Erlent
Viðræður um framtíð Vestur-Sahara hefjast í dag Stjórnvöld í Marokkó og uppreisnarmenn í Polisario, sem berjast fyrir sjálfstæði Vestur-Sahara, hefja viðræður um framtíð svæðisins í dag. Upphaflega var Vestur-Sahara nýlenda Spánverja. Erlent 18.6.2007 11:53
Eftirlitsmenn fara til Norður-Kóreu Eftirlitsmenn frá Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni munu fara til Norður-Kóreu í næstu viku til þess ræða lokun á kjarnofninum í Yongbyon. Embættismenn í Norðu-Kóreu báðu um heimsóknina. Erlent 18.6.2007 11:40
Ísrealar loka Gaza Ísraelar hafa lokað á alla vöruflutninga til Gaza svæðisins. Hamas samtökin stjórna nú Gaza svæðinu og með þessum aðgerðum eru ísraelsk stjórnsvöld að reyna að einangra Hamas algjörlega. Á sama tíma eru Ísraelar að hefja stuðning við bráðabirgðarstjórn Fatah hreyfingarinnar. Erlent 18.6.2007 10:51
Forseti Víetnam heimsækir Bandaríkin Forseti Víetnam heimsækir Bandaríkin í dag en það verður fyrsta heimsókn víetnamsks þjóðhöfðingja þangað síðan stríðinu í Víetnam lauk. Ástæðan eru viðskiptahagsmunir en fyrrum andstæðingarnir eiga í sífellt meiri viðskiptum. Einnig verður rætt um mannréttindamál. Erlent 18.6.2007 08:52
Heilsa Dana versnandi fer Bæði andleg og líkamleg heilsa Dana fer versnandi eftir því sem fríblaðið 24 timer greinir frá. Þar segir frá rannsókn Lýðheilsustöðvar Danmerkur sem sýndi að átta af hverjum tíu Dönum hefðu fengið hausverk, hjartsláttartruflanir, verki í kroppinn eða hefðu átt erfitt með svefn á tveggja vikna tímabili sem spurt var um. Erlent 18.6.2007 08:30
Queen Elizabeth 2 breytt í hótel Dubai hefur afráðið að kaupa hið fornfræga skemmtiferðaskip Queen Elizabeth 2 fyrir um 100 milljónir punda. Skipinu verður lagt fyrir utan manngerðar eyjar í furstadæminu og breytt í fljótandi hótel. Skipið stoppaði við Íslandsstrendur nú fyrir skemmstu. Erlent 18.6.2007 08:07
Royal yfirgefur eiginmann sinn Þrátt fyrir sigur UMP er talið að tilkynning Segolene Royal, mótframbjóðanda Sarkozys í forsetakosningunum í síðasta mánuði, um að hún ætli að yfirgefa maka sinn eigi eftir að yfirgnæfa aðra umræðu í Frakklandi. Royal hefur verið með leiðtoga sósíalista, Francois Hollande, í 25 ár og á með honum fjögur börn. Erlent 18.6.2007 07:55
Evrópusambandið mun aðstoða neyðarstjórn Abbas Evrópusambandið mun hefja beina aðstoð við bráðabirgðastjórn Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, en Javier Solana, utanríkismálaráðherra Evrópusambandsins, skýrði frá þessu í morgun. Hann tók þó ekki fram hvenær þessi aðtoð myndi hefjast. Solana var á leið sinni á fund utanríkisráðherra Evrópusambandsins sem fram fer í dag. Erlent 18.6.2007 07:52
Moskva dýrasta borg í heimi Moskva, höfuðborg Rússlands, er dýrasta borg í heimi að búa í. Borgin hlýtur þennan heiður annað árið í röð. Lundúnir, höfuðborg Bretlands, fylgir fast á hæla hennar. Þetta kom fram í skýrslu ráðgjafafyrirtækis sem gefin var út í morgun. Erlent 18.6.2007 07:10
Miðborg Melbourne lokað vegna skotmanns Lögreglan í Melbourne í Ástralíu hefur lokað miðborginnni þar sem hún leitar að manni sem hóf skothríð á vinsælli verslunargötu í morgun. Maðurinn réðist að ungri konu og þegar tveir vegfarendur komu henni til varnar skaut hann á þau þrjú. Erlent 18.6.2007 07:07
