Erlent

Gefur út handtökuskipun á hendur Pinochet

Dómari í Chile hefur gefið út handtökuskipun á hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra í landinu vegna glæpa sem framdir voru í leynilegu fangelsi sem starfrækt var í valdatíð hans í Chile.

Erlent

Tveim múslimum sleppt úr haldi í Danmörku

Dönsk yfirvöld hafa látið lausa tvo af sjö ungum múslimum sem voru handteknir í Óðinsvéum í september síðasliðnum. Þeir eru grunaðir um að hafa undirbúið hryðjuverk í Danmörku.

Erlent

Óeirðanna í Frakklandi minnst

Að minnsta kosti 500 manns tóku þátt í göngu í Clichy-sous-Bois, úthverfi Parísar, í dag til að minnast tveggja táningspilta sem léstust úr raflosti fyrir ári. Talið var að drengirnir hefðu verið að flýja lögreglu en dauði þeirra leiddi til óeirða meðal fátækra innflytjenda víða um Frakkland þar sem kveikt var í bæði bílum og húsum.

Erlent

Allar fóstureyðingar bannaðar

Lög sem banna allar fóstureyðingar hafa verið sett í Níkvaraga. Engu skiptir þótt kona hafi verið fórnarlamb nauðgunar, eða hvort líf hennar sjálfrar er í hættu af barnsburði.

Erlent

Danska fjármálaeftirlitið vill vísa fleiri málum til lögreglu

Dönsk stjórnvöld íhuga að fjölga úrræðum danska fjármálaeftirlitsins þannig að það geti vísað öllum vafamálum til lögreglu. Hingað til hefur eftirlitið aðeins vísað stórum og augljósum brotamálum til framhaldsrannsóknar hjá lögreglu, en nú er í athugun að taka harðar á villandi upplýsingagjöf af öllu tagi. Íslenska fjármálaeftirlitið hefur aðeins tvívegis talið sig hafa svigrúm til að vísa málum til lögreglurannsóknar.

Erlent

Minnast eins árs ártíðar í Frakklandi

Yfir þúsund manns gengu fylktu liði í þögn í úthverfi Parísar í morgun til að minnast tveggja unglingsdrengja sem létust fyrir réttu ári síðan þegar þeir földu sig í rafmagnsskúr á flótta undan lögreglunni. Dauði þeirra varð kveikjan að ofbeldinu í úthverfum Parísar fyrir réttu ári síðan, sem entist í þrjár vikur.

Erlent

Stórreykingamenn líklegri til að skilja

Stórreykingamenn eru líklegri til að eiga að baki misheppnað hjónaband en þeir sem ekki reykja, samkvæmt niðurstöðum danskrar könnunar á reykvenjum þjóðarinnar. 30% af þeim Dönum sem reykja 15 sígarettur eða meira eru fráskildir en aðeins 13,6% þeirra eru giftir.

Erlent

Vill vernda hjónabandið fyrir samkynhneigðum

George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, ætlar sér að nota úrskurð dómara í New Jersey í Bandaríkjunum um að leyfa hjónabönd samkynhneigðra til þess að koma íhaldssömum kjósendum til þess að kjósa í kosningum til öldungadeildar þingsins, sem fara fram 7. nóvember næstkomandi.

Erlent

Erkibiskup styður múslimakonur

Erkibiskupinn af Kantaraborg hefur blandað sér í deilurnar um trúartákn, í Bretlandi, og tekur málstað múslimakvenna sem vilja bera slæður.

Erlent

Vill hækka skatt á áfengi til að berjast gegn unglingadrykkju

Patricia Hewitt, heilbrigðisráðherra Bretlands vill hækka skatt á áfengi sem selt er í Bretlandi, sér í lagi á áfengum gosdrykkjum, til að draga úr unglingadrykkju. Hann segist ætla að biðja Gordon Brown, fjármálaráðherra um að setja skattahækkunina inn í næsta fjárlagafrumvarp.

Erlent

Þýsku hermennirnir reknir úr hernum

Þýski herinn hefur rekið tvo hermenn úr hernum vegna mynda sem þýska dagblaðið der Bild birti af þeim þar sem þeir stilltu sér upp með hauskúpu í Afganistan. Myndir af þýskum hermönnum með hauskúpur hafa birtust í ýmsum þýskum fjölmiðlum í gær og fyrradag og hafa verið fordæmdar af þýskum stjórnmálamönnum og heryfirvöldum. Myndirnar eru sagðar vera frá 2003 og 2004.

Erlent

Friðargæsluliðar bjarga nánasta bandamanni Kabila

Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna í Lýðræðislega lýðveldinu Kongó (Kongó) komu Joseph Kabila, honum Joseph Mobutu Nzanga, til hjálpar í morgun eftir að hann hafði verið umkringdur hermönnum undanfarin sólarhring eftir að ófriður braust út í bæ í norður-Kongó.

