Erlent
Fjórða valdaránið á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Þetta er fjórða valdaránið á eyjunum síðan 1987. Erlent 5.12.2006 19:15
Gildir einu hvort skilgreint sem borgarastyrjöld Tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak. Fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir ástandið þar verra en borgarastyrjöld. En á meðan tekist er á um hvort borgarastyrjöld geisi þar deyja fjölmargir Írakar víðsvegar um landið á degi hverjum og fyrir ættingju þeirra gildir einu hvernig átökin í Írak eru skilgreind. Erlent 5.12.2006 19:00
Serbinn Seselj í lífshættu vegna mótmælasveltis Serbíumenn báðu stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í dag að senda serbneska öfgaþjóðernissinnann Vojislav Seselj á sjúkrahús í Belgrad. Heilsu hans hefur hrakað gríðarlega út af mótmælasvelti. Seselj hefur verið vistaður í Haag síðan hann gaf sig fram árið 2003 en réttarhöldum yfir honum var frestað um óákveðinn tíma á föstudaginn. Erlent 5.12.2006 18:04
Nektardansinn er skattfrjáls listviðburður Dómstóll í Noregi úrskurðaði í dag að nektardansstaðir þyrftu ekki að greiða virðisaukaskatt af starfsemi sinni, því hún félli í flokk með listrænum viðburðum og starfsmennirnir væru listamenn. Skattstjóri í Noregi hafði stefnt skemmtistaðnum Blue Engel fyrir að neita að rukka viðskiptavini um 25% skatt á inngöngumiða. Erlent 5.12.2006 17:31
Gates vill ekki ráðast á Íran Bandaríkin munu ekki ráðast á Íran nema allt annað hafi verið reynt. Þetta tilkynnti Robert Gates, sem mun taka við embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna af Donald Rumsfeld, í dag. Hann segist þess fullviss að Íranar séu að smíða kjarnavopn en segir að Bandaríkin ættu fyrst að reyna diplómatískar leiðir til þrautar með milligöngu samstarfsríkja. Erlent 5.12.2006 17:13
Hátt í 50 létust í rútuslysi í Perú Að minnsta kosti 45 létust þegar troðfull rúta hrapaði ofan í gljúfur í Andesfjöllunum í suðurhluta Perús seint í gærkvöld. Frá þessu greindi lögregla í Perú í dag. Hún telur líklegast að bílstjóri rútunnar hafi ekið of greitt og misst stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún steyptist ofan í 500 metra djúpt gljúfur. Erlent 5.12.2006 16:29
Segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak Robert Gates, tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði við yfirheyrslur fyrir varnamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings að hann teldi ekki að Bandaríkjamenn væru á sigurbraut í Írak. Erlent 5.12.2006 16:03
Maliki hyggst boða til ráðstefnu vegna ástandsins í Írak Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hyggst senda erindreka til nágrannaríkjanna á næstunni til þess að leita eftir samstarfi um að auka öryggi í Írak. Þá hyggst hann boða til ráðstefnu meðal ríkjanna um sama efni. Erlent 5.12.2006 15:05
Mannskæðar árásir í Bagdad 30 hafa fallið í þremur sprengjutilræðum og einni skotárás í Írak í morgun. Árás var gerð á rútu sem var að flytja sjía-múslima í norðurhluta Bagdad. 14 týndu lífi og fjórir særðust. Stuttu síðar sprungu þrjár bílsprengjur í suðurhluta Bagdad. Þar féllu sextán manns og talið að vel á þriðja tug vegfarenda hafi særst. Erlent 5.12.2006 13:45
Leita aðstoðar í Rússlandi Breskir lögreglumenn hafa formlega beðið rússneska starfsfélaga sína um aðstoð við rannsókn á dauða rússneska njósnarans Alexanders Litvinekons. Eitrað var fyrir honum með geislavirku efni. Fyrrverandi leyniþjónustumaður í Rússlandi segir stjórnvöld í Moskvu hafa myrt Litvinenko og segist hafa mikilvægar sannanir þess efnis. Erlent 5.12.2006 13:30
