Erlent
Grunur um fuglaflensutilvik í grennd við Moskvu Fuglaflensu hefur orðið vart í dauðum fuglum nálægt Moskvu og kanna nú rússnesk yfirvöld hvort um sé að ræða hina banvænu veiru H5N1. Erlent 17.2.2007 16:00
Japanir hafna hjálp frá Greenpeace Japanir hafa neitað að þiggja hjálp frá einu skipi náttúruverndarsamtakanna Greenpeace fyrir japanskt hvalveiðiskip sem er laskað á sjó eftir eld. Yfirvöld á Nýjasjálandi óskuðu eftir að skip Greenpeace fengi að aðstoða hvalveiðiskipið Nisshin Maru í Suðurskautshafi. Þeir óttast að olía geti lekið frá skipinu og spillt stærstu heimkynnum Adelie mörgæsa rétt hjá. Erlent 17.2.2007 14:06
Skotinn til bana í London Rúmlega tvítugur maður var skotinn til bana í austurhluta London í morgun. Hann er síðasta fórnarlamb vaxandi byssumenningar í borginni. Tilkynning barst undir morgun um að byssuskot hefðu heyrst í Hackney hverfinu og fann lögregla lík mannsins í kjölfarið. Hann hafði verið skotinn til bana í bíl. Erlent 17.2.2007 13:51
F-16 flugmenn uppfylla ekki NATO kröfur Danskir flugmenn F-16 orustuþota uppfylla ekki kröfur NATO um að fljúga 180 flugtíma á ári. Ástæðan er skortur á flugvirkjum danska flughersins. Frá áramótum hafa 12 flugvirkjar annað hvort sagt upp störfum eða óskað eftir launalausu leyfi. Þetta kemur fram í danska blaðinu Berlingske Tidende. Flugvirkjarnir eru ósáttir við lífeyris mál. Erlent 17.2.2007 13:09
Tólf létust í sjálfsmorðsárás í miðju réttarhaldi Tólf létust, þar á meðal dómarar og lögfræðingar, í sjálfsmorðsáras í réttarsal í borginni Quetta í Suðvestur-Pakistan í morgun. Hrina sjálfsmorðssprenginga hefur átt sér stað í héraðinu undanfarnar vikur og er lögregla og her í landinu í viðbragðsstöðu. Erlent 17.2.2007 12:45
Condoleezza Rice komin í óvænta heimsókn til Bagdad Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Condoleezza Rice, er komin í óvænta heimsókn til Bagdad, höfuðborgar Íraks. Rice er á ferðalagi um Mið-Austurlönd og heimsækir meðal annars ísraelska ráðamenn í Jerúsalem. Erlent 17.2.2007 09:15
Sprengja í stúlknaskóla í Íran Sprengja sprakk í stúlknaskóla í Zahedan í Íran klukkan tíu í kvöld að staðartíma. Byssumenn skutu á fólk á svæðinu eftir að sprengjan sprakk. Þetta er önnur sprengjan í bænum á þremur dögum. Ekki er vitað hvort einhver lést eða slasaðist í tilræðinu. Öryggisverðir lokuðu götum og umkringdu hús sem þeir töldu byssumennina vera í. Erlent 16.2.2007 22:14
Ákvarðanir Bush fordæmdar Ályktun gegn fjölgun bandaríska heraflans í Írak var samþykkt í fulltrúadeild bandaríska þingsins í dag. Ályktunin fordæmir ákvarðanir forsetans um fjölgun í heraflanum í Írak. 246 þingmenn greiddu atkvæði með ályktuninni en 182 gegn. Samþykktin neyðir Bush ekki til aðgerða, en sendir skýr skilaboð um að byrja að senda bandaríska hermenn heim frá Írak. Erlent 16.2.2007 21:14
Nasistavín undir hamarinn Flaska af Nasistavíni með mynd af Hitler verður boðin upp í Plymouth í Bretlandi á næstunni. Rauðvínsflaskan “Fuhrerwein” er frá árinu 1943 og markaði 54 ára afmæli Hitlers. Á miðanum á flöskunni er mynd af Hitler í hátísku jakkafötum með bindi. Annar miði á hálsinum skartar mynd af erni sem situr ofan á hakakrossinum. Erlent 16.2.2007 20:56
Skutu sprengjuvörpum að hersveitum í Sómalíu Árásarmenn í Sómalíu skutu sprengjuvörpum að hersveitum stjórnarinnar og eþíópískum hermönnum í Mogadishu höfuðborg Sómalíu í dag. Engan sakaði í tilræðinu. Fjórir óbreyttir borgarar létust í röð sprenginga í borginni í gær. Árásin í dag er sú síðasta í röð árása öfgasinna í borginni. Erlent 16.2.2007 20:15
