Erlent
Bresk yfirvöld fordæma myndband af Johnston Tony Blair forsætisráðherra Breta, vottaði í dag fjölskyldu breska blaðamannsins Alan Johnstons samúð sína í kjölfar þess að myndband með Johnston, sem haldið er af mannræningjum í Palestínu, var gert opinbert. Gordon Brown fjármálaráðherra fodæmdi myndbandið sem hann sagði aðeins auka á áhyggjur fjölskyldu Johnstons. Erlent 1.6.2007 18:03
Erfðaefni úr óþekktum manni í herbergi Madeleine Erfðaefni úr óþekktum manni fannst í herbergi Madeleine McCann þar sem hún svaf þegar henni var rænt. Þetta kemur fram í portúgalska innanbæjarblaðinu 24 Horas. Blaðið segir að erfðaefnið sé hvorki úr foreldrum stúlkunnar né börnunum þremur. Það er ekki heldur úr þeim sem hafa legið undir grun í málinu. Erlent 1.6.2007 17:16
Skelfilegt kjarnorkuslys vofir yfir Evrópu Gríðarstórir geymar fullir af notuðum eldsneytis-stjórnstöngum úr vélum rússneskra kjarnorkukafbáta geta sprungið hvenær sem er. Þeir eru aðeins 50 kílómetra frá landamærunum við Noreg. Það yrði hrein kjarnorkumatröð, margfallt verri en kjarnorkuslysið í Chernobyl á sínum tíma. Erlent 1.6.2007 16:27
Berklamaðurinn sér eftir flugferðunum Bandarískur berklasjúklingur sem ferðaðist smitaður með tveimur farþegaflugvélum yfir Atlantshafið hefur beðist afsökunar á að hafa mögulega stofnað öðrum farþegum í hættu. Í þættinum Good Morning America sagði Andrew Speaker, lögmaður á fertugsaldri: “Mér þykir mjög leitt að hafa valdið farþegum raun og sársauka.” Erlent 1.6.2007 14:57
Venesúelska sjónvarpsstöðin sendir út á YouTube Venesúelska sjónvarpsstöðin RCTV sendir nú fréttaþátt sinn "El Observador" út á YouTube. Þannig fundu stjórnendur hennar leið til að koma efni fréttamanna til hluta áhorfenda sinna, þrátt fyrir að hafa misst útsendingarleyfið. Hugo Chavez forseti hafnaði endurnýjun leyfisins sem rann út á sunnudag. Fjöldamótmæli hafa verið haldin á götum Venesúela vegna málsins. Erlent 1.6.2007 13:35
Lucy in the Sky er fundin Bresk kona sagði í dag að hún hafi verið innblástur Johns Lennon að laginu Lucy in the Sky with Diamonds. Margir aðdáendur Bítlanna hafa talið að nafnið hafi verið lítt dulin lofgjörð um ofskynjunarlyfið LSD. Vegna þess var skífan ritskoðuð í mörgum íhaldssamari löndum og laginu um Lucy sleppt. Það var t.d. gert víða í Asíu. Erlent 1.6.2007 13:15
Átökin í Líbanon: Hræðilegt ástand í flóttamannabúðum Mannúðarsamtök segja ástandið í palestínsku flóttamannabúðunum Nahr al-Bared í Líbanon vera hræðilegt. Ekkert lát er á átökum meðlima hryðjuverkasamtakanna Fatah al-Islam og líbanskra hermanna sem staðið hafa í 13 daga. Sameinuðu þjóðirnar segja 31 þúsund manns vera innilokaða í búðunum, en 25 þúsund hafi flúið. Mannúðarsamtök segja ástandið hræðilegt. Um 80 manns hafa látið lífið í átökunum. Erlent 1.6.2007 10:57
Belja í fjöldagröf Bosnískur bóndi á í málaferlum við yfirvöld vegna belju sinnar. Hann segir að hún hafi drukknað í fjöldagröf sem yfirvöldum hafði láðst að fylla uppí eftir að líkin höfðu verið fjarlægð. Í gröfinni voru lík 50 múslima sem Serbar myrtu í Bosníustríðinu. Bóndinn segir að uxakleggi hafi stungið beljuna sem hafi brugðið svo að hún stökk út í vatnsfyllta fjöldagröfina. Uxakleggi er flugnategund sem leggst á nautgripi. Erlent 1.6.2007 10:11
Fréttamaður BBC segist við góða heilsu Breski fréttamaðurinn Alan Johnston sagði að ræningjar hans hafi komið vel fram við sig, í myndbandsupptöku á netinu, sem sýnd var í dag. Upptakan var ekki dagsett. Johnston var rænt á Gazaströndinni 12. mars síðastliðinn. Hann er fréttamaður BBC. Ræningjar hans kalla sig Her islams. Þeir krefjast þess að múslimar í breskum fangelsum verði látnir lausir í skiptum fyrir Johnston. Erlent 1.6.2007 09:42
