Erlent

Richardson ætlar sér í framboð

Bill Richardson, ríkisstjóri Nýja Mexíkó, tilkynnti í gærkvöldi að hann ætli sér að sækjast eftir útnefningu demókrata til forsetaframboðs árið 2008. Richardson er af Suður-amerískum uppruna og yrði sá fyrsti af slíkum ættum til þess að komast í Hvíta húsið. Richardson var áður sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum og orkumálaráðherra í stjórn Bill Clinton.

Erlent

Enn barist í Líbanon

Þriðji dagur átakanna í Líbanon er nú hafinn. Líbanski herinn hóf árásir á búðir Fatah al-Islam, uppreisnarhópsins sem heldur sig í Nahr al-Bared flóttamannabúðunum í borginni Trípólí.

Erlent

Enn í haldi mannræningja

Aldraði Svíinn, sem rænt var í Kólumbíu í síðustu viku, er enn í haldi mannræningjanna en kólumbísk sambýliskona hans er laus úr haldi. Henni tókst að flýja þegar átök brutust út milli mannræningjanna og lögreglu, að sögn vefútgáfu Dagens Nyheter.

Erlent

Könnun Sarkozy í hag

UMP-flokkur Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands, myndi hljóta fjörutíu prósenta fylgi yrði gengið til þingkosninga nú, meðan sósíalistar fengju aðeins 28 prósent samkvæmt könnun sem birt voru í gær. Kosið verður til franska þingsins í júní.

Erlent

Gæfan að snúast Ahern í vil

Íbúar tveggja lítilla eyja við norðvesturströnd Írlands, Arranmore og Tory, greiddu í gær atkvæði í þingkosningum á Írlandi, þremur dögum á undan öðrum íbúum landsins, sem ganga til atkvæðagreiðslu á fimmtudaginn. Þetta var gert til að tryggja að atkvæði eyjarskeggjanna, sem samtals eru um 700 talsins, kæmust örugglega í tæka tíð í talningu.

Erlent

Pólskir læknar farnir í verkfall

Meira en 200 af 600 sjúkrahúsum Póllands veittu einungis bráðaþjónustu í gær eftir að pólskir læknar fóru í verkfall. Hundrað sjúkrahús í viðbót hóta sömu aðgerðum.

Erlent

Dauðir smáhvalir í Berlín

Dýraverndarsamtökin Greenpeace stóðu í gær fyrir mótmælum gegn hvalveiðum í Berlín. Sautján dauðir smáhvalir voru lagðir til sýnis á götuna rétt við Brandenborgarhliðið, sem í eina tíð stóð á mörkum Vestur- og Austur-Berlínar.

Erlent

Stefnt að veigaminni sáttmála

Æðstu ráðamenn Evrópusambandsríkjanna eru, þótt hljótt fari, byrjaðir að gera breytingar á stjórnarskrársáttmálanum sem felldur var í þjóðaratkvæðagreiðslum tveggja aðildarríkjanna fyrir tveimur árum. Hugmyndin er sú að sáttmálinn verði miklu minni í sniðum en upphaflega var stefnt að og hugsanlega verði aðeins gerðar veigaminni breytingar á stofnsáttmála Evrópusambandsins.

Erlent

Blóðug átök í Nahr el-Bared

Tugir hafa látist í átökum stjórnarhers Líbanon og herskárra íslamista í hörðustu innanlandsátökum í landinu frá því borgarastyrjöldinni lauk árið 1990.

Erlent

Mikil flóð víða um Búlgaríu

Úrhellisrigning undanfarna þrjá daga hefur valdið gífurlegum flóðum víða um Búlgaríu. Engar fréttir hafa borist af meiðslum. Ástandið hefur verið einna verst í höfuðborg landsins, Sofiu, og í nálægum þorpum að sögn yfirvalda.

Erlent

Á ekki neinn bankareikning

Jaroslaw Kaczinsky, forsætisráðherra Póllands, segist ekki eiga neinn bankareikning, heldur leggur hann alla sína peninga inn á bankareikning Jadwigu móður sinnar. Þetta segir hann alls enga sérvisku.

Erlent

Chavez fjármagnar mynd um þrælauppreisn

Þing Venezuela hefur samþykkt að styrkja bandaríska leikarann Danny Glover um 18 milljónir bandaríkjadala en hann vinnur nú að gerð myndar um þrælauppreisn á Haiti. Hugo Chavez forseti landsins segist vonast til þess að myndin nýtist sem vopn í baráttunni við bandaríska heimsvaldastefnu.

Erlent

Jimmy Carter segir orð sín mistúlkuð

Jimmy Carter, fyrrverandi forseti Bandaríkjana segir að orð sín hafi verið mistúlkuð en fyrir nokkrum dögum var haft eftir honum í dagblaði í Arkansas að George W. Bush sé versti forseti í sögu landsins.

Erlent

Þekkt seglskip brann í Lundúnum

Eitt þekktasta seglskip 19. aldar, Cutty Sark, nær eyðilagðist í miklum bruna í Lundúnum í dag. Grunur leikur á að kveikt hafi verið í því. Skipið hefur dregið að sér fjölmarga forvitna ferðamenn en er nú skaðbrennt flak.

