Erlent
Fimmtíu dagar liðnir frá hvarfi Madeleine Í dag eru fimmtíu dagar síðan Madeleine McCann var rænt úr sumarleyfisíbúð í Portúgal. Í tilefni af því var gulum blöðrum sleppt í fimmtíu löndum klukkan tíu í morgun. Erlent 22.6.2007 12:26
Fuglaflensa í Tógó Rannsóknarniðurstöður staðfesta að H5N1 afbrigði fuglaflensunnar hafi fundist á alifuglabúgarði í Tógó. Eftir að óeðlilega margir fuglar drápust á búgarðinum, voru send sýni á rannsóknarstofu sem staðfestu fuglaflensuna. H5N1 er hættulegasta afbrigði flensunnar. Erlent 22.6.2007 11:33
Pólverjar segja lausn ekki í sjónmáli Pólverjar sögðu í dag að enginn árangur hefði náðst á fundum Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, sem er í forsæti Evrópusambandsins um þessar mundir, og Lech Kaczynski, forseta Póllands. Póllandi hefur þegar verið boðin málamiðlun. Erlent 22.6.2007 10:17
Skólastelpu í Bretlandi meinað að bera trúartákn Skólastelpa í Bretlandi ætlar að áfrýja til hæstaréttar til að snúa við banni sem hún fékk fyrir að ganga með skírlífshring í skólanum. Lydia Playfoot, sem er 16 ára, segir að hringurinn sýni fram á að hún hafi tekið þá ákvörðun að bíða með kynlíf þar til hún giftir sig. Hún segir að hringurinn sé trúartákn og ætti því að fá undanþágu frá reglum skólans sem banna skartgripi. Erlent 22.6.2007 10:17
Bush tekur á móti forseta Víetnam í sögulegri heimsókn Forseti Bandaríkjanna, George Bush, tekur á móti forseta Víetnam í sögulegri heimsókn. Forseti Víetnam, Nguyen Minh Triet, er fyrsti leiðtogi landsins til að heimsækja Bandaríkin síðan Víetnamstríðinu lauk árið 1975. Heimsóknin er sögð vera stórt skref fyrir bæði lönd til að jafna sig á sáraukafullri fortíð. Erlent 22.6.2007 09:54
Útgöngubann í Sómalíu Millibilsríkistjórn Sómalíu hefur sett útgöngubann á íbúa höfuðborgar landsins, Mogadishu. Með því vonast stjórnin til að stöðva ofbeldisbylgjuna í landina. Síðasta atvik þar sem ofbeldi var beitt í Mogadishu var þegar handsprengju var hent að lögreglumönnum á Bakara markaðnum. Fimm manns létust við sprenginguna. Erlent 22.6.2007 09:23
12 almennir borgarar láta lífið í loftárás Bandaríkjamanna Loftárás Bandaríkjanna í Afganistan í gærkvöldi varð 12 almennum borgurum og 20 talibönum að bana. Árásin átti sér stað í Helmand héraði sem er í suðurhluta landsins. Hún var hluti af átaki bandaríska og afganska hersins gegn talibönum á svæðinu. Erlent 22.6.2007 08:49
Íranar eiga yfir 100 kíló af auðguðu úrani Íranar hafa framleitt yfir 100 kíló af auðguðu úrani. 500 kíló þarf til þess að smíða eina kjarnorkusprengju. Innanríkisráðherra landsins skýrði frá þessu í ræðu seint í gærkvöldi. Líklegt er að þessar fréttir valdi Vesturlöndum enn frekari áhyggjum. Þau telja að Íranar ætli að verða sér úti um kjarnorkuvopn en því hafa þeir ávallt neitað. Erlent 22.6.2007 08:36
Vilja láta fanga byggja knattspyrnuvelli Stjórnvöld í Póllandi eru að íhuga að nota fanga til þess að lagfæra knattspyrnuvelli landsins og byggja nýja fyrir Evrópumótið í knattspyrnu sem fer þar fram árið 2012. Ástæðan fyrir þessu er skortur á verkamönnum í landinu en fjölmargir þeirra hafa leitað út fyrir landsteinana þar sem launin eru mun betri. Erlent 22.6.2007 08:03
