Erlent

Leynd aflétt af Rúandaskjölum

Franska ríkisstjórnin hefur ákveðið að aflétta leynd af skjölum um þjóðarmorðin í Rúanda árið 1994, eftir að franski herinn var kærður fyrir að taka þátt í þeim. Þetta kom fram á fréttavef BBC í gær.

Erlent

Georgíumenn borgi tvöfalt

Ráðamenn ríkisrekins gasfyrirtækis í Rússlandi, Gazprom, tilkynntu í gær að þeir myndu meira en tvöfalda verð á gasi sem þeir selja til nágrannaríkisins, Georgíu.

Erlent

Kerry baðst forláts

Kosningabaráttan í Bandaríkjunum er að ná hámarki. Stríðið í Írak er sem fyrr mest áberandi af kosningamálunum, en umdeild ummæli Johns Kerrys um bandaríska hermenn hafa dregið að sér athyglina í þessari viku.

Erlent

Reyna á þolmörk Vesturlanda

Íran Teiknimyndahöfundur frá Marokkó, Abdollah Derkaoui að nafni, bar sigur úr býtum í teiknimyndasamkeppni sem efnt var til í Íran nú í sumar. Frá úrslitunum var skýrt í gær, en viðfangsefni keppninnar var helförin. „Hvar liggja mörk vestræns tjáningarfrelsis?" var yfirskrift keppninnar, en þema hennar var önnur spurning: „Hvers vegna skyldu Palestínumenn gjalda fyrir söguna af helförinni?"

Erlent

Misnotaði fatlaðan í 16 ár

Sextíu og níu ára gamall stuðningsfulltrúi játaði fyrir rétti í Björgvin í Noregi í gær að hafa kynferðislega misnotað líkamlega fatlaðan mann í sextán ár samfleytt. Þetta kemur fram í norska blaðinu Aftenposten.

Erlent

Justin Timberlake með flestar styttur

Justin Timberlake er sigurvegari MTV-tónlistarhátíðarinnar í Evrópu. Hann flýgur heim frá Kaupmannahöfn með tvenn af aðalverðlaununum: besti karlkyns tónlistarmaðurinn og besti popparinn. Red Hot Chili Peppers fengu verðlaun fyrir bestu plötuna fyrir nýjustu afurðina "Stadium Arcadium" og "Crazy" með Gnarls Barkley var valið besta lagið.

Erlent

Öryggisráðið klofið vegna Hariri-málsins

Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna er klofið í afstöðu sinni til sérstaks dómstóls sem skal rétta í máli sakborninga fyrir morðið á Rafik Hariri, fyrrum forsætisráðherra Líbanons. Bandaríkin styðja tillöguna enda er ríkisstjórn Líbanons undir verndarvæng Bandaríkjanna. Rússar draga hins vegar taum Sýrlendinga, sem almannarómur sakar um að hafa skipulagt morðið.

Erlent

Vestræn ríki verða að búa sig undir aukin elliglöp

Breskir vísindamenn vara við því í nýútkominni skýrslu að vestræn samfélög ættu að undirbúa aukna aðstöðu og aðstoð við aldrað fólk með elliglöp eða hrörnunarsjúkdóma sem leggjast á heila, út af því að batnandi lífskjör og lífslíkur hafa það í för með sér að fleira og fleira fólk nær háum aldri með bilandi heilastarfsemi.

Erlent

Fiskurinn hverfur eftir 42 ár

Fiskistofnar og sjávarspendýr í höfum heimsins hrynja árið 2048 ef mannfólkið heldur áfram með uppteknum hætti við að spilla umhverfi og lífríki sjávar. Þetta er niðurstaða vísindamanna sem hafa unnið úr vísindagögnum sem ná aftur til sjöunda áratugarins og heimildum fornleifafræðinga um þróun lífríkisins í yfir þúsund ár.

Erlent

Færeyingar reiðir Íslendingum

Reiði ríkir í Færeyjum vegna umræðu um bágborna stöðu samkynhneigðra í eyjunum en Íslendingar vöktu athygli á málinu á þingi Norðurlandaráðs. Óttast er að umræðan geti jafnvel orðið til að skaða réttindabaráttu homma og lesbía í Færeyjum.

Erlent

Myrti dóttur sína til að hefna framhjáhalds eiginkonunnar

Breskur karlmaður var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða þriggja ára gamla dóttur sína með klóróformi fyrir tæpu ári síðan. Maðurinn reyndi einnig að fremja sjálfsvíg eftir ódæðið. Hann segist hafa framið ódæðið í hefndarskyni eftir að hann komst að því að eiginkona hans hélt fram hjá honum.

