Erlent
Bandaríkjaforseti setur reglur um yfirheyrsluaðferðir George Bush Bandaríkjaforseti hefur gefið út reglugerð sem bannar ómannúðlegar og niðurlægjandi aðferðir við yfirheyrslur á meintum hryðjuverkamönnum. Erlent 21.7.2007 10:23
Tóku tvo þýska gísla af lífi Talibanar í Afghanistan greindu frá því í morgun að þeir hefðu tekið tvo þýska gísla af lífi úr hópi Þjóðverja og Suður-Kóreumanna sem þeir rændu á fimmtudag. Mannræningjarnir hótuðu því að taka hina gíslana af lífi fyrir hádegi í dag nema stjórnvöld í Suður-Kóreu og Þýskalandi fækki í herliði sínu í Afganistan. Erlent 21.7.2007 10:19
Íhuga að flytja inn etanólbíla Innflutningur á Saab Bio-Power bifreiðum er til athugunar hjá Ingvari Helgasyni ehf. Bílarnir ganga fyrir etanóli og rafmagni og er útblástur koltvíoxíðs 90 prósentum minni en í hefðbundnum bensínvélum. Auk þess bindur hráefnið sem notað er í etanólið koltvíoxíð við ræktun. Erlent 21.7.2007 07:45
Ætla að vinna náið saman Þeir Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, og Nicolas Sarkozy Frakklandsforseti stefna að náinni samvinnu á næstu árum. Þeir ætla meðal annars að stilla saman strengi sína gegn alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Sömuleiðis ætla þeir að vinna saman að lausn á hörmungum íbúanna í hinu stríðshrjáða Darfúrhéraði í Súdan. Erlent 21.7.2007 05:45
Nýjar reglur um yfirheyrslur George W. Bush Bandaríkjaforseti undirritaði í gær nýjar reglur um yfirheyrslur grunaðra hryðjuverkamanna. Samkvæmt nýju reglunum er bannað að beita grimmilegum eða ómannúðlegum yfirheyrsluaðferðum, niðurlægja fanga eða misbjóða trú þeirra. Erlent 21.7.2007 03:00
Fær að halda embættinu Hæstiréttur Pakistans kvað í gær upp þann úrskurð að Pervez Musharraf forseti hefði ekki farið að lögum þegar hann rak Iftikhar Muhammad Chaudhry, forseta hæstaréttar, úr embætti. Jafnframt ógilti dómstóllinn málatilbúnað stjórnarinnar á hendur Chaudhry, sem sakaður hafði verið um að hafa gerst brotlegur í embætti. Erlent 21.7.2007 01:00
Fyrsta skrefið í að fá fleiri fanga lausa Fjölskyldur meira en 250 palestínskra fanga tóku fagnandi á móti þeim eftir að Ísraelar höfðu sleppt þeim úr haldi í gær. Þessir 250 fangar eru þó aðeins lítið brot af þeim 9.200 Palestínumönnum sem sitja í ísraelskum fangelsum. Erlent 21.7.2007 00:30
Þremur matvælafyrirtækjum lokað í Kína Þremur matvælafyrirtækjum hefur verið lokað í Kína og nokkrir hafa verið handteknir í tengslum við matar og lyfjahneyksli þar í landi. Dauði fólks og dýra bæði innanlands og utan hefur verið rakinn til vara frá fyrirtækjunum. Erlent 20.7.2007 22:30
Bamir Topir kosinn forseti Albaníu Albanska þingið kaus Bamir Topir, varaformann Demókrataflokksins, forseta í dag. Sú niðurstaða verður til þess að ekki þarf að ganga til almennra kosninga í Albaníu sem hefði getað seinkað inngöngu landsins í Nató og Evrópusambandið. Erlent 20.7.2007 21:31
Bush undirritar reglur um yfirheyrslur grunaðra hryðjuverkamanna George W. Bush Bandaríkjaforseti undirritaði í dag nýjar reglur um yfirheyrslur grunaðra hryðjuverkamanna. Samkvæmt reglunum verður bannað að beita grimmilegum eða ómannúðlegum yfirheyrsluaðferðum, niðurlægja fanga eða misbjóða trú þeirra. Erlent 20.7.2007 20:21
