Erlent
Banna viðskipti við ríkisbanka Erlent 9.1.2007 16:46 Loftferðasamningur í uppnámi Loftferðasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er í uppnámi, eftir að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa útlendingum að eiga meira en 25 prósenta hlut í bandarískum flugfélögum. Erlent 9.1.2007 16:27 Dularfulli þvagskálaþjófurinn gaf sig fram Dularfulli þvagskálaþjófurinn sem við sögðum ykkur frá í síðustu viku hefur gefið sig fram við lögreglu og skilað ránsfengnum. Skálinni stal hann af Royal Oak kránni í Southampton og var til þess tekið hversu fagmannlega hann stóð að verki. Erlent 9.1.2007 16:12 Þúsundir verkamanna á flótta Erlent 9.1.2007 15:54 Loftárás Bandaríkjamanna var mannskæð Tæplega þrjátíu manns féllu í loftárás Bandaríkjamanna á þorpið Hayo í Sómalíu, í dag, að sögn manns úr nágrannaþorpi. Bandaríkjamenn voru á höttunum eftir mönnum sem þeir telja tilheyra Al Kæda. Erlent 9.1.2007 15:52 Nektarsamkomur vinsælar í fínustu háskólum Bandaríkjanna Nektarsamkomur njóta töluverðra vinsælda í virðulegustu háskólum Bandaríkjanna, eins og til dæmis Yale, Columbia, MIT og Brown. Ekkert kynlíf er leyft á þessum samkomum, þar er aðeins spjallað og drukkið te. Erlent 9.1.2007 15:10 « ‹ ›
Ný hernaðaráætlun Bush Bush ætlar í dag að kynna nýja hernaðaráætlun Bandaríkjahers í Írak. Talið er að á meðal þess sem Bush tilkynnir í dag sé fjölgun hermanna um tuttugu þúsund í herliði Bandaríkjamanna í Írak. Þannig hafa hermenn á Fort Riley herstöðinni í Kansas verið þjálfaðir undanfarna daga, til Íraksfarar. Erlent 10.1.2007 07:30
ETA lýsti yfir ábyrgð í gær Aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, lýstu yfir ábyrgð á sprengjutilræðinu í Madrid 30. desember sem varð tveim mönnum að bana og slasaði 26 manns. Erlent 10.1.2007 06:00
Bandaríkin gera loftárásir á Sómalíu Mikið mannfall varð í hörðum loftárásum Bandaríkjanna á skæruliða íslamista í Sómalíu. Meðal fallinna eru tugir óbreyttra borgara. Tilgangurinn mun að hafa uppi á grunuðum hryðjuverkamönnum. Erlent 10.1.2007 05:45
Boðar nýtt þjóðnýtingarátak Við upphaf nýs sex ára kjörtímabils síns sem forseti Venesúela kynnti Hugo Chavez í gær áform um að þjóðnýta raforku- og fjarskiptafyrirtæki landsins og fleiri róttækar aðgerðir til að gera landið að hrein-sósíalísku hagkerfi. Erlent 10.1.2007 05:00
Borað niður á nýja lind á Golíatsvæði Ítalska olíufyrirtækið Eni hefur borað niður á gjöfula olíulind á Golíat-leitarsvæðinu undan strönd Norður-Noregs. Norska olíumálaráðuneytið greindi frá þessu í gær. Erlent 10.1.2007 04:00
Sexburar litu dagsins ljós Sexburar komu í heiminn í Kanada síðastliðna helgi, eftir aðeins sex mánaða dvöl í legi móður sinnar. Börnin vega aðeins 700 til 800 grömm og eru ekki mikið stærri en svo að þeir rúmast í lófa. Fyrsti sexburinn fæddist á laugardagskvöld og hinir fimm fylgdu í kjölfarið á sunnudagsmorgun. Erlent 10.1.2007 03:00
Hörð afstaða Pútíns í olíudeilu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, fyrirskipaði ríkisstjórn sinni í gær að draga úr olíuframleiðslu vegna olíudeilunnar við Hvíta-Rússland sem gæti því dregist á langinn. Erlent 10.1.2007 02:45
Gætu strandað á demókrötum Daginn áður en George W. Bush Bandaríkjaforseti kynnir breyttar áherslur í Írak lagði Ted Kennedy, öldungadeildarþingmaður demókrata, fram lagafrumvarp sem meinar forsetanum um aukafjárveitingar til að hrinda tillögum sínum í framkvæmd. Demókratar ráða meirihlutanum á þingi . Erlent 10.1.2007 02:15