Heimildarmynd um fanga í Afganistan veldur deilum í Danmörku Stjórnarandstaðan í Danmörku hefur farið fram á skýringar frá ríkisstjórn landsins vegna upplýsinga sem fram koma í heimildarmynd sem frumsýnd var í Kaupmannahöfn í gær. Myndin heitir Hið leynilega stríð og þar er greint frá því að danskir hermenn í Afganistan hafi í mars árið 2002 afhent Bandaríkjaher 31 stríðsfanga sem síðan hefðu verið pyntaðir. Erlent 5.12.2006 13:21
Völdum rænt í fjórða sinn á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Forseti Fiji-eyja segist ekki styðja valdaránsmenn. Erlent 5.12.2006 13:15
Rússar ekki samstarfsþýðir Saksóknari rússneska ríkisins, Yuri Chaika, hélt í dag fréttamannafund og sagði að ef einhverjir rússneskir ríkisborgarar verði grunaðir um græsku í eitrunarmálinu svokallaða muni rússnesk lögregla yfirheyra þá og það verði réttað yfir þeim í Rússlandi. Chaika sagði ennfremur að enginn myndi verða framseldur til Bretlands. Erlent 5.12.2006 13:11
Bandaríkin búast ekki við samkomulagi Háttsettur embættismaður Bandaríkjastjórnar sagði fyrir stórveldafund, sem fram fer í París í dag, að ekki væri búist við því að sátt myndi nást um hugsanlegar refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar Írans. Erlent 5.12.2006 11:46
France 24 í loftið á morgun Á morgun mun alþjóðleg frönsk fréttastöð hefja útsendingar á netinu og daginn eftir í sjónvarpi. Mun hún slást um þann hóp fólk sem horfir á CNN International, BBC World Service og ensku útgáfu Al-Jazeera. Íslensk stúlka mun starfa við ensku útgáfu stöðvarinnar. Erlent 5.12.2006 10:53
Jólafrí setja strik í reikninginn Varautanríkisráðherra Rússlands, Alexander Alexeyev, sagði í dag að sexveldahópurinn svokallaði myndi sennilega ekki hittast fyrr en árið 2007. Sagði hann það vera vegna væntanlegra jólafría embættismanna. Erlent 5.12.2006 10:27
Durian kominn til Víetnam Hitabeltisstormurinn Durian lenti á suðurströnd Víetnam í dag. Að minnsta kosti 46 manns létu lífið vegna hans og talið er að fleiri en 300 hafi slasast. Þúsundir húsa eru einnig talin ónýt eftir storminn. Þrír sjómenn eru einnig taldir af eftir að bát þeirra hvolfdi í aðdragand stormsins. Erlent 5.12.2006 10:18
Íran varar Evrópu við að styðja refsiaðgerðir Forseti Írans, Mahmoud Ahmadinejad, varaði Evrópu við því í morgun að styðja refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar landsins. Sagði hann að ef Evrópa myndi styðja hugsanlegar refsiaðgerðir myndi Íran bregðast við því með því að draga úr samskiptum við Evrópusambandið. Erlent 5.12.2006 09:10
Geimstöð byggð á tunglinu 2020 Geimferðastofnun Bandaríkjamanna, NASA, segist ætla að byggja varanlega geimstöð á tunglinu, að öllum líkindum á norðurpóli tunglsins. Erlent 5.12.2006 08:38
Mótmælin halda áfram Jarðarför mannsins sem lést í mótmælum Hizbolla í Líbanon á sunnudaginn fór fram í Beirút í gær. Fyrir utan manninn sem lést, meiddust alls 21 í átökum milli mótmælenda, sem eru að mestu shía-múslimar, og stjórnarsinna, sem eru aðallega súnní-múslimar. Erlent 5.12.2006 08:29
80 Talibanar létu lífið í átökum við hermenn NATO í Afganistan Talið er að allt að 80 vígamenn talibana hafi látið lífið í átökum við hermenn NATO í bardögum í suðurhluta Afganistans um helgina. Enginn hermaður NATO lét lífið. Bardagarnir hófust á laugardaginn og voru í rúman sólarhring en hermenn NATO segjast vera farnir að kunna betur á aðstæður í Afganistan. Erlent 5.12.2006 08:19
