Erlent

Vantraust á kosningakerfi

Þótt Osama bin Laden næðist í dag myndi það ekki hafa nein áhrif á atkvæði milljóna manna í kosningunum í Bandaríkjunum á morgun. Allt að helmingur kjósenda í sumum fylkjum hefur nefnilega þegar póstlagt atkvæðaseðil sinn. Breytingar á kosningakerfum fylkjanna hafa valdið vantrausti og flokkarnir búa sig undir harða baráttu um hvert einasta atkvæði.

Erlent

Enn ólga eftir dauðadóm Saddams

Þrír bandarískir hermenn voru drepnir í dag og útgöngubann er enn í gildi í Bagdad annan daginn í röð, í kjölfar þess að Saddam Hussein var dæmdur til hengingar í gær. Bush Bandaríkjaforseti hreykir sér af því að hafa tekið rétta ákvörðun þegar hann sendi Bandaríkjaher til að steypa Saddam af stóli og draga hann fyrir dóm, til að vinna flokki sínum kosningafylgi.

Erlent

Spennan magnast fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum

Spennan fyrir þingkosningar í Bandaríkjunum heldur áfram að magnast, degi áður en Bandaríkjamenn ganga til kosninga. Ný skoðanakönnun sem dagblaðið USA Today og Gallup hafa gert sýnir að forskot demókrata í kosningunum til fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur minnkað nokkuð á síðustu tveimur vikum og þá er mjög mjótt á munum í kosningum til öldungadeildarinnar.

Erlent

Óeirðir vegna erfiðra inntökuprófa í lögreglu á Indlandi

Hundruðu manna gengu berserksgang í borginni Ghaziabad í norðurhluta Indlands í gærkvöld til þess að mótmæla erfiðum inntökuprófum í lögregluna. Mennirnir réðust bæði á fólk og farartæki sem á vegi þeirra varð og voru hátt í 30 menn handteknir í óeirðunum.

Erlent

Ortega heldur forystunni í Níkaragva

Daníel Ortega, fyrrverandi uppreisnarleiðtogi Sandínista í Níkaragva, heldur forystunni þegar búið er að telja 15% atkvæða í forsetakosningunum í landinu. Hann hefur hlotið 40% atkvæða en helsti keppinautur hans, Eduardo Montealegre hefur 33% atkvæða. Ef þetta hlutfall helst, þá verður ekki önnur umferð í forsetakosningunum.

Erlent

Tveggja vikna umhverfisráðstefna S.þ. í Nairobi

Rúmlega 6.000 manns eru komnir til Nairobi í Kenýa til að taka þátt í tveggja vikna ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um loftslagsmál. Margir óska þess að sjá þess einhver merki að Bandaríkjamenn hyggist taka ríkara tillit til Kyoto-bókunarinnar í umhverfisstefnu sinni. Fáir búast þó við því meðan Bush er við völd.

Erlent

Bæta réttindi ólöglegra innflytjenda

22 evrópskir og suðuramerískir þjóðarleiðtogar ákváðu í gær að samhæfa aðgerðir til að stemma stigu við flæði ólöglegra innflytjenda frá Suður-Ameríku. Einnig vilja leiðtogarnir gæta betur réttinda ólöglegra verkamanna sem hvergi eru skráðir í nýja landinu.

Erlent

Bechtel vill út úr Írak

Bandaríska verktakafyrirtækið Bechtel tilkynnti í gær að það myndi ekki taka við fleiri uppbyggingarverkefnum í Írak eftir að síðasti samningur fyrirtækisins rann út um mánaðamótin. Bechtel hefur misst 52 verkamenn og 49 til viðbótar hafa slasast á þremur árum. Fyrirtækið vinnur einnig við að reisa álverið í Reyðarfirði þar sem öryggisaðstaðan er mun betri.

Erlent

Ortega leiðir eftir fyrstu tölur í Níkaragúa

Níkaragúabúar telja nú upp úr kjörkössum forsetakosninganna sem fóru fram í gær. Fyrstu tölur gefa til kynna að byltingarmaðurinn Daniel Ortega gæti snúið aftur til valda, 16 árum eftir að Bandaríkjamenn styrktu aðra byltingarmenn sem veltu honum úr sessi.

Erlent

Olmert segist ekki ætla að hertaka Gaza á ný

Hátt í 50 Palestínumenn hafa týnt lífi síðustu sex dagana í nýjustu árásahrinu Ísraelsmanna á Palestínu. Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, neitar að gefa nokkra yfirlýsingu um það hvenær árásirnar taki enda en vill fullvissa fjölmiðla um að Ísraelar hygðust ekki hertaka Gaza-ströndina á ný.

Erlent

Svanur felldi hug til plastbáts

Svartur svanur í Þýskalandi hefur fellt hug til hjólabáts úr plasti sem er í laginu eins og svanur. Elskendurnir hafa nú verið færðir í dýragarð og munu eyða vetrinum þar saman.