Sagt lækna eiturlyfjafíkn Galdralyf bjargar fíklum frá fíkninni, eða svo er sagt. Í sænska blaðinu Aftonbladet er sagt frá stúlku, Júlíu frá Botkyrka í Svíþjóð, sem hafði verið háð eiturlyfjum í fimmtán ár þegar hún fór í meðferð til Prag þar sem hún var „læknuð“ af fíkninni með náttúrulyfinu Ibogain frá Mið-Afríku. Erlent 10.1.2007 01:45
Obasanjo sýnir mátt sinn Leynilögreglan í Nígeríu, SSS, handtók í dag ritstjóra og framkvæmdastjóra dagblaðs í Abuja, höfuðborg Nígeríu. Alls komu 15 lögreglumenn inn á skrifstofu blaðsins til þess að grafast fyrir um heimildarmenn greinar sem að deildi á einn af stuðningsmönnum forseta Nígeríu. Þegar ritstjórinn vildi ekkert gefa upp voru hann og framkvæmdastjóri blaðsins handteknir. Erlent 9.1.2007 23:45
Bretar styðja framboð Japans til öryggisráðs Bretar og Japanir samþykktu í dag að vinna saman að því að draga úr spennu í Asíu vegna kjarnorkuógnar Norður-Kóreu og Íran. Tony Blair og Shinzo Abe, forsætisráðherra Japans, áttu fund í dag og sagði Blair að hann myndi styðja framboð Japans til varanlegrar setu í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna en Japan telur það vera nauðsynlegt skref til þess að vernda hagsmuni sína gegn Norður-Kóreu. Erlent 9.1.2007 23:14
Fjárfestar flýja frá Venesúela Fjárfestar losuðu sig við eignir og hlutabréf í Venesúela í dag vegna yfirlýsingar Hugo Chavez í gær um að hann ætlaði sér að þjóðvæða hluta efnahagslífsins. Hlutabréfaverð hrundi og gjaldeyrir landsins lækkaði mikið í dag út af þessu. Fjármálamarkaðir voru nálægt því að hrynja þar sem Chavez lofaði því að binda endi á sjálfstæði seðlabanka ríkisins. Erlent 9.1.2007 23:11
20 þúsund hermenn til Íraks Áætlun George W. Bush Bandaríkjaforseta varðandi nýja stefnu í stríðinu í Írak þykir ekki boða miklar breytingar. 20 þúsund hermenn í viðbót verða sendir til Íraks og Írakar eiga að taka við öryggisgæslu í öllum héruðum fyrir lok nóvember. Meirihluti hermanna á að fara til Bagdad en 4 þúsund verða sendir til Anbar héraðsins. Erlent 9.1.2007 22:26
50 vígamenn láta lífið í Írak Íraskar hersveitir, með stuðningi bandarískra hersveita, bönuðu í dag allt að 50 manns við Haifa götuna í miðborg Bagdad. Bardagar hafa geisað þar í grennd í um fjóra daga. Íraskir embættismenn segja að allt að því 130 manns hafi látið lífið í átökunum síðan á laugardaginn var. Erlent 9.1.2007 22:08
Búist við dýrustu forsetakosningum í sögu USA Búist er við því að forsetakosningarnar í Bandaríkjunum á næsta ári verði þær dýrustu í sögu Bandaríkjanna. Fréttaskýrendur benda hins vegar á að kostnaðurinn eigi eftir að skilja að þá hæfu og þá óhæfu mjög fljótlega. Þegar hafa tíu manns lýst því yfir að þau ætli að bjóða sig fram og eru fjáraflanir þegar hafnar hjá sumum þeirra. Erlent 9.1.2007 21:38
Engin áform um þjóðvæðingu Helsti aðstoðarmaður Daniels Ortega, verðandi forseta Níkaragúa, sagði í dag að engar áætlanir væru uppi um að þjóðvæða fyrirtæki líkt og Hugo Chavez, forseti Venesúela og náinn samstarfsmaður Ortega, ætlar sér að gera. Ortega kemur þó til með að njóta efnahagsaðstoðar frá Venesúela til þess að berjast gegn hinni gríðarlegu fátækt í landinu. Erlent 9.1.2007 21:18
Fjögur kíló af sprengiefni gerð upptæk í París. Franskir lögreglumenn handtóku í dag tvo serbneska menn grunaða um að reyna að flytja sprengiefni til Frakklands. Lögreglumenn fundu fjögur kíló af hinu kraftmikla sprengiefni pentrite og eru mennirnir tveir grunaðir um að hafa ætlað að selja efnið til glæpahópa í Frakklandi. Annar hinna grunuðu var rútubílstjóri sem keyrði reglulega frá Belgrad til París. Erlent 9.1.2007 21:00
