Lífið

Fékk ekki borð á KFC

Hollywood-stjarnan John Travolta hafði ekki erindi sem erfiði þegar hún reyndi að panta borð á skyndibitastaðnum KFC í Sussex-skíri í Englandi. Talið var að um gabb væri að ræða þegar kona hringdi á staðinn og sagðist vilja panta borð fyrir herra Travolta. Starfsmaður staðarins sagði að fólk gæti ekki pantað borð á staðnum og því hætti Travolta við komu

Lífið

Fékk ekki að vera með

Leikkonan ólukkulega Lindsay Lohan er mikill aðdáandi hljómsveitarinnar Foster the People en meðlimir sveitarinnar virðast ekki endurgjalda aðdáunina. Lohan reyndi ítrekað að ná sambandi við söngvara sveitarinnar á skemmtistað en hann vísaði henni ávallt frá. Lohan elti hljómsveitarmeðlimi af tónleikum og á skemmtistaðinn Beverly Lounge og reyndi ítrekað að ná athygli söngvarans Mark Foster, án árangurs. „Mark sneri sér undan í hvert sinn sem Lohan nálgaðist borðið til að reyna að ná af honum tali. Hann vildi augljóslega ekkert með hana hafa,“ sagði sjónarvottur. Foster þessi gaf sér þó tíma til að tala við Nicky Hilton, Michael Bay og Dane Cook þetta sama kvöld.

Lífið

Rosie O'Donnell með nýja kærustu - Pabbinn ekki sáttur

Þáttastjórnandinn Rosie O’Donnell er komin með nýja konu upp á arminn og er yfir sig ástfangin. Foreldrar nýju kærustunnar segjast þó hafa verið grunlaus um að dóttir þeirra væri samkynhneigð fyrr en fjölmiðlar greindu frá sambandinu.

Lífið

Rokktrefill frá Tyler

Steven Tyler, söngvari Aerosmith, hefur sett á fót sína eigin tískulínu. Það er Andy Hilfiger sem hefur umsjón með hönnuninni og kemur Tyler þar hvergi nærri. Hans hlutverk verður að kynna nýju línuna í fjölmiðlum.

Lífið

Segja alvöru í sambandi J-Lo og Cooper

Tímaritið OK! heldur því fram að alvara sé að færast í samband Jennifer Lopez og Bradley Cooper. Nýverið sást til parsins þar sem þau óku á brott frá veitingastað í Kaliforníu.

Lífið

Þjóðverjar spenntir fyrir Heilræðum Gillzeneggers

Bókamessan í Frankfurt er nýafstaðin. Þar var Ísland og íslenskar bókmenntir í öndvegi og vakti litla sögueyjan óhemju athygli. Einn rithöfundanna sem þýskir bókmenntapáfar sýndu áhuga var Egill "Gillzenegger“ Einarsson.

Lífið

Westlife hættir á næsta ári

Ein ástsælasta strákasveit írlands, Westlife, mun hætta eftir veglega tónleikaferð á næsta ári. Írar syrgja sveitina, sem naut mikillar hylli.

Lífið

Sonur Natalie Portman

Óskarsverðlaunahafinn, Natalie Portman, 30 ára, hélt á 4 mánaða gömlum syni sínum, Aleph, þegar hún var á ferðinni í Los Angeles í gærdag...

Lífið

Úr 1.500 áhorfendum í fjörutíu

Víkingarokksveitin Skálmöld lýkur tónleikaferð sinni um Evrópu í Austurríki á sunnudaginn. Alls verða tónleikarnir 24 talsins á 24 dögum og í ellefu löndum, eins og Fréttablaðið hefur greint frá. „

Lífið

Shiloh Pitt sögð skotin

Ástalíf Angelinu Jolie hefur lengi verið fjölmiðlamatur en nú eru bandarískir fjölmiðlar farnir að beina sjónum sínum að Jolie-Pitt börnunum. In Touch heldur því fram að ástin blómstri milli Shiloh Jolie-Pitt og Kingstons Rossdale, sonar Gwen Stefani, en börnin eru bæði fimm ára gömul.

Lífið

Saumaði í Svíþjóð

Söngkonan Britney Spears virðist vera farin að læra að sauma föt. Nýlega birti hún mynd af sér á Twitter þar sem hún skrifaði: „Í saumakennslu í Svíþjóð hjá búningadeildinni.“ Hún hefur verið á tónleikaferð um Norðurlönd að undanförnu. Nýjasta smáskífulag Britneyjar, Criminal, kom út fyrir skömmu. Myndbandið við lagið var tekið upp í London á meðan hún var í kynningarferðalagi um Bretland í síðasta mánuði. Söngkonan byrjar tónleikaferð sína um Bretland og Írland 24. október þar sem hún kynnir sjöundu hljóðversplötu sína Femme Fatale.

Lífið

Frumsýna glænýtt Partíþokumyndband

Hljómsveitirnar Prinspóló og FM Belfast hafa gefið út glænýtt myndband við lagið Partíþokan í tilefni af samnefndri tónleikaferð sveitanna. Partíþokan er grípandi lag og mun eflaust njóta nokkurrar hylli. Það kom upprunalega út á safnskífunni Hitaveitan en hefur fengið yfirhalningu í boði Árna Rúnars Hlöðverssonar í FM Belfast.

Lífið

Mikið rétt skvísurnar mættu

Meðfylgjandi myndir voru teknar á snyrti- og heilsustofunni Systrasel Háaleitisbraut 58 -60 í gærkvöldi við opnun á nýju húsnæði stofunnar...

