Erlent
Lögreglusveit handtekin Erlent 22.12.2006 14:06 Fáum fullnægingu klukkan þrjú! Tökum nú öll höndum saman, öll sem vettlingi geta valdið og fáum fullnægingu klukkan þrjú, föstudaginn 22. desember. Þannig hljóma skilaboð bandarískra friðarsinna sem hvetja til þess að fólk um gjörvallan heim fái fullnægingu í dag og tileinka hana heimsfriði og hamingju og nýjum framfaraleiðum fyrir mannkynið. Erlent 22.12.2006 14:02 Fyrir dómara vegna morðanna í Ipswich Stephen Wright, 48 ára lyftaramaður, kom fyrir dómara í Ipswich í morgun til að svara spurningum um morðin á fimm vændiskonum í byrjun mánaðarins, sem hann var ákærður fyrir í gærkvöldi. Lögreglan sagðist í gær hafa fullnægjandi sönnunargögn til að sakfella manninn, en lögfræðingur minnti fjölmiðla á í dag að hann væri saklaus þar til sekt væri sönnuð. Erlent 22.12.2006 13:14 Eftirlitsmenn á Sri Lanka kallaðir til höfuðborgarinnar Yfirmaður Norrænu eftirlitssveitarinnar á Sri Lanka hefur kallað eftirlitsmenn sveitarinnar til höfuðstöðvanna í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, á næstu dögum vegna harðnandi bardaga. Íslendingar starfa fyrir sveitina. Erlent 22.12.2006 12:28 Hermenn ákærðir fyrir morð á 24 borgurum í Írak Átta bandarískir hermenn voru í gær ákærðir fyrir að hafa myrt 24 Íraka í þorpinu Haditha í Írak í nóvember á nýliðnu ári. Sveitarforinginn, Justin Sharratt, á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Hann er ákærður fyrir að hafa sjálfur myrt 12 manns og að hafa skipað hermönnum undir hans stjórn að myrða 6 til viðbótar. Erlent 22.12.2006 12:28 Kynóðir krakkar Hundruð leikskólabarna eru rekin úr skóla eða fá áminningar, vegna kynferðislegs áreitis, í Bandaríkjunum, á hverju ári. Nýjasta tilfellið er fimm ára drengur sem var rekinn heim fyrir að klípa jafnöldru sína í bossann. Erlent 22.12.2006 11:16 Lennon, John Lennon Síðustu tíu skýrslur bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, um John Lennon hafa nú verið gerðar opinberar, og þykja heldur broslegar. Í þeim er ekkert að finna sem ekki var almenn vitneskja á þeim árum, um þennan skelfilega útsendara vinstri aflanna. Erlent 22.12.2006 10:41 Ótímabundið hlé á kjarnorkuviðræðum Vikulöngum viðræðum sex landa um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna lauk í dag án nokkurrar niðurstöðu að hægt sé að tala um. Að svo stöddu verður tekið hlé í viðræðunum og er engin tímasetning á því hvenær þær munu halda áfram. Þetta hefur Yonhap fréttastofan suðurkóreska eftir heimildarmanni sem tekið hefur þátt í viðræðunum. Erlent 22.12.2006 08:46 Barbikjúsósa bjargaði lífi manns Læknar eru forviða að Japani einn sé enn á lífi, eftir að hann villtist í fjallgöngu og lá úti í 23 daga með eina flösku af barbikjúsósu til matar. Öll líffæri fyrir utan heilann í honum voru hætt að virka, líkamshitinn var kominn niður í 22 gráður og púlsinn mjög veikur. Tveimur mánuðum eftir að hann fannst og var færður á sjúkrahús eru öll líffæri hans farin að virka á eðlilegan hátt og hann virðist ekki ætla að bera neinn skaða af. Erlent 22.12.2006 08:30 « ‹ ›