Flóð valda vandræðum á Englandi Úrhellisrigning og flóð á suður- og austurhluta Englands hefur valdið miklum vandræðum þar í dag. Berkshire varð einna verst úti og sumir íbúar notuðu báta til að komast leiðar sinnar. Þar flæddi einnig inn á rúmlega þrjátíu heimili og loka þurfti skóla. Erlent 20.7.2007 20:04
Bilun í hemlunarbúnaði flugvélarinnar í Brasilíu Komið hefur í ljós að bilun var í hemlunarbúnaði annars hreyfils Airbus farþegaþotunnar sem fórst í Brasilíu á miðvikudag. Í dag tilkynnti Tam flugfélagið að ástand þotunnar hafi verið í samræmi við notkunarreglur framleiðandans sem samþykktar eru af flugumferðaryfirvöldum í Brasilíu. Erlent 20.7.2007 18:54
Varar við að lausn fanga séu mútur Ismail Haniyeh leiðtogi Hamas og fyrrverandi forsætisráðherra Palestínu varar við því að lausn 250 palestínskra Fatah fanga sé notuð sem gildra, eða mútur af hálfu Ísraelsmanna til bráðabirgðastjórnarinnar í Palestínu. Erlent 20.7.2007 18:51
Skorinn á háls vegna rispu á bíl Nítján ára kínverskur karlmaður var skorinn á háls í Västerås í Svíþjóð í gær með þeim afleiðingum að hann lést. Lögreglan í Svíþjóð hefur lýst eftir 28 ára gömlum karlmanni í tengslum við morðið. Atvikið átti sér stað á bílaplani og höfðu mennirnir mælt sér mót þar til að gera upp rispu á bíl hins meinta morðingja. Erlent 20.7.2007 18:42
Komið að ögurstund fyrir botni Miðjarðarhafs Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra segist skynja það sterkt í Ísrael og Palestínu að komið sé að ögurstund í friðarmálum fyrir botni Miðjarðarhafs. Hún segir þjóðirnar í hlekkjum ótta vegna komandi kynslóða. Íslendingar eigi ekki að skorast undan því að taka sér hlutverk í friðarferlinu. Erlent 20.7.2007 18:36
Reykingar gegn Parkinson Reykingamönnum steðjar helmingi minni ógn af Parkinson sjúkdómnum en reyklausum. Raunar minnka líkurnar á að sjúkdómurinn myndist eftir því hve viðkomandi hefur reykt lengi. Þetta er niðurstaða vísindamanna við Háskólann í Kaliforníu. Erlent 20.7.2007 18:05
Rússar vilja sættast við Breta Utanríkisráðherra Rússlands sagði í dag að hann vonaðist til þess að eðlileg samskipti kæmust á milli Bretlands og Rússlands, eftir að Rússar ráku fjóra breska sendifulltrúa úr landi. Það var í hefndarskyni fyrir að Bretar gerðu fjóra Rússa landræka. Og það gerðu Bretar vegna þess að Rússar vilja ekki framselja meintan morðingja KGB njósnarans Litvinenkos, sem var myrtur í Lundúnum. Erlent 20.7.2007 15:38
Áhrif Uriah Heep á fiska Finnskur vísindamaður er með heldur athyglisverða rannsókn í burðarliðnum. Á tónleikum bresku rokksveitarinnar Uriah Heep hyggst hann koma upp fimmhundruð þúsund lítra fiskabúri, fullu af fiskum, við hlið sviðsins. Á meðan tónleikum stendur ætlar hann sér að fylgjast grannt með áhrifum dynjandi þungarokksins á heilsu og atferli fiskanna. Erlent 20.7.2007 15:26
Mótmæla stórri mosku í Lundúnum Hátt á þriðja hundrað þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli gegn stórri mosku sem múslimasöfnuður vill byggja í Lundúnum. Moskan yrði kostuð af opinberu fé og kosta milljarða króna. Mótmælendurnir vilja að því fé verði varið til heilbrigðismála. Erlent 20.7.2007 14:36
Nýtt tungl við Satúrnus Nýtt tungl er fundið á braut um reikistjörnuna Satúrnus. Þar með eru þekkt tungl Satúrnusar orðin sextíu talsins. Tunglið sást á myndum sem geimfarið Cassini-Huygens tók. Erlent 20.7.2007 14:24