Japanir hóta að segja sig úr hvalveiðiráðinu Japanir hótuðu að segja sig úr Alþjóða hvalveiðiráðinu á lokadegi ársþingsins í gær eftir að þeim mistókst að fá frumbyggjakvóta fyrir veiðimenn í fjórum strandhéruðum í Japan. Hafa þeir ennfremur dregið til baka boð sitt um að halda ársþing ráðsins árið 2009. Ársþingi Alþjóða hvalveiðiráðsins lauk í nótt að íslenskum tíma. Erlent 1.6.2007 07:59
Yfir tuttugu manns láta lífið í hitabylgju Að minnsta kosti 22 hafa látið lífið, aðallega börn og gamalmenni, í mikilli hitabylgu sem nú gengur yfir Banglades. Hefur hitinn á sumum stöðum farið vel yfir 40 gráður. Erlent 1.6.2007 07:04
Vilja koma í veg fyrir smygl á geislavirkum efnum Bandaríkjamenn og Rússar hafa komist að samkomulagi um að flýta uppsetningu búnaðar sem greina á geislavirkni á 350 stöðum við rússnesku landamærin. Með þessu vonast ríkin til að hægt verði að koma í veg fyrir smygl á kjarnorku frá Rússlandi en stefnt er að því að búnaðurinn verði kominn upp ekki seinna en árið 2011. Erlent 1.6.2007 06:16
Tengdafaðir berklasmitaðs manns vinnur við berklarannsóknir Bandaríkjamaðurinn sem smitaður er af illvígum berklum er tengdasonur vísindamanns sem rannsakar berkla hjá smitvarnastöð Bandaríkjanna í Atlanta í Georgíu. Tengdafaðirinn segir óhugsandi að tengdasonurinn hafi smitast í gegnum hann eða á rannsóknarstofu sinni. Erlent 31.5.2007 23:54
Útsendingum RCTV haldið áfram á YouTube Radio Caracas Television, sjónvarpsstöðin sem ríkisstjórn Venezuela synjaði um útsendingarleyfi á dögunum hefur fundið aðferð til að koma efni sínu á framfæri. Fréttamenn stöðvarinnar hafa haldið áfram vinnu sinni og er afraksturinn settur á Netið á vefsíðunni vinsælu YouTube. Erlent 31.5.2007 23:06
Reyklaus sígaretta Reyklausa sígarettan er orðin að veruleika. Hún er dönsk að uppruna, inniheldur nikótín og á að hafa hið fínasta tóbaksbragð. Erlent 31.5.2007 18:30
Bush hvetur til langtímamarkmiða gegn hlýnun jarðar Bandaríkjamenn hvetja þjóðir heims að samþykkja langtímaáætlun gegn losun gróðurhúsalofttegunda. George Bush Bandaríkjaforseti sagðist í dag stefna á fund með 14 öðrum þjóðum sem losa hvað mest af gróðurhúsalofttegundum. Þeirra á meðal eru nokkur þróunarlönd. Með fundinum vill Bush setja markmið sem hamla hlýnun jarðar. Erlent 31.5.2007 16:53
Tyrkneska þingið samþykkir umbætur á stjórnarskrá Tyrkneska þingið samþykkti í dag umdeildar umbætur á stjórnarskrá landsins. Með því sniðgekk þingið neitun forsetans Ahmec Necdet Sezer. Hann hafði beitt neitunarvaldi gegn umbótunum sem meðal annars fela í sér að forsetinn verði kosinn beint af kjósendum, en ekki þinginu. Umbæturnar eru ætlaðar til að binda enda á pólitíska krísu í landinu. Erlent 31.5.2007 16:35
Yfirmaður NASA blæs á loftslagsbreytingar Yfirmaður bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA, segir að það sé hrokafullt að skilgreina loftslagsbreytingar sem vandamál sem þurfi að takast á við. Dr. Micael Griffin lét þessi orð falla í útvarpsviðtali í Bandaríkjunum. Hann kvaðst ekki draga í efa að loftslagið væri að breytast. Erlent 31.5.2007 16:34
Rússar leggja gasleiðslu til Kína Rússar og Kínverjar eiga nú í samningaviðræðum um að Rússar leggi gasleiðslu til Kína. Áætlað er að verkinu gæti verið lokið á fimm til sex árum. Victor Khristenko orkumálaráðherra Rússa skýrði frá þessu í dag og sagði að áhugi væri frekari fjárfestingum í kínverska orkugeiranum. Erlent 31.5.2007 16:07