Bandaríkjaher vegur einn af leiðtogum talibana Bandaríski herinn greindi frá því nú í morgun að hermenn hefðu drepið einn af fjórum helstu leiðtogum talibana í Afganistan. Akhtar Mohammed Osmani og tveir liðsmenn í uppreisnarsveitum talibana féllu í loftárás bandaríska hersins nærri landamærunum að Pakistan á þriðjudaginn var. Erlent 23.12.2006 11:07
Discovery lenti heilu og höldnu í gærkvöld Bandaríska geimskutlan Discovery lenti heilu og höldnu í Flórdía í gærkvöld eftir óvissu um lendinguna vegna veðurs. Erlent 23.12.2006 11:00
Öryggisráðið greiðir atkvæði um refsiaðgerðir gegn Íran Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna greiðir í dag atkvæði um tillögu að ályktun um refsiaðgerðir á hendur Írönum vegna kjarnorkutilrauna þeirra. Vestuveldin hafa farið fram á það að Íranar hætti auðgun úrans þar sem óttast er að þeir séu með því að reyna að koma sér upp kjarnavopnum. Erlent 23.12.2006 10:45
Níu látast í átökum á Haiti Að minnsta kosti níu manns létu lífið í ofbeldi á eyjunni Haiti en lögregla þar er um þessar mundir að herða aðgerðir gegn glæpagengjum í fátækrahverfum höfuðborgarinnar, Port-au-Prince. Erlent 22.12.2006 23:45
Breski herinn upprætir dauðasveit í Írak Breski herinn réðist á og handtók sjö íraska lögreglumenn sem grunaðir eru um að stjórna umfangsmikilli glæpastarfsemi sem og svokölluðum dauðasveitum. Sögðu Bretar að Írakarnir hefðu notað sérstaka sérsveit gegn glæpum sem yfirskin til þess að fremja glæpi. Erlent 22.12.2006 23:16
Öryggisráðið mun greiða atkvæði á morgun Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna mun að öllum líkindum greiða atkvæði á morgun varðandi þær refsiaðgerðir sem á að beita gegn Íran. Snuðra gæti þó hlaupið á þráðinn því Vladimir Putin, Rússlandsforseti, mun ekki skoða tillöguna fyrr en í fyrramálið. Erlent 22.12.2006 23:10
Discovery lent Geimskutlan Discovery lenti við höfuðstöðvar Geimferðastofnunnar Bandaríkjanna, NASA, í Flórída klukkan 22:32 í kvöld. Fyrr í dag hafði lendingu hennar verið frestað vegna veðurs. Erlent 22.12.2006 22:32
Ástandið versnar í Sómalíu Eþíópískar árásarþyrlur og skriðdrekar fóru til bardaga í kvöld á fjórða degi átaka milli íslamskra uppreisnarmanna og stjórnvalda í Sómalíu sem Eþíópía styður. Tugir þúsunda hafa flúið heimili sín undanfarna daga útaf þessu. Erlent 22.12.2006 22:12
Dýrasti hamborgari í heimi Hótel eitt í Indónesíu hefur tekið upp á því að bjóða upp á hamborgara á matseðli sínum og vilja þeir með því reyna að sameina vestrænar og asískar matarhefðir. Það merkilegasta við hamborgarann er samt verðið en hamborgarinn kostar ekki nema 7.990 íslenskar krónur. Erlent 22.12.2006 21:49
„Má ég fá meiri leðurblöku?“ Hundar, leðurblökur, skyndibitar frá Kentucky Fried Chicken og fiskur. Ekki beint hefðbundinn jólamatur en hann verður engu að síður á borðum margra við Kyrrahafsstrendur Asíu um þessi jól. Erlent 22.12.2006 21:37
Discovery á að lenda klukkan 22:32 í kvöld Geimferðastofnun Bandaríkjanna, NASA, hefur ákveðið að geimskutlunni Discovery verði lent við höfuðstöðvar þeirra í Flórída klukkan 22:32 í kvöld. Fyrr í dag hafði lendingu hennar verið frestað vegna veðurs. Erlent 22.12.2006 21:23
