Erlent
Öll spjót beinast að móður Madeleine Portúgalska lögreglan telur sig hafa nægar sannanir til að ákæra móður Madeleine McCann fyrir manndráp af gáleysi. Breska blaðið Times fullyrðir þetta í dag. Í kvöld hafði svo Sky-fréttastofan eftir heimildarmönnum að DNA sýni Madeleine hefðu fundist í bílaleigubíl hjónann sem þau tóku á leigu eftir að hún hvarf. Erlent 10.9.2007 19:07
Bandarískum hermönnum ekki fækkað strax Meira en helmingur Íraka segir árásir á bandaríska hermenn í landinu réttlætanlegar. Skýrsla um framvindu stríðsins í Írak var kynnt í dag. Þar er lagt til að bandarískum hermönnum verði ekki fækkað fyrr en næsta sumar. Erlent 10.9.2007 19:05
Gengur vel í Írak Árangur þess að fjölga í herlilði Bandaríkjamanna í Írak er að mestu í samræmi við markmið. Þetta sagði yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Írak, hershöfðinginn David Petraeus, í skýrslu um framvindu stríðsins í landinu sem hann kynnti fyrir Bandaríkjaþingi í dag. Erlent 10.9.2007 18:39
Nægar sannanir gegn móður Madeleine -The Times Breska blaðið The Times segir að portúgalska lögreglan telji sig hafa nægar sannanir til þess að ákæra móður Madeleine MCann fyrir manndráp af gáleysi. Jafnframt verði hún þá kærð fyrir að fela lík telpunnar. The Times segir að lögreglan hafi orðið fjúkandi reið þegar hætt var við að kæra Kate McCann, eftir að lögfræðingur hennar hafði átt fund með ríkissaksóknara Portúgals. Erlent 10.9.2007 16:39
Talibanar segjast tilbúnir til viðræðna Háttsettur talsmaður Talibana í Afganistan segir að þeir séu reiðubúnir til viðræðna við ríkisstjórn Hamids Karzai, forseta landsins um að binda enda á sex ára skæruhernað. Karzai sendi Talibönum tilboð um viðræður, vegna vaxandi blóðsúthellinga í landinu. Hann sagði að friður næðist ekki ef menn töluðu ekki saman. Erlent 10.9.2007 15:44
Allir netnotendur geta nú leitað að Fossett Allir netnotendur í heiminum geta nú tekið þátt í leitinni að auðkýfingnum Steve Fossett með því að greina svæðið sem hann hvarf á. Um er að ræða óvenjulegt samstarf milli Richard Branson vinar Fossett og net-fyrirtækjanna Amazon og Google. Erlent 10.9.2007 15:01
Time fær risasekt í Indónesíu Bandaríska vikuritið Time hefur verið dæmt í 107 milljóna dollara sekt fyrir hæstarétti í Indónesíu, fyrir að móðga fyrrverandi forseta landsins. Ástæðan fyrir málaferlum var sú að árið 1999 birti Time frétt þar sem því var haldið fram að Suharto fjölskyldan hefði safnað miklum auði meðan hann var forseti. Erlent 10.9.2007 14:24
23 létust í sprengingu í Mexíkó Í það minnsta 23 létust þegar vörubíll hlaðinn sprengiefni lenti í árekstri við annan bíl og sprakk í loft upp í norðurhluta Mexíkó í dag. Sprengingin var að sögn mexíkóskra fjölmiðla svo öflug að hún skildi eftir sig tuttugu metra breiðan gíg í götunni. Flestir hinna látnu voru vegfarendur, og blaðamenn sem þustu að vettvangi slyssins og urðu fyrir sprengingunni. Erlent 10.9.2007 14:22
Nefnd kortleggur palestinskt ríki Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels og Mahmoud Abbas forseti Palestínumanna náðu í dag samkomulagi um aðskipa sameiginlega nefnd til þess að kortleggja sjálfstætt ríki palestínumanna. Leiðtogunum er í mun að hafa náð einhverjum árangri áður en Condoleeza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur til Miðausturlanda í næstu viku. Erlent 10.9.2007 13:49
