Erlent

Myndband sem líkir eftir árásunum 11. september

Í byrjun mánaðarins var myndband með tölvulíkingum af árásunum á Tvíburaturnana í New York sett á You Tube síðuna. Myndbandið sýnir hvernig Boeing 767 flugvélarnar skullu á byggingarnar, ruddu öllu eldvarnarefni frá stoðsúlum þeirra og leiddi til hruns þeirra.

Erlent

H5N1 finnst í Tékklandi

H5N1 afbrigði fuglaflensunnar fannst í kalkún á bóndabæ í Tékklandi í dag. Hermenn, lögreglumenn og dýralæknar hafa afgirt bóndabæinn þar sem veiran fannst. Veiran fannst um 150 kílómetra frá höfuðborginni Prag.

Erlent

Fingrafimur ræstitæknir í Glasgow

Píanóhæfileikar pólsks ræstitæknis við háskólann í Glasgow uppgötvuðust í gegnum vefmyndavél þegar yfirmenn hans sáu hann laumast í píanó skólans á vinnutíma.

Erlent

Búist við erfiðum fundi í Brussel

Leiðtogar Evrópsambandsríkjanna koma saman til fundar í Brussel í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um sáttmála um umbætur á samstarfinu. Þjóðverjar leggja til róttækar breytingar á samstarfinu en segja sáttmála sinn ekki nýja stjórnarskrá.

Erlent

Mubarak boðar til viðræðna

Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hefur boðið fulltrúum Palestínu, Ísraels og Jórdaníu til viðræðna í næstu viku. Ríkisstjórnir landanna hafa þó ekki enn þekkst boðið. Ef fundurinn fer fram verður hann fyrsti fundur Mahmoud Abbas og Ehuds Olmert síðan Hamas komst til valda fyrir 18 mánuðum síðan.

Erlent

Austurríkismenn sleppa grunuðum njósnara

Yfirvöld í Austurríki hafa leyst úr haldi fulltrúa rússnesku geimferðastofnunarinnar sem sakaður var um njósnir. Maðurinn, sem er rússneskur, var handtekinn í síðustu viku í eða við borgina Linz vegna gruns um njósnastarfsemi.

Erlent

Sandur hættulegri en hákarlar?

Samkvæmt rannsókn feðganna Bradley og Barry Maron hafa fleiri látið lífið af völdum sands heldur en af völdum hákarla. Í rannsókninni kemur fram að 16 ungmenni létust í Bandaríkjunum eftir að drukkna í sandi á árunum 1990-2006. Á sama tíma létust 12 af völdum hákarlaárásar.

Erlent

Stöðuvatnið sem hvarf

Jökulvatn í Chile tók upp á þeirri óþægilegu nýjung að láta sig hverfa. Vísindamenn eru ráðþrota og engar vísbendingar er að finna um hvert það brá sér. Vatnið var í Suður-Andes fjöllunum og þegar þjóðgarðsverðir fóru um svæðið í mars var það á sínum stað, um tveir hektarar að stærð, blandað misstórum ísjökum. Þeir fóru síðan aftur í síðasta mánuði og þá var það horfið.

Erlent

2% múslima í Indónesíu finnst í lagi að beita ofbeldi

Könnun í Indónesíu hefur leitt í ljós að um 2% múslima í landinu telja að trú þeirra leyfi þeim að beita ofbeldi gegn þeim sem eru annarar trúar. Aðstandendur könnuninnar segir það þó samt eiga að valda áhyggjum. 240 milljónir manns búa í Indónesíu.

Erlent

Laminn til bana í Austin

Lögreglan í Austin í Texas, Bandaríkjunum, biðlar nú til fólks sem gæti gefið upplýsingar sem hjálpa til við að góma gengismeðlimi sem lömdu mann til bana á þriðjudag.