Norður-Kórea innsiglar kjarnaofn sinn í lok júlí Stjórnvöld í Norður-Kóreu skýrðu frá því í morgun að þau ætli sér að loka kjarnaofni sínum í seinni hluta júlí. Rússneska fréttastöðin Interfax skýrði frá þessu. Stutt er síðan stjórnvöld í Norður-Kóreu fengu aðgang að fjármunum sem Bandaríkjamenn höfðu fryst. Erlent 18.6.2007 07:01
Sjö börn láta lífið í loftárás í Afganistan Að minnsta kosti sjö börn létu lífið í loftárásum bandaríska hersins á trúarskóla í þorpi í Afganistan í nótt. Aukin óánægja er með loftárásir sem þessar en fjöldi almennra borgara sem lætur lífið í þeim eykst stöðugt. Erlent 18.6.2007 06:58
Sarkozy hlýtur umboð til breytinga Flokkur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta, UMP, vann sigur í þingkosningum sem fóru fram þar í landi í gær. Flokknum hafði verið spáð allt að 80 prósent sæta á franska þinginu en hlaut ekki nema tæp 60 prósent sæta, eða 354 af 577 þingsætum. Fréttaskýrendur telja að ástæðan fyrir fylgistapinu hafi verið umdeild hækkun á söluskatti. Erlent 18.6.2007 06:53
Mannskæðasta árásin frá 2001 Að minnsta kosti 35 létust og 52 særðust þegar rúta með lögreglukennurum var sprengd í loft upp í Kabúl, höfuðborg Afganistan, í gær í mannskæðustu árásinni frá innrás Bandaríkjahers og bandamanna í Afganistan árið 2001. Talibanar lýstu ábyrgð á árásinni á hendur sér. Erlent 18.6.2007 03:15
Eftirlit til N-Kóreu Vonir standa til að eftirlitsmenn Alþjóðlegu kjarnorkustofnunarinnar heimsæki Norður-Kóreu fljótlega. Viðræður á milli Bandaríkjanna og Norður-Kóreu hafa gengið vel að undanförnu og hafa Norður-Kóreumenn nú boðið eftirlitsmönnunum til landsins. Erlent 18.6.2007 02:30
Sarkozy sigrar í þingkosningum UMP-flokkur Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta vann sigur í seinni umferð frönsku þingkosninganna sem fram fór í gær með 47 prósent atkvæða samkvæmt útgönguspám. Erlent 18.6.2007 02:15
Eldflaugum skotið á Ísrael Að minnsta kosti tveimur eldflaugum var skotið frá Líbanon á Ísrael í gærdag í fyrstu eldflaugaárásinni síðan í stríði Ísraels og Hisbollah-samtakanna í Líbanon í fyrrasumar þegar tæplega 4.000 eldflaugum var skotið á Ísrael. Erlent 18.6.2007 02:00
Íranar fordæma bresk stjórnvöld Íranar hafa gagnrýnt bresk stjórnvöld harðlega fyrir að veita rithöfundinum Salman Rushdie riddaraorðu. Mohammad Ali Hosseini, talsmaður íranska utanríkisráðuneytisins, telur að orðuveitingin sýni hræðslu Breta við islömsk trúarbrögð. Erlent 18.6.2007 01:30
Svíar sluppu með skrekkinn Tveir óbreyttir borgarar fórust og að minnsta kosti tólf til viðbótar særðust þegar sjálfsmorðsárás var gerð á sænska bílalest NATO í norðurhluta Afganistans. Erlent 18.6.2007 01:30
Árás á Andrei Kalitin rannsökuð Lögreglan í Moskvu, höfuðborg Rússlands, rannsakar árás sem gerð var á rannsóknarblaðamanninn Andrei Kalitin í síðustu viku. Kalitin greindi lögreglu frá því að árásin kynni að tengjast rannsóknarvinnu hans vegna bókar um átök í rússneska áliðnaðinum sem kemur út í ágúst. Lögregla telur að árásarmaðurinn hafi notað gúmmíkúlur. Erlent 18.6.2007 01:15