Fjórar nýjar barnaklámsíður á dag Barnaklámsíðum á netinu fjölgar stöðugt. Samtökin Björgum börnunum segja að fjórar nýjar síður séu opnaðar á hverjum degi. Jafnframt verður efni á þessum síðum æ hrottalegra og jafnvel dæmi um að börnum sé nauðgað í beinni útsendingu. Á það horfa barnaníðingar um allan heim. Erlent 20.7.2007 13:30
Tony Blair hreinsaður af áburði Breski ríkissaksóknarinn tilkynnti í dag að engar sannanir hefðu fundist fyrir því að Verkamannaflokkurinn hafi lofað auðkýfingum aðalstitlum í staðinn fyrir lán og annan fjárhagsstuðning. Því verði engar ákærur lagðar fram. Rannsókn á þessu máli hefur verið sem svart ský yfir ríkisstjórn Tony Blairs síðastliðna 16 mánuði. Erlent 20.7.2007 12:50
Hæstiréttur Pakistan ógildir ákvörðun Musharraf Hæstiréttur Pakistan ógilti í dag brottrekstur æðsta dómara landsins en Pervez Musharraf, forseti Pakistan, rak hann úr embætti fyrir fjórum mánuðum síðan. Iftikhar Chaudhry varð táknmynd og sameiningarafl andstæðinga Musharraf eftir að hann neitaði að samþykkja brottreksturinn. Erlent 20.7.2007 12:47
Síðasti dagur vinnuferðar í Ísrael Formlegri dagskrá í vinnuferð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráðherra til Ísrael og Palestínu lauk nú rétt fyrir fréttir. Ráðherrann heimsótti Aida flóttamannabúðirnar utan við Betlehem í morgun. Búðirnar voru settar á stofn af flóttamannaaðstoð Palestínumanna á sjötta áratugnum. Erlent 20.7.2007 12:46
Blair tekinn við friðarhlutverki Tony Blair hóf formlega hlutverk sitt sem sérstakur sáttasemjari í friðarferlinu fyrir botni Miðjarðarhafs í gær. Þá hélt hinn svokallaði Kvartett Mið-Austurlanda blaðamannafund í Lissabon í Portúgal. Blair vísaði á bug fullyrðingum um að takmarkað umboð hans, og vilji hópsins til að sniðganga Hamasliða, myndi gera verkefnið að engu. Erlent 20.7.2007 12:37
Skvettu málningu á íslenska ræðismannsskrifstofu Málningu var slett á á húsnæði íslensku ræðismannsskrifstofunnar í Edinborg klukkan hálfsex í morgun. Skrifað var með gulum stöfum að allur heimurinn væri að fylgjast með Íslandi. Á tröppur húsnæðisins var málað "Íslandi blæðir". Samkvæmt dagblaðinu Evening news í Skotlandi hafa samtökin Saving Iceland lýst verknaðinum á hendur sér. Erlent 20.7.2007 12:26
Varnarmálaráðuneytið húðskammar Hillary Bandaríska varnarmálaráðuneytið gagnrýnir Hillary Clinton harkalega í svari við bréfi sem hún sendi ráðuneytinu vegna Íraksstríðsins. Í svarinu er hún sögð leggja óvinum Bandaríkjanna lið í áróðursstríði þeirra. Erlent 20.7.2007 10:28
Evrópusambandið reynir að fá sexmenninga til Búlgaríu Evrópusambandið reynir nú hvað það getur til þess að fá fimm búlgarskar hjúkrunarkonur og einn lækni til Búlgaríu. Fólkið á að afplána lífstíðardóm og Evrópusambandið vill að það afpláni í Búlgaríu. Einnig gæti forseti Búlgaríu náðað fólkið ef það fær að afplána dóma sína þar. Erlent 20.7.2007 10:22
Steikin mengar jafn mikið og heimilisbíllinn Framleiðsla á kílói af nautakjöti losar um það bil sama magn gróðurhúsalofttegunda og að keyra heimilisbílinn frá Reykjavík til Blönduóss. Japanskir vísindamenn komust að þessu með útreikningum á ýmsum þáttum nautakjötsframleiðslu. Erlent 20.7.2007 10:03
Brown og Sarkozy funduðu í morgun Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, og Nicolas Sarkozy, forseti Frakka, hittust í morgun í fyrsta sinn síðan þeir tóku við embættum sínum. Á fréttamannafundi sem þeir héldu, sem var í beinni útsendingu hér á Vísi, ræddu þeir um loftslagsbreytingar og þróun mála í Afríku. Erlent 20.7.2007 09:39