Erlent
25 látnir og 70 þúsund flúnir Að minnsta kosti tuttugu og fimm hafa látist í flóðum og aurskriðum í Víetnam undanfarna daga eftir að fellibylur gekk yfir landið. Tæplega sjötíu þúsund manns hafa flúið heimili sín vegna hamfaranna. Erlent 31.10.2005 12:17
Ríkisstjórn mynduð í Póllandi Búið er að mynda nýja ríkisstjórn í Póllandi. Það er minnihlutastjórn flokksins Laga og réttar sem fékk flest atkvæði í þingkosningum í september. Erlent 31.10.2005 12:12
Sjö létust í troðningi í Mekka Sjö létust í troðningi og um fjörutíu til viðbótar særðust þegar ringulreið myndaðist við úthlutun ölmusu í hinni helgu borg Mekka í Sádí-Arabíu á laugardag. Mekka er helgasti staður múslíma og var laugardagurinn síðasti dagur Ramadan, föstumánaðar og helgustu hátíðar múslíma og þess tímabils þar sem ölumusugjafir þykja hvað göfugastar. Erlent 31.10.2005 10:46
Grunuð um að hafa reynt að drekkja dóttur sinni Norsk kona er grunuð um að vera völd að dauða fimm ára gamallar dóttur sinnar sem lést um helgina, eftir að hafa legið milli heims og helju í viku. Erlent 31.10.2005 10:43
Þjóðarflokkurinn vill banna höfuðklúta í skólum Næstum annar hver Dani er þeirrar skoðunnar að banna eigi stúlkum sem eru múslimatrúar að klæðast höfuðklútum í grunnskólum. Þjóðarflokkurinn er eini stjórnmálaflokkurinn sem vill lögleiða bann og þá að franskri fyrirmynd. Erlent 31.10.2005 10:17
Erfingi fæddur í spænsku konungsfjölskyldunni Krónprins og krónprinsessa Spánar eignuðust sitt fyrsta barn í nótt, stúlku, þremur vikum fyrr en áætlað var. Sú staðreynd að hinn nýfæddi erfingi sé stúlka vekur upp pólitískar deilur sem áður hafa blossað upp á Spáni þar sem lög um erfingja krúnunnar kveða á um að drengir hafi forgang fram yfir stúlkur. Erlent 31.10.2005 09:16
Aðeins 39% Bandaríkjamanna ánægð með störf Bush Aðeins 39% Bandaríkjamanna eru ánægð með störf og frammistöðu George Bush, forseta landsins. Þetta kemur fram í nýrri vinsældakönnun. 58% aðspurðra lýstu sig óánægð með forsetann og störf hans og enn fleiri voru almennt óánægðir með hann sem leiðtoga. Erlent 31.10.2005 08:45
8000 manns flúðu Betu Yfir átta þúsund manns flúðu heimili sín í Hondúras í gær vegna fellibylsins Betu sem reið þar yfir með mikilli úrkomu og roki. Fellibylurinn mælist nú sem fellibylur af annarri gráðu á kvarða Saffír-Simpson um stærð fellibylja. Erlent 31.10.2005 08:33
Berlusconi styður yfirmann leyniþjónustunnar Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hefur gefið út stuðningsyfirlýsingu til handa Nicolo Pollari, yfirmanni ítölsku leyniþjónustunnar, sem er sagður hafa komið fölsuðum skjölum til bandarískra stjórnvalda. Erlent 31.10.2005 07:55
Eiturlyfjabarón handtekinn í Kólumbíu Kólumbíska lögreglan hefur handtekið John Eildelber Cano sem talinn er vera einn af æðstu mönnum stærsta eiturlyfjasmyglshrings landsins. Hringurinn, sem kallast Norte del Valle, er talinn standa að baki helmings þess magns eiturlyfja sem flutt hafa verið frá Kólumbíu til Bandaríkjanna síðastliðin tíu ár. Erlent 31.10.2005 07:49