Gianfranco Ferre látinn Ítalski tískufrömuðurinn Gianfranco Ferre lést í Mílanó á Ítalíu í dag 62 ára að aldri. Gianfranco var lagður inn á spítala á föstudaginn eftir að hann fékk heilablóðfall. Erlent 17.6.2007 19:57
Forseti Súdan hleypir friðagæsluliðum til Darfur Omar al-Bashir forseti Súdan hefur samþykkt að hleypa friðargæsluliðum Sameinuðu þjóðanna til Darfur án nokkurra skilyrða. Ofbeldi og átök í héraðinu hafa kostað meira en tvö hundruð þúsund manns lífið og um tvær og rúmlega tvær milljónir hafa hrakist frá heimilum sínum. Erlent 17.6.2007 19:39
Sigur Sarkozy minni en spár gerðu ráð fyrir Hægri flokkur Nicolasar Sarkozy, forseta Frakklands, vann stóran sigur í annarri umferð frönsku þingkosninganna samkvæmt útgönguspám. Sigurinn er þó ekki eins stór eins fyrstu spár höfðu gert ráð fyrir. Upphaflega var talið að flokkur forsetans fengi meira en fjögur hundruð sæti en útgönguspár sýna að hann fær um 340 sæti af 577. Erlent 17.6.2007 19:32
Mikil fjölgun í hópi Síberíutígrisdýra Vel gengur að reisa við stofn Síberíutígrisdýra sem eru í mikilli útrýmingarhættu. Á ræktunarstöð kattardýra í Kína hefur tegundinni borist góður liðsauki með fæðingu 84 kettlinga frá því í mars á þessu ári. Í tilkynningu frá ræktunarstöðinni segir að kettlingunum heilsist vel og að von sé á að 13 læður fæði til viðbótar á næstu fjórum mánuðum. Erlent 17.6.2007 18:58
Ný alpagöng opnuð Lengstu landlægu lestargöng í heimi voru vígð á föstudaginn. Göngin eru 34 kílómetra löng og tengja Þýskaland og Ítalíu í gegnum Alpafjöllin. Erlent 17.6.2007 16:52
Tveimur flugskeytum skotið á Ísrael Tveimur flugskeytum var skotið á smábæ í Ísrael í dag frá Líbanon. Allt bendir til þess að Palestínumenn standi á bak við flugskeytaárásina og telja ísraelsk stjórnvöld að árásirnar séu gerðar í því skyni að ögra þeim. Erlent 17.6.2007 16:27
Hérar valda töfum á flugvellinum í Mílanó Loka þurfti flugvellinum í Mílanó á Ítalíu í dag á meðan tvö hundruð veiðimenn reyndu að klófesta yfir 80 héra sem ítrekað hafa valdið vandræðum á svæðinu. Á síðustum vikum hefur tvisvar komið fyrir að hérar hafi flækst í hjólabúnaði flugvéla við lendingu. Þá hafa þeir einnig valdið truflunum í radarbúnaði flugvallarins. Erlent 17.6.2007 15:44
Fuglar að deyja út í Bandaríkjunum Umtalsverð rýrnun hefur orðið á stofnum algengustu fugla í Bandaríkjunum á síðustu áratugum. Fuglafræðingar við Audubon stofnuninni benda á þetta í nýútkominni skýrslu sinni og lýsa yfir áhyggjum sínum. Erlent 17.6.2007 14:23
Íranir gagnrýna Breta fyrir að hafa heiðrað Salman Rushdie Stjórnvöld í Íran hafa gagnrýnt bresk yfirvöld fyrir að hafa veitt rithöfundinum Salman Rushdie riddaratign. Telja írönsk stjórnvöld að með því hafi bresk yfirvöld viljandi verið að ögra og sýna öllum múslimum lítilsvirðingur. Salman Rushdie var dæmdur til dauða af múslimadómstól í Íran eftir að hann gaf út bókina "Söngvar Satans" árið 1989. Erlent 17.6.2007 14:03
Norðmenn stöðva pólskan togara við ólöglegar veiðar Norska strandgæslan stöðvaði í dag pólskan togara við ólöglegar veiðar við Svalbarða í Norður-Atlantshafi. Um borð í togaranum fannst mikið magn af undirmálsþorski. Erlent 17.6.2007 13:25