Hefur hikstað í þrjár vikur Bandarísk unglingsstúlka virðist hafa orðið fyrir sérlega illu umtali því undanfarnar þrjár vikur hefur hún hikstað án afláts. Stúlkan hikstar um það bil fimmtíu sinnum á mínútu og eru læknar sem hafa rannsakað hana gersamlega ráðþrota yfir þessum hamagangi. Erlent 16.2.2007 20:15
Enn logar í japanska hvalskipinu Óttast er að umhverfisslys geti verið í uppsiglingu í Suður-Íshafinu eftir að eldur kom upp í japönsku hvalveiðiskipi þar í gær. Hafsvæðið er eitt hið tærasta í heiminum og þar eru einnig varpstöðvar mörgæsa. Þrátt fyrir að ekki hafi tekist að koma böndum á eldinn hafa skipverjar ekki viljað þiggja hjálp frá umhverfisverndarsinnum á svæðinu. Erlent 16.2.2007 19:45
Fiskur á meðgöngu meinhollur Fiskneysla á meðgöngu gerir börnin bæði gáfaðri og betri í samskiptum þegar þau vaxa úr grasi. Þetta er niðurstaða könnunar sem birtist í breska læknatímaritinu Lancet í dag. Erlent 16.2.2007 19:15
Sjö al-Kaída liðar fengu lífstíðardóm Tyrkneskur dómstóll hefur dæmt sjö al-Kaída liða í lífstíðarfangelsi vegna sprenginganna í Istanbul árið 2003. Sextíu manns létust í sprengingunum sem var miðað að Bretum og gyðingum. Höfuðpaur sprenginganna Louai al Sakka var einn hinna dæmdu, en hann tryggði fjármagn fyrir bílasprengingarnar. Þær sprungu við tvö samkomuhús gyðinga, bresku ræðismannsskrifstofuna og útibú HSBC bankans. Erlent 16.2.2007 19:10
CIA-mönnum stefnt fyrir rétt Ítalskur dómari hefur stefnt 26 bandarískum mönnum fyrir rétt vegna ráns á egypskum kennimanni í Mílanó árið 2003. Flestir mannanna starfa fyrir leyniþjónustuna CIA en þeir eru sagðir hafa flutt klerkinn Osama Mustafa Hassan nauðugan í fangelsi í Egyptalandi vegna gruns um að hann tengdist hryðjuverkum. Erlent 16.2.2007 19:00
Tvíburar skýring DNA gátu Lögreglan í Shuangcheng borg í Kína var ráðþrota þegar DNA sýni leiddi í ljós að einn og sami maðurinn hafði framið glæp á tveimur stöðum á sama tíma. Rannsóknarlögreglumenn fengu tvær tilkynningar um innbrot og nauðgun frá mismunandi stöðum. Erlent 16.2.2007 18:09
Rússar boða friðarviðræður Ísraela og Palestínumanna Utanríkisráðherra Rússlands segir líklegt að Ísraelar og Palestínumenn fallist á að hefja friðarviðræður á nýjan leik, þegar leiðtogar landanna hittast hinn nítjánda þessa mánaðar. Sergei Lavrov, sagði á fundi með fréttamönnum að hann búist við því að leiðtogarnir samþykki að hefja viðræður um rammasamkomulag um endanlega lausn á deilum sínum. Erlent 16.2.2007 15:35
Seldi 10 ára dóttur sína Pakistanskur maður seldi tíu ára gamla dóttur sína fyrir 350.000 krónur til þess að borga augnaðgerð fyrir sjálfan sig. Talsmaður lögregelunnar í þorpinu þar sem þetta gerðist segir að faðirinn hafi lofað að afhenda öðrum þorpsbúa dóttur sína þegar hún næði kynþroskaaldri. Erlent 16.2.2007 14:21
Óttast þjóðarmorð Að mati Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna er hætta á að ófriður í Afríkuríkinu Tsjad geti orðið að þjóðarmorði af svipaðri stærðargráðu og í Rúanda 1994 verði ekkert að gert. Erlent 16.2.2007 13:15
Sonur Castros segir föður sinn á batavegi Fidel Castro Diaz Balart, sonur Castros Kúbuleiðtoga, kveðst fullviss um að faðir sinn nái fullri heilsu innan skamms. Balart, sem er 57 ára, sagði á bókasýningu í Havana í gær að skýr teikn væru um bata hins aldna leiðtoga en hann gekkst undir erfiða skurðaðgerð í júlí síðastliðnum. Erlent 16.2.2007 13:00