Átökunum í Nahr el-Bared lokið Stjórnvöld í Líbanon segjast hafa unnið sigur í baráttunni við uppreisnarmenn í Fatah al-Islam. Fylkingarnar hafa barist í rúman mánuð. Klerkar sem hafa gegnt hlutverki sáttasemjara segjast að Fatah al-Islam hafi sæst á vopnahlé. Fleiri en 150 hafa látið lífið í átökunum, sem eru þau umfangsmestu síðan borgarastyrjöldinni í Líbanon lauk árið 1990. Erlent 22.6.2007 07:52
Fjárfestu í hátísku Fjármálafyrirtæki víða um heim eru nú farin að fylgja eftir merkjaþrá almennings og búa til hlutabréfasjóði með einungis hátískufyrirtækjum. Fólk getur þá keypt hlutabréf í Miu Miu, Stellu McCartney eða Ralph Lauren. Erlent 22.6.2007 07:09
Hill átti góðar viðræður í Norður-Kóreu Christopher Hill, aðalsamningamaður Bandaríkjanna í kjarnorkumálum, sagði í morgun að hann hefði átt góðar viðræður við fulltrúa stjórnvalda í Norður-Kóreu í gær. Heimsókn hans til landsins kom mörgum á óvart. Erlent 22.6.2007 07:08
Verkfallsaðgerðir verða hertar Stéttarfélög í Nígeríu hétu því í morgun að herða verkfallsaðgerðir sínar en almennt verkfall vegna hækkandi verðs á bensíni hefur staðið yfir í landinu í þrjá daga. Verkfallið hefur lamað nær alla starfsemi í landinu nema framleiðslu og útflutning á olíu. Erlent 22.6.2007 07:04
Enn ekkert samkomulag á leiðtogafundi ESB í Brussel Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins hafa enn ekki náð samkomulagi um nýjan umbótasáttmála. Leiðtogarnir reyna nú að ná sáttum um tillögu Þjóðverja um nýjan sáttmála í stað stjórnarskrárinnar sem franskir og hollenskir kjósendur höfnuðu fyrir tveimur árum. Bretland og Pólland hafa hins vegar hótað að beita neitunarvaldi gegn sáttmálanum ef þau fá ekki sitt fram. Erlent 22.6.2007 06:57
Konungur Nepals Forsætisráðherra Nepals, Girija Prasad Koirala, vill að konungur Nepal, Gyanendra, og krónprinsinn Paras afsali sér krúnunni áður en íbúar Nepals ganga til mikilvægra kosninga sem ákvarða pólitíska framtíð þjóðarinnar, að því er nepalskir fjölmiðlar greina frá. Erlent 22.6.2007 05:45
Áfengis- og klámbann á meðal frumbyggja Stjórnvöld í Ástralíu kynntu í gær áætlun um að banna áfengi og klám á svæðum frumbyggja í norðurhluta Ástralíu til þess að sporna við misnotkun á börnum sem er útbreidd meðal frumbyggja samkvæmt opinberri skýrslu sem kynnt var í síðustu viku. Erlent 22.6.2007 05:30
Gerði keisaraskurð 15 ára Fimmtán ára drengur gerði keisaraskurð á barnshafandi konu undir eftirliti foreldra sinna, sem bæði eru læknar, í tilraun til að komast í heimsmetabók Guinnes. Aðgerðin var tekin upp á myndband. Faðirinn sýndi starfssystkinum sínum í indversku læknasamtökunum myndbandið og var í kjölfarið tilkynnt að athæfið væri ólöglegt og siðlaust. Erlent 22.6.2007 05:00
Taívanar kjósa um aðild að SÞ Yfirvöld í Taívan hétu því á miðvikudag að þjóðaratkvæðagreiðsla um að ganga á ný í Sameinuðu þjóðirnar yrði haldin þrátt fyrir hörð mótmæli frá Kína. Atkvæðagreiðslan fer líklega fram á næsta ári að sögn forseta Taívans, Chen Shui-bian. Erlent 22.6.2007 04:30
Konan látin sem fæddi barn í dái Kona sem fæddi barn meðan hún var í dái lést á föstudaginn í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Annetta Miller Clark var í dái í fimm ár eftir að hún lenti í bílslysi ásamt manni sínum sem lést stundu eftir slysið. Erlent 22.6.2007 03:30
Bæta þarf kynfræðslu Greiningum á klamydíusmitum hefur fjölgað verulega í Færeyjum undanfarinn áratug samkvæmt lýðheilsufræðingnum Malan Egholm sem hefur gert ritgerð um hvernig fyrirbyggja megi klamydíusmit í Færeyjum. Vefútgáfa Útvarps Færeyja greinir frá þessu. Erlent 22.6.2007 03:00