Bretar samþykkja lyf gegn tóbaksfíkn Einum mánuði áður en tóbaksbann tekur gildi í Bretlandi hefur nýtt lyf gegn tóbaksfíkn verið samþykkt og er nú fáanlegt í gegnum heilbrigðisyfirvöld. Pillan Champix er tekin tvisvar á dag. Rannsóknir sýna að eftir 12 vikur reynist lyfið tvöfalt áhrifaríkara gegn fíkninni en nikótíntyggjó og lyfið Zyban sem fæst meðal annars á Íslandi. Erlent 31.5.2007 15:42
Alltaf eru Danir ráðagóðir Í lögum um reykingabann á dönskum veitingahúsum segir að ef veitingastaðurinn sé yfir 40 fermetrar, séu reykingar bannaðar. Þó er heimilt að útbúa þar sérstakt reykherbergi. Þetta gladdi mjög veitingamann á Vesterbrogade í Kaupmannahöfn. Hann á veitingastað sem er 200 fermetrar. Hann er nú að innrétta 50 fermetra matsal og 150 fermetra reykherbergi. Erlent 31.5.2007 14:55
Ítalskir fangar vilja dauðadóma Hundruðir fanga sem sitja lífstíðardóma í ítölskum fangelsum hafa farið fram á það við stjórnvöld að þau taki aftur upp dauðadóma. Bréf fanganna þess efnis var sent forsetanum Giorgio Napolitano og birt í dagblaðinu La Republica. Næstum 1.300 fangar með lífstíðardóma sitja nú í ítölskum fangelsum. Rúmlega 200 þeirra hafa setið inni í meira en tvo áratugi. Erlent 31.5.2007 14:11
Pútin lýsir yfir nýju vígbúnaðarkapphlaupi Vladimir Putin forseti Rússlands lýsti í dag yfir nýju vígbúnaðarkapphlaupi sem hann sakar Bandaríkin um að hafa hrundið af stað. Putin sagði að tilraunaskot með langdrægri kjarnorkueldflaug í gær hafi verið svar við vígbúnaði Bandaríkjanna. Hann sagði einnig að Rússar myndu mæta Bandaríkjamönnum eldflaug fyrir eldflaug, til þess að viðhalda hernaðarjafnvægi í heiminum. Erlent 31.5.2007 13:04
Dvergurinn og mannránið Lögreglan í Bremen í norðurhluta Þýskalands setti af stað meiriháttar aðgerð þegar kona tilkynnti um mannrán. Hún varð vitni að því þegar „ungur drengur“ var læstur í skotti bíls sem ekið var af stað. Lögreglan setti þegar upp vegatálma og sendi út eftirlitsbíla. Þegar bíllinn fannst kom í ljós að um var að ræða dverg sem var bifvélavirki. Erlent 31.5.2007 13:00
Panda drapst eftir að hafa verið sleppt út í náttúruna Fyrsta risapandan sem alin var upp í dýragarði og síðan sleppt út í náttúruna er dauð. Xiang Xiang var karlkyns panda og fannst fyrr á árinu á verndarsvæðinu sem voru heimkynni hans í aðeins nokkra mánuði. Erlent 31.5.2007 12:45
Sakaðir um að smita fólk vísvitandi af HIV Fjórir hollenskir karlar hafa verið handteknir, grunaðir um að hafa vísvitandi smitað fjölda fólks af alnæmi. Svo virðist sem þeir hafi ítrekað skipulagt kynsvall þar sem þátttakendum var byrlað ólyfjan. Þrír gerendanna eru HIV-smitaðir. Erlent 31.5.2007 12:15
Meyfæðing hákarls staðfest í fyrsta sinn Írskir og bandarískir vísindamenn hafa sannað að karlkyns hákarl kom hvergi nærri getnaði hákarls í bandarískum dýragarði. Þróunarlegt neyðarrúrræði segir forstöðumaður rannsóknarseturs. Erlent 31.5.2007 12:00
Hargreaves kominn til Manchester United Manchester United staðfesti í dag að Owen Hargreaves, leikmaður Bayern Munich, muni ganga til liðs við þá þann 1. júlí næstkomandi. Enn hefur ekki verið sagt frá því hversu hátt kaupverðið var en talið er að það sé í kringum 17 milljónir punda. Erlent 31.5.2007 11:41
Hvað er hægt að leggjast lágt ? Breskir lögreglumenn eru öskureiðir út í innbrotsþjóf sem stal trúlofunarhring af hendi 103 ára gamallar konu. Þeir kalla framferði hans fyrirlitlegan heigulshátt. Þeir vona að jafnvel glæpalýð landsins þyki þarna of langt gengið, og komi kauða undir manna hendur. Erlent 31.5.2007 11:07
Tuttugu fallnir eftir sjálfsmorðsárás í Falluja Að minnsta kosti 20 eru fallnir og aðrir 20 særðir eftir sjálfsmorðsárás í Falluja, vestur af Bagdad, í morgun. Maður gyrtur sprengjubelti gekk inn hóp manna sem hugðust sækja um vinnu hjá lögreglu og sprengdi sig í loft upp með þessum afleiðingum. Erlent 31.5.2007 11:01