Erlent

Talinn flæktur í spillingarmál

Saksóknarar í Taívan segjast hafa gögn sem sýni fram á að Chen Shui-bian, forseti landsins, sé flæktur í spillingarmál í tengslum við leynilegan sjóð, sem hann hefur haft afskipti af. Gögnin nægi til að leggja fram ákæru á hendur forsetanum.

Erlent

Saddam Hussein dæmdur til dauða

Dauðadómi sem í gær var kveðinn upp yfir Saddam Hussein misjafnlega tekið. Fögnuður í röðum íraskra sjía-múslima sem stjórn Saddams ofsótti, en talsmenn súnnía spáðu blóðbaði sem yrði á ábyrgð núverandi ríkisstjórnar.

Erlent

Athyglin á hliðarmálunum

Málefnin sem voru á aðaldagskrá Norðurlandaráðsþings í Kaupmannahöfn í vikunni sem leið, svo sem hvernig norræna velferðarmódelinu reiddi af í hnattvæðingunni, vöktu minni athygli fjölmiðla en hliðarefni á borð við jafnréttismál í Færeyjum.

Erlent

Ætlar kannski að segja af sér

Sheik Taj Aldin Al-Hilali, múslimaklerkurinn í Ástralíu sem vakti hörð viðbrögð í september þegar hann sagði slæðulausar konur vera eins og óvarið kjöt, sagðist á föstudag ætla að segja af sér ef óháð nefnd kemst að þeirri niðurstöðu að með þessum ummælum hafi hann verið að hvetja til nauðgana.

Erlent

Ortega í forystu

Kjósendur í Miðameríkuríkinu Níkaragva biðu í gær í löngum biðröðum eftir að fá að kjósa í forsetakosningum, sem Daniel Ortega, gamla sandínistaleiðtoganum sem stjórnaði landinu megnið af níunda áratugnum, var spáð góðu gengi í.

Erlent

Keypti eiturlyf og vændi

Forseti Bandarísku evangelistakirkjunnar, Ted Haggard, er sakaður um að hafa keypt sér metamfetamín og nudd af karlhóru. Í Evangelistasamtökunum í Bandaríkjunum eru allt að 30 milljónir meðlima.

Erlent

Dularfull beinbrot ungbarna

Undanfarið hefur hollenska dagblaðið De Telegraaf birt fréttir af beinbrotum ungbarna sem vakið hafa töluverðan ugg þar í landi.

Erlent

Byggð námumanna ógnað

Glæður í úrgangi frá kolanámu á Svalbarða gætu leitt til þess að allir íbúar eyjarinnar, sem eru rússneskir, neyðist til að flýja heimili sín. Til þess kæmi þó ekki fyrr en glæðurnar breytast í loga, að sögn norskra yfirvalda.

Erlent

Bush fagnar dauðadómi Saddams

George W. Bush fagnaði niðurstöðu dómstólsins í Bagdad í dag. Hann sagði hann mikilvægan áfanga á leið Íraks til friðar og velsæmdar er hann talaði við fréttamenn á leið sinni um Texas í dag.

Erlent

Málsmeðferðin gagnrýnd

Súnníar í Írak eru æfir vegna dauðadóms yfir Saddam Hússein, fyrrverandi forseta Íraks, en á sama tíma fagna sjíar. Mannréttindasamtök segja málsmeðferðina gagnrýnisverða. Bandarísk stjórnvöld fagna dómnum og segja hann fyrsta skrefið í átt að nýrri framtíð fyrir Íraka.

Erlent

Bandarískur prestur leystur frá störfum vegna kynlífshneykslis

Einn af áhrifamestu predikurum kristinnar trúar í Bandaríkjunum, Ted Haggard, var rekinn af kirkjuráði sínu nú um helgina. Haggard, sem er mikið á móti hjónabandi samkynhneigðra, viðurkenndi nú á föstudaginn að hann hefði keypt sér eiturlyf og farið í nuddtíma til karlkyns hóru.

Erlent

Forsetakosningar haldnar í Níkaragva

Fimm eru í framboði í Níkaragva en baráttan er helst sögð standa milli Daniel Ortega, fyrrverandi forseta og skæruliðaleiðtoga, og athafnamannsins Eduardo Montealegre.

Erlent

Skutu 12 ára stúlku til bana

Ísraelskar leyniskyttur skutu 12 ára palestínska stúlku til bana í bænum Beit Hanoun á Gaza-svæðinu í gær. Aðgerðir Ísraela þar síðan á miðvikudag hafa kostað á fimmta tug Palestínumanna lífið. Á sama tíma er þjóðstjórn Palestínumanna sögð ná næsta leyti.

Erlent