Erlent
Ætla að finna plánetur sem líkjast Jörðinni Vísindamenn Evrópsku geimferðastofnunarinnar (ESA) hyggjast finna lífvænlegar plánetur sem líkjast jörðinni. Til þess ætla þeir að nota öflugasta geimsjónauka sem smíðaður hefur verið, Darwin-sjónaukann. Áætlað er að sjónaukanum verði skotið upp árið 2020. Erlent 10.2.2007 16:15
Enn mótmælt við al-Aqsa moskuna Palestínumenn og Arabar búsettir í Ísrael héldu í morgun áfram mótmælum sínum við al-Aqsa moskuna í Jerúsalem. Grjóti var kastað að rútu með ferðamönnum, eldar kveiktir og rúður brotnar. Erlent 10.2.2007 13:15
Obama býður sig fram Barack Obama öldungardeildarþingmaður mun í dag lýsa því formlega yfir að hann bjóði sig fram sem forsetaefni demókrata fyrir bandarísku forsetakosningarna 2008. Erlent 10.2.2007 12:45
Dánarorsökin enn óljós Krufning á fyrirsætunni Önnu Nicole Smith, sem fannst látin á hóteli í Flórída í fyrrakvöld, leiddi ekki í ljós dánarorsök hennar en lögregla útilokar þó að henni hafi verið ráðinn bani. Erlent 10.2.2007 11:15
Sýkt kjöt fór líklega í verslanir Breskir embættismenn hafa viðurkennt að líkur séu á að sýkt kjöt af búi í Suffolk þar sem fuglaflensa greindist í síðustu viku hafi ratað í verslanir og verið selt neytendum. Erlent 10.2.2007 10:45
Boða hvalveiðiráðstefnu Japanar ætla í næstu viku að halda alþjóðlega ráðstefnu um hvalveiðar. Öllum aðildarríkjum Alþjóðahvalveiðiráðsins er boðið til ráðstefnunar en tilgangur hennar er sagður að gera nauðsynlegar endurbætur á ráðinu. Umhverfisverndarsamtök segja hins vegar ljóst að markmiðið sé að þrýsta enn frekar á að hvalveiðar verði heimilaðar á ný. Erlent 10.2.2007 10:30
Undirbúningur í fullum gangi Undirbúningur að hernaðaraðgerðum gegn Íran eru langt komnar innan bandaríska stjórnkerfisins og ættu þær að geta hafist með vorinu. Þó er talið líklegra að ekki verði ráðist í þær fyrr en á næsta ári, skömmu áður en George Bush Bandaríkjaforseti lætur af embætti. Erlent 10.2.2007 10:00
Verðlaun fyrir koltvísýringssíun Breski auðkýfingurinn Sir Richard Branson tilkynnti í gær að hann héti hverjum þeim vísindamanni sem fyndi upp aðferð til að sía gróðurhúsalofttegundir úr andrúmsloftinu 25 milljónum sterlingspunda í verðlaun, andvirði 3,3 milljarða króna. Erlent 10.2.2007 05:15
Fé heitið til bólusetninga Fulltrúar fimm landa hétu í gær um einum og hálfum milljarði bandaríkjadala, andvirði um 103 milljarða króna, til fjármögnunar átaks til að hvetja lyfjafyrirtæki til að þróa bóluefni til að hefta útbreiðslu lungnabólgu og heilahimnubólgu í þróunarlöndum. Erlent 10.2.2007 05:00
Mikil átök við moskuna helgu Hundruð ísraelskra lögreglumanna réðust í gær til inngöngu í helgidóm múslima í Jerúsalem strax að lokinni hádegisbænastund múslima. Mikil ólga var í Palestínumönnum vegna framkvæmda á vegum Ísraela rétt utan við múrana, þar sem unnið er að fornleifarannsóknum og endurnýjun á gamalli göngubrú. Erlent 10.2.2007 04:15
Refsað fyrir umhverfisglæpi Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins lagði í gær fram frumvarp að nýrri Evrópulöggjöf, sem hefur að markmiði að gera glæpi gegn umhverfinu refsiverða. Er gert ráð fyrir að fyrir alvarleg brot verði hægt að dæma menn í allt að fimm ára fangelsi eða allt að 750.000 evra sekt, andvirði hátt í 67 milljóna króna. Erlent 10.2.2007 03:15
