Erlent
Tsjad - Börnin 103 send til foreldra sinna Ríkisstjórnin í Tsjad hefur heimilað að börnin 103 sem reynt var að smygla úr landi í október síðastliðinn fái að fara heim. Sex franski meðlimir góðgerðarsamtakanna Örk Zoe voru dæmdir fyrir að tilraun til að ræna börnunum frá Tsjad og segja að þau væru munaðarlaus börn frá hinu stríðshrjáða Darfur héraði í Súdan. Flest barnanna reyndust hins vegar eiga foreldra í Tsjad sem liggur við landamæri Súdan. Erlent 7.3.2008 12:45
Rannsaka hugsanleg tengsl á milli sprenginga Lögreglan í Ribe í Danmörku hefur handtekið tvo unga karlmenn sem grunaðir eru um að vera viðriðnir sprengingu á matsölustað í bænum Bramming á Jótlandi. Ung kona lét lífið í sprengingunni. Erlent 7.3.2008 12:45
Ástralska lögreglan upprætir mansals-glæpahring Ástralska lögreglan segist hafa upprætt alþjóðlegan mansals-glæpahring eftir björgun tíu suður-kóreskra kvenna úr vændishúsum í Sydney. Fimm manns hafa verið handteknir og meðal annars ákærðir fyrir mansal og skuldaánauð. Erlent 7.3.2008 12:07
Þúsundir syrgja nemendur í prestaskóla Þúsundir manna hafa safnast saman við Mercas Harav prestaskólann í Jerúsalem þar sem byssumaður drap átta manns og særði níu í gærkvöldi. Mikil sorg ríkti meðal fólksins þegar gyðingaprestur fór með bænir yfir líkum fórnarlambanna í dag. Erlent 7.3.2008 11:39
Watson segir Japan hafa skotið á sig Paul Watson, leiðtogi samtakanna Sea Shepherd, segir að skotið hafi verið á sig í átökum samtakanna við japanska hvalveiðimenn í suðurhluta Kyrrahafs í morgun. Hann hafi hins vegar komist lífs af þar sem hann hafi verið í skotheldu vesti. Erlent 7.3.2008 10:50
Eitt af tunglum Satúrnusar einnig með hringi Nú bendir allt til þess að eitt af tunglum Satúrnusar hafi einnig hringi í kringum sig eins og móðurplánetan. Erlent 7.3.2008 10:40
Kjaraviðræður opinberra starfsmanna í Þýskalandi í strand Kjaraviðræður milli þýskra yfirvalda og forsvarsmanna opinberra starfsmanna sigldu í strand í dag og útlit er fyrir að þeim verði skotið til gerðardóms eða annars sáttasemjara. Erlent 7.3.2008 10:24
Nýtt heiðursmerki fyrir þýska herinn í bígerð Forseti Þýskalands hefur fallist á tillögu um að búið verði til nýtt heiðursmerki fyrir þýska herinn. Hinsvegar er ekki ætlunin að endurlífga Járnkrossinn. Erlent 7.3.2008 07:57
Varð getulaus eftir eilíft nöldur eiginkonunnar Ítalskur maður hefur krafið eiginkonu sína um 17 milljónir króna í skaðabætur. Ástæðan fyrir kröfunni er sú að eilíft nöldur konunnar hafi gert hann getulausan. Erlent 7.3.2008 07:55
Nígaragúa slítur stjórnmálasambandi við Kólombíu Nígaragúa hefur ákveðið að slíta stjórnmálasambandi sínu við Kólombíu og fylgir þar með í fótspor Ekvador og Venesúela. Erlent 7.3.2008 07:52
Mikið mannfall í sprenginum í Bagdad Að minnsta kosti 54 fórust í tveimur sprengjuárásum í Bagdad í gærkvöldi og um 130 liggja sárir eftir. Erlent 7.3.2008 07:45
Kona lést í mikilli sprengingu í Bramming á Jótlandi Kona lést og fleiri eru særðir í bænum Bramming á Jótlandi. Slökkviliðið í bænum barðist við mikinn eldsvoða í miðhluta bæjarins eftir að mjög öflug sprenging varð í pizzustað þar í morgun. Erlent 7.3.2008 07:36
Átta nemendur skotnir til bana í biblíuskóla Átta nemendur biðu bana og níu særðust þegar Palestínumaður hóf skothríð í biblíuskóla í vesturhluta Jerúsalem síðdegis í gær. Erlent 7.3.2008 07:03
Þýskir hermenn of feitir Þýskir hermenn eru feitir, reykja of mikið og æfa of lítið. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gerð var til að kanna ástand þýska hersins. Erlent 6.3.2008 21:13
55 látnir eftir skæðar sprengjuárásir Yfirvöld í Írak segja að 55 hafi látist og 130 til viðbótar særst eftir tvær sprengjur sem sprungu með skömmu millibili á verslunarsvæði í miðborg Bagdad í dag. Erlent 6.3.2008 19:52