Visa og Nokia í samstarf Visa, eitt stærsta kreditkortafyrirtæki í heimi, hefur hleypt af stokkunum nýju greiðslukerfi sem mun umbreyta þartilgerðum Nokia farsímum í nokkurs konar greiðslukort. Notendur munu geta greitt fyrir matvörur í verslunum með því að renna símanum yfir skanna í afgreiðsluborðinu og því næst ýta á hnapp til þess að staðfesta greiðsluna. Erlent 9.1.2007 20:49
iPhone á markað í sumar í BNA Hinn nýji iPhone frá Apple, sem var kynntur á ráðstefnu Apple í dag, mun verða kominn í búðir í júní í Bandaríkjunum og fyrir jól í Evrópu. Tvær gerðir verða í boði, annars vegar fjögurra gígabæta sem mun kosta 499 dollara, eða um 36 þúsund íslenskar krónur, og hins vegar átta gígabæta útgáfu sem mun kosta um 599 dollara, eða um 43 þúsund íslenskar krónur. Erlent 9.1.2007 19:40
31 láta lífið í flugslysi í Írak 31 manns létu lífið í flugslysi í Írak í dag. Þar var á ferð flugvél sem tyrkneskir vinnumenn voru í á leið til verkefna í Írak. 35 voru um borð og er einn slasaður og þriggja er saknað. Flugvélin var í eigu fyrirtækis frá Moldavíu. Bandaríski herinn, sem sér um lofthelgi Íraks, vildi ekkert segja um málið að svo stöddu. Erlent 9.1.2007 19:17
Óttast að olíudeila verði langvinn Óttast er að olíudeila Rússa og Hvít-Rússa eigi eftir að dragast á langinn. Vladimír Pútín, Rússlandsforseti, sagði í dag hugsanlegt að draga verði úr olíuframleiðslu í Rússlandi sem þykir benda til að hann búist við langvinnri rimmu. Erlent 9.1.2007 19:15
Loftárásum haldið áfram Loftárásum Bandaríkjamanna á Sómalíu var haldið áfram í dag og fullyrða vitni að fjölmargir óbreyttir borgarar hafi fallið í þeim, þar á meðal fjögurra ára drengur. Skotmörkin eru al-Kaída-liðar, sem sumir eru sagðir bera ábyrgð á sprengjuárásum á sendiráð Bandaríkjamanna fyrir átta árum. Talið er að leiðtogi hryðjuverkasamtakanna í Austur-Afríku hafi verið í þeirra hópi en óvíst að hann hafi fallið. Erlent 9.1.2007 19:00
Hvíta húsið gagnrýnir Chavez Hvíta húsið sendi í dag frá sér tilkynningu þar sem Hugo Chavez, forseti Venesúela, er harðlega gagnrýndur fyrir áætlanir sínar um að þjóðvæða fjarskiptafyrirtæki og olíuverkefni og sagði að bandarísk fyrirtæki sem yrðu fyrir tjóni vegna þjóðvæðingarinnar yrðu að fá bætur. Erlent 9.1.2007 17:34
Apple kynnir símtækið iPhone Steve Jobs, forstjóri Apple Computer steig á svið í Moscone sýningarhöllinni í San Francisco og tilkynnti innreið Apple á símamarkaðinn. Jobs sýndi nýtt tæki frá Apple, símtækið iPhone, sem er jafnframt, tölva með WiFi og Bluetooth tengingu, og tónlistar og vídeó-spilari. Erlent 9.1.2007 16:52
Loftferðasamningur í uppnámi Loftferðasamningur milli Evrópusambandsins og Bandaríkjanna er í uppnámi, eftir að Bandaríkjamenn neituðu að leyfa útlendingum að eiga meira en 25 prósenta hlut í bandarískum flugfélögum. Erlent 9.1.2007 16:27
Dularfulli þvagskálaþjófurinn gaf sig fram Dularfulli þvagskálaþjófurinn sem við sögðum ykkur frá í síðustu viku hefur gefið sig fram við lögreglu og skilað ránsfengnum. Skálinni stal hann af Royal Oak kránni í Southampton og var til þess tekið hversu fagmannlega hann stóð að verki. Erlent 9.1.2007 16:12
Loftárás Bandaríkjamanna var mannskæð Tæplega þrjátíu manns féllu í loftárás Bandaríkjamanna á þorpið Hayo í Sómalíu, í dag, að sögn manns úr nágrannaþorpi. Bandaríkjamenn voru á höttunum eftir mönnum sem þeir telja tilheyra Al Kæda. Erlent 9.1.2007 15:52
Nektarsamkomur vinsælar í fínustu háskólum Bandaríkjanna Nektarsamkomur njóta töluverðra vinsælda í virðulegustu háskólum Bandaríkjanna, eins og til dæmis Yale, Columbia, MIT og Brown. Ekkert kynlíf er leyft á þessum samkomum, þar er aðeins spjallað og drukkið te. Erlent 9.1.2007 15:10