Erlent
Evrópsk dagblöð vilja stöðva Tour de France Dagblöð víðs vegar um Evrópu vilja flauta Tour de France keppninna af vegna mikils hneykslis sem við kemur lyfjanotkun hjólreiðkappa. Þrír keppendur hafa verið dæmdir úr leik vegna þessa, tveir féllu á lyfjaprófi og einn mætti ekki í lyfjapróf. Michael Rasmussen, Cristian Moreni og Alexandre Vinokourov hafa verið dæmdir úr leik. Erlent 26.7.2007 17:23
Raul Castro tilbúinn að opna landið fyrir erlendri fjárfestingu Sitjandi forseti Kúbu, Raul Castro, lofaði í dag því að bæta efnahaginn á Kúbu og bauð viðræður við Bandaríkjastjórn þegar að ríkisstjórn George W. Bush væri farin frá völdum. Í dag var byltingardagur Kúbu en þá er haldið upp á fyrstu árás Fidels Castro á herstöð stjórnarinnar árið 1953. Erlent 26.7.2007 16:42
Íslenskir karlmenn eru sko alls engar gungur Íslenskir karlmenn lifa lengst allra karlmanna, eða 79,4 ár. Í öðru sæti koma Japanir með 79 ár slétt. Japanskar konur lifa hins vegar lengst kvenna, eða 85,8 ár. Á eftir þeim koma konur frá Taívan, Spáni og síðan Sviss. Þær íslensku geta vænst þess að lifa 82,6 ár. Erlent 26.7.2007 15:56
Garðsláttur í bikini Umsvifin hjá litlu garðsláttufyrirtæki í Memphis í Tennessee hafa margfaldast eftir að það byrjaði að senda bikini klæddar stúlkur til þess að slá garðana hjá fólki. Karlmenn sem áratugum saman hafa slegið garða sína sjálfir eru allt í einu búnir að fá í bakið, og þurfa nauðsynlega að fá aðra til þess að slá fyrir sig. Erlent 26.7.2007 15:40
20 létust og 60 særðust í bílsprengju í Bagdad í dag 20 létust og fleiri en 60 særðust þegar að bílsprengja sprakk við gatnamót í Karrada hverfinu í miðborg Bagdad í dag. Það kviknaði í að minnsta kosti einni byggingu við sprenginguna og fjölmargir bílar urðu eldinum að bráð. Mestmegnis sjía múslimar búa í Karrada hverfinu í Bagdad. Erlent 26.7.2007 15:40
Logandi kráka kveikti í akri Slökkviliðsstjórinn í Enköping segist aldrei hafa upplifað nokkuð þessu líkt. Atburðarrásin var þannig að krákan flaug á rafmagnslínu og drapst. Það kviknaði í henni og logandi hræið féll niður á akurinn. Þar lá þurrt hey sem kviknaði í. Erlent 26.7.2007 15:20
Fleiri en 50 talibanar felldir í Afganistan í dag Bandarískar hersveitir, með stuðningi flughersins, drápu fleiri en 50 uppreisnarmenn talibana í bardögum í suðurhluta Afganistan í dag. Ekkert mannfall varð hjá bandaríska hernum í átökunum sem stóðu yfir í tólf tíma. Erlent 26.7.2007 14:46
Einn æðsti stjórnendi ETA handtekinn Alfredo Perez, innanríkisráðherra Spánar, skýrði frá því í dag að franska lögreglan hefði handtekið einn af æðstu yfirmönnum ETA. aðskilnaðarhreyfingar Baska, Juan Cruz Maiza Artola. Hann og tveir aðrir meðlimir ETA voru handteknir í bænum Rodez. Perez sagði Artola hafa stjórnað flutningum og aðföngum hjá ETA og því augljóst að handtaka hans sé mjög mikilvægur atburður. Erlent 26.7.2007 14:16
Nakin vændiskona í hásæti Danadrottningar Dönsk vændiskona komst með einhverjum furðulegum hætti inn í hásætissalinn í Kristjánsborgarhöll. Þar svipti hún sig klæðum, stillti upp myndavél og tók 29 mynda syrpu af sjálfri sér. Meðal annars tók hún myndir af sér í hásæti Margrétar Danadrottningar. Og þar sem hún sat klofvega á sætisörmunum á hásæti drottningarinnar og Hinriks prins. Erlent 26.7.2007 14:01