Rangur skóli að ræna Ræningi í Kólumbíu valdi sér rangan skóla til þess að veifa skammbyssu sinni í. Hann ruddist inn með miklum bæggslagangi og heimtaði alla peninga sem allir væru með. Lögreglan kom mátulega fljótt á vettvang til þess að flytja hann á sjúkrahús. Sem betur fór var stutt þangað frá karate-skólanum. Erlent 10.9.2007 13:19
Íþróttafréttamaður tæklaður í beinni Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbíleik fyrir utan leikvang í Melbourne þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar. Erlent 10.9.2007 12:45
Abbas og Olmert funda Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna, og Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, hittust til að ræða mögulega stofnun palestínsk ríkis á fundi í Jerúsalem í morgun. Fundur leiðtoganna er haldinn svo þeir geti stillt saman strengi sína fyrir ráðstefnu um málið í nóvember sem Bandaríkjamenn hafa boðað til. Erlent 10.9.2007 12:30
Barinn í beinni Íþróttafréttamaður ástralskrar sjónvarpsstöðvar varð fyrir heldur óskemmtilegri reynslu í beinni útsendinu í gærkvöldi. Hann var að greina frá úrslitum í rúgbí leik fyrir utan leikvang í Melborun þegar óð rúgbíbulla tæklaði hann til jarðar. Hópur manna réðst þá að fréttamanninum, Ben Davis, og gekk í skrokk á honum. Erlent 10.9.2007 12:30
Kom og fór Sjö ára útlegð Nawas Sharifs, fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, lauk í morgun en hún hófst aftur sex klukkustundum eftir heimkomuna. Músharraf lét vísa þessu svarna óvini sínum úr landi til að forða sér frá hatrammri deilu um forsetaembættið. Erlent 10.9.2007 12:15
Saksóknari fær gögn Saksóknari í Portúgal fær í dag í hendurnar gögn vegna rannsóknar á hvarfinu á bresku telpunni Madeleine McCann. Um er að ræða það sem lögregla hefur aflað eftir að foreldrar stúlkunnar fengu réttarstöðu grunaðra í málinu í síðustu viku. Erlent 10.9.2007 12:15
Telja öryggi sitt minna eftir herferð Bandaríkjamanna Sjö af hverjum tíu Írökum telja að öryggi á þeim stöðum þar sem Bandaríkjamenn hafa farið um í herferð sinni síðustu mánuði hafi versnað. Þetta leiðir skoðanakönnun á vegum BBC, ABC-fréttastofunnar og fleiri í ljós. Erlent 10.9.2007 11:43
Finna gömul flök en ekki Fossett Björgunarlið sem nú leitar að bandaríska ævintýramanninum Steve Fossett í Nevada eyðimörkinni í Bandaríkjunum hafa fundið sex flugvélaflök sem aldrei hafa fundist áður, en ekkert hefur spurst til Fossets. Erlent 10.9.2007 08:34
Önnur umferð í Gvatemala Samkvæm fyrstu tölum þarf að efna til annarar umferðar í forsetakosningunum í Gvatemala sem fram fóru í gær. Hershöfðinginn fyrrverandi, Otto Perez Molina er með 26 prósent atkvæða en vinstrimaðurinn Alvaro Colom og stjórnarsinninn Alejandro Giammetti komu skammt á eftir en þeir fengju báðir 22 prósent atkvæða verði þetta lokatölur. Erlent 10.9.2007 08:29
Flugumferð á Jótlandi í eðlilegt horf Flugumferð til og frá Jótlandi er komin í eðlilegt horf á nýjan leik eftir að flugvél frá SAS flugfélaginu hlekktist á í lendingu á flugvellinum í Álaborg í gær. Rannsóknanefnd flugslysa hóf rannsókn á óhappinu í gær og hefur vélin verið flutt af flugbrautinni. Erlent 10.9.2007 08:26
