Lífið
Fjölskylda Whitney í viðtali hjá Opruh Sjónvarpsdrottning allra tíma, Oprah Winfrey, settist niður með systur Whitney Houston sem lést í febrúar aðeins 48 ára að aldri, Patriciu, bróður Gary, og dóttur Whitney, Bobbi Kristinu, 19 ára. Viðtalinu var sjónvarpað í gær sunnudag á sjónvarpsstöð Opruh. Eins og sjá má á myndunum féllu mörg tár. Þar sagði Patricia meðal annars að orðrómurinn um að fyrrverandi eiginmaður Whitney, Bobbi Brown, væri ástæaðn fyrir eiturlyfjanotkun Whitney, væri alls ekki á rökum reistur. "Ég get ekki sagt að hann hafi kynnt hana fyrir eiturlyfjum. Það er alls ekki rétt.“ Lífið 12.3.2012 11:30
Hárið hennar Rihönnu Söngkonan Rihanna, 24 ára, er dugleg að breyta um hárgreiðslur og háralit eins og sjá má á meðfylgjndi myndum.... Lífið 12.3.2012 11:15
McConaughey kyssir konuna Hjartaknúsarinn mikli Matthew McConaughey mætti með fallegu spúsu sína, Camila Alves á frumsýningu myndarinnar Killer Joe í Texax um helgina. Lífið 12.3.2012 10:30
Afslöppuð Angelina Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, og unnusti hennar, leikarinn Brad Pitt, 48 ára, voru sallarólega þegar bílstjóri þeirra keyrði þau í gegnum þvöguna fyrir utan Hyatt hótelið í New Orleans, Louisiana... Lífið 11.3.2012 10:00
Aniston og kærastinn á hlaupum Leikkonan Jennifer Aniston og unnusti hennar Justin Theroux yfirgáfu hótel í Tribeca hverfinu í New York í gærdag. Eins og sjá má á myndunum voru þau bæði á hlaupum enda fjöldi ljósmyndara sem beið þeirra fyrir utan hótelið. Þá keyrðu þau beint út á flugvöll þar sem einkaþotan beið þeirra. Lífið 11.3.2012 09:30
Sienna þegir um einkalífið Leikkonan Sienna Miller prýðir forsíðu næsta heftis breska Vogue og í ítarlegu viðtali við blaðið talar hún um það hvað henni sé illa við að ræða einkalíf sitt. Lífið 11.3.2012 09:00
Jamie Oliver fúll á móti Kokkurinn Jamie Oliver brást ókvæða við þegar blaðamaður spurði nýverið hvort hann hefði bætt á sig nokkrum aukakílóum. Lífið 10.3.2012 22:00
Óttaðist um Houston Mágkona Whitney Houston segist lengi hafa óttast að hún myndi deyja. Ástæðan er vafasamur lífsstíll hennar síðustu mánuðina áður en hún lést. Lífið 10.3.2012 21:00
Tvíburar sem hugsa eins Tvíburasysturnar Ashley og Mary-Kate Olsen viðurkenna í nýju viðtali við Elle UK að þær fái gjarnan sömu hugmyndina á sama tíma. Lífið 10.3.2012 20:00
Kolfinna missti af tískuvikunni í París "Þetta er auðvitað svekkjandi en ég er ekki þannig týpa að ég svekki mig á hlutum sem ég get ekki breytt,“ segir fyrirsætan Kolfinna Kristófersdóttir sem missti af tískuvikunni í París vegna þess að hún tognaði á fæti. Lífið 10.3.2012 15:00
Fyrstir með Game of Thrones Sjónvarpsþættirnir Game of Thrones verða Evrópufrumsýndir á Stöð 2 þann 2. apríl. Fyrsti þátturinn verður því sýndur á sjónvarpsstöðinni innan við sólarhring eftir frumsýninguna á HBO í Bandaríkjunum. Lífið 10.3.2012 15:00
Nýtt barn hjá Sólmundi Þáttastjórnandinn og grínistinn Sólmundur Hólm varð tveggja barna faðir í vikunni. Eiginkona hans, Elín Anna Steinarsdóttir, fæddi dreng í gærmorgun en móður og barni heilsast vel. Lífið 10.3.2012 14:00
Britney Spears á leið í X-Factor Britney Spears er í þann mund að skrifa undir samning um að vera dómari í sjónvarpsþáttunum X-Factor. Talið er að hún fái í sinn hlut tíu milljónir dollara, eða um 1,2 milljarða króna, fyrir næstu þáttaröð. Lífið 10.3.2012 13:30
Rolling Stone mælir með Ömmu Lo-Fi Tónlistartímaritið Rolling Stone setur íslensku heimildarmyndina Amma Lo-Fi á lista yfir heitustu myndirnar tengdar tónlist á hátíðinni SXSW, sem fer fram um helgina í Austin, Texas. Lífið 10.3.2012 13:00
