Erlent

Gallabuxur varna ekki nauðgun

Fyrir níu árum síðan komst hæstiréttur Ítalíu við litla hrifiningu að þeirri niðurstöðu að það væri ómögulegt að nauðga konu í gallabuxum. Enda þótti ljóst að enginn gæti klætt konu úr þeim fatnaði án hennar samþykkis.

Erlent

Harður jarðskjálfti skekur Japan

Jarðskjálfti upp á 6,8 á Richterkvarða skók norðurhluta Japans fyrr í dag. Skjálftinn varð á 107 kílómetra dýpi 64 kílómetra austur af borginni Morioka á stærstu eyjunni Honsu. Kjarnakljúfum í stóru kjarnorkuveri á svæðinu var lokað um tíma eftir skjálftann, en þeir eru komnir í fullan gang aftur. Ekki er vitað um slys á fólki, og segja yfirvöld í Japan enga hættu á því að skjálftinn geti valdið fljóðbylgju.

Erlent

Færeyingur ólmur yfir veflottói

Færeyskur netverji úthúðar fjárhættuspilinu Free Lotto sem hann telur vera svik og pretti. Fyrirbæri þetta gengur út á að tölvupóstur er sendur á netfang viðkomandi og tilkynnt um að hann eigi milljónavinning, og jafnvel fleiri en einn, í vændum, gefi hann aðeins upp kortanúmer svo greiða megi reikninginn.

Erlent

Tilraunir NASA byggðar á líkum

Bandaríska geimferðastofnunin NASA notar mannslík við prófanir á nýja Orion-geimfarinu sem ætlað er að flytja menn til tunglsins að nýju árið 2020. Þrjú lík voru notuð við tilraunir við Ohio State-háskólann

Erlent

Dönsk ungmenni flykkjast enn í svall á Sunny Beach

Ferðamannastaðurinn Sunny Beach í Búlgaríu laðar enn að sér dönsk ungmenni þrátt fyrir að staðurinn hafi fengið mjög slæma umfjöllun í dönskum fjölmiðlum og víðar. Er hann annálaður fyrir svall og óheflaða skemmtanamenningu. Ofbeldi og nauðganir hafa einnig verið tíð þar og hefur staðurinn til dæmis gengið undir nafninu Nauðgunarströndin í norrænum fjölmiðlum.

Erlent

Hver er þessi Radovan Karadzic?

Fyrrum leiðtogi Bosníu-Serba Radovan Karadzic hefur lengi verið einn eftirlýstasti maður heims. Hann var handtekinn á föstudagsmorgun eftir næstum 13 ár á flótta. Á þeim tíma hefur Serbía legið undir miklum alþjóðlegum þrýstingi um að ná honum. „Loksins," segja margir sem enn eru með tárin í augunum. Karadzic er talinn eitt mesta illmenni síðari ára.

Erlent

Maóistar ekki í ríkisstjórn

Maóistar í Nepal munu ekki koma til með að taka þátt í nýrri ríkisstjórn þar í landi þrátt fyrir að vera með flest þingsæti. Búist var við að Maóistar myndu leiða nýja ríkisstjórn en þeir ákváðu að vera í stjórnarandstöðu eftir að frambjóðandi þeirra Ramraja Prasan Singh tapaði í forsetakosningum á mánudaginn. Maóistar segja að bandalag andstöðuflokkanna séu að halda þeim frá völdum.

Erlent

Karadzic bjó í Belgrad

Radovan Karadzic bjó í Belgrad í Serbíu og stundaði óhefðibundnar lækningar þegar hann var handtekinn. Hann vann á eigin stofu og hafði tekið upp nafnð Dragan Dabic.

Erlent

Karadzic handtekinn

Yfirvöld í Serbíu hafa handtekið einn af mest eftirlýstu stríðsglæpamönnum seinni tíma, Radovan Karadzic. Hann var samstundis færður fyrir stríðsglæpadómstól í Belgrad í samræmi við alþjóðlega stríðsglæpasáttmála. Þetta kemur fram í tilkynningu frá serbneskum yfirvöldum.

Erlent

Fimm létust í umferðinni í Danmörku í dag

Mæðgin létust í umferðarslysi í Haslund, suðaustur af Randers, i dag. Faðirinn og kornabarn eru í lífshættu. Móðirin sem er um þrítugt og fimm ára gamalt barn týndu lífi í dag í alvarlegu umferðarslysi við Hammelvej við Haslund, nærri Randers.

Erlent

Mótmæli biðu Sarkozy á Írlandi

Hundruðir manna mótmæltu við komu Frakklandsforseta, Nicolas Sarkozy, til Írlands í dag vegna ummæla hans um að Írar þyrftu að kjósa aftur um Lissabon-sáttmálann. Mótmælendur kölluðu „Nei þýðir nei!" þegar Sarkozy mætti að hitta forsætisráðherra Írlands, Brian Cowen.

Erlent

Mugabe og Tsvangirai búnir að skrifa undir

Robert Mugabe, forseti Simbabve og Morgan Tsvangirai leiðtogi stjórnarandstöðuflokksins, MDC hafa skrifað undir samkomulag um framhald viðræðna þeirra um hvernig megi vinna bug á þeirri stjórnmála-og efnahagskreppu sem er í Simbabve um þessar mundir.

Erlent