Erlent

Noregur: Sögufrægt hótel brann til grunna

Eitt þekktasta hótel Norðmanna brann til grunna um liðna helgi, aðeins viku áður en fagna átti 90 ára afmæli þess. Dombås-hótelið stóð nærri Dofra-fjalli og var þekkt kennileiti í Norður-Upplandi. Þar sem hótelið stóð var áður rekið gistihús frá árinu 1858.

Erlent

Erfitt að senda hjálpargögn

Sameinuðu þjóðirnar og Rauði krossinn hafa ekki getað sent hjálpargögn inn í flóttamannabúðir í Norður-Líbanon í dag vegna átaka stjónarhers og herskrskárra Palestínumanna. Um 70 hafa fallið þar síðan í gær og margir særst. Ráðamenn í Beirút segja Sýrlendinga standa að baki ófriðnum. Þetta eru mestu innanlandsátök í Líbanon síðan endir var bundinn á borgarastyrjöld þar í landi fyrir 17 árum.

Erlent

Sagði af sér vegna faðmlags

Ráðherra ferðamála í Pakistan tilkynnti í dag um afsögn sína vegna faðmlags. Ráðherrann, Nilofar Bakhtiar, tók þátt í söfnun til handa fórnarlömbum jarðskjálftans sem skók landið fyrir tveimur árum síðan. Til þess að safna áheitum fór hún í fallhlífastökk.

Erlent

Óeirðir vegna barneignastefnu í Kína

Til óeirða kom í Guangxi-héraði í Suðvestur-Kína um helgina þar sem íbúar í héraðinu mótmæltu þeirri stefnu stjórnvalda að heimila hjónum að eignast aðeins eitt barn.

Erlent

Kallað eftir ljósmyndum frá Praia de Luz

Breska lögreglan hefur biðlað til almennings um að fá sendar myndir af sumarleyfisstaðnum Praia de Luz og nágrenni í Portúgal. Óskað er eftir myndum á tölvutæku formi frá tveggja vikna tímabili áður en Madeline McCann var rænt þann 3. maí. Helst eru það myndir með ókunnugum í bakgrunni sem lögreglan er á höttunum eftir.

Erlent

Öldungadeildin tilbúin í innflytjendaslaginn

Öldungadeild Bandaríkjaþings byrjar í dag að ræða frumvarp til laga um innflytjendur. Frumvarpið gæti veitt 12 milljón ólöglegum innflytjendum lagaleg réttindi í landinu. Hatrammar deilur hafa staðið um málið í nokkra mánuði og andstæðingar þess láta óspart í sér heyra.

Erlent

17 hvalhræ fyrir framan Brandenborgarhliðið

Félagar úr Grænfriðungum lögðu 17 smáhvelis- og höfrungahræ fyrir framan Brandenborgarhliðið í Berlín morgun. Þeir vilja hvetja ríki til að standast aukna pressu á að taka upp hvalveiðar í atvinnuskyni.

Erlent

Putin vill leysa viðskiptadeilu við Pólland

Vladimir Putin forseti Rússlands bað ríkisstjórn sína í dag að taka upp viðræður við Evrópusambandið vegna deilu við Pólverja. Frá árinu 2005 settu Rússar innflutningsbann á kjöt frá Póllandi. Síðan hafa Pólverjar staðið í vegi fyrir því að ESB hefji viðræður við Rússa vegna málsins.

Erlent

Lögregla á Bretlandi tekur smáþyrlu í gagnið

Lögreglan í Liverpool tekur á næstunni í gagnið nýtt tæki sem nýtast á í baráttuni við glæpamenn og óeirðaseggi. Um er að ræða litla fjarstýrða þyrlu með bæði eftirlitsmyndavél og nætursjónmyndavélum. Þyrlan er aðeins einn metri í þvermál, er hljóðlát og kemst í loftið á aðeins þremur mínútum.

Erlent

Fjórir látast í átökum á Gaza

Fjórir meðlimir öfgasinnaðra íslamista voru drepnir í loftskeytaárásum Ísraela á norðurhluta Gasa. Ísraelski herinn segist hafa beint árásunum að Jabalya flóttamannabúðunum. Árásin fylgir í kjölfar hótana Ísraelsmanna um að auka árásir á herskáa íslamista í Gaza, en þeir gáfu ekki frekari viðvörun.

Erlent

James Webb leysir Hubble af hólmi

Speglar James Webb-stjörnusjónaukans eru þrisvar sinnum stærri en Hubble. Hubble-sjónaukinn hefur þjónað mannkyninu vel. Eftir að honum var skotið á sporbaug 1990 hafa myndir hans gert stjarnfræðingum kleift að auka skilning okkar á umheiminum margfalt.

Erlent

Borgarar látast í átökum í Líbanon

Að minnsta kosti átta manns létust í átökum sem brutust út í flóttamannabúðum Palestínumanna í Líbanon. Átökin áttu sér stað á milli hersins og öfgasinnaðra íslamista. Aðilarnir skiptust á skotum við Nahr al-Bared búðirnar í Tripolí þar sem 50 manns létust í átökum í gær.

Erlent