Glæsileikinn allsráðandi Vesalingarnir, einn allra vinsælasti söngleikur leikhússögunnar, var frumsýndur á fjölum Þjóðleikhússins í flutningi einvala liðs leikara og söngvara á laugardaginn var. Þá fögnuðu Sambíóin 30 ára afmæli á Grand hótel síðasta föstudag. Afmælis- og frumsýningargestir voru stórglæsilegir í hátíðarskapi eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Lífið 10.3.2012 11:30
Heidi tjáir sig um skilnaðinn Fyrirsætan og sjónvarpskonan Heidi Klum hefur í fyrsta sinn tjáð sig um skilnaðinn við popparann Seal. Þau skildu í janúar eftir sjö ára hjónaband. Lífið 10.3.2012 11:00
Fær fiðrildi í magann Leikkonan Kyra Sedgwick hefur verið gift leikaranum Kevin Bacon í 23 ár en segist enn fá fiðring í hvert sinn sem hún sér eiginmann sinn. Lífið 10.3.2012 11:00
Engin börn með Jolie Leikarahjónin fyrrverandi Billy Bob Thornton og Angelina Jolie ákváðu að skilja vegna þess að Thornton vildi ekki eignast börn með Jolie. Lífið 10.3.2012 11:00
Bætist í titlaflóru Tobbu Enn bætist í titlasafn Þorbjargar Marinósdóttur, eða Tobbu Marinós eins og hún er betur þekkt. Tobba hefur í gegnum tíðina verið titluð sem rithöfundur, deitdrottining, fjölmiðlakona, vefstjóri, kynningarfulltrúi og nú fyrir skemmstu var hún gerð að markaðsstjóra Skjásins. Lífið 10.3.2012 11:00
Lindsay litar hárið rautt Leikkonan Lindsay Lohan, 25 ára, hefur litað ljósu lokkana rauða. Rauður er hennar náttúrulegi háralitur og fer henni vel eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem teknar voru í Beverly Hills í gærdag þegar hún yfirgaf læknastöð. Þá má einnig sjá systir hennar sem heitir Aliana á ferðinni í Beverly Hills stuttu eftir að Lindsay var mynduð. Einnig má sjá myndir af Lindsay þegar hún var ljóshærð. Lífið 10.3.2012 09:45
Miðlar reynslunni til annarra íþróttamanna Silja Úlfarsdóttir, frjálsíþróttakona, þjálfari og tveggja barna móðir á ævintýralegan feril að baki. Á hún meðal annars yfir 40 íslandsmet, 40 bikarmeistaramet ásamt því að hafa sigrað norðulandamót, smáþjóðleika og svo mætti lengi telja. Hvenær byrjaðir þú fyrst að æfa íþróttir? Ég var sjö ára gömul þegar ég byrjaði að æfa handbolta. Ferillinn í nokkrum orðum? Frjálsíþróttaferillinn var ótrúlega skemmtilegur, margir sigrar, mikið af ferðalögum, bjó í USA, kynntist skemmtilegu fólki alls staðar að, og ég endaði bara nokkuð sátt. Hvaða hreyfingu stundar þú í dag? Í dag er ég að æfa crossfit en þar upplifi ég þessa keppni við sjálfan mig sem ég var farin að sakna. Svo tek ég spretti vikulega. Hversu oft í viku hreyfir þú þig að meðaltali? Fjórum til fimm sinnum í viku. Hefurðu lent í því að fá leið á íþróttum? Já, eftir að ég hætti í frjálsum fannst mér erfitt að finna mér eitthvað nógu skemmtilegt og eitthvað sem var nógu mikil áskorun. Hvað gerirðu þá? Þá tek ég mér bara smá hvíld, ég leyfi mér hvíld í ákveðið marga daga. Hvað gerirðu til að dekra við kroppinn? Nú, ég fer á æfingu, einnig hef ég kíkt í Foam Flex tímana í Sporthúsinu. Nú áttu tvö ung börn – breyttirðu miklu í æfingunum á meðgöngunni? Mér líður nú eins og ég eigi að gefa voða flott svar núna sem þjálfari en sannleikurinn er sá að á fyrri meðgöngunni minni æfði ég ekkert, ég var að leggja skóna á hilluna og varð ólétt á sama tíma. Á þeirri seinni var ég dugleg í fimm mánuði en þá var ég orðin þreytt og vildi frekar fara út að leika með eldri stráknum mínum en að eyða orkunni í æfingar. Fékkstu æði fyrir einhverjum sérstökum mat? Ég var í súra pakkanum á fyrri meðgöngunni, já og kókoskúlunum í Bæjarbakaríi, en engu sérstöku á þeirri