Erlent Hús hrundi í Lundúnum Erlent 12.6.2007 16:18
Hent fram af 15 hæða húsi Heiftin í átökum Palestínumanna á Gaza ströndinni er slík að þegar nokkrir Hamas-liðar náðu einum lífvarða Abbasar forseta á sitt vald fóru þeir með hann upp á þak á fimmtán hæða húsi og hentu honum framaf. Liðsmenn Hamas og Fatah láta sér ekki lengur nægja að ráðast á vígi hvers annars heldur eru farnir að sprengja upp heimilin líka. Erlent 12.6.2007 14:43
Viðgerð hafin á Alþjóðageimstöðinni Geimskutlan Atlantis er komin á leiðarenda sinn, Alþjóðageimstöðina. Ætlunarverk áhafnarinnar er að halda áfram viðgerðum á stöðinni og hófust þær í dag. Fyrsta verkefnið er að koma nýjum sólarrafhlöðuvængjum í gagnið. Erlent 12.6.2007 14:25
Palestínska heimastjórnin á bláþræði Líf palestínsku heimastjórnarinnar hangir á bláþræði eftir heiftarlega innbyrðis bardaga í morgun . Hamas samtökin settu þá Fatah úrslitakosti um að rýma samstundis höfuðstöðvar sínar á Gaza ströndinni. Ellegar yrði gerð árás á þær. Sú árás var gerð skömmu síðar. Ekki er vitað um mannfall en tugir manna hafa fallið í bardögum undanfarna daga. Erlent 12.6.2007 14:13
Komu í veg fyrir vantrauststillögu Öldungadeildaþingmenn repúblikana komu í gærkvöldi í veg fyrir að vantrauststilltaga á hendur Alberto Gonzales, dómsmálaráðherra Bandaríkjanna, yrði borin upp á þingi. Ráðherann hefur legið undir ámæli síðan í fyrra þegar hann rak átta ríkissaksóknara. Demókratar segja það hafa verið gert af pólitískum ástæðum en því hafna Repúblíkanar. Erlent 12.6.2007 12:32
35 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi Milan Martic, fyrrverandi leiðtogi uppreisnarmanna Króatíu-Serba, var í morgun dæmdur í 35 ára fangelsi fyrir stríðsglæpi í Króatíu á tíunda áratug síðustu aldar. Hann var sakaður um að hafa skipulagt þjóðernishreinsanir og önnur óhæfuverk. Erlent 12.6.2007 12:26
Þjóðstjórnin hugsanlega fallin Leiðtogar Fatah-hreyfingar Mahmouds Abbas, forseta Palestínumanna, ákveða það á næstu klukkustundum hvort gengið verði út úr þjóðstjórn landsins aðeins þremur mánuðum eftir að hún var skipuð. Það var í mars síðastliðnum sem stjórn Fatah og Hamas tók við völdum og var með henni ætlunin að binda enda á átök fylkinganna. Síðan þá hefur komið til bardaga millið liðsmanna hreyfinganna og margir fallið. Erlent 12.6.2007 12:17
Hirðingjar í Namibíu fá vatnsból Stjórn Þróunarsamvinnustofnunar Íslands hefur samþykkt að ráðast í að bora fyrir 33 nýjum vatnsbólum í heimkynnum Himba í norðvesturhluta Afríku. Himbar eru hirðingjar sem eru mikið á faraldsfæti með nautgripahjarðir sínar að leita uppi vatn og beitilönd og munu vatnsbólin auka lífsgæðin og gera hirðingjum fært að hafa lengur fasta búsetu en nú tíðkast. Erlent 12.6.2007 12:00
Fatah íhugar stjórnarslit Talsmaður Fatah sagði fyrir nokkrum mínútum síðan að hreyfingin muni ákveða innan nokkurra klukkustunda hvort að ríkisstjórnarsamstarfi með Fatah verði hætt. Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sakaði fyrr í morgun Hamas um að reyna að taka völdin á Gaza með hervaldi. Erlent 12.6.2007 11:49
Tekur Blair kaþólska trú ? Tony Blair mun fara í kveðjuheimsókn í Páfagarð hinn 23. þessa mánaðar, til þess að kveðja Benedikt sextánda páfa. Vangaveltur eru um að hann muni við það tækifæri taka kaþólska trú. Forsætisráðherrann tilheyrir nú ensku biskupakirkjunni. Erlent 12.6.2007 11:27
