Lífið

Fallega fólkið lét sjá sig

Meðfylgjandi myndir voru teknar þegar E-Label hélt upp á endurkomu sína á íslenskan markað í versluninni 3 Smárum Smáralind á dögunum...

Lífið

Dikta fagnaði á Nasa

Aðdáendur hljómsveitarinnar Diktu fylltu Nasa á fimmtudagskvöldið þegar útgáfutónleikar sveitarinnar fóru fram. Dikta gaf á dögunum út fjórðu plötu sína, Trust Me, og flutti nýju lögin við mikinn fögnuð viðstaddra.

Lífið

Rocky kjörin best

Rocky hefur verið kjörin besta íþróttamynd allra tíma í skoðanakönnun á vegum síðunnar Lovefilm. Í myndinni, sem er frá árinu 1976, leikur Sylvester Stallone hnefaleikakappann Rocky Balboa. Rocky er ein af fimm boxmyndum sem komust á topp tíu í könnuninni. Í öðru sæti lenti bobbsleðamyndin Cool Runnings, í því þriðja varð Million Dollar Baby og saman í fjórða sæti voru Raging Bull og The Wrestler. "Hvort sem um er að ræða ruðningshetjur, bobbsleðagaura eða Balboa þá elskum við að horfa á íþróttahetjur komast yfir endalínuna á dramatískan hátt," sagði ritstjóri Lovefilm.

Lífið

Ánægðir gestir á Freddie Mercury-tónleikum

Tvennir tónleikar til heiðurs Freddie Mercury, hinum sáluga söngvara Queen, voru haldnir í Hörpu á miðvikudagskvöld. Stemningin í salnum var góð enda sá hópur góðra söngvara og tónlistarmanna um að lög Mercury kæmust vel til skila.

Lífið

Prófaði öll eiturlyfin

Leikkonan Angelina Jolie segist vera heppin að vera á lífi miðað við óheilbrigt lífernið á sínum yngri árum. "Ég tók öll eiturlyf sem til voru; kókaín, e-pillu, heróín og hreinlega allt," sagði hin 36 ára Jolie í viðtali við 60 Minutes. "Ég fór í gegnum mikið myrkur og ég komst í gegnum það. Ég dó ekki ung, þannig að ég er mjög heppin. Margir aðrir listamenn og manneskjur hafa ekki lifað slíkt af." Hún viðurkennir að vera ekki laus við allt myrkrið en aðeins kærastinn Brad Pitt fær að kynnast því. "Þessi hluti af mér er enn til staðar. Hann er bara á sínum stað og er bara fyrir Brad og okkar ævintýri."

Lífið

Biel stjórnar sambandinu

Þegar Justin Timberlake og Jessica Biel tóku aftur saman eftir fimm mánaða hlé á sambandinu töldu flestir vina þeirra að loksins væri komið að því að þau myndu ganga í það heilaga. Timberlake er hins vegar tregur til, því hann heldur að hjónaband myndi hafa skaðleg áhrif á feril hans, sem byggist mikið á vinsældum hans hjá kvenþjóðinni.

Lífið

Óánægð með kærastann

Jennifer Lopez hefur ekki verið heppin í ástarmálunum undanfarið. Eftir að hafa skilið við eiginmann sinn til sjö ára, Marc Anthony, í sumar hóf hún ástarsamband með 24 ára dansaranum Casper Smart. Nú hefur komið í ljós að sá á mögulega fangelsisvist yfir höfði sér fyrir ýmis umferðarbrot. Lopez er að sögn heimildamanna ekki ánægð með kærastann og hefur ekki gert upp við sig hvort hún muni mæta í dómssal til að styðja hann þegar málið verður tekið fyrir.

Lífið

Skúrkur afhjúpaður í Týndu kynslóðinni

Í Týndu kynslóðinni í kvöld verður frumsýndur nýr dagskrárliður sem kallast Sönn íslensk swagamál. Þar verður hulunni svipt af skúrkinum Steinari Bárðarsyni sem Týnda kynslóðin vill meina að hafi farið illa með marga íslenska tónlistarmenn og sé núverandi umboðsmaður stúlknasveitarinnar Charlies.

Lífið

Stjörnurnar horfa til Íslands

Bandarískar kvikmyndastjörnur og leikstjórar hafa verið tíðir gestir á Íslandi á þessu ári. Fréttablaðið tók saman lista yfir fræga fólkið sem hefur heiðrað Íslendinga með nærveru sinni árið 2011.