Erlent

Ákærður fyrir barnaníð

Maður sem hefur unnið mikið í nágrenni grunnskólans Orange Street í Bandaríkjunum, Dale Hutchings, hefur verið ákærður fyrir að misnota sjö börn. Maðurinn er talinn hafa misnotað börnin samtals yfir þúsund sinnum. Öll börnin voru undir 13 ára þegar misnotkunin byrjaði. Misnotkunin stóð yfir frá 1998-2007.

Erlent

Tíu farast í bruna í Rússlandi

Að minnsta kosti tíu manns hafa látið lífið eftir að elliheimili í Rússlandi brann. Fjórir eru slasaðir og að minnsta kosti 300 manns þurftu að yfirgefa heimilið.

Erlent

Bhutto segir sjálfsmorðsárásir aldrei réttlætanlegar

Benazir Bhutto, fyrrum forsætisráðherra Pakistans, sagði í morgun að víkja ætti trúmálaráðherra landsins úr embætti fyrir að hafa sagt að sjálfsmorðsárásir væru sanngjörn viðbrögð við riddaratign Salmans Rushdie. Ráðherrann reyndi síðar að útskýra ummæli sín á þann hátt að hann hefði átt við að öfgatrúarsinnar gætu notað þessa afsökun.

Erlent

Lögregla í Englandi leitar að barni

Lögreglan í Mið-Englandi hóf í morgun umfangsmikla leit að níu ára dreng eftir að fregnir bárust af því að honum hefði verið rænt. Engir foreldrar hafa þó gefið sig fram við lögreglu og sagt að þeir sakni barns síns. Lögreglunni var sagt að illa útlítandi maður á fimmtugsaldri hefði sést ýta níu ára dreng inn í bíl Redditch í gærkvöldi og því hófst leitin. Lögreglan gengur nú hús úr húsi og leitar einnig með aðstoð hunda.

Erlent

13 létust og 35 særðust í sprengingu í Írak

13 létu lífið og að minnsta kosti 35 særðust þegar sjálfsmorðssprengjumaður keyrði vörubíl hlaðinn sprengiefni á bæjarstjórnarbyggingu í bæ í norðurhluta Írak í morgun. Á meðal látinna voru konur og börn. Fjölmörg hús eyðilögðust í sprengingunni.

Erlent

Appelsínur á bílinn

Hægt er að nota ávaxtasykur sem vistvænan orkugjafa til þess að knýja bíla áfram. Þetta segja bandarískir vísindamenn og benda á að slíkt eldsneyti sé mun orkuríkara en etanól.

Erlent

Banna áfengi og klám á svæðum frumbyggja

Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að banna áfengi og klám á frumbyggjasvæðum í landinu í að minnsta kosti sex mánuði til þess að reyna að koma í veg fyrir misnotkun á börnum. Ný skýrsla sem kom út í síðustu viku benti á að misnotkun á börnum væri mjög útbreidd á meðal frumbyggja. Hún kenndi mikilli áfengisneyslu og fátækt um ástandið.

Erlent

Leiðtogar ESB takast á í Brussel

Leiðtogar Evrópuríkja hittast í Brussel í dag til þess að ræða nýjan sáttmála til þess að bæta starfsemi Evrópusambandsins. Þjóðverjar, sem eru í forystu sambandsins um þessar mundir, ætla að leggja til róttækar breytingar á starfseminni, en ætla ekki að kalla tillöguna stjórnarskrá.

Erlent

Hill til Norður-Kóreu í dag

Christopher Hill, aðalsamingamaður Bandaríkjanna í kjarnorkudeilu þeirra við Norður-Kóreu, kemur til Norður-Kóreu í dag til viðræðna við þarlenda valdhafa. Tilgangur ferðar hans er að flýta fyrir afvopnunarferlinu en það hefur verið í biðstöðu síðan í janúar á þessu ári.