Hamas hóta árásum á höfuðstöðvar Fatah Vopnaður armur Hamas samtakanna hótaði því í dag að ráðast á öryggismiðstöðvar sem lúta stjórn Fatah hreyfingarinnar ef hún rýmir þær ekki samstundis. Aldrei áður hefur þvílíkur úrslitakostur verið settur fram í deilu fylkinganna tveggja. Hótunin var gerð í yfirlýsingu sem útvarpað var á útvarpsstöð undir stjórn Hamas. Erlent 12.6.2007 11:00
50 ára ónotaður bíll grafinn upp Þann 15. júní árið 1957 fagnaði borgin Tulsa í Oklahoma 50 ára afmæli sínu. Í tilefni dagsins var ákveðið að grafa ekta amerískt tímahylki í jörðu. Það skyldi grafið upp aftur þegar borgin ætti 100 ára afmæli. Ekta ameríska tímahylkið var náttúrlega bíll. Glænýr Plymouth Belvedere. Átta gata tryllitæki. Erlent 12.6.2007 10:52
Tíu ára fangelsi fyrir að þiggja munnmök Dómari í Georgíufylki í Bandaríkjunum hefur ógilt dóm yfir 17 ára ungling sem var dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að þiggja munnmök af 15 ára stúlku. Saksóknari ríkisins hefur hins vegar áfrýjað niðurstöðu dómarans og vill halda drengnum í fangelsi. Erlent 12.6.2007 10:25
Martic dæmdur í 35 ára fangelsi Stríðsglæpadómstóll Sameinuðu þjóðanna dæmdi í morgun serbneska uppreisnarleiðtogann Milan Martic í 35 ára fangelsi. Martic barðist fyrir sjálfstæði króatískra Serba á árunum 1991 til 1995. Erlent 12.6.2007 08:26
Sumarbústaðir í Danmörku seljast illa Sumarbústaðir á Jótlandi í Danmörku seljast ekki lengur, jafnvel ekki á vinsælum svæðum í grennd við Árósa. Jótlandspósturinn hefur það eftir fasteignasölum að verðið sé of hátt, eða allt upp í 15 milljónir íslenskra króna fyrir góða bústaði og hafi verðið hækkað um 300 prósent á tíu árum. Erlent 12.6.2007 07:57
Barist á Gaza þrátt fyrir vopnahlé Hamas og Fatah hreyfingarnar börðust harkalega í gærkvöldi og í nótt þrátt fyrir að vopnahléi hefði verið lýst yfir. 14 manns létu lífið í átökunum. Þrír stuðningsmenn Fatah voru skotnir til bana á sjúkrahúsi í bænum Beit Hanoun. Í nótt var gerð árás á heimili forsætisráðherra Palestínu, Ismail Haniya en hann sakaði ekki í árásinni. Erlent 12.6.2007 07:52
Of fá eftirnöfn í Kína Kínverjar, sem eru um 1,3 milljarður talsins, deila með sér 1.601 eftirnafni. Lögreglan í Kína er því að íhuga að biðja stjórnvöld að samþykkja ný lög sem myndu heimila að börn fengju eftirnöfn beggja foreldra. Með því yrði eftirnafnafjöldi í Kína aukinn í tæplega 1,3 milljónir. Erlent 12.6.2007 07:19
Bandaríkjamenn drepa afganska lögreglumenn Bandarískir hermenn í Afganistan drápu óvart sjö afganska lögreglumenn í nótt. Bandaríski herinn var kallaður til aðstoðar eftir að lögreglumennirnir lentu í átökum við vígamenn talibana. Erlent 12.6.2007 07:11
Uppreisnarmenn í Nígeríu sleppa tólf úr haldi Uppreisnarmenn í Nígeríu slepptu í gærkvöldi og nótt alls tólf manns úr gíslingu. Mönnunum hafði verið rænt á nokkurra vikna tímabili í Níger-ósunum en þar fer fram gríðarmikil olíuframleiðsla. Erlent 12.6.2007 07:07
Repúblikanar verja Gonzales Öldungadeildaþingmenn repúblikana komu í gærkvöldi í veg fyrir að vantrauststilltaga á hendur Alberto Gonzales, aðalsaksóknara Bandaríkjanna, yrði borin upp. Erlent 12.6.2007 07:00
Hæstiréttur Suður Karólínu hafnar vörn unglingspilts Hæstiréttur Suður Karólínu í Bandaríkjunum hefur hafnað vörn hins 18 ára gamla Christopher Pittman sem að skaut ömmu sína og afa til bana áður en hann kveikti í húsi þeirra. Pittman framdi ódæðið árið 2001, þegar hann var aðeins 12 ára gamall. Erlent 11.6.2007 23:23
