Erlent
Ferðir sendifulltrúa takmarkaðar Bandarískum sendifulltrúum í Írak er nú bannað að ferðast utan Græna svæðisins svokallaða í Bagdad. Þetta var ákveðið eftir að írösk yfirvöld bönnuðu starfsemi verktakafyrirtækisins Blackwater í landinu. Fyrirtækið hefur annast gæslu sendifulltrúa. Erlent 19.9.2007 12:16
Spútnik fimmtíu ára Fyrir fimmtíu árum greip um sig mikil skelfing í Bandaríkjunum vegna áttatíu og þriggja kílóa málmbolta. Risastórar fyrirsagnir í blöðunum voru eins og heimsendir væri í nánd. Í herstöðvum Bandaríkjanna víða um heim fengu allir skammbyssur sem þeir áttu að bera á sér dag og nótt. Ástæðan fyrir þessari skelfingu var sú að málmboltinn var á braut um jörðu. Og Rússar höfðu sent hann þangað. Erlent 19.9.2007 11:26
Danskir hermenn særast í Afganistan Tveir danskir hermenn særðust í morgun í bardaga við talíbana í Helmandsýslu í Afganistan. Annar hermannnanna var skotinn í brjóstið og aðra höndina, en hinn fékk skot í fótlegg. Mennirnir voru fluttir á hersjúkrahús en eru ekki í lífshættu. Danskar hersveitir berjast nú undir stjórn breska hersins í Halmandsýslu. Erlent 19.9.2007 10:53
Móðir finnst látin á sama stað og dóttir hennar nokkrum vikum áður Móðir táningsstúlku sem fannst látin á lestarteinum í Bretlandi fyrir fimm vikum fannst í gær látin á sama stað. Hin sautján ára Natasha Coombs hvarf þegar hún var á leið heim eftir kvöldstund með vinkonum sínum á veitingastað í Ipswich þann 27. júlí. Tveimur vikum áður hafði hún hætt með kærastanum sínum, og var leið yfir því. Hún fannst svo 10. ágúst í kjarri nálægt lestarteinum í nágrenninu. Hún hafði orðið fyrir lest. Erlent 19.9.2007 10:38
:-) 25 ára í dag Broskallinn góðlegi sem hóf líf sitt sem tölvutákn er 25 ára í dag. Glaðlega andlitið sem birtist yfirleitt á hlið er nú notaður í milljörðum tölvupósta á degi hverjum. Hann var skapaður af prófessor Scott Fahlman, tölvusérfræðingi í Pittsburg í Bandaríkjunum. Erlent 19.9.2007 10:28
Gullhornin fundin-fjögur handtekin Lögreglan í Danmörku hefur fundið Gullhorn þau sem stolið var um síðustu helgi og hefur handtekið fjóra, tvo karla og tvær konur vegna málsins. Einnig hefur fundist 9000 ára gamall rafskartgripur í líki skógarbjörns úr innbrotinu. Erlent 19.9.2007 07:50
Einfrumungur drepur þrjá drengi Heilbrigðisyfirvöld í Flórída aðvara nú fólk um að halda sig frá vötnum sem eru meir en 28 gráðu heit á Orlando-svæðinu því lífshættulegur einfrumungur hefur tekið sér bólfestu í þeim. Aðvörunin kemur í kjölfar þess að þrír ungir drengir hafa látist með skömmu millibili af völdum þessa einfrumungs. Erlent 19.9.2007 07:46
Bróðir númer tvö handtekinn Fyrrum næstæðsti yfirmaður Rauðu Kmeranna í Kambódíu, Nuon Chea, hefur verið handtekinn af sérstökum dómstól á vegum Sameinuðu þjóðanna sem rannsakar nú fjöldamorð Kmeranna á valdatíð þeirra í landinu. Erlent 19.9.2007 06:49
Loftsteinn veldur veikindum Hundruð manna hafa þurft að leita sér læknishjálpar í þorpinu Carancas í Perú eftir að það sem talið er loftsteinn féll til jarðar í grennd þess og gufur úr gígnum eftir steininn lagði yfir svæðið. Fólk sem hefur farið að skoða gíginn kvartar undan ógleði, höfuðverkjum, uppköstum og svima. Erlent 19.9.2007 06:35
Tvær milljónir Kínverja flýja heimili sín Rúmlega tvær milljónir íbúa Sjanghæ og nærliggjandi svæða hafa þurft að yfirgefa heimili sín í dag. Fellibylurinn Wipha skellur á svæðinu á morgun en sérfræðingar óttast að stormurinn sé sá versti í áratug. Erlent 18.9.2007 22:48
