður við ljósmyndara Bandaríski leikarinn Matthew McConaughey viðurkennir að þótt honum þyki ágangur paparazza-ljósmyndara óþolandi hefur hann sætt sig við að þurfa að umgangast þá. Lífið 12.4.2011 10:00
Stórleikarinn Gyllenhaal í háskaleik á Eyjafjallajökli Jake Gyllenhaal eyddi helginni í aftakaveðri uppi á Eyjafjallajökli og Fimmvörðuhálsi í tökum fyrir sjónvarpsþáttaröðina Man vs. Wild sem ævintýramaðurinn Bear Grylls stjórnar. Lífið 12.4.2011 09:00
Úps þetta hefur verið sárt Meðfylgjandi myndskeið sýnir þegar Lady Gaga datt ofan af píanói á miðjum tónleikum í Houston. Eins og sjá má stóð söngkonan skjótt upp aftur og lét sem ekkert væri. Lífið 12.4.2011 08:00
Gjafmild stjarna Eftir sambandsslitin við Justin Timberlake hefur leikkonan Jessica Biel ákveðið að losa sig við allar gjafirnar sem hann hafði gefið henni í gegnum tíðina. Lífið 12.4.2011 07:00
Afar hrifin hvort af öðru Tímaritið Star greinir frá því að sést hafi til Gwyneth Paltrow og Matthews Morrison snæða saman kvöldverð í London í lok mars. Eftir matinn færði parið sig yfir á Grosvenor House-hótelið þar sem þau sátu að snakki fram á nótt. Lífið 12.4.2011 05:00
Vó þetta er magnað Meðfylgjandi myndskeið tók Sveinbi hjá Superman.is á laugardaginn síðasta þegar Íslandsmet í svokallaðri hraðlest var slegið á veitingahúsinu Hressó. Í umræddri hraðlest voru hvorki meira né minna en 170 skot-glösum raðað ofan á önnur 170 glös og þegar fyrsta glasið fellur þá dettur hvert glasið af öðru ofan í stærra glasið og útkoman verður kokteill. Sjón er sögu ríkari! Lífið 11.4.2011 15:43
Taka þátt í danskri götuhátíð Íslendingabarinn Salonen mun taka þátt í Distortion-hátíðinni sem fram fer í Kaupmannahöfn nú í sumar. Hátíðin stendur yfir í fjóra daga og skiptast ólíkir bæjarhlutar á að halda götuskemmtun þar sem íbúar, verslunarrekendur og tónlistarmenn koma saman og gera sér glaðan dag. Lífið 11.4.2011 14:00
Ömmur og afar, frænkur og frændur plötuð í pössun "Þetta er ákaflega barnmargur hópur og því var þetta mikið púsluspil,“ segir Sigrún Sól, eiginkona Pálma Sigurhjartarsonar. Pálmi er Eurovision-sveitinni Vinir Sjonna sem flytur lagið Coming Home eftir Sigurjón heitinn Brink við texta Þórunnar Ernu Clausen. Eiginkonur fimm Eurovision-faranna ætla að fara til Düsseldorf og styðja við bakið á sínum mönnum en Gunnar Ólason er sá eini sem er einn. "Hann á víst einhvern bangsa sem strákunum er tíðrætt um,“ grínast Sigrún Sól með. Lífið 11.4.2011 13:00
Heiðurshnakki þénar milljarða Sjónvarps-og útvarpsmaðurinn Ryan Seacrest verður launahæsta raunveruleikaþáttastjarna heims á þessu ári. Talið er að Seacrest muni þéna 55 milljónir Bandaríkjadala eða rúmlega sex milljarða íslenskra króna. Seacrest er með einn vinsælasta útvarpsþátt Bandaríkjanna, er auðvitað kynnir í American Idol og hefur verið að framleiða sjónvarpsefni samkvæmt Hollywood Reporter. Lífið 11.4.2011 12:00