Obama safnaði þremur og hálfum milljarði á einum mánuði Barack Obama, sem sækist eftir að verða forsetaframbjóðandi Demókrata í Bandaríkjunum, safnaði rúmum þremur og hálfum milljarði íslenskra króna í kosningasjóð sinn í febrúarmánuði einum saman. Erlent 6.3.2008 19:43
Eitra fyrir 100 þúsund hundum Yfirvöld í Kashmír héraði á Indlandi hafa byrjað að eitra fyrir 100 þúsund flækingshundum í herferð gegn hundaæði í helstu borg héraðsins. Erlent 6.3.2008 15:53
Helsti vopnasali heims handtekinn í Taílandi Rússneskur maður sem talið er að sé helsti ólöglegi vopnasali heims hefur verið handtekinn í Taílandi. Viktor Bout sem kallaður hefur verið „Kaupmaður dauðans“ var gómaður á lúxushóteli í Bangkok. Taílenska lögreglan var með handtökuheimild frá Bandaríkjunum þar sem hann er sakaður um að útvega vopn til kólumbískra uppreisnarmanna. Erlent 6.3.2008 14:25
Berlusconi víkur fyrir sælgætis- og sólgleraugnakóngum Auðkýfingurinn Silvio Berlusconi, fyrrverandi forsætisráðherra Ítatíu, er ekki lengur ríkasti maður Ítalíu ef marka má lista bandaríska tímaritsins Forbes yfir ríkustu menn heims. Erlent 6.3.2008 13:26
Mótmæltu hvalveiðum Japana Hvalaverndunarsinnar létu óánægju sína með hvalveiðar Japana í ljós í morgun þegar þeir klifruðu upp á japanska sendiráðsins í Lundúnum. Þar hengdu þeir borða með slagorðum gegn veiðunum. Hvalveiðar Japana verða eitt helsta umræðuefnið á sérstökum aukafundi Alþjóða hvalveiðiráðsins sem hófst í Lundúnum í morgun og stendur fram á laugardag. Erlent 6.3.2008 12:13
Hvalveiðiráðið vill sætta andstæðar fylkingar Alþjóða hvalveiðiráðið stefnir að fundi í London sem miðar að því að finna einhvern sameiginlegan flöt meðal þjóða sem eru með og á móti hvalveiðum. Erlent 6.3.2008 11:38
Sprengja sprakk á Times Square Sprengja sprakk á Times Square í New York nú fyrir skömmu. Sprengjan var lítil samkvæmt heimildum lögreglu og varð nálægt nýliðaskráningaskrifstofu hersins. Sjónvarpsstöðvar á svæðinu segja að enginn hafi slasast og ekki hafi orðið skemmdir á byggingum í sprengjunni. Erlent 6.3.2008 11:06
Morgnmaturinn heldur unglingum grönnum Ný rannsókn sem framkvæmd var í Bandaríkjunum sýnir að unglingar sem borða morgunmat að staðaldri eru 2,3 kílóum léttari að meðaltali en jafnaldrar þeirra sem sleppa morgunmatnum. Erlent 6.3.2008 11:02
Vonast til að opna landamærastöðvar á Kýpur Demetris Christofias nýr forseti á Kýpur segist vonast til að hitta leiðtoga tyrkneska hluta Kýpur seinna í mánuðinum til að endurvekja friðarviðræður. Christofias hefur þegar sagt að hann hafi óskað eftir að Sameinuðu þjóðirnar skipuleggi fund með Mehmet Ali Talat. Leiðtogarnir tveir hafa sagst vera bjartsýnir á að þeir gætu náð árangri í átt að sameiningu eyjarinnar. Erlent 6.3.2008 10:54
Ný ríkisstjórn tekur við völdum í Kenía Í dag tekur ný ríkisstjórn Kenía við völdum í Naíróbí. Nú er vika síðan tímamótasamkomulag náðist milli Mwai Kibaki forseta og Raila Odinga stjórnarandstöðuleiðtoga. Vonast er til að samkomulagið bindi enda á óöldina sem riðið hefur yfir landið í kjölfar umdeildra forsetakosninga í lok desember. Erlent 6.3.2008 09:40
Aldrei fleiri þrælar í heiminum Aldrei hafa fleiri manneskjur lifað við þrældóm en nú samkvæmt nýrri bók sem kemur út í dag. Erlent 6.3.2008 09:05
Olíuflutningaskip sökk undan ströndum Víetnam Hætta er á mikilli mengun undan ströndum Víetnam eftir að olíuflutningaskip sökk þar í nótt. Erlent 6.3.2008 08:30
Segja stjórnvöld hafa rænt hundruðum Tamíltígra Mannréttindasamtökin Human Rights Watch telja að stjórnvöld á Srí Lanka hafi á árinu 2006 rænt hundruðum af þegnum sínum og látið þá hverfa. Erlent 6.3.2008 08:12
Hillary vill berjast með Obama fyrir forsetaembættinu Hillary Clinton hefur gefið í skyn að hún sé tilbúin að berjast við hlið Barak Obama í komandi forsetakosningum. Erlent 6.3.2008 07:57
Lífskjör á Gaza-svæðinu ekki verri í 40 ár Lífskjör á Gaza-svæðinu eru nú þau verstu í 40 ár, segir í nýrri skýrslu nokkurra mannréttinda- og góðgerðasamtaka. Erlent 6.3.2008 07:31