Erlent

Ein eftirlitsmyndavél á hverja 14 Breta

Í Bretlandi fylgist ein eftirlitsmyndavél með hverjum fjórtán íbúum, og það er von á fleirum. Formaður bresku Persónuverndarinnar óttast að Bretland sé orðið að því eftirlitsþjóðfélagi sem George Orwell sá fyrir í bók sinni 1984.

Erlent

Kenna stúlkunni sjálfri um hópnauðgun

Fjórir grískir skólapiltar hafa verið ákærðir fyrir að hópnauðga búlgarskri bekkjarsystur sinni. Íbúar þorpsins sem þetta gerðist í, segja að þetta hafi verið stúlkunni að kenna.

Erlent

Óttast blóðsúthellingar á hinsegin dögum

Enn er verið að draga víglínur í Jerúsalem, en að þessu sinni eru þær á milli strangtrúaðra gyðinga og samkynhneigðra. Búist er við að 8000 manns taki þátt í skrúðgöngu "Hinsegin daga" í borginni helgu hinn tíunda þessa mánaðar.

Erlent

Neyðarfundur vegna morðöldu í Napólí

Romano Prodi, forsætisráðherra Ítalíu, fór til neyðarfundar í Napólí, í dag, til að leggja á ráðin um hvernig sé hægt að stöðva öldu morða sem gengið hefur yfir borgina undanfarnar vikur.

Erlent

Kaup á lettneskum banka gagnrýnd

Í nýjustu grein Ekstra Bladet um íslenskt viðskiptalíf er ýjað að því að lettneski bankinn Lateko hafi beitt danska bankamenn blekkingum til að fá sambankalán. Bankinn er í eigu Íslendinga.

Erlent

Blair vill ekki rugla saman Guði og Darwin

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, segir í viðtali við tímaritið New Scientist, að hann yrði áhyggjufullur ef sköpunarsagan yrði kennd sem raunvísindi, í breskum skólum. Sköpunarsagan er sú kenning Biblíunnar að Guð hafi skapað heiminn á sex dögum.

Erlent

Leit að skipverja hætt á Eystrasalti

Leit hefur verið hætt að skipverja sem féll útbyrðis þegar sænskt flutningaskip sökk í Eystrasalti í gærkvöld. Ofsaveður og stórsjór voru á þessum slóðum þegar neyðarkall barst frá skipinu og skömmu síðar valt það.

Erlent

Íraksforseti vill hafa bandaríska herinn 2-3 ár til viðbótar

Íraski forsetinn Jalal Talabani sagði í morgun að bandarískar hersveitir ættu að vera í landinu allt að þrjú ár í viðbót svo að lögregla á svæðinu geti byggt upp starfsemi sína. Þetta kom fram á fréttamannafundi sem hann hélt við upphaf vikuferðalags um Frakkland.

Erlent

Nýr soldán skipaður í Nígeríu

53 ára gamall ofursti úr nígeríska hernum, Mohammed Sada Abubakar, hefur verið skipaður soldáninn af Sokoto. Sá er gegndi embættinu á undan honum lést í flugslysi í Nígeríu þann 29. október síðastliðinn.

Erlent

Panama í Öryggisráðið

Panama verður líklega fulltrúi Suður-Ameríku í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna á næstunni. Gvatemala og Venúsúela höfðu barist hatrammlega um sætið síðustu misseri en eftir 47 atkvæðagreiðslur án niðurstöðu ákvöðu löndin að best væri að þriðja landið tæki sætið.

Erlent

Írak, Írak, Írak

Afstaðan til Íraksstríðsins mun ráða atkvæðum flestra kjósenda í bandarísku þingkosningunum. Tilraunir repúblikana til að snúa umræðunni frá stríðinu og óánægju kjósenda hafa borið takmarkaðan árangur og litla hjálp að fá lengur frá John Kerry sem virðist hafa farið að ráðum félaga sinna um að biðjast afsökunar og láta lítið fyrir sér fara.

Erlent

Tíu særast í skotárás á hrekkjavöku

Tíu manns særðust í skotárás í hrekkjavökugöngu í San Francisco seint á þriðjudagskvöldið var. Átök brutust þá út á milli tveggja hópa á sama tíma og lögregla var að dreifa úr hópnumer atvikið átti sér stað.

Erlent