Elsti maður heims 112 ára í dag Japaninn Tomoji Tanabe, sem er talinn vera elsti núlifandi karlmaðurinn, hélt upp á 112 ára afmæli sitt í dag. Hann hefur aldrei snert áfengi og segir það vera leyndarmálið á bak við langlífi sitt. Erlent 18.9.2007 20:21
Fjöldi tungumála í útrýmingarhættu Málvísindamenn óttast að á komandi árum muni fjöldi tungumála í útrýmingarhættu aukast hratt. Mörg eru nú þegar nánast útdauð. Þeir hafa skilgreint fimm svæði í heiminum þar sem vandamálið er hvað verst. Tungumál frumbyggja í norðurhluta Ástralíu er talið vera í hvað mestri útrýmingarhættu. Erlent 18.9.2007 20:03
Kærðir fyrir að brjóta viðskiptabann á Íran Bandarísk yfirvöld kærðu í dag hollenskt fyrirtæki fyrir brjóta gegn viðskiptabanni Bandaríkjamanna á Íran. Hollenska fyrirtækið keypti flugvélaparta frá Bandaríkjunum og endurseldi þá til Írans. Eigandi fyrirtækisins á yfir höfði sér 50 ára fangelsi og sekt upp á allt að 65 milljónir króna verði hann fundinn sekur. Erlent 18.9.2007 19:08
Óttast um móður yfirgefnu stúlkunnar Óttast er um afdrif móður stúlkunnar sem var skilin eftir á brautarpalli í Melbourne í Ástralíu nýlega. Leitað er að föðurnum um allan heim. Pabbinn sem skildi fjögurra ára dóttur sína, Qian Xun Xue, eftir á brautarpalli í Melbourne er enn ekki kominn fram, þó leitað sé um allan heim. Erlent 18.9.2007 18:46
Breska stjórnin ver sparifjáreigendur Breska stjórnin hefur heitið sparifjáreigendum því að þeir muni ekki tapa innistæðum sínum hjá Northern Rock, bankanum sem hefur staðið tæpt undanfarna daga. Erlent 18.9.2007 18:44
Evrópusambandið endurskoðar innflutningsbann Sérfræðingar hjá Evrópusambandinu munu endurskoða innflutningsbann á breskar landbúnaðarvörur um næstu mánaðamót. Evrópusambandið lokaði á allan innflutning á fersku kjöti, búfénaði og mjólkurafurðum frá Bretlandseyjum í síðustu viku eftir að gin-og klaufaveikismit greindist á nautgripabúi í suðurhluta Englands. Erlent 18.9.2007 17:40
Tímamótabreyting á stjórnarskrá Zimbabwe Stærsti stjórnarandstöðuflokkur Zimbabwe segir að náðst hafi samkomulag við ríkisstjórnina um lagabreytingu á stjórnarskránni. Um er að ræða tímamótabreytingu sem kemur flestum mjög á óvart. Breytingarnar munu gera sameiginlegt framboð til þing- og forsetakosninga mögulegar árið 2008. Þær munu meðal annars leiða af sér fjölgun þingmanna. Erlent 18.9.2007 17:07
Írakar endurskoða öryggisfyrirtæki Yfirvöld í Írak segja að þau muni endurskoða stöðu allra öryggisfyrirtækja í einkaeigu sem stunda rekstur í landinu. Yfirlýsingin kemur eftir að byssubardagi öryggisvarða í Baghdad kostaði átta óbreytta borgara lífið. Ríkisstjórnin sagði að hún vildi komast að því hvort fyrirtækin færu eftir lögum í landinu. Erlent 18.9.2007 16:29
Löggur reknar í kippum Héraðsstjórinn í Uttar Pradesh héraði í Indlandi hefur rekið um 10.500 lögregluþjóna úr starfi á einni viku. Héraðsstjórinn segir að þeir hafi keypt sér embættin til þess að geta hagnast á mútum og öðru ólöglegu athæfi. Yfir 22000 lögregluþjónar eru enn til rannsóknar og viðbúið að einhverjir þeirra verði einnig reknir. Erlent 18.9.2007 15:43