Prinsessan er útsendari helvítis Þekktur norskur prestur hefur ráðst heiftarlega á Mörtu Lovísu prinsessu eftir að hún upplýsti að hún gæti talað við engla og dýr, og stofnaði nýaldar-skóla ásamt vinkonu sinni. Jan Hanvold sem er frægur sjónvarpsprestur segir að prinsessan sé útsendari frá helvíti. Erlent 26.7.2007 13:30
Sjálfsmorðshrina skekur franskan kjarnorkuiðnað Allt að 400 Frakkar fremja sjálfsmorð á ári hverju sökum mikils álags í vinnunni samkvæmt opinberum tölum. Verst er ástandið í kjarnorkuiðnaðinum en þar hafa kröfur og álag á starfsmenn aukist gríðarlega á síðastliðnum áratug. Í einu kjarnorkuveri í Mið-Frakklandi hafa þrír starfsmenn framið sjálfsmorð frá síðustu áramótum. Erlent 26.7.2007 12:29
Tveir látnir í flóðunum í Bretlandi Tveir létust í flóðunum í Bretlandi þegar þeir reyndu að dæla vatni úr íþróttahúsi í Gloucesterskíri og eins er saknað síðan á laugardag. Enn eru 340 þúsund manns án neysluvatns og óttast er að skítugt flóðvatnið geti stofnað heilsu fólks í hættu. Erlent 26.7.2007 12:25
Mannrán borga sig Hópur háttsettra Suður-kóreskra embættismanna hélt í dag til Kabul til að reyna að fá 22 Suður-Kóreumenn leysta úr haldi talibana. Mannræningjarnir myrtu einn úr hópnum í gær. Talsmaður talibana segir það reynast afar vel að ræna erlendum ríkisborgurum. Erlent 26.7.2007 12:21
Rússar segja að kjarnorkuver hefji starfsemi snemma á næsta ári Aðstoðarutanríkisráðherra Rússa tilkynnti í morgun að kjarnorkuverið sem þeir séu að byggja í Íran hefji starfsemi sína á fyrri hluta næsta árs. Rússar hafa sætt mikilli gagnrýni fyrir að byggja kjarnorkuverið og höfðu því tafið framkvæmdir við það. Erlent 26.7.2007 11:10
Bloomberg opnar vefsíðun Mike2008.com Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hefur opnað vefsvæðið Mike2008.com en margir telja það benda til þess að hann ætli sér að bjóða sig fram sem óháður frambjóðandi í forsetakosningunum á næsta ári. Á nýju heimasíðu sína skrifar Bloomberg að þar fái fólk tækifæri til þess að kynnast honum og stefnumálum hans. Erlent 26.7.2007 10:37
Enn unnið að lausn 22 Suður-Kóreumanna Stjórnvöld í Suður-Kóreu vinna enn að því að reyna að tryggja lausn 22 Suður-Kóreumanna sem talibanar halda í gíslingu. Talibanar hafa þegar tekið einn gísl af lífi en þeir krefjast þess að Suður-Kórea dragi alla hermenn sína frá Afganistan og láti lausa talibana í haldi bandamanna. Erlent 26.7.2007 10:00
Þjóðverjar hatast við Tom Cruise Tom Cruise hefur orðið fyrir heiftarlegum árásum opinberra aðila í Þýskalandi. Þar hefur hann verið við tökur á kvikmynd um tilræðið við Adolf Hitler í júlí árið 1944. Cruise hefur meðal annars verið líkt við Jósef Göbbels, áróðursmeistara Hitlers. Óánægja Þjóðverja virðist eiga sér trúarlegar rætur. Erlent 26.7.2007 09:52
Putin ætlar að halda völdum yfir leyniþjónustunni Aðstoðarmenn Vladimir Putin, forseta Rússlands, hafa ákveðið að auka völd sérstaks öryggisráðs og gera það nærri jafn valdamikið og ríkisstjórnina. Putin hefur ítrekað sagt að hann ætli sér að halda pólitískum áhrifum þegar að hann yfirgefur embætti forseta á næsta ári og talið er að öryggisráðið geti orðið valdastöð hans. Erlent 26.7.2007 09:36