Reynt að bregðast við hlýnuninni Á ráðstefnu stjórnmálamanna frá áhrifamestu ríkjum heims náðist samkomulag um aðgerðir gegn hlýnun jarðar. Þótt ráðstefnan hafi engin formleg völd er hún talin eiga eftir að hafa fordæmisgildi fyrir þær áðstafanir sem gripið verður til í þessum efnum í framtíðinni. Erlent 16.2.2007 12:15
Kókaín í tonnavís á Spáni Spænska tollgæslan komst í feitt í vikunni þegar hún fann þrjú og hálft tonn af kókaíni um borð í finnsku kaupskipi. Rökstuddur grunur um að ellefu tonnum til viðbótar hafi verið hent útbyrðis. Erlent 16.2.2007 12:00
Þurfa að sæta réttarhaldi Dómari í Mílanó hefur skipað 26 Bandaríkjamönnum að mæta fyrir rétt vegna ákæra um mannrán. Talið er að flestir þeirra séu starfsmenn bandarísku leyniþjónustunnar CIA. Þeir eru ákærðir fyrir að hafa rænt manni sem var grunaður um hryðjuverk og flutt hann til Egyptalands þar sem hann var síðar pyntaður. Erlent 16.2.2007 11:36
Tsjad gæti orðið nýtt Rúanda Ofbeldið í Tsjad gæti stigmagnast og orðið sambærilegt þjóðarmorðunum í Rúanda. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna sagði frá þessu í morgun. Hún sagði að ofbeldið í suðausturhluta Tsjad væri farið að líkjast því í Darfur héraði Súdan. Erlent 16.2.2007 11:22
Breskir unglingar skotnir til bana Bretar eru slegnir yfir því að þrír unglingspiltar hafa verið skotnir til bana í suðurhluta Lundúna á síðustu tólf dögum. Morðingjarnir voru aðrir unglingar. Nýjasta fórnarlambið er Billy Cox, sextán ára gamall piltur sem var skotinn til bana á heimili sínu. Vopnaðar lögreglusveitir hafa verið sendar til löggæslu í þessum borgarhluta. Erlent 16.2.2007 11:18
Stjórnvöld og aðskilnaðarsinnar í Taílandi ræðast við Stjórnvöld í Taílandi hafa ákveðið að halda viðræður við uppreisnarmenn múslima í suðurhluta landsins. Síðastliðin þrjú ár hafa uppreisnarmenn barist fyrir eigin ríki og meira en tvö þúsund manns hafa látið lífið í átökunum. Forsætisráðherra Taíland segir þó ekki um formlegar samningaviðræður um að ræða. Erlent 16.2.2007 10:52
Thatcher heiðruð Mrgrét Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, verður heiðruð í þinginu í næstu viku, þegar rúmlega sjö feta há stytta af henni verður afhjúpuð í setustofu þingsins. Margrét Thatcher, sem nú er áttatíu og eins árs gömul, var forsætisráðherra Bretlands í ellefu og hálft ár, eða þartil hennar eigin flokksbræður gerðu hallarbyltingu og hröktu hana frá völdum. Erlent 16.2.2007 10:44
Grimmar reykingalöggur Bæjarfélög í Bretlandi eru að þjálfa þúsundir manna sem eiga að framfylgja reykingabanni á opinberum stöðum, sem tekur gildi fyrsta júlí í sumar. Þessar reykingalöggur mega laumast inn á veitingastaði og taka myndir af fólki til þess að afla sér sönnunargagna. Bæði einstaklingar og veitingamenn mega búast við háum sektum, ef þeir brjóta bannið. Erlent 16.2.2007 10:30
Heitasti janúar síðan mælingar hófust Janúarmánuður er sá heitasti í sögu heimsins síðan mælingar hófust. Vísindamenn telja það meðal annars vera vegna þess hversu lítil áhrif hafstraumurinn El Nino hefur haft. Erlent 16.2.2007 09:00
Leiðtogi al-Kaída í Írak talinn særður Abu al-Masri, leiðtogi al-kaída í Írak er sagður hafa særst í bardögum við hersveitir Íraka í norðurhluta Bagdad í gærkvöldi. Al Arabiya sjónvarpsfréttastöðin sagði frá þessu og hafði það eftir innanríkisráðuneytinu í Írak. Erlent 16.2.2007 08:45