Lífið

Gibb á batavegi

Söngvarinn Robin Gibb hefur fullvissað aðdáendur sína um að hann sé ekki á grafarbakkanum eins og breskir fjölmiðlar hafa gefið í skyn. Hann sé þvert á móti á góðum batavegi þrátt fyrir að hafa verið lagður inn á sjúkrahús í annað sinn á skömmum tíma í síðustu viku. Gibb ætlaði að koma fram á jólatónleikum Björgvins Halldórssonar en varð að aflýsa komu sinni sökum veikinda.

Lífið

Star Trek 3D kemur 2013

Framhaldsmyndin Star Trek 3D er væntanleg í kvikmyndahús 17. maí 2013. Hinir fjölmörgu Trekkarar, dyggir aðdáendur Star Trek, geta því byrjað að telja niður dagana í rólegheitum. Tökur hefjast í janúar á næsta ári og sem aftur eru þau Zoe Saldana, Chris Pine og Zachary Quinto í aðalhlutverkum. Orðrómur er einnig uppi um að Benecio Del Toro leiki illmennið í myndinni. Star Trek 3D átti upphaflega að koma út næsta sumar en var frestað af kvikmyndaverinu Paramount. Í staðinn var farið í framleiðslu á G.I. Joe 2. Retaliation.

Lífið

Ný barnabók Hendrikku Waage

Meðfylgjandi myndir voru teknar í gær þegar Hendrikka Waage skartgripahönnuður fagnaði útkomu barnabókar, Rikka og töfrahringurinn í Japan, hjá bókaútgáfunni Sölku með vinum og fjölskyldu....

Lífið

Í makaleit á netinu

Leikkonan, Playboy-fyrirsætan og dagskrágerðarkonan Jenny McCarthy hefur gefist upp á að finna maka i Los Angeles og leitað á náðir internetsins. McCarthy hætti með leikaranum Jim Carrey fyrir nokkru og hefur nú sett auglýsingu á einkamálasíðuna Match.com undir dulnefni. McCarthy skrifaði í auglýsingunni að hún væri komin með leið á karlmönnunum í Los Angeles. „Mennirnir hérna líta allir út eins og konur. Ég er að leita að einhverjum sem er ekki héðan.“ Það er vefsíðan Perezhilton.com sem uppljóstrar um makaleit leikkonunnar.

Lífið

Draumur að rætast að fá að hitta poppkónginn

„Ég held alveg sérstaklega upp á Pál Óskar. Ég hef haft áhuga á tónlistinni hans síðan 1987 og Eurovision síðan hann flutti Minn hinsti dans. Í raun og veru er það hann sem vakti hjá mér áhuga á íslenskri tónlist og þá sérstaklega Eurovision.“ Þetta segir Craig Murray, einlægur ástralskur Íslandsvinur og tónleikagestur Frostrósa, sem langar alveg sérstaklega til að hitta Pál Óskar Hjálmtýsson þegar hann og sambýlingur hans, Daryl Brown, koma hingað til Íslands skömmu fyrir jól.

Lífið

Lollapalooza í Brasilíu

Bandarísku rokkararnir í Foo Fighters ætla að spila á fyrstu brasilísku útgáfunni af tónlistarhátíðinni Lollapalooza. Hátíðin var haldin í Síle í fyrra og verður haldin aftur þar í ár. Brasilíska hátíðin verður haldin í Sao Paulo 7. og 8. apríl á næsta ári, skömmu eftir að stuðinu í Síle lýkur. Á meðal annarra sem stíga á svið í Sao Paulo verða Jane"s Addiction, MGMT og TV on the Radio.

Lífið

Hendrix þótti bestur

Jimi Hendrix hefur verið kjörinn besti gítarleikari sögunnar af tímaritinu Rolling Stone. Þessi niðurstaða kemur líklega fáum á óvart enda hefur Hendrix lengi verið talinn einn sá allra fremsti. Í öðru sæti lenti Eric Clapton og þar á eftir kom Jimmy Page úr Led Zeppelin.

Lífið

Frægar fæða fátæka

Sjónvarpsstjarnan Kim Kardashian og leikkonurnar Zoe Saldana og Jennifer Love Hewitt, stilltu sér upp á milli þess sem þær gerðu góðverk í gær...