seinni. Þú auglýstir nýlega eftir íþróttafólki í átak á síðunni þinni, siljaulfars.is. Hvernig gekk að fá fólk og út á hvað gengur átakið? Það gekk ofsalega vel að fá þátttakendur og dró ég á endanum tvo íþróttamenn úr pottinum. Átakið gengur út á að þeir bæti sig sem mest í hraða á einum mánuði en þeir æfa hjá mér tvisvar í viku. Mér finnst alveg rosalega gaman að vinna með íþróttafólk en mínar helstu áherslur eru hraðþjálfun. Hversu mikilvæga telurðu markmiðasetningu vera í líkamsræktinni? Hún skiptir miklu meira máli en fólk gerir sér grein fyrir. Það eiga allir að vera með markmið – og helst að láta það ekki bara snúast um vigtina! Eitthvað að lokum? Settu þér markmið, reyndu alltaf að bæta þig og hafðu gaman af því að stunda hreyfingu. Og já, ekki borða mikið af kókosbollum á meðgöngu! Lífið 10.3.2012 09:00
Sindri orðinn pabbi Sjónvarpsmaðurinn knái, Sindri Sindrason hefur lítið sést á skjánum síðustu vikurnar enda ný orðinn pabbi. Sindri og Albert maðurinn hans fengu litla stúlku í fóstur á dögunum og er nú hugur þeirra og hjarta í því að hugsa um litlu dótturina. Sindri er mjög hamingjusamur heimavinnandi með litlu stelpunni sinni og brosir hringinn allan daginn við að annast hana. Það styttist þó í að Sindri snúi aftur á skjáinn því sú stutta hefur nú fengið pláss á Hjallaleikskólanum Laufásborg. Lífið 9.3.2012 17:30
Heidi Klum opnar sig um sambandsslitin Þýska fyrirsætan og sjónvarpsstjarnan Heidi Klum, 38 ára, opnar sig í apríl hefti ELLE tímaritsins um sambandsslit hennar og söngvarans Seal, 49 ára, en þau hættu saman í janúar á þessu ári. Heidi viðurkennir að sjö ára hjónaband þeirra var ekki eins rómantískt og fullkomið eins og það leit út fyrir að vera. Vandamálin voru til staðar en þau héldu þeim út af fyrir sig að sögn Heidi. „Heimurinn fyrir utan hjónabandið fékk eingöngu að heyra frábæru hlutina sem við upplifðum saman. Ég vil ekki fara ofan í erfiðleikana í sambandinu. Ég vil halda áfram og horfa fram á við með mig og fjölskylduna mína. Annars verð ég svo reið og bitur,“ er haft eftir Heidi í blaðinu. Lífið 9.3.2012 16:30
Verslingar gata geirvörtur fyrir peninga Í Týndu kynslóðinni í kvöld verður sýnt frá því þegar þrír vaskir piltar úr Verzlunarskólanum létu gata á sér geirvörturnar í vikunni. Lífið 9.3.2012 15:09
Ætlaði að verða lögfræðingur og kántrísöngkona Leiksstjórinn Selma Björnsdóttir er athafnakonan í Lífinu í dag... Lífið 9.3.2012 15:00
Helgarmaturinn - Salatblað fullt matar Vinsælasti fjölskyldurétturinn hjá Kríu, ritstjóra hjá Bókaútgáfunni SÖLKU Lífið 9.3.2012 14:30
Eva Longoria skilin við unglambið Desperate Housewives stjarnan Eva Longoria, 36 ára, og Eduardo Cruz, 27 ára, eru hætt saman eftir eins árs langt samband. Þetta var sameiginleg ákvörðun, lét Eva hafa eftir sér. Meðfylgjandi má sjá myndir af þeim yfirgefa veitingahúsið hennar Evu, Beso, í Los Angeles. Lífið 9.3.2012 13:30
Hef lært að segja skoðun mína umbúðalaust - Viðtalið Helga Arnardóttir hlaut Blaðamannaverðlaun Íslands nýverið fyrir umfjöllun um endurupptöku Guðmundar- og Geirfinnsmálsins í Íslandi í dag. Lífið 9.3.2012 13:00
Ofurbomban Sofia Vergara í tökum Ofurbomban Sofia Vergara sló á létta strengi á setti í vikunni við tökur á gamanþáttunum Modern Family. Lífið 9.3.2012 12:30
Brosmild Angelina Leikkonan Angelina Jolie, 36 ára, vinkaði til aðdáenda sinna þar sem hún sat í aftursæti í svartri bifreið glæsileg eins og ávallt. Angelina var klædd í svartar þröngar síðbuxur, hvítan jakka og látlausan topp við. Skoða má leikkonuna betur í meðfylgjandi myndasafni. Lífið 9.3.2012 11:30