Öflugur jarðskjálfti í Indónesíu Öflugur neðansjávarjarðskjálfti skók Norð-austur Indónesíu laust fyrir sex í morgun. Skjálftinn, sem var 6.6 stig á Richter varð á 45 kílómetra dýpi um 200 kílómetra norður af Ternate borg. Þar þusti fólk í örvæntingu út úr húsum sínum, en ekki virðast hafa orðið alvarleg slys á fólki eða skemmdir á mannvirkjum. Erlent 26.7.2007 08:36
Offita er smitandi Svo virðist sem offita sé smitandi. En það að eiga vini, systkyni eða maka sem er feitur stóreykur líkurnar á því að maður verði það sjálfur. Erlent 26.7.2007 08:03
Michael Rasmussen rekinn úr Tour De France Fremsti maður í Tour De France hjólreiðunum, Daninn Michael Rasmussen, hefur verið rekinn úr liði sínu og keppninni. Þetta var gert þegar upp komst um að hann hefði logið því að hann hefði verið staddur í Mexíkó þegar hann átti að mæta í lyfjapróf í Evrópu í júní. Erlent 26.7.2007 07:15
Dönsku fórnarlambi mannræningja sleppt vegna réttra trúarbragða Dönskum blaðamanni sem var rænt fyrir tveimur vikum síðan í Kunar sýslu í Afganistan var sleppt stuttu síðar þegar mannræningjar hans komust að því að hann væri múslimi. Talibanarnir sem rændu honum töldu sig hafa þýskan blaðamann undir höndum. Erlent 26.7.2007 07:09
Öryggisráðstafanir á flugvöllum eru hættulegar Auknar öryggisráðstafanir á flugvöllum vegna hryðjuverkaógnarinnar eru beinlínis hættulegar fyrir farþega. Nefnd á vegum breska þingsins sagði að hundruða manna raðir á flugvöllum gætu verið álitleg skotmörk hryðjuverkamanna. Erlent 26.7.2007 07:03
Enn hækkar í Thames Vatnsborð hækkar enn í Thames ánni vestur af London og spáð er áframhaldandi mikilli rigningu á flóðasvæðunum. Flóðin í Oxford gætu versnað enn frekar og bæir eins og Reading neðar við ánna verið í hættu. Erlent 26.7.2007 06:59
Herlið Dana farið frá Írak Danir hafa dregið meginþorra herliðs síns heim frá Írak, tveimur vikum fyrr en áætlað var. Nú eru einungis 150 hermenn eftir af þeim 400 sem upprunalega voru sendir þangað, en hinir dvelja nú í Kúveit. Talsmenn danska hersins segja þetta ekki gert af öryggsástæðum, heldur hafi gengið betur en við var búist að ganga frá flutningunum. Erlent 26.7.2007 06:59
Olmert segist ætla að semja við Abbas Utanríkisráðherra Egyptalands og Jórdaníu kynntu ísraelskum ráðamönnum formlega friðartillögur Arababandalagsins. Heimsókn þeirra þykir söguleg. Erlent 26.7.2007 06:00
Eflir herinn og eykur njósnir Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagðist í gær ætla að styrkja her landsins og auka njósnir í öðrum löndum. Aðgerðir Pútíns eru svar við hugmyndum Bandaríkjamanna um að koma upp eldflaugavarnakerfi í Póllandi og Tékklandi og senda bandarískt herlið til Austur-Evrópu. Erlent 26.7.2007 05:45
Fólk varað við að kyssast Kínversk stjórnvöld vara fólk við því að kyssast mikið á almannafæri, því slíkt athæfi gæti náðst á öryggismyndavélar og vakið grun um afbrot. Erlent 26.7.2007 05:30
Hundruð dóu í síðasta mánuði Um 430 manns hafa látist úr hungri í Norður-Kóreu á síðustu vikum. Þetta fullyrða hjálparsamtökin Góðir vinir, sem hafa bækistöðvar í Suður-Kóreu. Erlent 26.7.2007 05:15
Laug að konan sín væri dáin Vitalie Varince, 38 ára gamall moldóvskur yfirmaður í verksmiðju, fékk lánaðar tæplega 370 þúsund krónur frá starfsmönnum sínum til að borga fyrir jarðarför eiginkonu sinnar, sem hann sagði hafa látist í bílslysi þegar hún var ófrísk. Konan var hins vegar enn sprelllifandi. Erlent 26.7.2007 05:00