Lífið

Vestur-Íslendingur slær í gegn með húlahoppi sínu

„Ég elska að vera hérna og allir eru búnir að vera rosalega almennilegir við mig,“ segir kanadíski dansarinn Rebecca Holst sem er stödd hér á landi til að koma fram á Iceland Airwaves með hljómsveitinni Human Woman. Holst, sem er þekkt undir listamannsnafninu Becca Hoop, sérhæfir sig í að húla hringjum en hún er menntuð í nútímadansi og ballett. „Ég sneri mér að húlahringjum fyrir tíu árum og var meðal annars með námskeið og uppákomur í Kanada áður en ég flutti mig um set til Berlínar til að einbeita mér að ferli mínum. Maður þarf að æfa sig mikið til að verða góður í að húla en það er svo gaman að flestir setja það ekki fyrir sig,“ segir Holst, sem ferðast nú um allan heim til að halda námskeið og kenna dans með húlahringjum.

Lífið

Braskað með miða á Airwaves

„Mér er illa við þetta því fólk veit yfirleitt ekki hvað það er að kaupa, það getur verið ákaflega svekkjandi að vera kominn á tónleikastað og uppgötva að maður hafi keypt köttinn í sekknum fyrir tugi þúsunda,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Airwaves-hátíðarinnar. Á vefsíðunni bland.is er að finna 164 auglýsingar þar sem armbönd á tónlistarhátíðina eru auglýst til sölu.

Lífið

Vinnan í fyrsta sæti

Leikarinn Michael Fassbender greindi frá því nýverið að hann hafi ekki áhuga á því að stofna fjölskyldu í nánustu framtíð.

Lífið

Biðu í tæpar átta klukkustundir

Um þrjú hundruð manns biðu í langri halarófu fyrir utan verslun Smekkleysu eftir miðum á tónleika Sinéad O’Connor sem voru haldnir í Fríkirkjunni í gærkvöldi.

Lífið

Milljónir fylgjast með Spears

Poppstjarnan Britney Spears varð á dögunum sú sjötta í heiminum til að ná yfir 10 milljónum fylgjenda á samskiptasíðunni Twitter. Þeir sem hafa náð því takmarki á undan henni eru Lady Gaga, Justin Bieber, Barack Obama, Katy Perry og Kim Kardashian.

Lífið

Vond öld á skjáinn

„Kreppan í dag er bara barnaleikur miðað við 18. öldina,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Björn Brynjúlfur Björnsson. Hann hefur unnið að gerð fjögurra þátta sjónvarpsseríu um 18. öldina, sem lék íslensku þjóðina ansi grátt.

Lífið

Árita Liverpool-bók með gömlum Liverpool-goðsögnum

„Þetta er eiginlega tólf daga kynnisferð en við náum sem betur fer tveimur leikjum,“ segir Arngrímur Baldursson, þýðandi og annar höfunda bókarinnar Liverpool: The Complete Record. Hann er ásamt meðrithöfundi sínum, Guðmundi Magnússyni, farinn í mikla kynningarferð til Liverpool-borgar þar sem þeir ætla að kynna bókina sína. Þeir eru búnir að leigja íbúð í miðborg Liverpool undir sig og sína og munu í kjölfarið sinna viðtölum við sjónvarpsstöðvar, útvarp, dagblöð og netmiðla. Bókin Liverpool: The Complete Record inniheldur upplýsingar um alla leiki knattspyrnuliðsins Liverpool frá árinu 1892.

Lífið

Whitney neitaði að spenna beltið

Litlu munaði að söngdívunni Whitney Houston væri hent út úr flugvél er hún neitaði að spenna sætisólarnar í flugtaki. Houston var á leið sinni með Delta-flugfélaginu frá Atlanta til Detroit en brást ókvæða við er flugfreyja bað hana vinsamlegast um að spenna beltin, eins og venja er í flugtaki og lendingu.

Lífið

Kim Larsen sagður vondur pabbi

Kim Larsen er vafalítið einn dáðasti tónlistarmaður Dana fyrr og síðar, plötur hans seljast alltaf í bílförmum, lögin hafa lifað lengi með dönsku þjóðinni og Larsen sjálfur er erkitýpa þjóðarsálarinnar; „ligeglad“.

Lífið

Aniston sögð barnshafandi

Bandaríska tímaritið OK Magazine birtir nú fréttir þess efnis að leikkonan Jennifer Aniston sé barnshafandi. Blaðið þykist það öruggt í sinni sök að fréttin prýðir forsíðu blaðsins. Í greininni kemur fram að Aniston þykir hafa bætt óvenjumiklu á maga, rass og brjóst síðustu mánuði.

Lífið

Gaurinn át 16 egg á dag

Twilight stjarnan, Kellan Lutz, 26 ára, leikur Poseidon, sem er grískt vöðvastælt goð, kvikmyndinni Immortals ásamt leikurunum Henry Cavill og Mickey Rourke...

Lífið

Pósa saman kviknakin

Vel skreyttur líkami söngvara hljómsveitarinnar Maroon 5, Adam Levine, 32 ára, er langt frá því að líta illa út á forsíðu...

Lífið

Hversu vont er að fá egg í hausinn?

Handboltahetjan Logi Geirsson og tónlistarmaðurinn Davíð Berndsen verða gestir Týndu kynslóðarinnar sem verður í opinni dagskrá á Stöð 2 og Vísi klukkan 19.20 í kvöld. Í þættinum gera Björn Bragi og Nilli meðal annars tilraun á því hversu vont það er að fá egg í hausinn, en mikil umræða skapaðist um það eftir mótmælin á Austurvelli á dögunum.