Hundruð minntust Rosu Parks Hundruð manna voru viðstödd minningarathöfn vegna Rosu Parks, sem vakti aðdáun blökkumanna þegar hún neitaði að víkja fyrir hvítum manni í strætisvangi í Alabama árið 1955. Parks lést á dögunum 92 ára að aldri. Var hún talin hafa átt stóran þátt í baráttunni fyrir jafnrétti í Bandaríkjunum. Erlent 31.10.2005 06:00
Íslendingur slapp naumlega Marín Ásmundsdóttir myndlistarmaður var í 25 metra fjarlægð frá einni af þremur sprengingum sem urðu meira en 60 manns að bana í Nýju-Delí í gær. Erlent 30.10.2005 22:00
Sex í haldi í Danmörku Danska lögreglan leggur höfuðáherslu á að finna hver sé forsprakki í hópi manna sem eru grunaðir um að hafa ætlað að fremja hryðjuverk. Sex eru í haldi lögreglunnar vegna rannsóknar málsins. Erlent 30.10.2005 21:15
Frúarkirkjan í Dresden endurreist Eitthvert þekktasta ummerki sprengjuregnsins í Þýskalandi síðustu daga seinni heimsstyrjaldarinnar er frúarkirkjan í Dresden. Áratugum saman stóðu aðeins fáeinir steinar eftir og rústirnar lágu í hrúgu í miðri borginni. En nú hefur kirkjan verið endurreist. Erlent 30.10.2005 20:00
Landamæri Kasmír opnuð Þrátt fyrir spennuna milli Indlands og Pakistans, og hryðjuverkaárásirnar í gær, tókust samningar um að opna landamæri ríkjanna í Kasmír til að hleypa þar neyðarbirgðum í gegn. Það auðveldar hjálparstarfið en dugir þó hvergi nærri til. Erlent 30.10.2005 19:30
Mannfall eykst dag frá degi Mannfallið í Írak eykst dag frá degi. Bandarísk yfirvöld hafa í fyrsta sinn gefið út eigið mat á fjölda þeirra Íraka sem fallið hafa í árásum. Það segir sína sögu að tölur þeirra og annarra eru mismunandi, svo að skeikar þúsundum. Erlent 30.10.2005 19:00
Fagna opnun landamæra Sameinuðu þjóðirnar fagna þeirri ákvöðrun Indlands og Pakistan að opna samliggjandi landamæri þeirra í Kasmír fyrir fórnarlömbum jarðskjálftans sem og birgðaflutningum. Á sama tíma segja Sameinuðu þjóðirnar að hjálparstarf til þeirra milljóna sem enn eru í nauðum sé gríðarlegum vandkvæðum bundið og þarfnist mikillar skipulagningar sem seint sjáist fyrir endann á. Erlent 30.10.2005 15:00
Auknar líkur á lækningu þunglyndis Þunglyndissjúklingar eiga nú betri möguleika á lækningu í framtíðinni. Danskir vísindamenn eru bjartsýnir á að rannsóknir undanfarinna ára og nú tækni verði til þess að hægt sé að greina þunglyndi fyrr og meðhöndla. Erlent 30.10.2005 14:00
Indverjar á verði Indverjar eru vel á verði í kjölfar þess að þrjár öflugar sprengjur sprungu í miðborg Nýju Delhi í gær. Ekki færri en sextíu og einn féll, flestir óbreyttir borgarar sem voru að kaupa gjafir fyrir mikilvægar trúarhátíðir hindúa og múslíma. Erlent 30.10.2005 12:30
Hræðsla óþörf Sala á kjúklingakjöti hefur tekið dýfu í Frakklandi vegna hræðslu við fuglaflensu - hræðslu sem er algjörlega ástæðulaus. Erlent 29.10.2005 20:15
Fimmtíu féllu í Nýju Delhi Yfir fimmtíu féllu í röð sprengjuárása í Nýju Delhi, höfuðborg Indlands, í dag. Enginn veit hverjir standa á bak við árásirnar sem ráðamenn segja hryðjuverk. Erlent 29.10.2005 19:15
