Erlent

Kóbraslanga í póstsendingu

Tollvörðum í Miami í Flórída brá í brún á miðvikudaginn þegar þeir opnuðu póstsendingu frá Taílandi og fundu í henni glerkrukku sem innihélt kóbraslöngu og nokkrar aðrar eitraðar slöngur í áfengisblöndu.

Erlent

Glæsivillur brunnu í skógareldi

Skógareldar í Kaliforníu virðast ekki vera í rénun og í gær urðu nokkrar glæsivillur í Santa Barbara eldi að bráð. Á annan tug þúsunda íbúa svæðisins hafa þurft að flýja heimili sín og hafa 5.400 heimili verið rýmd.

Erlent

Gætu eignast kjarnavopn á hálfu ári

Íranar gætu verið búnir að koma sér upp efniviði í kjarnorkusprengju eftir um það bil sex mánuði. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem nefnd á vegum öldungadeildar Bandaríkjaþings framkvæmdi.

Erlent

Er þetta Ívan grimmi?

Hinum 89 ára gamla John Demjanjuk hefur verið skipað af bandarískum yfirvöldum að gefa sig fram við útlendingastofnun svo hægt sé að flytja hann úr landi. Ástæðan - hann er grunaður um að vera Ívan hinn grimmi - nasisti sem er ábyrgur fyrir dauða 21 þúsund gyðinga í helförinni.

Erlent

Þrettán þúsund manns yfirgefa heimili vegna skógarelda

Þrettán þúsund manns í Kaliforníu, aðallega íbúar í bænum Santa Barbara, hafa þurft að yfirgefa heimili sín vegna skógarelda. Þrettán hundruð slökkviliðsmenn berjast við eldana. Lögreglan rannsakar upptök skógareldanna sem íkveikju.

Erlent

Gyðingamorðingja leitað

Lögreglan í Bandaríkjunum leitar nú logandi ljósi að brjálæðingnum Stephen Morgan en hann skaut og myrti Johannu Justin-Jinich sem var nemi í Háskólan Wesley í Middletown í Bandaríkjunum. Stephen skaut hana á bókakaffihúsi en áður hafði hann sent henni óhugnalega tölvupósta.

Erlent

Plataði fjölmiðla með færslu á Wikipedia

Írskur námsmaður falsaði tilvitnun í franskt tónskáld á vefsíðunni Wikipedia til þess að sýna framá að það geti verið varasamt að treysta upplýsingum á netinu. Fjölmargir virtir fjölmiðlar notuðu tilvitnunina.

Erlent

Elsti hundur heims 21 árs í gær

Elsti hundur heims fagnaði 21 árs afmæli sínu í gær en þar er um að ræða tíkina Chanel sem býr í New York. Chanel, sem er af svokölluðu dachshund-kyni, er þegar á síðum Heimsmetabókar Guinness fyrir háan aldur sinn en hundar lifa sjaldnast lengur en í 15 ár.

Erlent

Maður á sjötugsaldri grunaður um morð

Sextíu og fjögurra ára gamall maður hefur verið handtekinn, grunaður um að hafa orðið tæplega fimmtugri unnustu sinni að bana í Óðinsvéum í Danmörku. Dætur konunnar komu að henni látinni á heimili hennar á þriðjudag og taldi lögregla við frumrannsókn að hún hefði verið kyrkt.

Erlent

Kanadamenn sofa illa í kreppunni

Um þriðjungur Kanadabúa er farinn að þjást af svefnleysi og öðrum streitutengdum einkennum vegna efnahagsástandsins þar í landi. Þetta leiddi nýleg könnun ráðgjafafyrirtækis í ljós.

Erlent

Skógareldar geisa í Kaliforníu

Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í Santa Barbara í Kaliforníu eftir að skógareldar kviknuðu þar í gær og eyðilögðu að minnsta kosti sex heimili. Að auki voru um 2.000 íbúðarhús í útjaðri bæjarins rýmd til öryggis.

Erlent

Norður-Kóreumenn undirbúa tilraunasprengingu

Norður-Kóreumenn virðast nú vera að búa sig undir að sprengja kjarnorkusprengju í tilraunaskyni enda höfðu þeir hótað því eftir að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna fordæmdi tilraunaeldflaugarskot þeirra í byrjun apríl og greip til hertra refsiaðgerða gegn landinu.