Tíu fórust í eldi í Rússlandi Tíu fórust í eldsvoða á hjúkrunarheimili í þorpi í Síberíu í Rússlandi gærmorgun. Yfir 300 sjúklingar björguðust úr eldinum. Fjórir voru fluttir á sjúkrahús með brunasár og önnur meiðsl. Erlent 22.6.2007 02:15
Gates lofar bót á heilbrigðisþjónustu hersins Robert Gates, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lofaði í dag að hraða uppbyggingu í heilbrigðisþjónustu bandaríska hersins. Hann sagði: "Þetta er eitthvað sem við getum, verðum og viljum laga". Erlent 21.6.2007 22:53
Flóðavörnum enn ábótavant í New Orleans Þrátt fyrir auknar varnir er mikil hætta á að stór hluti New Orleans færi á kaf ef fellibylur mundi geysa á svæðinu. Þetta kemur fram í rannsókn sem verkfræðingar bandaríska hersins hafa gert. Erlent 21.6.2007 22:37
Telur að Talibanar muni ekki ógna stöugleika Hamid Karzai, forseti Afganistan, telur að Talibanar muni ekki ógna stöðugleika í landinu til lengri tíma litið. Þetta kom fram í viðtali sem Karzai átti við fréttastofu BBC. Erlent 21.6.2007 22:21
Á fjórða þúsund hermanna hafa látist í Írak Nú hafa ríflega 3500 bandarískir hermenn látist í Íraksstríðinu, þar af 68 í júnímánuði. Tólf bandarískir hermenn hafa látið lífið í árásum undanfarna tvo daga. Alvarlegasta árásin var í Norðaustur - Bagdad í dag þegar herbíll var sprengdur með þeim afleiðingum að fimm bandarískir hermenn létust, auk þriggja óbreyttra íraskra borgara og írasks túlks. Erlent 21.6.2007 16:51
Eldsneyti úr ávöxtum Bandarískir vísindamenn halda því fram að hægt sé vinna umhverfisvænt eldsneyti úr ávöxtum, nánar tiltekið úr ávaktasykri. Slíkt eldsneyti á að innihalda mun meiri orku en Etanól sem notað er í bensín. Erlent 21.6.2007 16:50
Kona fær ekki bætur fyrir að vinna ekki lottó Helene De Gier tapaði í dag máli þar sem hún vildi fá skaðabætur fyrir að vinna ekki stóran lottóvinning. Málinu er þannig háttað að nágrannar De Gier unnu tæplega 1,2 milljarð í lottói. Sjö nágrannar hennar í bænum Heusden í Hollandi unnu pottinn, en vinningshafarnir voru dregnir eftir póstnúmeri. Erlent 21.6.2007 16:22
Heimkomu Atlantis seinkað vegna veðurs Geimskutlan Atlantis er búin undir heimkomu en bíður þess að óveðri linni við lendingastað sinn, Kennedy geimstöðina í Flórída. Þykkir skýjabakkar hafa hrannast upp og mikið rignir. Það þykja ekki æskilegar aðstæður fyrir lendingu af þessu tagi. Stefnt er að því að lenda flauginni á morgun. Erlent 21.6.2007 15:34
Frakkar lofa Abbas aðstoð Utanríkisráðherra Frakklands, Bernard Kouchner, segir að Frakkar muni aðstoða palestínsku ríkistjórnina með beinni fjárhagslegri aðstoð. Kouchner talaði við Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, í vikunni og upplýsti hann um áætlanir Frakka. Ekki er vitað hversu mikilli upphæð Frakkar ætla að verja í aðstoðina. Erlent 21.6.2007 15:32
Konu hermanns ekki vísað úr landi Yaderline Jimenez, eiginkonu Alex Jimenez sem saknað hefur verið í Írak síðan í maí, verður ekki vísað úr landi. Heimavarnarráðuneyti Bandaríkjanna staðfestir það. Alex, sem er bandarískur hermaður, hafði sótt um græna kortið fyrir konu sína eftir að þau giftust árið 2004. Yaderline kom ólöglega til landsins frá Dóminíska Lýðveldinu. Erlent 21.6.2007 14:34