Öflugar sprengingar á Indlandi Þrjátíu eru látnir eftir röð sprenginga í miðborg Nýju Delhi, höfuðborgar Indlands, rétt upp úr hádegi. Fyrsta sprengingin mun hafa orðið á fjölsóttum markaði skammt frá meginjárnbrautarstöðinni ekki langt frá þekktum hótelum. Skömmu síðar sprakk önnur sprengja á öðrum markaði. Þriðja sprengjan sprakk í iðnaðarhverfi í suðurhluta borgarinnar. Erlent 29.10.2005 13:50
Rannsókn ekki lokið Rannsókn á leka frá CIA, bandarísku leyniþjónustunni, þar sem upplýsingum um njósnara þjónustunnar var lekið til fjölmiðla, er ekki lokið, þrátt fyrir að starfsmaður Hvíta hússins, Lewis Libby, hafi verið ákærður. Patrick Fitzgerald, yfirmaður rannsóknarinnar upplýsti þó í gær að stærstum hluta rannsóknarinnar væri lokið. Erlent 29.10.2005 10:00
Lá í líkhúsi í rúm tvö ár Bresk yfirvöld rannsaka nú hvernig á því standi að lík ungs manns lá í líkhúsi í tvö ár án þess að reynt væri að bera á það kennsl. Á meðan beið fjölskylda hans á milli vonar og ótta um hvað orðið hefði um ástvin þeirra. Erlent 29.10.2005 06:00
Lokkar ekki til sín ferðamenn Tvö hundruð ár eru liðin á þessu ári frá fæðingu rithöfundarins H.C. Andersen og af því tilefni hafa verið settar upp margvíslegar sýningar í Danmörku. Alþjóðlegri auglýsingaherferð var hrundið af stað til að fá erlenda ferðamenn til landsins. Erlent 29.10.2005 06:00
Álpaðist til Frakklands Þegar læðan Emily týndist í heimabæ sínum, Appleton í Wisconsin, fyrir rúmum mánuði bjuggust eigendur hennar við að hana væri að finna í kattageymslum bæjarins. Þeim varð því hverft við þegar fréttist af henni í Nancy í Frakklandi. Talið er að Emily hafi álpast upp í vörugám við pappírsverksmiðju sem síðan var fluttur sjóleiðis yfir Atlantshafið. Erlent 29.10.2005 06:00
Skattayfirvöld íhuga lögsókn Ítalskur dómari íhugar nú hvort ákæra eigi Silvio Berlusconi, forsætisráðherra landsins, fyrir skattsvik og aðra glæpi. Verði Berlusconi ákærður fara réttarhöldin að líkindum fram í vor, eða á svipuðum tíma og kosningar verða haldnar í landinu. Erlent 29.10.2005 05:30
Milljón Íranir hvöttu til eyðingar Ísraels Orð Mahmoud Ahmadinejad Íransforseta um að Ísraelsríki skuli þurrkað út af kortinu hafa fallið í góðan jarðveg hjá samlöndum hans en í gær ítrekaði hann skoðun sína í mótmælagöngu. Utan Írans er hrifningin hins vegar öllu minni. Erlent 29.10.2005 05:15
Ísrael: Ísraelsher hefur fengið þau fyrirmæli að halda ekki aftur af sér í baráttunni við palestínska uppreisnarmenn þrátt fyrir áeggjunarorð Bandaríkjastjórnar um hið gagnstæða. Herþotur héldu áfram skotárásum á Gaza-ströndina í gærmorgun. Í fyrrdag létust sjö Palestínumenn og fimmtán særðust í loftárás Ísraelshers á Gaza. Erlent 29.10.2005 05:00
Handteknir vegna gruns um hryðjuverk Piltarnir fjórir sem eru í haldi lögreglunnar í Danmörku, vegna gruns um að þeir hafi ætlað að gera hryðjuverkaárásir í Evrópu á næstunni, virðast tilheyra stærra neti hryðjuverkamanna. Erlent 28.10.2005 19:06