Lífið

Útilokar ekki lesbískt samband

Leikkonan Zoe Saldana hefur svo sannarlega ekkert að fela. Hún situr fyrir ber að ofan í nýjasta hefti tímaritsins Allure og talar mikið um ástina á opinskáan hátt.

Lífið

Þúsundasti viðburðurinn

Í tilefni af þúsundasta viðburði tónleika- og skemmtistaðarins Faktorý verður boðið til stórveislu hvítasunnudaginn 19. maí.

Lífið

Hætt við tökur á Algjörum Sveppa 4

"Þetta er pínu leiðinlegt. Við vitum að það eru margir krakkar að bíða eftir þessu og maður hafði heyrt út undan sér að Kvikmyndasjóður ætti að einblína svolítið á barnamyndir,“ segir Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi.

Lífið

Fékk sér tattú í Malmö

Einar, einn meðlimur Eurovision hópsins, skellti sér á tattú-stofu á meðan aðrir voru í samneyti með stjörnunum og fékk sér húðflúr sem sjá má á myndunum hans Örlygs.

Lífið

Hverjir komast áfram í kvöld?

Fyrri undankeppnin í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva fer fram í Malmö í kvöld. Aðeins tíu lög af sextán komast áfram og eftirvæntingin því mikil.

Lífið

Við trúum ekki á refsingu

Leikarahjónin Will Smith og Jada Pinkett Smith vilja kenna börnum sínum Jaden, fjórtán ára, og Willow, tólf ára, muninn á réttu og röngu með því að leyfa þeim að gera sín eigin mistök.

Lífið

Hvetur menn til að mæta í hlýrabol

"Fátt gleður meira en góðverk. Eitt góðverk á dag er mottóið mitt. Þess vegna mun ég halda partí næsta föstudag þegar ég held í fyrsta skipti á Íslandi Stuðlagaball og í þokkabót ætlar rithöfundur fólksins að gefa öllum gestum eintak af Heilræði Gillz. Ekki slæmt, þar sem virtir gagnrýnendur telja þetta mitt besta en um leið framsæknasta bókmenntaverk," segir Egill Einarsson þegar við spyrjum hann út í ballið sem hann heldur á Spot á föstudaginn.

Lífið

Sagan á bak við pilsið hans Einars

"Ég bara nei engar töflur engin lyf þetta verður bara tekið," segir Einar Ágúst Euorvisionfari þegar hann segir frá þátttöku sinni í Eurovision árið 2000 þegar hann söng ásamt Telmu lagið "Tell me" klæddur í pils. Þá er einnig rætt við Regínu Ósk Eurovisionfara sem spáir líka í keppnina. Sjáið skemmtilegt spjall við Einar og Regínu Ósk í meðfylgjandi myndskeiði.

Lífið

Stefnan tekin á Íslandsmet í tísti

Stefnan er tekin á að slá Íslandsmet í tísti á samskiptamiðlinum Twitter í vikunni. Tilefnið er Söngvakeppni Evrópskra sjónvarpsstöðva, en óopinmert merki Íslendinga sem vilja ræða Eurovision á Twitter er #12stig.

Lífið

Piparsveinaíbúð í lagi

Hjartaknúsarinn Chris Pine hefur heillað heiminn upp úr skónum í nýjustu Star Trek-myndinni, Into Darkness. Hann fer létt með að heilla stelpurnar upp úr skónum á fallegu heimili sínu í Los Angeles.

Lífið

Undirbýr ágústbrúðkaup

Glamúrpían Holly Madison og unnusti hennar Pasquale Rotella eru búin að ákveða brúðkaupsdaginn. Þau ætla að ganga upp að altarinu þann 14. ágúst næstkomandi.

Lífið

Heldur upp á daginn með sínum nánustu

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, fagnar sjötugsafmæli sínu í dag. Hann hefur setið í forsetastóli frá árinu 1996, lengst allra í sögu lýðveldisins, og hefur verið endurkjörinn fjórum sinnum.

Lífið

Eyþór á eftir að velja jakka

Jónatan Garðarsson, fararstjóri íslenska Eurovision hópsins í Malmö, segir þau vera mjög upptekin við æfingar og blaðamannafundi í Malmö. "Það er brjálað að gera“, segir Jónatan.

Lífið

Beyonce barnshafandi?

Söngkonan Beyonce Knowles, 31 árs, er sögð barnshafandi. Slúðurheimurinn heldur þessu fram vestan hafs af því að magi söngkonunnar hefur stækkað. Beyonce hefur ekki staðfest þessar sögusagnir eða öllu heldur orðróm sem er orðinn að fréttaefni. Hvort sem hún er ólétt eða ekki þá birtum við nokkrar ómótstæðilegar myndir af dívunni.

Lífið