Erlent

Thaksin ákærður fyrir spillingu

Saksóknarar í Taílandi hafa lagt fram ákæru á hendur Thaksin Shinawatra, fyrrum forsætisráðherra landsins. Hann er ásakaður um að hafa hjálpað eiginkonu sinni að eignast land í eigu stjórnvalda fyrir smápeninga. Ákæran sem nú er birt er niðurstaða einnar af tólf rannsóknum sem beinast gegn Thaksin. Hann hefur neitað því gera nokkuð rangt.

Erlent

Talibanar beina augunum að Kabúl

Talibanar í Afganistan eru að breyta um aðferðir og ætla að einbeita sér að Kabúl á næstunni. Talsmaður talibana skýrði fréttastofu BBC frá þessu í nótt. Hann tók fram að NATO hefði náð að bana nokkrum leiðtogum þeirra en nú væru þeir að herða öryggisaðgerðir og fleiri en nokkru sinni byðu sig fram í sjálfsmorðsárásir.

Erlent

Pólverjar einangraðir í ESB

Meginmarkmiðið á leiðtogafundi Evrópsambandsins, sem hefst í Brussel í dag, er að ná samkomulagi um að bjarga því sem bjargað verður af hinum strandaða stjórnarskrársáttmála sambandsins. Á þetta leggur þýska stjórnin ofuráherslu, en hún lýkur formennskumisseri sínu í ESB um mánaðamótin.

Erlent

Tveggja hæða risaþota keypt til einkanota

Ónafngreindur einkaaðili hefur á alþjóðlegu flugsýningunni í París lagt fram pöntun á Airbus A380-risaþotu, til notkunar sem einkaþotu. Að því er greint er frá á fréttavef BBC segja talsmenn Airbus að kaupandinn, sem sé hvorki frá Evrópu né Bandaríkjunum, myndi nota vélina „til persónulegra nota fyrir sig og fylgdarlið sitt“.

Erlent

Abbas fordæmir Hamas

Ísarelsher skaut flugskeytum á tvo eldflaugaskotpalla á Gaza í gær í fyrstu loftárásinni frá því að Hamas-samtökin lögðu undir sig Gaza í síðustu viku. Engar fréttir bárust af mannfalli eða meiðslum í árásinni sem var svar við eldflaugaárás á Ísrael. Fyrr um daginn fóru ísraelskir skriðdrekar inn á Gaza og fjórir létu lífið í skothríð.

Erlent

Michael Bloomberg ætlar ekki að bjóða sig fram til forseta

Michael Bloomberg, borgarstjóri í New York, hefur neitað sögusögnum um að hann hyggist bjóða sig fram sem óháður í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2008. Þessi yfirlýsing kemur degi eftir að hann sagði sig úr repúblikanaflokknum og gerðist óháður.

Erlent

Kínverjar losa mest af koltvíoxíð út í andrúmsloftið

Kína er sú þjóð sem sleppir mestu af koltvíoxíð út í andrúmsloftið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem hollensk umhverfisstofnun gerði og AP fréttastofan greinir frá. Kína fer þar með upp fyrir Bandaríkin sem hafa mengað mest allra hingað til.

Erlent

Abbas útilokar viðræður við Hamas

Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, sakar Hamas-liða um að reyna að koma á fót eigin ríki á Gaza. Í ræðu sem Abbas flutti í dag fordæmdi hann Hamas og sagði þau skipuð grimmum hryðjuverkamönnum eftir að þau yfirtóku Gaza í síðustu viku.

Erlent

Þjóðverjar vilja hverfa frá sameiginlegri stjórnarskrá ESB

Þýsk yfirvöld ætla að fara þess á leit við aðildarríki Evrópusambandsins að þau láti af hugmyndum um sameiginlega stjórnarskrá, þegar leiðtogar aðildarríkjanna hittast á fundi í Brussel á morgun. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. Pólland og Bretland hafa hins vegar hótað því að beita neitunarvaldi sínu fái þau nýjan sáttmála ekki í gegn.

Erlent