Lífið

Mössuð Madonna

Meðfylgjandi má sjá myndir af massaðri Madonnu, 53 ára, sem teknar voru þegar hún sat fyrir í vægast sagt ögrandi myndaþætti með...

Lífið

Brakandi stuð á Borgríki

Það var mikil eftirvænting í loftinu þegar Ólafur Jóhannesson og samstarfsfólk hans frumsýndi kvikmyndina Borgríki í Háskólabíói á ansi votu og vindasömu miðvikudagskvöldi.

Lífið

Forsetahjónin skemmta sér með norræna aðlinum

Forseti Íslands og frú Dorrit Moussaieff taka þátt í glæsilegum galakvöldverði, þar sem allur norræni aðallinn verður viðstaddur, á Hilton-hótelinu í New York á vegum ASF eða American-Scandinavian Foundation næstkomandi föstudag, 21. október. Dýrustu borðin í veislunni kosta fimmtíu þúsund dollara eða tæpar sex milljónir íslenskra. „Það er aðeins gefið í vegna hundrað ára afmælis samtakanna,“ segir Hlynur Guðjónsson, ræðismaður Íslands í New York, en hann sat í undirbúningsnefnd kvöldverðarins. „Þetta er mikill viðburður,“ segir Örnólfur Thorsson forsetaritari.

Lífið

Barnalán hjá Góa

Leikarinn Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, eignaðist sitt annað barn á dögunum ásamt eiginkonu sinni Ingibjörgu Ýri Óskarsdóttir. Þau eignuðust litla stúlku sem hefur fengið nafnið Kristín Þórdís, en fyrir áttu þau drenginn Óskar Sigurbjörn. Gói hefur í nógu að snúast þessa dagana því ásamt því að hann leiki fyrir börnin í Eldfærunum standa yfir lokaæfingar á leikritinu Kirsuberjagarðinum, sem frumsýnt verður 28. október.- sh, - hdm

Lífið

Javier Bardem gerir Bond lífið leitt

Stærstu fréttirnar í Hollywood í gær voru án nokkurs vafa þær að Javier Bardem myndi leika aðalskúrkinn í Bond-mynd númer 23. Þar með er það staðfest að framleiðendur Bond-myndanna ætla að leggja allt í sölurnar fyrir hálfrar aldar afmæli myndanna um leyniþjónustumanninn.

Lífið

Jim Carrey á móti Carell

Spéfuglinn Jim Carrey er í viðræðum um að leika í kvikmyndinni Burt Wonderstone. Þar myndi hann leika götutónlistarmann í Las Vegas. Með aðalhlutverk myndarinnar fer annar grínisti, Steve Carell. Þeir tveir hafa áður leikið saman, í Bruce Almighty sem kom út 2003.

Lífið

Johnny Depp snýr aftur

Johnny Depp hefur aldrei farið leynt með þá ósk sína að hann fái hlutverk í kvikmyndaútfærslu sjónvarpsþáttanna 21 Jump Street. Margir hafa haldið því fram að hlutverk Depps yrði hálfgert feluhlutverk en orðrómur um að leikarinn verði í stórri rullu hefur fengið byr undir báða vængi að undanförnu.

Lífið

Kutcher í klandri

Sara Leal, konan sem Ashton Kutcher hélt framhjá Demi Moore með, hefur í fyrsta skipti tjáð sig opinberlega við tímaritið US Weekly. Og hún bætir ekki málstað Kutchers. Hún segist nefnilega hafa sofið hjá Kutcher í tvígang á brúðkaupsafmæli þeirra hjóna og eftir þau nánu kynni á Kutcher að hafa sagt að hann hafi aldrei upplifað slíka tilfinningu áður.

Lífið

Margmenni á fyrsta Airwaves-gigginu í gær

Það fer ekki á milli mála að tónlistarhátíðin Iceland Airwaves er hafin og miðborgin er full af erlendum sem innlendum tónlistarunnendum. Það var stappfullt á Kex Hostel í hádeginu í gær þegar ein vinsælasta hljómsveit landsins, GusGus, steig á stokk og söng fyrir veðurbarða tónleikagesti. Svo mikið var stuðið að undir lokin voru flestir farnir að dilla sér við dansvæna tóna GusGus og lofuðu tónleikarnir góðu fyrir framhaldið á tónlistarhátíðinni.

Lífið

Matt Damon og Douglas leika elskendur

Matt Damon mun leika ungan elskhuga Michael Douglas í kvikmyndinni Behind the Candelbra sem fjallar um ævi tónlistarmannsins Liberace. Myndin á að gefa góða mynd af lífi þessa listamanns sem klæddist skrautlegum búningum uppi á sviði. Myndin mun jafnframt fjalla um sérstakt samband Liberace og Scotts Thorson.

Lífið

Pantaðu tíma hjá tannsa núna!

Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, gerir töluvert af því að þamba kaffi og svo reykir hún eins og strompur. Kaffiþambið og nikótínneyslan skín í gegn þegar hún brosir eins og sjá má á myndunum. Tennur leikkonunnar eru langt frá því að vera í stíl við perluhvít stellin sem stjörnurnar í Hollywood skarta því brosið hennar Lindsay er gult með brúnum blæ sem fer fram hjá fáum þegar hún brosir.

Lífið

Simon flytur Graceland

Paul Simon fagnar 25 ára afmæli goðsagnakenndu plötunnar Graceland með tónleikaferðalagi á næsta ári. Graceland, sem jafnan er valin ein af bestu plötum poppsögunnar í þess háttar kosningum, kom út árið 1986 en árið eftir lagði Simon upp í tónleikaferðalag til að kynna hana.

Lífið