Annan býður fram aðstoð SÞ Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, bauð í kvöld hjálp samtakanna við að reyna að greiða úr dómsmálinu í Líbíu en þar voru fimm erlendir hjúkrunarfræðingar og einn erlendur læknir sakfelldir fyrir að hafa vísvitandi smitað yfir 400 börn af alnæmi. Erlent 22.12.2006 20:54
Byssukúla í hausnum Bandarísk yfirvöld hafa gefið út leitarheimild til þess að finna mikilvæga vísbendingu í morðmáli einu. En sönnunargagnið sem leitað er að er byssukúla sem föst er í enni hins grunaða. Erlent 22.12.2006 20:27
al-Kaída gerir Bandaríkjamönnum tilboð Leiðtogi hóps í Írak, sem al-Kaída styður, sagði í dag að þeir myndu hleypa Bandaríkjamönnum friðsamlega úr landinu ef þeir skyldu eftir öll sín þungavopn og yrðu farnir úr landinu innan mánaðartíma. Þetta kom fram í hljóðbúti sem var settur á internetið í dag. Erlent 22.12.2006 19:11
Fyrirsætur skulu fitna Ítölsk yfirvöld og fulltrúar ítalska tískuiðnaðarins undirrituðu í dag viljayfirlýsingu varðandi útlit fyrirsætna og sýningarstúlkna en það hversu grannar margar þeirra eru hefur farið fyrir brjóstið á fólki eftir að brasilísk fyrirsæta lést úr anorexíu þann 14. nóvember síðastliðinn. Erlent 22.12.2006 18:15
Kastró hvergi sjáanlegur Kúbverska þingið var sett í dag í fjarveru Fídels Kastró, hins áttræða leiðtoga Kúbu, en hann sást síðast opinberlega í júlí á þessu ári. Kastró var þá hraðað á sjúkrahús vegna „mikilla innvortis blæðinga" og hefur hann ekki komið fram opinberlega síðan. Erlent 22.12.2006 17:39
Vilja gjörbreyta Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn Það supu margir hveljur þegar þeir sáu hvernig Samtök iðnaðarins, í Danmörku, vilja breyta Ráðhústorginu í Kaupmannahöfn. Þau vilja setja upp risastóran, og þá erum við að tala um RISASTÓRAN skjá á þeirri hlið hússins sem snýr að torginu. (Sjá mynd) Erlent 22.12.2006 16:34
Georgía gafst upp fyrir Rússum Rússland og Georgía hafa undirritað samning um að Rússar haldi áfram að selja gas til Georgíu á næsta ári, á rúmlega tvöföldu því verði sem greitt hefur verið hingaðtil. Georgía hafði hafnað þessari hækkun og meðal annars leitað til annarra landa um gaskaup. Erlent 22.12.2006 15:58
Svo til vinstri......KRASS Sumir ökumenn sem hafa gervihnatta-leiðsögutæki i í bílum sínum, virðast slökkva á heilanum um leið og þeir kveikja á tækinu. Sum tækin eru þannig að það er rödd sem leiðbeinir bílstjórum um að beygja til vinstri eða hægri og sumir virðast hlýða henni í blindni. Erlent 22.12.2006 15:28
Rauði krossinn krefst lausnar starfsmanna Hátt á annan tug starfsmanna og sjálfboðaliða Rauða hálfmánans í Írak var numinn á brott frá einni af skrifstofum félagsins í Bagdad, síðastliðinn sunnudag. Nokkrum hefur þegar verið sleppt en margir eru enn í haldi. Rauði kross Íslands sameinast alþjóðahreyfingu Rauða krossins og Rauða hálfmánans í að krefjast þess að þeir verði leystir skilyrðislaust úr haldi nú þegar. Erlent 22.12.2006 15:03
Rússar loka fyrir allt gas til Georgíu Rússar tilkynntu í dag að þeir myndu loka fyrir allt gas til nágrannaríkisins Georgíu hinn fyrsta janúar næstkomandi. Það verður gert vegna þess að Georgía vill ekki una við einhliða ákvörðun Rússa um að rúmlega tvöfalda verðið á gasi. Erlent 22.12.2006 14:21