Varkárar viðtökur Samkomulagi Hamas og Fatah hefur hvarvetna verið vel tekið, en þó af varkárni. Frekari viðbrögð fari eftir því hvernig framkvæmdin verður. Erlent 10.2.2007 02:30
Stuðningsmenn Gore undirbúa forsetaframboð Stuðningsmenn Al Gore vinna nú hljóðlega að því að undirbúa hugsanlegt framboð hans til forseta Bandaríkjanna. Gore segist þó sjálfur ekki ætla að bjóða sig fram. Erlent 9.2.2007 23:35
Burns segir Írana grafa sína eigin gröf Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, Nicholas Burns, sagði í dag að Íranar væru að grafa sína eigin gröf þegar hann var spurður um kjarnorkudeiluna við þá. Bandaríkin hafa þegar lagt fram tilboð til viðræðna sem Íranar líta ekki við. Erlent 9.2.2007 23:16
Búlgarar þrýsta á líbýsk stjórnvöld Mörg þúsund manns söfnuðust saman á götum úti um alla Búlgaríu í dag til þess að sýna samstöðu með fimm samlöndum sínum sem voru dæmdir til dauða í Líbýu. Fimmmenningarnir voru dæmdir til dauða fyrir að hafa smitað fleiri en 450 börn af HIV veirunni. Fleiri en 50 þeirra hafa nú látist. Erlent 9.2.2007 22:49
Upplýsingum var hagrætt til að réttlæta innrás Formaður hermálanefndar öldungadeildar bandaríska þingsins gaf í dag til kynna að upplýsingum sem notaðar voru við ákvarðanatöku fyrir Íraksstríðið hefði verið hagrætt. Erlent 9.2.2007 22:21
SÞ ráðast inn í fátækrahverfi á Haiti Hundruð hermanna frá Sameinuðu þjóðunum gerðu í dag innrás í fátækrahverfið Cite Soleil í borginni Port-au-Prince á Haiti. Um 300 þúsund manns búa í hverfinu. Herinn var að reyna að handsama leiðtoga glæpagengis og yfirtaka svæðið sem gengið réði yfir. Erlent 9.2.2007 22:10
Geta lesið hugsanir Vísindamenn hafa þróað tækni sem getur séð fyrir hvað fólk ætlar sér að gera. Tækið greinir virkni heilans og fylgist með breytingum sem í honum verða eftir því hvað fólk hugsar um. Þannig er hægt að kortleggja aðgerðir í heilanum og því hægt að spá fyrir um hvað fólk er að hugsa. Aðferðin virkar nú í um 70% tilfella. Erlent 9.2.2007 21:45
Nýr forsætisráðherra skipaður í Gíneu Forseti Gíneu, Lansana Conte, tilnefndi í dag Eugene Camara sem nýjan forsætisráðherra landsins. Camara var áður ráðherra forsetans. Með þessari tilnefningu var Conte að koma til móts við stéttarfélög í landinu og kröfur þeirra. Erlent 9.2.2007 21:39
Forstjóri Cartoon Network segir af sér Forstjóri Cartoon Network, Jim Samples, sagði af sér í dag eftir að ein auglýsingaherferð stöðvarinnar fór úr böndunum. Auglýsingaherferði snerist um það að búa til lítil ljósaskilti sem sýndu persónu úr teiknimyndaseríu gefa dónalega bendingu á þann er á horfði. Þeim var síðan komið fyrir á fjölförnum stöðum í Boston í Bandaríkjunum. Erlent 9.2.2007 21:00
Ekkert óeðlilegt við dauðdaga Önnu Nicole Ekkert kom í ljós í krufningu Önnu Nicole Smith sem bendir til þess að eitthvað óeðlilegt hafi verið við dauðdaga hennar. Enn hefur ekki verið staðfest hvers vegna hún lét lífið. Lögreglustjórinn á Dania Beach, Charlie Tiger, sagði á fréttamannafundi í kvöld að það myndi taka þrjár til fimm vikur að rannsaka gögnin úr krufningunni. Anna Nicole Smith lést í gærkvöldi á hóteli við Dania Beach. Hún var 39 ára þegar hún lést og lætur eftir sig 5 mánaða dóttur. Erlent 9.2.2007 20:45