Erlent

Vill betri tengsl við Vesturlönd

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, segist vilja góð samskipti við Vesturlönd þrátt fyrir alvarlegan ágreining í tengslum við heræfingar á vegum NATO, sem hófust í Georgíu í gær.

Erlent

Verður kynnt innan sex vikna

Bandaríkjastjórn vinnur nú að því, í samvinnu við alþjóðlega samningafulltrúa, að leggja drög að nýrri nálgun að friðarsamningum við Ísrael.

Erlent

Schwarzenegger fylgjandi umræðu

Arnold Schwarzenegger, ríkisstjóri Kaliforníu, segir að tími sé kominn til umræðu um það hvort sala kannabisefna skuli gerð lögleg í ríkinu.

Erlent

Samþykkti ESB-sáttmála

Efri deild tékkneska þingsins samþykkti í gær Lissabon-sáttmála Evrópusambandsins, sem er samningur um víðtækar endurbætur á sambandinu.

Erlent

Konur í svissneska varðliðið?

Páfagarður, AP Nýr yfirmaður svissneska varðliðsins í Páfagarði, Daniel Anrig, segist opinn fyrir þeim möguleika að raðir liðsins verði opnaðar fyrir konum. Enginn fyrirrennara hans hefur verið reiðubúinn að taka slíkt í mál.

Erlent

Jacob Zuma bar sigur úr býtum

Jacob Zuma, leiðtogi Afríska þjóðarráðsins, var í gær kjörinn forseti landsins af þjóðþinginu, sem samkvæmt stjórnarskrá velur forseta. Afríska þjóðarráðið vann stórsigur í þingkosningum í síðasta mánuði.

Erlent

Hengdu drengina upp á króka

Svíþjóð Hjón á fimmtugsaldri í Dölunum í Svíþjóð hafa verið ákærð fyrir ofbeldi gegn þremur drengjum sem þau voru með í fóstur á árunum 2004-2007.

Erlent

Evran verður allsráðandi

Finnar telja stöðugt vaxtastig, upptöku evru og ferðafrelsi til helstu kosta aðildar landsins að Evrópusambandinu fyrir fjórtán árum. Þetta kemur fram í könnun Samtaka aðila á vinnumarkaði þar í landi í nýliðnum mánuði.

Erlent

Bandaríkjamenn biðjast afsökunar

Blóðug loftárás Bandaríkjahers á almenna borgara í Afganistan varpaði skugga á fund Baracks Obama Bandaríkjaforseta með forsetum Afganistans og Pakistans, sem heimsóttu hann í Hvíta húsið í gær. Hamid Karzai, forseti Afganistans, hefur ítrekað gagnrýnt Bandaríkjaher fyrir árásir sem þessa og gerði atburðina á mánudag að meginefni viðræðna þeirra.

Erlent

Dóttir Söru Palin predikar skírlíf

Bristol Palin, nítján ára gömul dóttir Söru Palin sem bauð sig fram sem varaforsetaefni Bandaríkjanna fyrir Repúblikana, er nú farinn að boða skírlíf. Dóttir ríkissstjórans í Alaska, eignaðist barn á síðasta ári en það þótti heldur vandræðalegt fyrir Söru Palin, enda í miðju framboði þegar fregnirnar urðu opinberar, enda Repúblikanar heldur íhaldsamari en Demókratarnir.

Erlent

Hommahatari í mál við Breta vegna bannlista

Bandaríski útvarpsmaðurinn Michael Savage er einn af þeim sextán sem bresk yfirvöld hafa bannað að koma til landsins vegna skoðanna sinna og gjörða. Michael er útvarpsmaður og ötull andstæðingur samkynhneygðar. Á listanum eru nöfn mið-austurlenskra hryðjuverkamanna og morðingja - og svo nafnið hans Michaels.

Erlent

Ísraelar gagnrýna Bandaríkjamenn

Ísraelska utanríkisráðuneytið hefur gagnrýnt Bandaríkjamenn fyrir að hvetja landið til þess að gerast aðili að sáttmálanum við bann um dreifingu kjarnorkuvopna.

Erlent

Búið að ráða í besta starf í heimi

Þrjátíu og fjögurra ára gamall Breti varð hlutskarpastur í kapphlaupinu um „besta starf í heimi", eins og það var auglýst, en þar er um að ræða starf umsjónarmanns á ástralskri paradísareyju.

Erlent