Breskir lögreglumenn komnir til Moskvu Breskir lögreglumenn hafa formlega beðið rússneska starfsfélaga sína um aðstoð í eitrunarmálinu svonefnda, en málið hefur valdið því að samskipti Breta og Rússa hafa kólnað til muna. Erlent 5.12.2006 08:12
Herinn á Fídjieyjum fremur valdarán Herinn á Fídjieyjum tók völdin í nótt auk þess að hneppa forsætisráðherra landsins, Laisenia Qarase, í stofufangelsi. Forseti Fídjieyja sagði í yfirlýsingu í nótt að hann styddi ekki aðgerðir hersins þrátt fyrir frásagnir um að hann hafi leyst upp þing landsins og samþykkt að Qarase yrði vikið úr embætti. Erlent 5.12.2006 08:03
30 fallið og 29 særst 30 manns hafa fallið í þremur sprengjutilræðum og einni skotárás í Írak í morgun. Árás var gerð á rútu í norðurhluta Bagdad, fulla af shía múslimum þar sem 14 létust og fjórir særðust. Rétt á eftir sprungu þrjár bílsprengjur í surðurhluta Bagdad. þar létust 16 manns og talið er að allt að 25 hafi særst. Erlent 5.12.2006 07:58
Innflytjendur flykkjast nú í mestu mæli til Bandaríkjanna en ekki Frakklands Svo virðist sem Frelsisstyttan þyki álitlegri en Eiffel-turninn, því Frakkland er ekki lengur sú iðnaðarþjóð sem laðar að flesta innflytjendur og skjótast Bandaríkin upp í fyrsta sæti í því kapphlaupi. Í fyrsta sinn í rúman áratug dregur úr fjölda innflytjenda í Frakklandi. Erlent 5.12.2006 07:12
Hermenn ræna völdum á Fiji Vopnaðir hermenn reyna nú að ryðja sér leið inn á heimili forsætisráðherra Fiji-eyja í Kyrrahafi. Þetta hefur fréttastofa Reuters eftir vitnum. Forsætisráðherrann sagðist fyrr í kvöld óttast að valdarán væri í uppsiglingu þar sem herinn hefði ráðist inn í nokkrar lykilbyggingar og reist vegatálma á víð og dreif um höfuðborgina Suva. Erlent 4.12.2006 23:13
Hrósar Venesúela en minnist ekki einu orði á Chavez Fulltrúi Hvíta hússins hrósaði í dag venesúelsku þjóðinni fyrir að taka þátt í lýðræðislegum forsetakosningum en minntist ekki einu orði á Hugo Chavez, forseta Venesúela, sem var endurkjörinn með yfirgnæfandi meirihluta. Chavez er svarinn óvinur Bandaríkjamanna og líkti Bush Bandaríkjaforseta við djöfulinn í frægri ræðu í fyrra. Erlent 4.12.2006 22:58
Pólonrannsóknir í breska sendiráðinu í Moskvu Breskir geislunarsérfræðingar munu rannsaka hvort einhver merki um geislavirka efnið pólon 210 finnist í sendiráði Breta í Moskvu á næstu dögum. Þetta er hluti af rannsókn bresku leyniþjónustunnar á morðinu á Alexander Litvinenko sem eitrað var fyrir með geislavirku póloni. Erlent 4.12.2006 22:41
NASA byggir á tunglinu Geimferðastofnun Bandaríkjamanna, NASA, sagðist í dag ætla að byggja varanlega geimstöð á tunglinu, að öllum líkindum á norðurpóli tunglsins. Stöðin verður miðstöð rannsókna á tunglinu auk þess að leggja grunninn að ferðalögum til Mars. Byggingin mun hefjast árið 2020, og munu þá tunglferðir verða tíðari, til þess að flytja megi byggingarefni til tunglsins. Erlent 4.12.2006 22:36
Rússneskur templaraprestur brenndur inni Rússneskur rétttrúnaðarprestur var brenndur inni ásamt þremur börnum sínum á laugardag og telja rússneskir fjölmiðlar að íkveikjan hafi verið skipulögð til að þagga niður í prestinum, sem barðist ötullega gegn ofdrykkju áfengis. Nokkrir íbúar þorpsins þar sem presturinn bjó sögðu alkóhólista hafa stolið íkonum og öðrum gripum úr kirkjunni til að eiga fyrir næsta sopa. Erlent 4.12.2006 22:31