Fóstureyðingar brátt leyfilegar í Portúgal Fimm skoðanakannanir sem birtar voru í Portúgal í dag gefa til kynna að landsmenn muni aflétta banni við fóstureyðingum í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fer fram á sunnudaginn kemur. Samkvæmt könnunum segja 52 til 58 prósent landsmanna að þeir ætli að segja já við tillögum ríkisstjórnarinnar sem munu leyfa fóstureyðingu allt til tíundu viku meðgöngu. Erlent 9.2.2007 20:37
Kona verður forseti Harvard Elsti háskóli Bandaríkjanna, Harvard, mun um helgina tilnefna Drew Gilpin Faust sem forseta skólans. Hún verður fyrsta konan sem gegnir þessari stöðu í 371 ára sögu skólans. Þetta þýðir stefnubreytingu á málum skólans en fyrrum forseti skólans, Lawrence Summers, þurfti að segja af sér vegna athugasemda um konur. Þær þóttu vera litaðar af kvenfyrirlitningu. Erlent 9.2.2007 20:15
Eldflaug skotið á hótel í Mogadishu Eldflaug var skotið á hótel í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í dag. Enginn lést í árásinni en fjöldi manns slasaðist. Einnig voru mótmæli í borginni vegna nærveru afrískra friðargæsluliða og hótuðu mótmælendur að ráðast gegn þeim. Erlent 9.2.2007 19:57
FL Group flytur hugsanlega frá Danmörku Forstjóri fjárfestingafyrirtækisins FL Group segir að til greina komi að flytja starfsemi fyrirtækisins í Kaupmannahöfn frá Danmörku, verði nýjar skattatillögur dönsku ríkisstjórnarinnar að veruleika. Þetta kom fram á ráðstefnu um íslenska viðskiptalífið í Kaupmannahöfn í dag, þar sem forseti Íslands hrósaði íslensku bönkunum fyrir góðan árangur. Erlent 9.2.2007 18:45
Beið bana í eldsvoða Íslenskur maður lét lífið í bruna í geymslu við veitingahús í Stokkhólmi í fyrrinótt. Orsakir slyssins eru óljósar en Stokkhólmslögreglan vinnur að rannsókn þess. Erlent 9.2.2007 18:30
Forsögulegt faðmlag Ótrúleg sjón blasti við ítölskum fornleifafræðingum í vikunni þegar þeir opnuðu gröf nærri borginni Mantúa, sem er skammt frá Veróna, sögusviði leikritisins um Rómeó og Júlíu. Erlent 9.2.2007 18:30
Átök við al-Aqsa moskuna Viðbrögð við samkomulagi stríðandi fylkinga í Palestínu, um myndun þjóðstjórnar, hafa verið varfærin enda er tilveruréttur Ísraelsríkis ekki viðurkenndur þar sérstaklega. Til heiftarlegra átaka kom á milli ísraelskra lögreglusveita og íslamskra mótmælenda við al-Aqsa-moskuna í Jerúsalem í dag. Erlent 9.2.2007 18:30
Branson vill bjarga heiminum Sir Richard Branson, auðkýfingur og ævintýramaður, tilkynnti í dag að hann myndi halda keppni um það hver gæti fundið bestu leiðina til þess að minnka og binda koltvísýring í andrúmsloftinu. Verðlaunin verða í kringum tíu milljón pund, sem eru um 1,3 milljarðar íslenskra króna. Erlent 9.2.2007 17:59
Norðmenn byggja fræhvelfingu Norðmenn sögðu frá því í dag að þeir ætli sér að smíða geymslu fyrir öll fræ heimsins. Geymslan verður staðsett á svalbarða og á að sjá til þess að mannkynið geti lifað af ef til náttúruhörmunga kæmi. Erlent 9.2.2007 17:32