Lífið

Leikstýrir í fyrsta sinn

Hollywood-stjarnan Matt Damon ætlar að setjast í leikstjórastólinn í fyrsta sinn. Hann hefur gengið í lið með leikaranum John Krasinski og saman ætla þeir að skrifa handrit að dramatískri mynd þar sem þeir fara báðir með stór hlutverk. Myndin fjallar um sölumann sem heimsækir lítinn bæ og á sú heimsókn eftir að breyta lífi hans. Damon sagðist nýlega hafa áhuga á að leika Jason Bourne í fjórða sinn þrátt fyrir að vera ekki með í nýjustu myndinni um njósnarann. Eina skilyrðið er að leikstjórinn Paul Greengrass verði við stjórnvölinn.

Lífið

Megas úlnliðsbrotinn

„Ég rann til á hálkubletti," segir Magnús Þór Jónsson, betur þekktur sem Megas, sem varð fyrir því óláni að úlnliðsbrotna um helgina.

Lífið

Dæturnar og Willis reið út í Kutcher

Dætur leikkonunnar Demi Moore eru ævareiðar út í stjúpföður sinn, Ashton Kutcher, fyrir að hafa haldið framhjá móður sinni. Rumer, Scout og Tallulah óttast að auki að fleiri hjásvæfur gætu stigið fram í dagsljósið í nánustu framtíð.

Lífið

Bretar kaupa meiri vínyl

Sala á vínyl hefur aukist um 40 prósent á þessu ári í Bretlandi. Meira en 240 þúsund plötur hafa selst það sem af er árinu, miðað við 234 þúsund allt síðasta ár. Samkvæmt BBC hefur nýjasta afurð Radiohead, King of Limbs, selst mest, eða í um tuttugu þúsund eintökum. Í öðru sæti er plata Adele, 21.

Lífið

50 Cent í hlutverki melludólgs Vanessu Hudgens

Rapparinn og leikarinn 50 Cent leikur melludólg í myndinni Frozen Ground, sem er væntanleg í kvikmyndahús á næsta ári. Hún fjallar um bakarann og veiðimanninn Robert Hansen, sem myrti fleiri en 20 vændiskonur í Alaska á áttunda og níunda áratug síðustu aldar.

Lífið

Radiohead leggur lokahönd á tónleikaferðina

Ed O"Brien, gítarleikari Radiohead, segir að hljómsveitin sé að leggja lokahönd á skipulagningu tónleikaferðar sinnar á næsta ári. „Við verðum á ferðinni frá lokum febrúar þangað til í nóvember og munum spila bæði í Bandaríkjunum og í Bretlandi,“ sagði O"Brien.

Lífið

Ég geng með lítinn herramann

Það sem stóð að sjálfsögðu upp úr í sónarnum var að fá að vita kynið og ég geng með lítinn herramann og er hæstánægð með það...

Lífið

Norrænn tryllir af bestu gerð

Norska kvikmyndin Hodejegerne verður frumsýnd um helgina en hún er byggð á samnefndri sögu eftir norska glæpasagnahöfundinn Jo Nesbø, Varla þarf að taka það fram að Hollywood hyggst endurgera myndina enda virðist Kaninn sjúkur í allt sem norrænt er um þessar mundir.

Lífið

Ferlega fríð fyrir frægð

Meðfylgjandi má sjá myndir af heimsfrægum einstaklingum eins og Madonnu, David Beckham, Evu Longoriu, Zac Efron, Cindy Crawford og Katie Holmes svo einhverjir séu nefndir áður en frægðin barði að dyrum. Þekkir þú stjörnurnar?

Lífið

Tóku soninn á næturrölt

Leikaraparið Javier Bardem og Pénelope Cruz vakti athygli vegfarenda í Sarajevo um daginn þegar þau voru í göngutúr ásamt níu mánaða syni þeirra, Leo Encincas.

Lífið

Vals og rokkkeyrsla

Gímaldin hefur gefið út plötuna Þú ert ekki sá sem ég valdi. Hljómsveitin, með Gísla „Gímaldin“ Magnússon í forgrunni, var stofnuð í byrjun síðasta árs. „Þetta er allt frá þessum rólegu völsum eins Cowboy Junkies kalla þetta, upp í að vera alvöru rokkkeyrsla,“ segir Gísli um plötuna sem var tekin upp „live“ undir stjórn Garðars Eiðssonar. Með Gísla í bandinu eru Gísli Már Sigurjónsson og Þorvaldur H. Gröndal. Til að bæta þriðja Gíslanum við var ákveðið að fá blokkflautuleikarann Gísla Helgason til að spila í laginu Þjóðsaga. Gísli

Lífið

Rihanna nær sáttum út af umdeildu myndbandi

Rihanna hefur komist að samkomulagi við tískuljósmyndarann David LaChapelle utan dómstóla. Hann hélt því fram að myndir sem hann tók af söngkonunni hefðu verið notaðar án hans leyfis í myndbandi við lag hennar S&M.

Lífið

Rándýr háralitur

Söngkonan Katy Perry, 26 ára, var með bleikt hár þegar hún var mynduð með tengdamóður sinni, móður Russel Brand, yfirgefa leikhús í London...

Lífið

Fréttakona gerir kaupmála

Eins og kom fram í fjölmiðlum í sumar gekk fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir að eiga útgefandann Pétur Árna Jónsson. Athöfnin fór fram í Dómkirkjunni í júlímánuði og það var biskupinn sjálfur, Karl Sigurbjörnsson, sem gaf þau saman.

Lífið