Lífið

Synirnir aðstoða við hönnunina

Söngkona Gwen Stefani úr hljómsveitinni No Doubt viðurkennir að hún lætur syni sína hjálpa sér við hönnun barnafatalínu sinnar. Þeir Kingston, sem er fimm ára, og Zuma, tveggja ára, aðstoðuðu móður sína við að hanna fatalínuna Harajuku Mini fyrir Target-búðina í Bandaríkjunum.

Lífið

Skelltu sér á tónleika

Leikararnir Kristen Stewart og Robert Pattinson sáust saman á tónleikum með Lauru Marling í London um helgina. Þau höfðu hægt um sig og stóðu aftast með hettu á höfði. Eftir tónleikana voru þau ekki lengi að láta sig hverfa en starfsfólk staðarins þekktu þau. Stewart og Pattinson hafa ávallt farið leynt með samband sitt en þau leika par í Twilight myndunum og eiga nú stund milli stríða á meðan næst síðasta vampírumyndin, The Twilight Saga Breaking Dawn part 1, er sýnd á hvíta tjaldinu.

Lífið

Brjálaðar í Bieber

Í meðfylgjandi myndskeiði og myndum má sjá Justin Bieber, 17 ára, og óteljandi aðdáendur sem biðu hvorki meira né minna en í heilan sólahring til að fylgjast með honum syngja í sjónvarpsþættinum The Today Show í New York...

Lífið

Gaga jól

Söngkonan Lady Gaga, 25 ára, er greinilega komin í jólaskap eins og heyra má í meðfylgjandi myndskeiði...

Lífið

Kelly Osbourne grét

Kelly Osbourne uppljóstraði á samskiptavefnum Twitter að hún hefði tárast við að sjá sónarmynd af ófæddu barni bróður síns, Jacks Osbourne. „Ég var að sjá sónarmynd af barni bróður míns og ég get ekki hætt að þurrka tárin. Barnið er fullkomið.“

Lífið

Erfitt að vakna og fara í ræktina

Britney Spears á ekki sjö dagana sæla þessa dagana, en hún hefur verið á erfiðu tónleikaferðalagi frá því í júní. Hún er að kynna sjöundu plötuna sína, Femme Fatale, og segist vera orðin gríðarlega þreytt á flandrinu.

Lífið

George Michael með lungnabólgu

George Michael hefur neyðst til að aflýsa fleiri tónleikum vegna veikinda. Michael er á tónleikaferðalagi sem nefnist Symphonica en hann er að berjast við lungnabólgu. Tónleikaferðalag Michaels hófst í ágúst á þessu ári og síðustu tónleikar hans voru í október í Royal Albert Hall þann 11. október. Hann neyddist hins vegar til að hætta við tónleika sem hann ætlaði að halda þann 26. október og varð loks að aflýsa öllu tónleikahaldi í Vín, Strassburg og Cardiff.

Lífið

Öskubuskuævintýri í bandarísku sjónvarpi

Bandaríska þjóðin átti ekki í miklum erfiðleikum með að velja sigurvegarann í bandaríska raunveruleikaþættinum Dancing with the Stars á þriðjudagskvöld. Nafn J.R. Martinez var skrifað á bikarinn um leið og stríðshetjan fyrrverandi steig sinn fyrsta dans.

Lífið

Prinspóló til Danmerkur

Prinspóló leikur á tvennum tónleikum í Danmörku í næstu viku. Fimmtudaginn 24. nóvember verður hljómsveitin á Loppen í Kaupmannahöfn og daginn eftir spilar hún á Musiccafeen í Árósum. Á þessu stutta ferðalagi um Danmörku hitar Prinspóló upp fyrir dönsku hljómsveitina Let Me Play Your Guitar. Prinspóló gaf síðastliðið haust út plötuna Jukk og hafa lög eins og Niðrá strönd, Hakk & spaghettí og Skærlitað gúmmulaði fengið góðar viðtökur. Hljómsveitin hefur spilað á Íslandi, Póllandi, Lettlandi og í Þýskalandi.

Lífið

Stríðið um Mjallhvíti

Sagan um Mjallhvíti, prinsessuna fögru sem hrakin var á brott af vondu stjúpunni og fann skjól hjá dvergunum sjö, er flestum kunn. Á næsta ári verða tvær fokdýrar kvikmyndir frumsýndar þar sem snúið er út úr ævintýri Grimm-bræðra að hætti Hollywood.

Lífið