Fáum fullnægingu klukkan þrjú! Tökum nú öll höndum saman, öll sem vettlingi geta valdið og fáum fullnægingu klukkan þrjú, föstudaginn 22. desember. Þannig hljóma skilaboð bandarískra friðarsinna sem hvetja til þess að fólk um gjörvallan heim fái fullnægingu í dag og tileinka hana heimsfriði og hamingju og nýjum framfaraleiðum fyrir mannkynið. Erlent 22.12.2006 14:02
Fyrir dómara vegna morðanna í Ipswich Stephen Wright, 48 ára lyftaramaður, kom fyrir dómara í Ipswich í morgun til að svara spurningum um morðin á fimm vændiskonum í byrjun mánaðarins, sem hann var ákærður fyrir í gærkvöldi. Lögreglan sagðist í gær hafa fullnægjandi sönnunargögn til að sakfella manninn, en lögfræðingur minnti fjölmiðla á í dag að hann væri saklaus þar til sekt væri sönnuð. Erlent 22.12.2006 13:14
Eftirlitsmenn á Sri Lanka kallaðir til höfuðborgarinnar Yfirmaður Norrænu eftirlitssveitarinnar á Sri Lanka hefur kallað eftirlitsmenn sveitarinnar til höfuðstöðvanna í Colombo, höfuðborg Sri Lanka, á næstu dögum vegna harðnandi bardaga. Íslendingar starfa fyrir sveitina. Erlent 22.12.2006 12:28
Hermenn ákærðir fyrir morð á 24 borgurum í Írak Átta bandarískir hermenn voru í gær ákærðir fyrir að hafa myrt 24 Íraka í þorpinu Haditha í Írak í nóvember á nýliðnu ári. Sveitarforinginn, Justin Sharratt, á yfir höfði sér lífstíðarfangelsi. Hann er ákærður fyrir að hafa sjálfur myrt 12 manns og að hafa skipað hermönnum undir hans stjórn að myrða 6 til viðbótar. Erlent 22.12.2006 12:28
Kynóðir krakkar Hundruð leikskólabarna eru rekin úr skóla eða fá áminningar, vegna kynferðislegs áreitis, í Bandaríkjunum, á hverju ári. Nýjasta tilfellið er fimm ára drengur sem var rekinn heim fyrir að klípa jafnöldru sína í bossann. Erlent 22.12.2006 11:16
Lennon, John Lennon Síðustu tíu skýrslur bandarísku alríkislögreglunnar, FBI, um John Lennon hafa nú verið gerðar opinberar, og þykja heldur broslegar. Í þeim er ekkert að finna sem ekki var almenn vitneskja á þeim árum, um þennan skelfilega útsendara vinstri aflanna. Erlent 22.12.2006 10:41
Ótímabundið hlé á kjarnorkuviðræðum Vikulöngum viðræðum sex landa um kjarnorkuáætlun Norður-Kóreumanna lauk í dag án nokkurrar niðurstöðu að hægt sé að tala um. Að svo stöddu verður tekið hlé í viðræðunum og er engin tímasetning á því hvenær þær munu halda áfram. Þetta hefur Yonhap fréttastofan suðurkóreska eftir heimildarmanni sem tekið hefur þátt í viðræðunum. Erlent 22.12.2006 08:46
Barbikjúsósa bjargaði lífi manns Læknar eru forviða að Japani einn sé enn á lífi, eftir að hann villtist í fjallgöngu og lá úti í 23 daga með eina flösku af barbikjúsósu til matar. Öll líffæri fyrir utan heilann í honum voru hætt að virka, líkamshitinn var kominn niður í 22 gráður og púlsinn mjög veikur. Tveimur mánuðum eftir að hann fannst og var færður á sjúkrahús eru öll líffæri hans farin að virka á eðlilegan hátt og hann virðist ekki ætla að bera neinn skaða af. Erlent 22.12.2006 08:30
Enn að jafna sig eftir stunguárás: „Þeir eru miklu yngri en réðu samt ekkert við 43 ára mann“ Innlent