Erlent

Mexíkóar mótmæla lögum um landamæravegg

Mexíkóskir leiðtogar gagnrýna lög sem George W. Bush, Bandaríkjaforseti, undirritaði í gær, þess efnis að reisa skuli mannhelda girðingu á landamærum landanna tveggja. Forseti Mexíkó, Vicente Fox, og verðandi forseti Felipe Calderon, segja að þetta muni ekki leysa innflytjendavanda Bandaríkjanna.

Erlent

Vopnasölusáttmáli Sameinuðu þjóðanna í burðarliðnum

Nefnd á vegum Sameinuðu þjóðanna samþykkti nær samhljóða í gær að byrja að vinna að alþjóðlegum vopnasölusáttmála. Með sáttmálanum er stefnt að því að laga galla í núverandi alþjóðalöggjöf sem valda því að skotvopn eru seld til átakasvæða þrátt fyrir vopnasölubann og viðskiptaþvinganir.

Erlent

4 slökkviliðsmenn týndu lífi í Palm Springs

Fjórir slökkviliðsmenn týndu lífi og einn brenndist illa þar sem þeir börðust við kjarrelda nærri Palm Springs í Bandaríkjunum í dag. Talið er að eldarnir logi nú á 4.000 hektara svæði og grunur leikur á að um íkveikju sé að ræða. 700 íbúum í nærliggjandi þorpum hefur verið fyrirskipað að flytja frá heimilum sínum. Sumir hafa þurft að fara að heiman án nokkurs fyrirvara og þurft að skilja eftir eigur og gæludýr.

Erlent

Um 200 líkamshlutar hafa fundist

Um það bill 200 hundruð líkamshlutar hafa fundist þar sem Tvíburaturnarnir stóðu áður í New York síðan líkamsleifar fundust í holræsi undir staðnum fyrir viku. Turnarnir hrundu í hryðjuverkaárásunum á Bandaríkin 11. september 2001. Lík 1.150 fórnarlamba í turnunum hafa ekki fundist.

Erlent

Tupperware-listaverk til sýnis

Tupperware er hægt að nota á margan hátt, til að geyma spagettí, til að geyma hafragraut í og hita hann, auk þess sem tupperware er notað til að halda mat ferskum. Það kann því að hljóma sérkennilega að Tupperware sé einnig notað í töskugerð eða listsköpun hvers konar.

Erlent

Svartur og hvítur

Reynst getur erfitt að þekkja í sundur tvíbura, sérstaklega ef þeir eru eineggja. Tvíburarnir sem Kerry Richardsson, frá Middlesbro á Englandi, eignaðist fyrir þrettán vikum eru hins vegar eins og svart og hvítt, í bókstaflegri merkingu.

Erlent

Andy Taylor hættur í Duran Duran

Andy Taylor, gítarleikari bresku hjómsveitarinnar Duran Duran, er hættur að spila með félögum sínum. Sem stendur er hljómsveitin í tónleikaferð um heiminn og næsti viðkomustaður eru Bandaríkin. Fimm ár eru síðan þessi vinsæla hljómsveit níunda áratugs síðustu aldar kom aftur saman á ný.

Erlent

Á leið til sólarinnar

Tveimur geimförum var í morgun skotið upp frá Canaveral-höfða í Flórída í átt til sólarinnar. Geimförin eiga að taka þrívíddarmyndir af sólstrókum en þeir valda norðurljósunum fögru.

Erlent

Saklaust fólk drepið

Talið er að tugir óbreyttra borgara hafi fallið í árásum Atlantshafsbandalagsins á bækistöðvar talibana í Suður-Afganistan í vikunni. Talsmenn NATO saka talibana um skýla sér bak við saklaust fólk í bardögum en heimamenn segja þá á bak og burt.

Erlent

4 fórust þegar flugvél sænsku strandgæslunnar hrapaði

Fjórir týndu lífi þegar flugvél sænsku strandgæslunnar hrapaði í Falsterbro-sund í Suður-Svíþjóð skömmu eftir hádegi í dag. Að sögn vitna losnaði annar vængurinn frá flugvélinni áður en hún hrapaði. Fjórir voru um borð og hafa allir fundist, látnir.

Erlent

Kjarreldar ógna stóru svæði nærri Los Angeles

Rúmlega 200 íbúum í tveimur smábæjum nærri Palm Springs í Los Angeles hefur verið fyrirskipað að yfirgefa heimili sín vegna mikilla kjarrelda sem breiðast hratt út á svæðinu. Heitir vindar blása á svæðinu og hraða því að eldarnir breiði úr sér. Þeir kviknuðu skömmu eftir miðnætti og 6 klukkustundum síðar höfðu þeir læst sig í 324 hektara landsvæði.

Erlent