Athyglina aftur á leitina að Madeleine Fjölskylda Madeleine McCann kallaði í dag eftir því að endi yrði bundinn á stjórnlausar vangaveltur um málið og að athygli yrði aftur beint að leit stúlkunnar. Clarence Mitchell talsmaður fjölskyldunnar sagði að vangaveltur um hvort Kate og Gerry McCann hefðu harmað dóttur sína væru eins „fáránlegar og þær væru fjarstæðukenndar.“ Erlent 18.9.2007 15:18
Sádi-Arabískar konur vilja ökubanni aflétt Konur í Sádi-Arabíu berjast nú í fyrsta sinn fyrir því að fá ökubanni kvenna í konungsríkinu verði aflétt. Meðlimir í nefnd sem beitir sér fyrir þessum rétti kvenna munu leggja fram beiðni við þingið fyrir sunnudag, en þá er þjóðhátíðardagur landsins. Erlent 18.9.2007 14:18
Rússar óttast stríðsátök í Íran Sergei Lavrov utanríkisráðherra Rússa lét í dag hafa eftir sér að hann hræddist yfirvofandi hættu á stríði í Íran eftir samtal við franska utanríkisráðherrann, Bernard Kouchner. Á sunnudag ollu ummæli Kouchners um Íran mikilli spennu í Teheran, en hann sagði að heimurinn yrði að „undirbúa sig fyrir það versta, og það versta væri stríð.“ Erlent 18.9.2007 13:56
Þriðji maðurinn handtekinn í Simpson málinu Karlmaður á sextugsaldri var handtekinn í Las Vegas í Bandaríkjunum í dag í tengslum við vopnað rán sem framið var á hótelherbergi í borginni á fimmtudag. O.J. Simpson var handtekinn í fyrrakvöld fyrir meinta aðild að ráninu á The Palace Station hótelinu. Erlent 18.9.2007 13:37
Abe áfram á sjúkrahúsi Shinzo Abe forsætisráðherra Japans verður áfram á spítala og alls óvíst er hvenær hann kemur aftur til vinnu. Erlent 18.9.2007 12:10
Biðraðir minnka við Northern Rock Hlutabréfaverð í Northern Rock bankanum í Bretlandi hækkaði á ný í morgun eftir að bresk stjórnvöld hétu því að sparifjáreigendur myndu engu tapa á viðskiptum sínum við bankann. Erlent 18.9.2007 12:10
Franska stjórnin ósammála um innflytjendafrumvarp Ráðherrar í Frakklandi hafa brugðist ókvæða við frumvarpi eigin stjórnar um að skylda innflytjendur til að fara í DNA rannsókn og frönskupróf. Erlent 18.9.2007 12:08
Mikill vindsnúningur þegar vélin fórst Háttsettur embættismaður í taílensku flugumferðarstjórninni segir að mikill vindsnúningur hafi orðið í þann mund sem vélin sem fórst á Phuket-flugvelli var að lenda. Áttatíu og níu manns fórust þegar vélin brotlenti, og brann. Embættismaðurinn segir að flugmenn vélarinnar hafi vitað af þessum vindsnúningi. Erlent 18.9.2007 11:45
Portúgalska lögreglan á ystu nöf? Portúgalskir fjölmiðlar velta því nú fyrir sér hvort þarlend lögregluyfirvöld hafi farið út á ystu nöf með því að bendla foreldra Madeleine við dauða hennar. Efi á sakleysi McCann hjónanna hefur dvínað og almenningsálitið snúist þeim aftur í vil eftir að portúgalskur dómari neitaði að fyrirskipa að Kate skyldi snúa aftur til yfirheyrslu. Erlent 18.9.2007 10:59
Grænlensk börn fara svöng í rúmið Níu prósent barna á Grænlandi lifa neðan við fátækramörk, samkvæmt nýrri rannsókn sem gerð hefur verið þar í landi. Stjórnandi rannsóknarinnar, Sissel Lea Nielsen, segir að fátækt grænlenskra barna eigi sér margar birtingarmyndir. Til dæmis hafi foreldrar ekki efni á að láta börn sín taka þátt í tómstundaiðkun og félagslífi. Erlent 18.9.2007 10:53
Óttast um móður lestarstöðvar-stúlkunnar Lögregla í Ástralíu, Nýja Sjálandi og Bandaríkjunum leitar nú foreldra þriggja ára stúlku sem skilin var eftir á lestarstöð í Ástralíu á laugardag. Óttast er um móður stúlkunnar sem hefur ekki sést síðan 10. september. Bíll konunnar sem er kínversk fannst við flugvöllin í Auckland á Nýja Sjálandi í gær. Erlent 18.9.2007 10:23