Sharif sendur aftur í útlegð Fyrrverandi forsætisráðherra Pakistans, Nawas Sharif, hefur verið sendur úr landi. Sharif snéri aftur úr útlegð í morgun og hafði hann lýst því yfir að hann hyggðist leiða baráttuna gegn forseta landsins, Pervez Musharaf í komandi kosningum. Erlent 10.9.2007 08:01
Hvar er barnið? Foreldrar geta nú vitað nákvæmlega hvar börnin þeirra eru á hverjum tíma með því að hafa staðsetningartæki í símunum þeirra. Disney og Wherifone lofa þó að vörn sé í staðsetningartækinu til þess að ókunnugir geti ekki misnotað slík tæki. Erlent 10.9.2007 07:00
Þýska lögreglan leitar að 8 ára stúlku Lögreglan í Hannover í Þýskalandi leitar nú af hinni 8 ára gömlu stúlku Jenisu sem hefur saknað síðan á hádegi á föstudag. Stúlkan fór frá heimili sínu í þeim tilgangi að heimsækja frænku sína en ekkert hefur til hennar spurst síðan þá. Lögreglan útilokar ekki að stúlkunni hafi verið rænt. Erlent 9.9.2007 23:00
ETA heitir frekari sprengjuárásum á Spáni Meðlimir í basknesku aðskilnaðarsamtökunum ETA á Spáni heita því að halda áfram sprengjuárásum í landinu. Þetta kom fram í yfirlýsingu sem samtökin sendu frá sér í dag. Þau telja að friðarsamkomulagið sem gert var á síðasta ári sýni að það sé tilgangslaust að semja við núverandi stjórnvöld á Spáni. Erlent 9.9.2007 22:45
Tveir særðust í átökum lögreglu og mótmælenda í Malasíu Tveir særðust þegar til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu á heimasvæðum múslima í norðausturhluta Malasíu. Óeirðirnar brutust út í gærkvöldi þegar aðskilnaðarflokkur múslima sem krefst sjálfstæði frá Malasíu hélt útifund. Erlent 9.9.2007 22:45
Aurskriða fellur í Sunndal í Noregi Flytja þurfta íbúa af heimilum sínum í Litjdalen við Sunndal í Noregi í gærkvöldi eftir að aurskriða féll á hús þeirra. Skriðan var um 20 metrar að breidd en nokkrar aurskriður hafa fallið í Sunndal og Romsdal í Noregi á undanförnum dögum. Engan sakaði. Erlent 9.9.2007 22:30
Blóðug kosningabarátta í Gvatemala Íbúar í Suður-Ameríkuríkinu Gvatemala gengu að kjörborði í dag og kusu sér forseta í einni af blóðugustu kosningabaráttu sögunnar. Rúmlega 50 frambjóðendur, stjórnmálamenn og ættingjar þeirra hafa verið myrtir í aðdraganda kosninganna. Erlent 9.9.2007 21:22
Drápu hval með vélbyssu Bandaríska strandgæslan hefur í sínu haldi fimm indjána af Makah ættbálknum í Washingtonfylki en mennirnir eru grunaðir um að hafa drepið hval með því að skutla hann og skjóta með vélbyssu. Að mati strandgæslunnar falla þær aðferðir sem notaðar voru til að drepa hvalinn ekki undir hinar svokölluðu frumbyggjaveiðar. Erlent 9.9.2007 20:24
Nýnasistar handteknir í Ísrael Fyrirfram hefði mátt ætla að engir nýnasistar væru í Ísrael. Lögreglan þar í landi hefur þó handtekið átta slíka. Erlent 9.9.2007 19:02
Sprengja átti Nørreport lestarstöðina á næstu dögum Líklegt er að sprengiefnið sem danska leyniþjónustan fann í hryðjuverkaaðgerðunum í Kaupmannahöfn aðfaranótt þriðjudags hafi átt að nota á næstu dögum til að sprengja upp Nørreport lestarstöðina. Erlent 9.9.2007 19:00
SAS flugvél nauðlendir á flugvellinum í Álaborg Flugvél frá flugfélaginu SAS þurfti að nauðlenda á flugvellinum í Álaborg í Danmörku í dag eftir að hjólabúnaður vélarinnar bilaði í flugi. Við nauðlendingu kviknaði í öðrum hreyfli vélarinnar, sem er skrúfuvél af gerðinni Dash 8/Q400. Alls voru 76 farþegar um borð auk áhafnar en engan sakaði. Erlent 9.9.2007 17:55