Brown segist geta lært af mistökum Blairs Gordon Brown, verðandi forsætisráðherra Breta, sagði í dag að hann myndi læra af mistökum sem voru gerð af Blair stjórninni í aðdraganda innrásarinnar í Írak. Brown er staddur í Írak um þessar mundir. Hann sagði að gæta yrði þess að mati á gögnum leyniþjónustunnar væri haldið utan við pólitískt argaþras. Þetta kemur fram á vefútgáfu Financial Times. Erlent 11.6.2007 22:46
Paris Hilton segir að guð hafi gefið henni nýtt tækifæri Hótelerfinginn Paris Hilton hefur sagt að guð hafi gefið henni nýtt tækifæri og nú ætli hún að hætta að haga sér heimskulega, og nota frægð sína til að láta gott af sér leiða. Erlent 11.6.2007 22:41
Kjarnavopn ógna heimsbyggðinni Öryggissérfræðingar, frá þrjátíu ríkjum víðsvegar úr heiminum, hittust í Miami í Bandaríkjunum í dag til að ræða hryðjuverkaógnina. Robert Mueller, forstjóri FBI, sagði í ræðu að yfirvofandi kjarnorkuhryðjuverk ógnuðu allri heimsbyggðinni. Hann sagði að sporna þyrfti við svartamarkaðsbraski með geislavirk efni. Erlent 11.6.2007 21:55
Þjóðaröryggismál að útrýma fátækt Samtökin One, sem eru baráttusamtök gegn fátækt, vilja að næsti forseti Bandaríkjanna skuldbindi sig til þess að stíga ákveðin skref til þess að draga úr hungri og sjúkdómum og bæta aðgang að menntun og vatni alls staðar í heiminum. Samtökin hafa ákveðið að eyða 30 milljörðum dala til þess að þrýsta á frambjóðendur fyrir bandarísku forsetakosningarnar að einbeita sér að gegn fátækt í heiminum. Erlent 11.6.2007 20:56
Fyrrverandi hermaður fær greiddar bætur Breskur fyrrverandi hermaður sem lamaðist frá mitti eftir að hafa lent í bílslysi við skyldustörf hefur verið verið dæmdar fjórar milljónir punda í bætur. Maðurinn sem var í Land Rover bifreið sem valt fór í mál við varnarmálaráðuneytið. Erlent 11.6.2007 20:51
Heitt í Pakistan Það er erfitt að lifa í Pakistan þessa dagana. Ekki vegna átaka heldur hita. Hitabylgja hefur gengið yfir landið og hiti mælst mestur fimmtíu og tvær gráður. Tugir manna háfa dáið af völdum hitans. Áætlað er að heitt verði víða um Pakistan fram eftir vikunni. Erlent 11.6.2007 19:30
Milosevic á yfir höfði sér ákæru fyrir smygl Ekkja og sonur Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseta Serbíu, eiga yfir höfði sér ákæru fyrir sígarettusmygl á tíunda áratug síðustu aldar. Mirjana Markovic og Marko Milosevic eru talin hafa hagnast um milljónir dala fyrir að hafa stjórnað smygli á sígarettum. Erlent 11.6.2007 19:21
2 starfsmenn Rauða krossins týndu lífi Tveir líbanskir starfsmenn Rauða krossins týndu lífi í átökum við Nahr al-Bared flóttamannabúðir Palestínumanna í norðurhluta Líbanons í dag. Líbanski herinn hefur barist þar við liðsmenn herskáu samtakanna Fatah al-Islam sem halda til í búðunum. Almennir borgarar hafa orðið illa úti í átökunum en herinn hefur skotið stíft á búðirnar. Erlent 11.6.2007 19:15
Sósíalistar hvattir til að kjósa Sósíalistar hvetja stuðningsmenn sína til að fjölmenna á kjörstað í seinni umferð þingkosninganna í Frakklandi um næstu helgi. Nauðsynlegt sé að koma í veg fyrir að UNP flokkur Sarkozys Frakklandsforseta fái jafn afgerandi meirihluta á þingi og niðurstaða fyrri umferðar í gær bendi til. Erlent 11.6.2007 19:00